Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 22
42 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000 r>v Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára_________________________________ Ástrún Jónsdóttir, Suöurgötu 20, Keflavík. Þórunn Þorvaröardóttir, Kleppsvegi 120, Reykjavík. 85 ára_________________________________ Ólöf Jóhannesdóttir, Oddeyrargötu 12, Akureyri. 80 ára_________________________________ Árni Þór Jónsson, Lindargötu 57, Reykjavík. 75 ára_________________________________ Auöunn Auöunsson, Valhúsabraut 31, Seltjarnarnesi. Guðmundur Jónsson, Þorsteinsgötu 11, Borgarnesi. 70 ára_________________________________ Erla Eyjólfsdóttir, Suöurgötu 3, Sandgeröi. 50 ára_________________________________ í Atli Wilson, Starmýri 5, Neskaupstað. Ingibjörg Ólafsdóttir, Neöstaleiti 2, Reykjavík. Ingvi Þór Sigurðsson, Kirkjubraut 54, Höfn. Jófríöur Guöjónsdóttir, Lautasmára 6, Kópavogi. Jóhann S. Vilhjálmsson, Hverfisgötu 61, Reykjavík. Jón Stefán Karlsson, Aflagranda 35, Reykjavík. Jónbjörn Þórarinsson, Hólavegi 6, Sauðárkróki. Kristjana Höskuldsdóttir, Sandholti 20, Ólafsvík. Magnús Þorkelsson, Stekkjarhvammi 7, Hafnarfiröi. 40_ára_________________________________ Ásdís Þorvaldsdóttir, Bæjargili 75, Garöabæ. Eövarö Ingólfsson, Laugarbraut 3, Akranesi. Guömundur Ásgeir Guömundsson, Eyjavöllum 10, Keflavík. Hugrún Þorgeirsdóttir, Leirutanga 37b, Mosfellsbæ. Linda Hildur Leifsdóttir, Hringbraut 58, Hafnarfiröi. Svanlaug D. Thorarensen, Álfheimum 32, Reykjavík. ------//////J Smáauglýsinga deild DV m er opin: & • virka daga kl. 9-221 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl, 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga erfyrir kl. 22 kvölaið fyrir birtingu. Alh. Smáauglýsing í Helgarblaö DV verður þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. oW milii hirmn. ii - mi 6 of 'Q. % Smáauglýsingar 550 5000 Andlát Sigurlaug Björg Pétursdóttir, Obdams, Allé 7, Kaupmannhöfn, lést á Amager hospitalet þriðjudaginn 18.4. s.l. Olga Ellen Ludvigsdóttir, lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnudaginn 9.4. Bálför hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. / IJrval - í stuttu máli sagt Þóra Einarsdóttir fyrrv. formaður Verndar Frú Þóra Einarsdóttir Lífsstarf Þóru hefur bjargað miklum fjölda barna frá hörmungum og dauða. Hún var einstakur mannvinur og vann ótrúleg afrek í sínu mikla hjálparstarfi. Frú Þóra Einarsdóttir, fyrrv. for- maður Vemdar, Dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, lést 14.4. sl. Hún verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, þriðju- daginn 25.4., kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afbeðnir en þeir sem vildu minnast hennar skal bent á Indversku barnahjálpina. Starfsferill Þóra fæddist á Hvanneyri en flutti tólf ára með foreldrum sínum til Akraness. Þóra útskrifaðist úr Samvinnu- skólanum 1931 og hlaut framhalds- menntun í Danmörku, m.a. í félags- ráðgjöf. Þóra var ein af stofnendum Verkakvennafélags Akraness og 1959 var hún aðalhvatamaður að stofnun Félagasamtakanna Verndar og síðan formaður þeirra og fram- kvæmdastjóri í tuttugu og þrjú ár. Eftir að Þóra lét af störfum hjá Vernd hóf hún nám i Alþjóðaskóla Guðspekifélagsins i Adyar í Madras á Indlandi. Frá árinu 1987 starfaði hún i tengslum við skólann fyrir munaðarlaus og holdsveik böm á Indlandi, fyrst með móður Teresu og síðar i samvinnu við munka- reglu St. Benediktsbræðra. Þóra starfrækti síðan Indversku barnahjálpina, sem hún var formað- ur fyrir, sjálfstæða hjálparstofnun sem rekur skóla fyrir börn í Madras. Fjölskylda Þóra var gift Jóni Péturssyni, f. 1.3. 1896, d. 23.1. 1973, presti og pró- fasti á Kálfafellsstað í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu, síðar kenn- ara í Reykjavík. Hann var sonur Péturs Jónssonar, prests á Hálsi í Fnjóskadal og á Kálfafellsstað í Suð- ursveit, og k.h., Helgu Skúladóttur, húsmóður frá Sigríðarstöðum i Fnjóskadal. Börn Þóru og Jóns eru Pétur, f. 12.1.1938, framkvæmdastjóri stjórn- unarsviðs Ríkisspítalanna, var kvæntur Kolbrúnu Valtýsdóttur BA, þau skildu, og er þeirra sonur Jón, en Pétur er nú kvæntur Valdísi Erlendsdóttur þroskaþjálfa og eiga þau Brynjólf og Þóru; Helga Jar- þrúður, f. 22.2. 1939, húsmóðir í Reykjavík, var gift sr. Oddi Thorarensen, þau skildu, og eignuð- ust þau Jóhann og Óskar; Einar Guðni, f. 13.4. 1941, prestur í Árnesi og Sauðsholti, nú á Kálfafellsstað í Suðursveit, var kvæntur Jórunni Oddsdóttur húsmóður og er kjör- sonur þeirra Sigurkarl, en er nú kvæntur Sigrúnu Björnsdóttur kennara en fyrir átti hún Bjarka, Brján og Kristján. Systkini Þóru: Hulda, nú látin, kaupkona í Reykjavík, var gift Kláusi Eggertssyni skrifstofumanni og eignaðist hún fjögur börn; Þór- dís, nú látin, var gift Guðbjarti H. Stephensen skipstjóra, sem einnig er látinn, og eignuðust þau eina dóttur; Guðlaug, húsmóðir í Bifröst, ekkja eftir sr. Guðmund Sveinsson skólameistara og eignuðust þau þrjár dætur; Sigurlín, tannsmiður í Danmörku, ekkja eftir Kaj W. Jen- sen, mjólkurfræðing og kaupmann, og eignuðust þau þrjú börn; Anna, húsmóðir á KiðafeÖi í Kjós, nú látin en eftirlifandi maður hennar er Hjalti Sigurbjörnsson, bóndi á Kiða- felli, og eignaðist hún fimm börn; Beta, hjúkrunarfræðingur og hús- móðir í Hrísey og á Kálfafellsstað, gift sr. Fjalari Sigurjónssyni, sókn- arpresti og prófasti, og eiga þau tvö börn; Hildur, bókavörður í Kópa- vogi, var gift Magnúsi Björnssyni trésmíðameistara, sem nú er látinn, og eignuðust þau sex börn; Hjördis rithöfundur, búsett í Reykjavík, gift Sveini Þ. Þorsteinssyni skrifstofu- manni og eiga þau eina dóttur. Foreldrar Þóru voru Einar Jóns- son, f. 21.4.1885, d. 29.7.1969, fyrrum kennari á Hvanneyri, síðar yfir- vegavinnuverkstjóri á Austijörðum og k.h. Lísbet Guðbjörg Kristjáns- dóttir, f. 12.1. 1888, d. 1979, húsmóð- ir. Ætt Einar var sonur Jóns, b. á Bónda- stöðum í Hjaltastaðaþinghá, bróður Hjörleifs, pr. á Undirfelli, fóður Ein- ars Kvarans skálds. Jón var sonur Einars, pr. í Vallanesi, Hjörleifsson- ar, pr. á Hjaltastöðum, Þorsteins- sonar. Móðir Jóns var Þóra Jóns- dóttir vefara Þorsteinssonar, bróður Hjörleifs á Hjaltastöðum. Lísbet Guðbjörg var dóttir Krist- jáns, b. í Norður-Bár í Eyrarsveit, Þorsteinssonar, og Sigurlínar Þórð- ardóttur. Guðmundur Sigurðsson húsasmiður í Kópavogi Guðmundur Sigurðsson húsa- smiður, Hlíðarvegi 3, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann varð húsa- smiður árið 1948 og húsasmíða- meistari árið 1951. Guðmundur starfaði við húsbygg- ingar á árunum 1944-75 en sama ár gerðist hann húsvörður í Víghóla- skóla í Kópavogi og starfaði hann þar í íjögur ár. Fjölskylda Guömur lur kvæntist Ólöfu Dóm- hildi Jóhannsdóttur, f. 27.7. 1930, húsmóður og starfsleiðbeinanda. Hún er dóttir Jóhanns Karlssonar, f. 1903, d. 1979, forstjóra í Reykjavík og í Hveragerði, og Unnar Ólafsdótt- ur, f. 1908, d. 1964, húsmóður. Böm Guðmundar og Ólafar eru Aldís, f. 20.2. 1950, deildarstjóri í ut- anríkisráðuneytinu, gift Jörgen Pind, prófessor í sálfræði við HÍ; Jó- hann, f. 13.4. 1952, húsasmíðameist- ari og húsvörður, kvæntur Pálínu Geirharðsdóttur ræstitækni; Sig- urður, f. 1954, d. 1955; Ólafur, f. 23.4. 1959, bamageðlæknir og yflrlæknir á Barna- og unglingageð- deild Land- spítalans, kvæntur Sig- ríði Eyjólfsdóttur lyfjafræðingi og eiga þau þrjú börn. Systkini Guðmundar: Sigurjón Sigurðsson, kaupmaður í Reykja- vík; Kristinn Sígurðsson, f. 31.8. 1914, d. 18.1 1997, húsasmiður í Reykjavík; Guðfinna Sigurðardóttir, f. 12.2. 1918, d. 21.6.1937; Svavar Sig- urðsson, f. 8.10. 1920, vélvirki í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sam- mæðra: Ólafur Jónasson, f. 1.3.1908, d. 18.11. 1974, húsgagnasmiður í Reykjavík; Svava Jónasdóttir, f. 26.9. 1911, d. 25.2. 1922. Foreldrar Guðmundar voru Sig- urður Þorvarðarson, f. 27.8. 1873, d. 1.3.1945, sjómaður og heiðursfélagi i Sjómannafélagi Reykjavíkur, og Ólöf Ólafsdóttir, f. 22.10 1887, d. 12.11. 1966, húsmóðir. Sigurður var sonur Þorvarðar Finnbogasonar, hreppstjóra í Hæk- ingsdal í Kjós, og Helgu Sigurðar- dóttur. Ólöf var dóttir Ólafs Guðmunds- sonar og Aldísar Jónsdóttur. Eygló Sigurlaug Gunnlaugsdóttir ræstitæknir og húsmóðir Eygló Sigurlaug Gunn- laugsdóttir, ræstitæknir og húsmóðir, Grenigrund 20, Selfossi, er fimmtug í dag. Starfsferill Eygló Sigurlaug fædd- ist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún var í barnaskóla í Vestmanna- eyjum, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Vestmanna- eyjum 1967 og fór síðan til Reykja- víkur og stundaði nám við Hús- mæðraskóla Reykjavíkur veturinn 1968-69. Eygló Sigurlaug flutti til Selfoss og starfaði þar við Hótel Tryggvaskála í nokkur ár. Eygló Sigurlaug var húsfreyja og bóndi að Eyði-Sandvík í Flóa á ár- unum 1970-99 en flutti þá hún til Selfoss. Fjölskylda Eygló Sigurlaug giftist 15.8. 1970 Sigurði Guðmundssyni, f. 2.5. 1936, fyrrv. bónda í Eyði-Sandvík. Hann er sonur Guðmundar Jónssonar, f. 22.11. 1896, d. 26.2. 1982, bónda í Eyði-Sandvík, og k.h., Kristínar Bjarnadóttur, f. 11.6. 1898, d. 23.2. 1995, húsfreyju þar. Sonur Eyglóar Sigur- laugar og Sigurðar er Guðmundur Sigurðsson, f. 9.8. 1989, nemi. Systkini Eyglóar Sigur- laugar eru Erling Gunn- laugsson, f. 30.8. 1944, lengst af bílaskoðunarmaður en er nú tæknimaður og starfar við lög- gildingar hjá Frumherja hf., búsett- ur á Selfossi; Katrín Erla Gunn- laugsdóttir, f. 8.6.1946, húsmóðir og starfsmaður við mötuneyti Sjúkra- húss Suðurlands á Selfossi, búsett á Selfossi; Áskell Gunnlaugsson, f. 26.4. 1948, húsasmíðameistari og starfsmaður hjá P. Samúelsson hf., búsettur á Selfossi; Ásta Gunnlaugs- dóttir, f. 9.2. 1955, starfrækir garð- yrkjustöð og stundar blómaræktun, ásamt eiginmanni sínum, búsett í Hveragerði. Foreldrar Eyglóar Sigurlaugar voru Gunnlaugur Gunnlaugsson, f. 13.10. 1906, d. 7.6. 1992, bif- reiðarstjóri, og Sigríður Ketilsdótt- ir, f. 8.8. 1915, d. 9.5. 1998, húsmóðir. MerKir Islendingar Jón J. Aðils, sagnfræðingur og alþingis- maður, fæddist 25. apríl 1869 í Mýrar- húsum á Seltjamarnesi. Hann ólst upp í Nesi við Seltjöm hjá frænda sínum, Páli Guðmundssyni, en foreldrar Jóns voru Jón Sigurðsson, bóndi í Mýrarhúsum, og 2. k.h., Guðfinna Björnsdóttir hús- freyja. Jón lauk stúdentsprófl frá Lærða skólanum 1889, hóf nám í læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla en hvarf frá þvi námi og tók að stunda sagn- fræði. Hann stundaði rannsóknir i Kaupmannahöfn á íslenskri sögu 18. ald- ar og starfaði jafnframt við uppskrift skjala i ríkisskjalasafni Dana til 1897. Jón var búsettur í Reykjavík lengst af, stund- Jón Jónsson Aðils aði kennslu, flutti alþýðufyrirlestra, var bókavörður við Landsbókasafnið, sögu- kennari við Háskóla íslands frá stofnun hans 1911, dósent þar til 1919 og síðan prófessor. Hann var heiðursdoktor við Háskóla Islands frá 1919. Jón var alþingismaður Reykvíkinga fyrir Heimastjórnarflokkinn og Sam- bandsflokkinn 1911-1913. Hann sat í fánanefndinni 1912-1913 og naut styrks til ritstarfa frá Alþingi um langt skeið. Þekktustu rit hans um sögu íslands eru íslandssaga, útg. 1915, og Einokunar- verslun Dana á íslandi, útg. 1917. Eiginkona Jóns var Ingileif Snæbjarnar- dóttir húsmóðir. Jón lést 5. júlí 1920. Hrafnhildur Lára Benediktsdóttir, andaðist á Landspítalanum föstudaginn 14.4. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 25.4. kl. 15.00. Jóna Sigrún Sveinsdóttir, Lindarsíöu 2, Akureyri, andaöist á heimili sínu sunnud. 16.4. sl. Útförin fer fram frá Glerárkirkju miðvikud. 26.4. kl. 10.30. Anna Vigdís Ólafsdóttir, Miöleiti 7, Reykjavtk, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikud. 12.4. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 25.4. kl. 13.30. Kristín Sigurbjörnsdóttir, Suðurgötu 8, Keflavík, veröur jarðsungin frá Fossvogs- kapellu miövikud. 26.4. kl. 13.30. Haraidur Sigurgeirsson, Spítalavegi 15, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju miðvikud. 26.4. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.