Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000
9
x>v
Neytendur
Könnun á verðlagi í myndbandaleigum:
Vídeóholtið í Hafnar-
firði er ódýrast
- með lægsta verð alls staðar
Myndbandaleigan Videóholtið i
Hafnarfirði er með lægsta verðið af
þeim leigum sem lentu i könnun
DV. Samtals var haft samband við
tólf myndbandaleigur út um allt
land. Þær eru: Toppmyndir, Eddu-
felli, Reykjavík, Vídeóhölliin, Lág-
múla, Reykjavík, Vídeóborgin,
Hólabraut, Akureyri, Myndbanda-
leigan, Amarbakka, Reykjavík,
Vídeóleiga Eskifjarðar, Strandgötu,
Eskifirði, Bónusvídeó, Mávahlíð,
Reykjavík, Snævarsvídeó, Höfða-
bakka, Reykjavík, Vídeóhöllin,
Garðatorgi, Garðabæ, Vídeóleigan
Dynskálum lOc, Hellu, Vídeóheim-
ar, Gylfaflöt, Reykjavík, Myndberg,
Nethyl, Reykjavík og Vídeóholtið,
Melabraut, Hafnarfirði.
Ný spóla, gömul og DVD
Spurt var um verð á nýjum
myndbandsspólum og það hvort
gömul fylgdi með í kaupunum. Þá
var spurt um verð á gömlum mynd-
bandsspólum og loks um leiguverð á
DVD-diskum sem hægt er að spila í
tölvum og eru nú að ryðja sér til
rúms á markaðinum.
Ný spóla ódýrust í
Vídeóholtinu
Ódýrasta nýja spólan fékkst í
Videóholtinu í Hafnarfirði þar sem
hún kostaði 350 kr. Þar fylgir gömul
spóla með í kaupunum. Nokkrar
leigur bjóða nýja spólu á 400 kr. og
gamla spólu með. Þetta eru Mynd-
berg í Nethyl, Bónusvídeó í Máva-
hlíð, Myndbandaleigan i Arnar-
bakka og Toppmyndir í Eddufelli.
Vídeóleigan Dynskálum á Hellu
býður nýja spólu einnig á 400 kr. en
þar fylgir ekki gömul spóla. Vídeó-
höllin i Garðabæ býður sömuleiðis
nýja spólu á 400 kr. Ef menn vilja
gamla spólu með, kostar það 50 kr.
aukalega. í Vídeóborginni á Akur-
eyri er ný spóla á 450 kr. og fylgir
gömul spóla með í kaupunum. Þrjár
myndbandaleigur bjóða sömuleiðis
nýja spólu á 450 kr. en þar fylgir ekki
gömul spóla. Þetta eru VídeóhöOin i
Lágmúla, Vídeóleiga Eskiflarðar og
Vídeóheimar. Loks er Snævarsvídeó
með nýja spólu á 450 kr., en þar þarf
að borga 50 kr. aukalega tU að fá
gamla spólu með hinni nýju.
Þrjár eru þó með mismunandi
verð eftir aldri spólnanna. Þetta eru
VídeóhöUin Lágmúla, Videóborgin á
Akureyri og Vídeóleiga Eskifjarðar.
í VídeóhöUinni í Garðabæ og
Vídeóborginni á Akureyri kosta
gamlar spólur 200 kr. og 350 kr., en í
Vídeóleigu Eskifjarðar kosta þær 200
eða 300 kr.
Dýrast í Vídeóheimum
og Vídeóleigunni
Aðrar leigur bjóða eitt verð eins
og fyrr segir. Af þeim er ódýrasta
spólan í Vídeóholtinu, á 200 kr.
Fimm leigur bjóða gamlar spólur á
250 kr. Það eru Toppmyndir, Mynd-
bandaleigan, Bónusvídeó, Snævar-
svídeó og Myndberg. Tvær leigur
eru efstar og jafnar. Þetta eru Víd-
Afþreyingin valin
Mjög misjöfn kjör eru í boöi á íslenskum myndbandaleigum. Ódýrast
er aö leigja sér mynd í Vídeóholtinu í Hafnarfirði.
Góð ráð við blettahreinsun:
Smurolían burt
með steinolíu
Ef svört smurolía eða önnur slík
olía fer í fatnað er ráð að reyna við-
eigandi blettahreinsiefni. Ef þau eru
ekki tiltæk má reyna að bera venju-
legan uppþvottalög á blettinn og
láta hann liggja þar í 4-6 klst. Að
því loknu er gott að láta gufu leika
um blettinn. Þvoið síðan ílíkina. Ef
smurolía fer í gólfteppi er gott að
væta hreinan klút með steinolíu og
nudda strax blettinn með honum
þangað til ekki er hægt að fjarlægja
meiri lit. Yflrleitt er ekki hægt að
fjarlægja bletti af þessu tagi úr
ljósu, flosofnu ullarteppi ef blettur-
inn hefur setið í teppinu lengur en
klukkutíma.
Kaffi í fötin
Ef kaffi sullast í fötin má reyna
að losna við blettinn með því að
halda flíkinni undir vatnsbunu og
nudda um leið.
Gamla kafflbletti er yfirleitt hægt
að losna við í þvottavél ef þvo má
efnið við 95 gráðu hita. Ef efnið þol-
ir aðeins lægri hita verður að taka
blettinn til meðferðar áður en það
er þvegið.
Dýfið blettinum í nýmjólk. Ef þvo
má efnið við 60 gráður á þetta að
duga en að öðrum kosti skal láta
uppþvottalög á blettinn og ]>vo síðan
flíkina.
To'ppmyniditt Eddufetli 4&0 Ctömul myntl 250 450
VídeóhötEín Lágmúta 4-50 275 EkklU
Videói>orgin Akuteyrí 450 275 450
MyniCtbaReialetgaR krnarbakks r 400 250 «4
Vídeóieiga Eskiffaróar 450 250 450
Bónusvídeó Mávahti&’' 400 250
Snævarsvídeó Hóföabakka* * 450 250 450
Vídeóhötlín Garöabæ*r 400 250 400
Vídieötetgari Hellu 40'0 300 400
Videóhetmar Gylfaflót 450 300 450
Myrtdiberg Kethyl' 400 250 zm
Vídeóhoíttð Hafnafföröur 350 200 400'
Vídeóheimar og Vídeóleigan Dyn-
skálum, Hellu. Þar kostar gömul
spóla 300 kr.
Vöxtur í DVD
Mikill vöxtur er í útleigu á DVD-
diskum i myndbandaleigum bæjar-
ins og fjölgar þeim sífellt sem bjóða
upp á DVD. Tvær af hverjum þrem-
ur leigum sem DV hafði samband
við vegna könnunarinnar buðu
myndbönd á DVD-diskum og fátt
bendir til annars en að aukningin
þar haldi áfram.
Verðlag á DVD er enn fremur
hátt miðað við það sem gerist í verð-
lagningu á venjulegum myndbands-
spólum og kosta ýmist 400 eða 450
kr. hjá þeim leigum sem bjóða DVD.
DVD-diskarnir eru á 400 kr. hjá Víd-
eóholtinu í Hafnarfirði, Vídeóhöll-
inni í Garðabæ og Vídeóleigunni
Dynskálum á Hellu. DVD er hins
vegar á 450 kr. í myndbandaleigun-
um Toppmyndum, Vídeóborginni á
Akureyri, Vídeóleigu Eskifjarðar,
Snævarsvídeói og Vídeóheimum.
Misjöfn hjör
Ljóst er af þessari verðkönnun að
misjafnt er hve mikið þarf að borga
fyrir afþreyinguna. Þó skal hér tek-
ið skýrt fram að ekki er verið að
mæla gæði þjónustunnar og ekki er
heldur spurt um afsláttarkjör fyrir
fasta viðskiptavini sem margar
leigur bjóða. Flestar myndbanda-
leigur bjóða svipað verð á þeim lið-
um sem spurt var um i könnuninni
og fátt sker sig sérstaklega úr nema
Vídeóholtið í Hafnarfirði sem býð-
ur bestu kjörin samkvæmt þessari
könnun. -HG