Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2000, Side 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
I>V
Stoltenberg
Segir miklar iaunahækkanir hjá
forsvarsmönnum fyrirtækja eiga
stóran þátt í verkfallinu.
Verkfall í Noregi
Klukkan sex í morgun hófst um-
fangsmesta verkfall í Noregi síöan
1986 þegar um 82.000 manns lögðu
niður vinnu. Norömenn hafa á und-
anfómum dögum hamstrað matvör-
ur, einkum vín, bjór og ferskvöru,
enda er talið að verkfallið geti dreg-
ist á langinn. Norðmenn hafa á und-
anfómum árum keyrt yfir landa-
mærin til Svíþjóðar tO að kaupa vör-
ur á betri kjörum - sérstaklega í ljósi
þess að matvara hefur lækkað á und-
anförnum árum þar í landi - en dag-
ana fyrir verkfallið hefur álagið þó
aukist til muna. í skoðanakönnun
sem gerð var i Noregi kom fram að
mikill meirihluti landsmanna setur
launahækkanir á oddinn í kjarabar-
áttunni á meðan mikill minnihluti
telur fimmtu frívikuna vega þyngst.
Viðsemjendur höfðu lagt fram tilboð
um 4 prósenta launahækkun og
flmmtu frivikuna en því var hafnað.
Ljóst er að ef verkfallið dregst á
langinn mun það koma illa niður á
atvinnuvegunum.
Gaddafi:
Líbýa tengist
ekki Lockerbie-
árásinni
Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi
sagði í sjónvarpsviðtali við Sky-sjón-
varpsstöðina í morgun að Líbýa
hefði ekkert haft að gera með
Lockerbie-árásina. Réttarhöld hófust
í morgun í Hollandi yfir tveimur Lí-
býumönnum vegna árásarinnar þeg-
ar farþegaþota Pan American-flugfé-
lagsins sprakk yfir bænum Locker-
bie í Skotlandi fyrir 11 árum.
Saksóknarar segja að Líbýumenn-
imir, sem voru leyniþjónustumenn,
hefðu í desember 1988 falið semtex-
sprengiefni í útvarps- og segul-
bandstæki sem sett var í ferðatösku.
259 farþegar, þar af 189 Banda-
ríkjamenn, létust í árásinni og 11
íbúar bæjarins Lockerbie. Hinir
ákærðu neita öllum sakargiftum.
Þeir segjast einungis hafa verið
venjulegir flugfélagsstarfsmenn.
Gíslatakan á Filippseyjum:
Harðir bardagar við
skæruliða halda áfram
Til harðra átaka kom í gær á
milli stjómarhers og múslímskra
skæruliða sem halda 21 manni í
gíslingu á Suður-Filippseyjum.
Landstjórinn í Súlú-héraði,
Abdusakur Tan, hefur neitað full-
yrðingum skæruliða um að tveir
gíslanna hafi látið lifið í átökunum.
Ónefndur maður hringdi í útvarps-
og sjónvarpsstöðvar þar í landi í
gær þar sem hann sagðist vera tals-
maður skæruliðasamtakanna Abu
Sayyaf og sagði hann einn gíslanna
- karlmann - hafa látist af skotsár-
um i árásinni og að kona heföi dáið
úr hjartaáfalli.
Stjómarherinn hefur umkringt
búðir skæruliða en til bardaga kom
á þriðjudagskvöld eftir að samn-
ingaviðræður fóru út um þúfur.
Tveir hermenn létust og sex slösuð-
ust en talsmenn hersins segja tölu
þeirra sem létust úr röðum skæru-
liða enn á huldu.
Á sama tíma og bardagarnir áttu
Liösauki berst
Fullfermi af hermönnum komiö til
Joloæyju til aö berjast viö skæruiiða.
sér stað sprungu fjórar sprengjur
samtímis í borginni General Santos
og særðu um 20 manns.
Um 80 manns hafa látist síðan
bardagarnir hófust fyrr í vikunni og
eru þetta sögð vera verstu átök á
milli stjórnarhers og múslímskra
aðskilnaðarsinna síðan friðarsátt-
máli var undirritaður milli beggja
aðila árið 1996.
Aðskilnaðarsinnar og Abu Sayyaf
hafa krafist sjálfstjómar og neita að
ræða við stjórnvöld á öðrum for-
sendum.
Aðalsamningamaður fyrir hönd
filippseysku ríkisstjómarinnar
sagði í samtali að skæruliðarnir
hefðu fært sig um set og tekið gisl-
ana með sér. „Þetta er einmitt það
sem við vildum að myndi ekki ger-
ast,“ sagði Nur Misuari við frétta-
menn. „Ég sagði aö um leið og skot-
bardagar hæfust myndu þeir flytja
gíslana um set þar sem það væri nú
þegar vitað hvar þeir væru.“
\Ú, ;
Drottning í heimsókn
Margrét Þórhildur Danadrottning og Hinrik prins heimsóttu í gær ráöhúsiö í Toulouse í Frakklandi. Hér eru þau meö
borgarstjóranum, Dominique Baudis.
UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stlllholti 16-18, Akranesi, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Presthúsabraut 31, Akranesi, þingl. eig. Ragnheiður Gunnarsdóttir, gerðarbeið- endur Akraneskaupstaður og íbúðalána- sjóður, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00.
Reynigrund 13, Akranesi, þingl. eig. Guðmundur Rúnar Davíðsson, gerðar- beiðandi Búnaðarbanki íslands hf., Akra- nesi, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00. Reynigrund 24, 75,34% eignarhluti, Akranesi, þingl. eig. Helga Atladóttir, Agnar Guðmundsson og Sigríður Kristín Óladóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands hf., Akranesi, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00.
Einigrund 3, hluti 0101, þingl. eig. Emir Freyr Sigurðsson og Eydís Auðunsdóttir, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00. Heiðargerði 24, efri hæð, Akranesi, þingl. eig. Brynjar Þorlákur Emilsson, gerðar- beiðendur Búnaðarbanki Islands hf., Akranesi, og Rafmagnsveitur ríkisins, Reykjavík, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00.
Suðurgata 120, Akranesi, þingl. eig. Lár- us Óskarsson, gerðarbeiðandi íbúðalána- sjóður, þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00.
Kirkjubraut 12, Akranesi, þingl. eig. Mar- ía Jósefsdóttir, gerðarbeiðendur Akranes- kaupstaður og Vátryggingafélag íslands hf. þriðjudaginn 9. maí 2000, kl. 14.00. Vallholt 11, efri hæð, Akranesi, þingl. eig. Þórdís Kristjánsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissj. starfsm. rík., B-deild, þriðju- daginn 9. maí 2000, kl. 14.00. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Rauði Ken lýsti yfir
stuðningi við evruna
Ken Livingstone, sem kallaður er
Rauði Ken, sagði á fundi með helstu
kaupsýslumönnum Bretlands í gær
að hann væri hlynntur evrunni.
Fyrir nokkmm vikum sagði
Livingstone, sem að öllum líkindum
verður kjörinn borgarstjóri London
á morgun, að alþjóðlegir kaupsýslu-
menn hefðu drepið fleiri en heims-
styrjöldin síðari.
Sagði Livingstone á fundinum í
gær að ekki ætti að bíða með aðild
að evrópska myntbandalaginu eins
og breska stjómin vill gera. Stjórn-
in vill bíða þar til réttum efnahags-
skilyrðum hefur verið náð.
Livingstone, sem var rekinn úr
Verkamannaflokknum fyrir að
bjóða sig fram á eigin vegum, sagði
að atvinnutækifæri töpuðust í
London vegna sterkrar stöðu punds- Ken Llvlngstone
ins. Daörar viö kaupsýslumenn.
Stuttar fréttir
Lítill árangur af viðræðum
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, og Bertie
Ahern, forsætisráð-
herra írlands, hittu
í gær leiðtoga
helstu stjórnmála-
flokkanna á N-ír-
landi í London í
gær. Lítill árangur varð af viðræð-
unum. Reyna á aftur síðar í vikunni
að blása nýju lífi í friðarferlið.
Tugir létust í ferjuslysi
Að minnsta kosti 43 létust þegar
tvær ferjur sukku á Meghnaánni í
austurhluta Bangladesh á mánudag-
inn. Um 100 er saknað eftir slysið.
Risakauphöll
Kauphallirnar í London og
Frankfurt staðfestu í morgun sam-
runa til að mynda risakauphöll í
Evrópu.
Morð í Zimbabwe
Stuöningsmenn stjómar Mugabes
Zimbabweforseta myrtu í gær and-
stæðing stjómarinnar. Nú hafa að
minnsta kosti 15 verið myrtir í of-
beldisaðgerðum stuðningsmanna
forsetans undanfarnar níu vikur.
Fólksfækkun í A-Evrópu
Fæðingum í Evrópu hefur fækkað
svo mikið að óttast er að íbúamir
verði orðnir þriðjungi færri eftir
hálfa öld.
Gæsluliðum rænt
Fyrrverandi uppreisnarmenn í
Sierra Leone hafa rænt 14 friðar-
gæsluliðum Sameinuðu þjóðanna og
3 óbreyttum borgurum.
Hlustið á táningana
Á ráðstefnu um
táninga í Hvíta hús-
inu í Washington í
gær var lögð
áhersla á að hlustaö
yrði á táninga og
þeir látnir sinna
störfum sinum.
Hillary Clinton
sagði enga Bandaríkjamenn þurfa
meiri stuðning og leiðbeiningu en
táningar nútímans.
Hneyksli í Kólumbíu
Juan Hernandez, starfsmanna-
stjóri forseta Kólumbíu, Andres
Pastrana, sagði af sér í gær vegna
ásakana um að hann heföi notað að-
stöðu sína til útvega fyrirtæki eig-
inkonu sinnar samninga hins opin-
bera.
Bildt til áhættufyrirtækis
Carl Bildt, sátta-
semjari Evrópu-
sambandsins í
Bosníustriðinu og
fyrrverandi leiðtogi
hægri manna í Svi-
þjóð, ætlar að draga
úr störfum sínum
fyrir alþjóðlegar
stofnanir. Hyggst Bildt verða ráð-
gjafi hjá áhættufjármagnsfyrirtæk-
inu IT-Provider.
Milljónir þurfa aðstoð
MUljónir íbúa Indlands þurfa
aðstoð vegna gífurlegra þurrka
undanfamar vikur. Hafa Indverjar
misst þúsundir dýra af völdum
þurrkanna.