Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
Fréttir I>V
Kærumál vegna verkfalls Sleipnismanna:
Konan sögð hafa
bakkað á bílinn
- hlaut áverkavottorð. Formaður Sleipnis segir atburðinn sviðsettan
Ingveldur Teitsdóttir, sem ekið var
á í verkfallsuppþoti Sleipnismanna í
Borgartúni á fimmtudagsmorguninn,
hefur kært atvikið til lögreglu. „Ég
fékk svo mikið sjokk að ég er ekki enn
búin að ná mér. Hugsunin hjá mér var
bara að koma mér í burtu, ég ætlaði
ekki að taka þátt í neinum hasar,“
sagði Ingveldur sem er gjaldkeri hóp-
ferðabílafyrirtækisinsTeitur Jónasson
ehf.
Óskar Stefánsson, formaður Sleipn-
is, fúllyrti í samtali við Ríkisútvarpið í
gær að slysið hefði verið „sviðsett af
hálfu Dagblaðsins" og vitnaði til þess
að persónuleg tengsl væru á milli
blaðsins og flutningafyrirtækis. „Kon-
an labbaði aftur á bak á jeppann,"
sagði Óskar sem þó sá ekki atburðinn
sjálfur. „Ökumaðurinn segir að bíllinn
hafi verið kyrrstæöur," segir Óskar en
konan er með áverkavottorð sem sýn-
ir að hún er marin auk þess að hafa
tognað. Óskar sagði um tengsl DV
vegna atburðarins að aðstoðarritstjóri
DV væri tengdasonur eiganda Teits
Jónassonar ehf.
Selma Emilíana
Sölvi Hrelmur
Á vefnum:
Poppstjörnur í
Fókusspjalli
Þær verða ekki af verri endanum,
poppstjömumar sem mæta i Spjall á
Fókusvefnum um helgina. 1 tengslum
við Tónlistarhátíð Reykjavíkur -
Reykjavík Music Festival - mun Emil-
íana Torrini ríða á vaðið í Fókusspjall-
inu klukkan 16 í dag og klukkan 17
mætir Sölvi Blönda.1, aðalsprauta Qu-
arashi, í Spjallið. Á morgun, sunnu-
dág, kemur okkar ástkæra Selma
Bjömsdóttir í Spjall klukkan 16 og
Hreimur i Landi og sonum tekur við af
henni klukkan 17. Allir þessir lista-
menn koma fram á hátíðinni um helg-
ina og það eina sem fólk þarf að gera
er að fara inn á Vísi.is og velja hnapp
sem leiðir það inn á Fókusvefinn í
Spjallið. Góða skemmtun!
Ekið á konu
Ekiö var á konu í verkfallsátökum Sleipnismanna í Borgartúni í fyrradag. Hún hefur kært ákeyrsiuna til lögreglu.
Komdu héma!
Verkfallsvörður Sleipnismanna bendir jeppanum á aö koma yfir
umferöareyjuna, skömmu áöur en bíllinn skall á konunni.
Þegar þessi kjaradeila kom upp sagði
Jónas Haraldsson aðstoðarritsstjóri sig
frá málinu í samræmi við starfsreglur
DV og hefúr verið í fríi síðan.
Ingveldur segir að jeppinn hafi ekið á
hana enda þurfti hún á læknisaðstoð að
halda eftir áreksturinn.
Ingveldur og Teitur vom að sækja
hóp þýskra ferðamanna þegar verkfalls-
verðir lokuöu bíl Teits af fýrir framan
Hótel Cabin í Borgartúninu. „Þegar við
komum þama niður eftir þá er þama
fúllt af verkfallsvörðum og búið að loka
hópferðabílinn af og verkfailsverðir
meinuðu hluta fólksins inngöngu,"
sagði Ingveldur.
„Teitur mátti ekki fara inn í bílinn
sinn og ég var eitthvað að væflast þama
fyrir framan hann. Ég rankaði við mér
þegar ég fékk skellinn. Ég sneri baki í
jeppann og veit ekki hvaðan hann kom,
hann hlýtur að hafa komið yfir umferð-
areyju úr Borgartúninu,“ segir hún.
Ingveldur marðist, tognaði og fékk
hnykk á bakið og fór á slysadeild eftir
atvikið. Hún veit ekki hver ók jeppan-
um, en sagðist vona að ökumaðurinn
hefði bara ekki séð hana. Margt fólk var
á planinu og hélt Ingveldur að ökumað-
urinn hafi kannski ætlað sér að loka
hópferðabílinn alveg af. Verkfallsmenn
báðust ekki afsökunar á atvikinu að
hennar sögn.
Allir bílstjórar Teits em í Eflingu en
ekki í Sleipni og því ekki í verkfalli.
Fyrirtækið Teitur Jónasson ehf. talaði
við lögmenn sína fyrir verkfallið til þess
að athuga hvort þvi væri óhætt að halda
áfram sínum fóstu ferðum á meðan á
verkfalli stendm og fékk þau svör að
það væri löglegt.
„Við höfum ekki tekið á okkm nein-
ar nýjar ferðir. Við teljum okkm ekki
vera að bijóta nein lög,“ sagði Ingveld-
m. -SMK/-rt
Ray Davies, söngvari The Kinks, leikur í Höllinjji:
Ný lög frumflutt á Islandi
- eingöngu fyrir íslendinga, sagði Davies í gær
„Ég er mikið búinn að hlakka til að
koma til Islands," sagði Ray Davies við
blaðamann DV í gær. „Ég kom hingað
árið 1965 og spilaði á átta tónleikum í
Austmbæjarbíói. Síðan kom ég aftm
árið 1971 og dvaldi hér um stund. Frá
þvi ég kom hingað fyrst hefúr staðm-
inn einfaldlega ekki liðið mér úr
minni - landslagið hér er alveg ein-
stakt,“ sagði Davies á meðan á mynda-
töku stóð við listaverkið Sólfar við Sæ-
braut. Aðspmðm hvort hann myndi
nokkuð eftir dvölinni á 6. og 7. ára-
tugnum hló Davies: „Jú, jú, ég man vel
eftir þvi að hafa komið. Fólkið héma
er afslappað en tónleikamir sem við
héldum vom einstakir - al-
gjört stjómleysi. Islenskt
kvenfólk er líka svo íðilfag-
urt.“ Þrátt fyrir að hafa lofað
fegmð íslenskra kvenna vildi
Davies ekki kannast við að
eiga hér nein böm. „Ekki svo
ég viti,“ svaraði hann og
brosti.
Davies hyggst kynna fyrir
íslendingum nýtt prógramm
ásamt því að hann ætlar að
spila marga af gömlu Kinks-slögurun-
um. „I prógramminu spila ég á
rythma-gítar og gítaristinn minn, Pete
Manson, ætlar að spila á rafmagnsgit-
ar. Við munum leika mikið af
gömlu Kinks-lögunum og úr
því að ég er staddm á íslandi
mun ég líka leika ný lög sem
ég hef verið að æfa undanfar-
ið. Áðm en ég held aftm til
London mun ég líka skoða
Stúdíó Sýrland sem vinir
mínir í Blm hafa mælt sterk-
lega með að ég geri. Hver veit
nema að ég verði fastagestm
á Islandi."
En ætlar Davies að fara út á lífið á
íslandi?
„Ég vona að ég komist út á lífið í
kvöld og síöan mun ég reyna aö skoða
mig aðeins um á Islandi líka. Ég hef
ekki ákveðið neitt um heimfór enn þá
- ég held þvi alveg opnu.“
Að sögn Steinars Berg, eins skipu-
leggjenda tónleikanna, mun Davies
einnig eyða töluverðum tíma í að
hlusta á íslensk bönd. Á næstunni ætl-
ar Davies að leggjast í upptökm og vill
hann athuga hvort eitthvað af íslensku
hljómsveitunum séu fáanlegar til þess
að spila með honum.
Miðasala á tónleikana hefúr verið
einstaklega góð í dag og reikna tón-
leikahaldarar með því að Laugardalm-
inn verði fullm af ánægðu fólki í góðu
skapi um helgina. -ÓRV
Ray Davies.
Engar kosningar
Hæstiréttm hefúr
hafnað kröfu Ástþórs
Magnússonar um for-
setakosningar hér á
landi í sumar, en Ást-
þór kraföist þess að
synjun dómsmála-
ráðuneytis um frest
til að afla meðmæl-
enda yrði felld úr gildi. RÚV greindi
frá.
Dæmdur fyrir kynferðisbrot
Karlmaðm á þrítugsaldri var í gær
dæmdm í níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
heymarlausum stúlkum á nokkmra
ára tímabili í Vestmhlíðaskóla, skóla
heymarlausra. RÚV greindi frá.
Hafnaði endurupptöku
Hæstiréttm hafn-
aði kröfú Svavars
Rúnars Guðnasonar
um endmupptöku
Vatneyrarmálsins
svokallaða. Svavar
taldi sig ranglega
sakfelldan í málinu
og að fiskistofa hefði,
viljandi eða óviljandi, dregið upp
ranga mynd af málinu og lagt fram
rangfærð eða fólsuð skjöl um efni þess.
Hæstiréttm segir m.a. í dóminum að
Svavar hafi ekki fært nein ný rök fyr-
ir staðhæfmgum sínum og engin ný
gögn komið fram sem skipti verulegu
máli. RÚV greindi frá.
Gæsluvarðhald framlengt
Gæsluvarðhald yfir manni sem er í
haldi lögreglu í tengslum við lát ungr-
ar stúlku við Engihjalla í lok maí var í
gær framlengt til 3. júlí. Maðminn var
handtekinn tveimur tímum eftir að lík
stúlkunnar fannst, en hún hafði fallið
af svölum 10. hæðar fjölbýlishúss.
Bylgjan greindi frá.
Samruni samþykktur
Hluthafafundir Eignarhaldsfélags-
ins Kringlunnar hf. og Þyrpingar hf.
hafa samþykkt samruna fyrirtækj-
anna. Við samrunann hefúr orðið til
stórt og öflugt fyrirtæki sem sérhæfir
sig í útleigu og rekstri fasteigna. Nafii
hins nýja félags verðm Þyrping hf.
Vísir.is greindi frá.
Kröfu hafnað
Héraðsdómm Reykjavikm hafnaði
kröfú manns sem krafðist miskabóta
frá eiganda veitingastaðar að upphæð
300.000 krónm vegna campylobacter-
sýkingar sem hann hlaut á veitinga-
staðnum. Maðminn hafði áðm fengið
greiddar þjáningabætm frá trygginga-
félagi stefnda, 89.548 krónm. Maðminn
ætlar að áfrýja dómnum. Vísir.is
greindi frá.
Hækka heildsölugjaldskrá
Stjóm Landsvirkj-
unar hefúr ákveðið
að hækka heildsölu-
gjaldskrá fyrirtækis-
ins um 2,9% frá og
með 1. júlí næstkom-
andi til þess að mæta
að hluta til almenn-
um kostnaðarhækk-
un. Raunverðslækkun hefst því ári
fyrr en áformað var samkvæmt stefiiu-
mörkun eigenda Landsvirkjunar um
2-3% raunlækkun árlega árin 2001 til
2010. Vísir.is greindi frá.
Neitað um landgöngu
Tvær konm frá Lettlandi og Litháen
vom stöðvaðar á Keflavíkurflugvelli á
fimmtudagskvöld og þeim neitað um
landgöngu. Hjá tollgæslunni fengust
þær upplýsingar að konumar hefðu
verið atvinnuleyfislausir dansarar
sem komu frá Danmörku og að þær
hefðu verið sendar aftm til Danmerk-
m. Vísir.is greindi frá. -AA