Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 58
66
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
Tilvera
I>V
lí f iö
Tónlistarhátíd
Reykjavíkur
Dagskráin í Laugardalshöll hefst kl.
17.30. Þá stíga piltarnir í Sálinni hans
Jóns míns á svið og spila þar til fönk-
popparamir í Todmobile ryðjast inn á
sviðið kl. 18.35. Á eftir þeim spilar
Kinksrefurinn Ray Davies. Hann er
fyrir allar kynslóðir og spilar frá
19.50-21.05 en á eftir honum er það Yo-
ussou N’Dour og dagskrá Hallarinnar
~’,w lýkur þegar Egill Ólafsson og Þursa-
flokkurinn trylla æskulýðinn enn og
aftur. Á sama tíma verður kátt í
Skautahöllinni. Dagskráin þar hefst
að vísu kl. 18 með því að Barði í Bang
Gang sýnir sig með stúlkunum sínum.
Á eftir honum mæta Quarashi, Emilí-
ana Torrini, Laurent Garnier, Asian
Dub Foundation, Herbaliser og kvöld-
inu lýkur svo á Gus Gus Instru-
mental. Á milli atriða í Skautahöll-
inni mæta færustu plötusnúðar lands-
ins með 4 deck. Partíið stendur til kl.
03.00. Þá er það íslenska tjaldið í
> Laugardalnum. Þar byrjar ballið kl.
17.30. Hljómsveitirnar sem spila eru
(og í þessari röð) Fálkar, Kanada,
Traktor, Buttercup, Kalk, Úlpa,
Trompet, Suð, Dead Sea Apple, Port,
Url, Undryð, írafár og Á móti sól.
D jass
■ DJASS Á JÓMFWÚNNI Tríó Reynis Sigurðs-
sonar heldur djasstónleika á veitingastaðnunn
Jóntfrúnni við Lækjargötu. Félagar Reynis eru
þeir Björn Thoroddsen gítarleikari og Birgir
Bragason kontrabassaleikari. Tónleikarnir
verða haldnir utandyra ef veður leyfir. Frítt inn.
Leikhús
> ■ KYSSTU MIG. KATA Söngleikurinn Kysstu
mig, Kata, eftir Cole Porter verður sýndur
klukkan 20 í Borgarleikhúsinu. Leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir og með helstu hlutverk
fara þau Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Björn Hilmar (sundkappinn
í Sporlaust), Halidór Gylfason (á það til að vera
gargandi snillingur) og svo er Egill Ólafsson
víst kominn aftur. Síminn f miðasölu Borgar-
leikhússins er 568 8000.
Kabarett
■ VARMÁRÞING FORMLEGA SETT Þéttskip-
uð menningardagskrá verður á Varmárþingi,
listahátíð Mosfellinga, sem stendur til 17. júní.
Hátíðarsetning verður í Hlégarði klukkan 14 en
meðal viðburða er opnun myndlistarsýningar í
Álafosskvos kl. 16.
*
Fundir
■ FYRIRLESTUR í HÁSKÓIA ÍSLANPS Hinn
heimskunni rithöfundur, Héléne Clxous, flytur
opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla íslands í dag í Odda, stofu 101, kl.
15.00. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Enter the
Theatre (Innkomaleikhússins) og veröur fluttur
á ensku. Héléne Cixous mun fjalla um tilurð
leikrita sinna f handriti og á sviði Sólarleikhúss-
ins. Sýnd verða á myndbandi brot úr leikriti
hennar, Trumbusláttur við stffluna, sem er
þessa dagana á fjölunum i Parfs.
Sport
■ LANPSSÍMAPEILPIN Fjórir leikir í fótbolta
karla fara fram f Landssfmadeildinni f dag,
kl. 14: Fylklr-KR, Grindavik-Brelöabllk og ÍBV-
Lelftur. Klukkan 16 mætast svo Stjarnan-ÍA.
Sjá ar: Lifið eftir vinnu á Vísi.is
Hljómsveitin sem tryllti landann:
The Kinks
í Austurbæjarbíói c65
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að Ray Davies, forsprakki
hljómsveitarinnar The Kinks, held-
ur tónleika 1 Laugardalshöll í
kvöld. Þetta er þriðja heimsókn
kappans en fyrst kom hann hingað
í september 1965. Þegar tónleikar
hans þá og andrúmsloftið í Reykja-
vík er rifjað upp kemur í ljóst að
margt getur breyst á tíma einnar
hljómsveitar. Þegar þeir Kinksarar
komu hingað ‘65 var það helst í
fréttum að Bandaríkin hófu stór-
tækan þyrluhemað i Víetnam; ÍA
og KR háðu aukaleik um íslands-
meistaratitilinn í knattspyrnu; „ný
amerisk gamanmynd í litum,
Bleiki pardusinn, með Peter Sell-
ers“ var frumsýnd í Hafnarfjarðar-
bíói og menningarspekúlantar ótt-
uðust innrás diskóteka sem þeir
nefndu plötuvíti. Ekki voru heldur
allir sáttir við innrás The Kinks
þótt ungdómurinn tæki henni opn-
um örmum. Vísir fylgdist spenntur
með líkt og aðrir fjölmiðlar lands-
ins.
Löng biðröö eftir miðum
Á forsíðu Vísis þann 1. septem-
ber er mynd af gríðarlangri biðröð
eftir miðum á tónleikana sem
haldnir voru í Austurbæjarbíói.
Mjög greiðlega gekk að selja miða
því strax 3. september birtist í Vísi
auglýsing þar sem fram kom að
uppselt væri orðið á ferna fyrstu
tónleika „hinna heimskunnu The
Kinks“ en alls voru átta tónleikar
haldnir vegna takmarkaðs sæta-
fjölda bíósins. Degi síðar kemur
fram í frétt blaðsins að ákaflega
dýrt hafi verið að fá hljómsveitina
til landsins og hún tekið 55.000 þús-
und krónur á dag - og tónleika-
fjöldinn því vart ástæðulaus. Kaup-
menn hugsuðu sér einnig gott til
glóðarinnar og m.a. auglýsti Verzl-
FRIÐSAMLEGIR BITU
TÓNLEIKAR í GÆRKVÖL
KINKS Irt loodcn 'Ma I fmt t
ájtffKlrfðl tvetm ís»
cnxktna ungltogxhlléatóveltam.
lfljémldkaralr i nKuttl
• hilírt ktuktumund cttlr
i Uma — rtg var tnunkom* *-
■hiyrend*, »««t flttthr vont t ftfn-
Irmðmkótmlárl, i ttcvt* vtaðl
wý tHkg, jwr Ul undlr toktn.
TUkymst hífðl vertí 46ur sð
KINKS mytxlu lelka tvótaldui
ttms. o* vserf fað m. «. iílæðan
fyrir miðavcrðmu En eftir 25
mfnðtria Irlk þelrra var drejsia fyr
r og sirtr eg erarmr krakkamir
)«stu fntm tvo þétt kös myndað- -
l*t fretiat f hðslnu. ea ðrðateatír
iprenjidu ktovtrja I mattngróitoum.
Mtamir M Eart-End hðfu tón-. Lðkregluvörtlur var f
iiít tína meJ þvt að *n«t bakhte-1 aidrtí ketn þó tfl átak*
anura að áheyrendum og allan tlra- |þurfti að loka fyrir raftt
ann »e» þefr voru i isvíaitiu hristu i hljðtnsvtilurinMf eít»
>eir iif og rvelgSu. <ta hðíðu iður j hafði verið að gera, ef
litið þe« getið. að tðnlhttfn hðfð- tat Sex USnteikar ery
aðl tfl kynhvatarinnar, yupprelt í \ú alta.
öðru og lag Tom Jones What’s New
Pussycat fór beint í sjöunda sæti
listans. Listinn er frá 11. september
en sama dag birtist frétt í Vísi und-
ir fyrirsögninni: „Fjórir slösuðust
á Kinks-hljómleikum.“ Er þar vísað
til tónleika sem aflýsa varð í Stokk-
hólmi vegna síendurtekinna óláta
þeirra 6000 aðdáenda sem komu.
SNÆÐI
150 femt, húsnæði
sewi niest Mið-
\FAN VlSlR H.F.
Tónleikar The Kinks eru allajafna nefndir bítlatónleikar og veldur þaö
nokkurri furöu í dag. Enn furöulegra er þó að i frétt um tónleikana á baksíöu
Vísis er sérstaklega tekiö fram að gítarleikarinn Dave Davies hafi þvegiö sér
um háriö kvöldið áöur!
unin Þöll eftirfarandi: „Fagnið
komu The Kinks með Kinks veif-
um. Ódýrar - fallegar. Tilvaldir
minjagripir. Birgðir takmarkaðar.
Tryggið ykkur veifu í tima. Fást að-
eins hjá okkur.“ Ólíklegt er að
áhugasamir geti keypt sér Ray
Davies veifu þessa dagana!
HiNIR HIIMSKUNNU
THE KINKS
Miöar á tónleikana seldust eins og heitar lummur enda á feröinni „hinir heimskunnu The Kinks"
Kinks-æði í höfuðborginni
Mikið Kinks-æði greip um sig í
höfuðborginni og nýja platan
Kinda Kinks naut mikilla vin-
sælda. Helsti smellur plötunnar,
Tired of Waiting for You, gaf All
Day and Ali of the Night og You
Really Got Me lítið eftir í vinsæld-
um. Þeir áttu
þó ekki lag á
topp tíu lista
Hljómplötu-
deildar
Fálkans meðan
á miðasölu stóö
því plötur The
Kinks voru ein-
göngu seldur í
Hljóðfærahús-
inu sem hafði
umboð fyrir
Pye, útgefanda
hljómsveitar-
innar. Listinn
lýsir engu að
siður tíðarand-
anum vel. Sat-
isfaction þeirra
Rolling Stones
var í efsta sæti,
Help Bítlanna í
THE KINKS
UPPSELT
Á FIÓRA FYRSTU
HLJOMLIIKANA
Aðgöngumiðasala að 5.
6. hljómleikunum hófst
kl. 9 í morgun í Hljóð-
færuhúsi Reykjuvíkur
Hljómsveitirnar Bravó og Tempó
hituöu upp fyrir Kinks. Meðlimir Bravó
voru ekki nema 12-13 ára gamiir.
Tónleikarnir voru hluti af tónleika-
ferð hljómsveitarinnar um Norður-
lönd sem endaði svo einmitt í
Reykjavík. Óspektir voru áberandi
og í dálkinum „af ungu fólki“ í Vísi
eru islenskir unglingar varaðir við
apa eftir hegðun jafnaldra sinna á
Norðurlöndum: „Það er vonandi að
islenskir unglingar verði rólegri
[...] enda verða læti á hljómleikum
eingöngu til þess að eigendur hús-
anna munu ekki lána þau undir
þessar samkomur.“
Kínverjar sprengdir
Áhyggjur af ólátum aödáenda
hljómsveitarinnar, sem voru í sum-
um fjölmiðlum kallaðir lubbar,
reyndust óþarfar, þótt þeir eltu
hljómsveitarmeðlimi uppi út um
allan bæ. Sumum áheyrenda á tón-
leikunum, sem flestir voru á gagn-
fræðaskólaaldri, þótti sveitin þó
staldra heldur stutt við á sviðinu
og sprengdu kínverja í mótmæla-
skyni.
Að lokum segir um tónleikana á
baksíðu Vísis 15. september: „Pilt-
arnir frá East-End hófu tónlist sína
meö því að snúa bakhlutanum að
áheyrendum og allan tímann sem
þeir voru á sviðinu hristu þeir sig
og sveigðu, en höfðu áður látið þess
getið, að tónlistin höfðaði til kyn-
hvatarinnar.“ Síðan segir í mynda-
texta: „Dave Davies ólmast á svið-
inu. Hann þvoði sér um hárið i
gærkveldi." Við skulum rétt vona
að bróðir hans Ray Davies verði
ekki með skítugan lubba í kvöld!
-BÆN
Fjölbreytt dagskrá á Árbæjarsafni
alla hvítasunnuhelgina:
Eldur, eldur
Á Árbæjarsafni verður mikið um
að vera alla hvítasunnuhelgina. Á
laugardaginn verður lifandi tónlist í
húsinu Lækjargötu 4. Boðið verður
upp á tónleika sem bera yfirskriftina
Amor og asninn. Álfheiður Hanna
Friðriksdóttir mezzosópran syngur
ástarljóð af ýmsu tagi og Oddný
Sturludóttir spilar undir á píanó. Á
efnisskránni eru meðal annars lög
og ljóð eftir Sigfús Halldórsson, Jón
Ásgeirsson, Bellini og Jerome Kern.
Tónleikarnir hefjast klukkan 14.
Á hvítasunnudag kemur Slökkvi-
lið Reykjavikur í heimsókn. Rykið
verður dustað af gömlum slökkvibíl-
um og verða þeir til sýnis á safn-
svæðinu. Einnig koma slökkviliðs-
menn á nýjum körfubíl og gefst gest-
um tækifæri til að prófa körfuna,
skoða tæki og tól og ræða við
slökkviliðsmenn. Dagskrá Slökkvi-
liðsins hefst klukkan 14.
Annan í hvítasunnu verður sér-
stök barna- og fjölskyldudagskrá.
Þar verður farið í leiki, leikfanga-
sýning skoðuð og leiktæki safnsins
prófuð.
Alla helgina verða ljúffengar veit-
ingar i Dillonshúsi. Á hvítasunnu-
dag og annan í hvítasunnu verður
boðið upp á glæsilegt kafFihlaðborð.
Þá verður handverksfólk í húsun-
um, einnig verður teymt undir börn-
um og húsfreyjan í Árbæ bakar
lummur.
Árbæjarsafn
Fjölbreytileikinn er mikill í Árbæjarsafni.