Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Camillu
inn úr
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
DV
loks nleypt
kuldanum
Breskir fjölmiðlar eru á öðrum
endanum þessa dagana þar sem út-
lit er fyrir að hin konunglega
breska sápuópera sé að koma á fjal-
irnar á ný. Hlé hefur að miklu leyti
verið á sápuóperunni frá því að
Díana prinsessa lést 1997. Þegar hin
ógæfusama breska prinsessa var
lögð til hinstu hvílu var stærsta
tekjulind dagblaðanna jafnframt
jörðuð.
Nú er útlit fyrir að mögru árin
séu liðin hjá. Vilhjálmur prins verð-
ur 18 ára í næsta mánuði og kemst
þá í fullorðinna manna tölu. Þar
með nýtur hann ekki lengur vernd-
ar fyrir hrægömmum æsifréttablaö-
anna. Og svo er Camilla Parker
Bowles, hin umdeilda ástkona Karls
Bretaprins, að verða viðurkennd
fyrir alvöru sem lifsförunautur
prinsins.
Erfitt verk fram undan hjá
Donatellu Versace
Nú eru það fréttir af Camillu
Parker Bowles sem fylla síður blað-
anna og hug bresku þjóðarinnar.
Hún hefur fengið viðurkenningar-
stimpil Elísabetar drottningar, hún
hefur hitt yfirmann bresku biskupa-
kirkjunnar og eftir nokkrar vikur
tekur hún enn eitt mikilvægt skref.
Camilla, sem hingað til hefur liðið
best á hestbaki við refaveiðar, fer á
fund tískuhönnuðarins Donatellu
Versace. Camilla er í leit að nýjum
og glæsilegri stíl. Illar tungur segja
verkefnið svo erfltt að það hljóti
meira að segja að hræða Versace.
ísinn var brotinn þegar Camilla
hitti Elísabetu drottningu í sextugs-
afmæli Konstantíns, fyrrverandi
Grikkjakonungs, um síðastliðna
helgi. Karl Bretaprins hélt konung-
inum fyrrverandi garðveislu á
sveitasetri sínu og gegndi Camilla
húsmóðurhlutverkinu. Meðal hinna
fjölmörgu gesta voru Margrét Dana-
drottning, Haraldur Noregskonung-
ur og Jóhann Karl Spánarkonung-
ur. Camilla hneygði sig fyrir Eng-
landsdrottningu og síðan settust
Karl, Camilla og drottningin niður
og spjölluðu saman, að því er bresk
blöð greina frá.
Á fundi með erkibiskupnum
Síðastliðinn mánudag greindi svo
konunglegasta blaðið, The Daily
Telegraph, frá því að Camilla hefði
einnig setið nokkra fundi með
æðsta leiðtoga bresku biskupakirkj-
unnar, erkibiskupnum af Kantara-
borg, Georg Carey. Búist er viö því
að erkibiskupinn taki á næstu dög-
um á móti sendinefnd ráðgjafa rík-
isarfans.
Þess sjást engin merki að Camilla
Parker Bowles verði drottning en
búast má við að kirkjan samþykki
samband krónprinsins og konunnar
sem hefur verið hin sanna ást hans
í 27 ár. Jafnvel þó að hún sé fráskil-
in og meðal annars ein af ástæðun-
um fyrir skilnaöi Karls og Díönu
prinsessu.
Fregnir hafa borist af því að
Camillu verði loksins boðið að taka
þátt í stórveislu í Windsor-kastala
tU heiðurs Elísabetu drottningar-
móður sem verður 100 ára í sumar
og öðrum í konungsfjölskyldunni
sem einnig eiga merkisafmæli. Bú-
ist er við að CamiUa afþakki boðið
Prinsinn og ástkonan
Útlit er fyrir aö Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles geti nú gengiö í hjónaband ef þau vilja.
Sögulegur fundur
Fundur Elísabetar Englandsdrottningar og Camillu Parker Bowles um síöustu helgi þykir sögulegur.
til að stela ekki senunni frá drottn-
ingarmóðurinni. Daginn eftir mun
Camilla hins vegar gegna húsmóð-
urhlutverki í veislu í Buckingham-
höU sem Karl heldur fyrir banda-
ríska gesti.
Viðskiptavinir fleygðu
rúnstykkjum í Camillu
Fyrir fimm árum sakaði Díana
prinsessa Camillu um að vera
þriðja aðilann sem eyðilegt hefði
hjónaband hennar og Karls. Díana
kaUaði keppinaut sinn rottweiler og
eftir skUnað Díönu og Karls árið
1996 fleygðu viðskiptavinir í hverf-
isverslun CamiUu rúnstykkjum í
hana. Bresku æsifréttablöðin sögðu
CamiUu likjast hesti. Og jafnvel þó
að Karls prins léti þær fregnir ber-
ast aö samband hans við CamUlu
myndi ekki breytast neitaði móðir
hans að umgangast ástkonuna.
Harry og Vilhjálmur
Prinsunum geöjast vel aö Camillu.
Nú virðist sem skipulögð herferð
ráðgjafa Karls prins, sem nutu
stuðnings fjölmiðlaráögjafa Tonys
Blairs forsætisráðherra, hafi loks
leitt til viðurkenningar á Camillu,
bæði innan hirðarinnar og meðal al-
mennings.
Vinsældir Karls prins hafa aukist
eftir að Bretar komust að því að
hann sýndi sonum sínum, Vilhjálmi
og Karli, bæði ást og umhyggju.
Vinsældir CamiUu Parker Bowles
hafa einnig aukist. Hún nýtur aðdá-
unar fyrir að hafa sætt sig við að
vera i skugganum og krefjast engrar
athygli.
Samþykkir hjónabandi
Samkvæmt skoðanakönnunum
tveggja stærstu æsifréttablaðanna,
The Sun og The Mirror, eru nú tveir
þriðju bresku þjóðarinnar samþykk-
ir hjónabandi Karls og Camillu.
Þrír fjórðu eru andvígir því að
CamiUa verði drottning. Karl prins
hefur áður lýst því yfir að hann ætli
ekki að ganga í hjónaband á ný,
bæði af fjölskylduástæðum og
stjórnarskrárlegum ástæðum.
Sérfræðingur í málefnum bresku
konungsfjölskyldunnar, Hugo
Vickers, er vantrúaður á hjóna-
band. Hann bendir meðal annars á
að fjölmiðlar séu nú farnir að
greina efnislega frá ræðum Karls
prins og athöfnum hans í stað þess
að beina allri athyglinni að konunni
við hlið hans eins og gert var þegar
Díana var á lífi. Vickers telur að
Karl vilji varla ganga í gegnum slíkt
á ný.
Prinsinn gerir sér þó grein fyrir
að almenningur og fjölmiðlar muni
alltaf hafa áhuga á sambandi hans
og Camillu eins og þeir höfðu á
hjónabandi hans og Díönu.
Þegar rithöfundurinn Penny
Junor gaf fyrir tæpum tveimur
árum út bók um Karl prins, Victim
or Villain, gaf hann meira að segja
út yfirlýsingu um að hann
undraðist ekki áhuga fjöimiðla.
Hann lagði samtimis áherslu á að
hjónaband hans og Díönu væri hans
einkamál. Svo yrði að vera vegna
prinsanna Vilhjálms og Harrys.
Þegar bókin kom út kváðust Karl og
Camilla ekki hafa komið nálægt rit-
un og útgáfu bókarinnar.
Díana hótaði að senda
leigumorðingja til Camillu
I bókinni segir höfundurinn
Díönu prinsessu bera ábyrgð á því
að hjónaband hennar og Karls fór út
um þúfur. Bókarhöfundur fullyrðir
að prinsessan hafi verið svo afbrýð-
isöm að hún hafi sjálf hringt í
Camillu Parker Bowles mörgum
sinnum að næturlagi og hótað að
myrða hana. „Ég hef sent menn sem
eiga að drepa þig. Þeir eru í felum í
runnunum í garðinum. Littu út um
gluggann og þá sérðu þá.“ Þetta á
Díana að hafa sagt í símann við ást-
konu prinsins. Að því er Penny
Junor skrifar varð Camilla svo
hrædd að hún hringdi strax í líf-
verði Karls og greindi þeim frá hót-
unum Díönu.
Við annað tilfelli á Díana að hafa
sagt við Karl: „Það getur vel verið
að þú hittir hana ekki lengur. En í
huga þínum ertu mér ótrúr.“
I öðrum bókarkafla fullyrðir
Penny Junior að Díana hafi framið
hjúskaparbrot á undan Karli. Hún á
að hafa hafið samband við einkalíf-
vörð sinn, Barry Mannakee, þegar
árið 1985, mörgum mánuðum áður
en Karl tók að nýju upp samband
sitt viö Camillu Parker Bowles.
„Þau voru mjög náin. Diana var
hrifin af því hversu vel Barry ann-
aðist syni hennar og hún velti því
fyrir sér hvers vegna maður hennar
gæti ekki verið eins,“ hefur bókar-
höfundur eftir einum vina prinsins.
Penny Junior kvaðst hafa tekið
viötöl við yfir 30 af nánustu kunn-
ingjum og ráðgjöfum Karls þegar
hún safnaði efni í bók sína.
Fullyrt var að Karl hefði sjálfur
samþykkt útgáfu bókarinnar og
skipulagt árás á Díönu prinsessu.
Karl og Camilla vísuðu því harðlega
á bug að þau hefðu veitt Penny
Junior upplýsingar. Þetta var í
fyrsta sinn sem Karl og Camilla
gáfu út sameiginlega yfirlýsingu.
Nú bíða Bretar eftir annarri og
skemmtilegri yfirlýsingu frá par-
inu. Bretar eru farnir að biða eftir
tilkynningu um hjónaband.
Byggt á Mirror, News of the
World, Reuter o.fl.