Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 2
2 Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 I>V Patreksfjörður: Sjúkraflug í uppnámi þyrla gæslunnar þarf að sinna útköllum vegna vandræðagangs ráðuneytis Þyrla Landhelgisgæslunnar Þarf að sinna sjúkraflugi þar sem nota mætti ódýrari kosti. "'"pÍ Jónsson, yfirlækn- V stofnuninni á Pat- ^ reksfirði, að grípa jflj til þess ráðs að /ill kalla út þyrlu ---------ák—J Landhelgisgæsl- Jón B.G. unnar til að flytja Jónsson sjúkling til Reykja- Egendaöiþvi víkurj þar sem meö aö biöja enginn virðist gæsluþyrluna iengur sinna hefð- að flytja sjuk- bundnu sjúkra- Ulll. flytja meö íslandsflug var venjulegri með samning við sjúkraflugvel. heilbrigðisráðu- neytið um að sinna sjúkraflugi vestra. Var félagið með vél staðsetta á ísafirði til þeirra hluta. Þegar félagið hætti farþega- flugi til og frá ísafirði var í kjölfar- ið ákveðið að eftirláta Mýflugi samninginn um sjúkraflugið sem gilti fram i maí á þessu ári. Síðan hafa sjúkraflugsmál á Vestfjörðum verið í algjörri óvissu. „Ég þurfti að senda sjúkling suð- ur og fékk enga flugvél til þess. Mér er ekki kunnugt um að neinn flugrekstraraðili hafi samning um þetta flug. Þetta hefur komið upp í tvigang áður síöasta mánuðinn. Þá höfum við hringt í flugfélagið Jór- vík sem er með áætlunarflug til Patreksfjaröar. Þeir hafa brugðist mjög skjótt við. í þetta skipti var flugvél þeirra í klössun og því gátu þeir ekki sinnt málinu. Þá hringdi ég í íslandsflug og Mýflug. Hjá Mýflugi var bara símsvari. Þá prófaði ég Leiguflug ísleifs Ólafs- sonar en þar svaraði enginn. Ég var búinn að eyða miklum tíma í þetta og ég endaði þvi með að biðja gæsluþyrluna að flytja sjúkling sem hefði verið hægt að flytja með venjulegri sjúkraflugvél. Þetta er ferlegt óöryggi, bæði fyrir fólkið sem hér býr og starfs- menn heilbrigðisstofnana. Ég er búinn að vera hér lengi og þekki því til hvað hægt er að gera. Óvant fólk veit hins vegar ekkert hvern- ig á að bregðast við og ekkert hef- ur heyrst um það frá ráðuneytinu. Sem kunnugt er af fréttum hafa verið hugmyndir um að flytja mið- stöð sjúkraflugs til Akureyrar. Jón B.G. Jónsson sagði að það leysti ekki sjúkraflugsmái á Vestfjörð- um. Þar þyrfti fýrst og fremst flug- samband við Reykjavík. -HKr. Dragspll þanió í sólarblíóu Vinkonurnar Ása og Ingunn voru aö spila á dragspil fyrir vegfarendur niöri viö Reykjavíkurhöfn í sólarblíöunni nú fyrir helgina. Þær hafa veriö aö æfa harmoníkuleik í nokkur ár og talsvert komiö fram opinberlega, m.a. í Húsdýragarðin- um og víöar. í þetta skiptiö voru þær aö spila aö beiöni Rauða kross íslands sem var þarna meö kynningu. Engihjallamálið: Krafist geðrannsóknar Kostnaður við þyrlu: 380 þúsund á klukku- tímann Magnús Gunnarsson, fjármála- stjóri Landhelgisgæslunnar, segir að allt kosti peninga þó Trygginga- stofnun sé ekki rukkuð um sjúkra- flug Gæslunnar. Þyrlurnar séu yf- irleitt kallaðar út ef um slys er að ræða og ef sérstaklega stendur á í öðrum tilfellum. „Það er mikil aðgerð að kalla út í sjúkraflug. Þá eru kallaöir út tveir flugmenn, stýrimaður, sig- maður, spilmaður og flugvirkjar. Flugtíminn á stærri þyrlunni TF- Líf kostar 380 þúsund krónur en á minni þyrlunni TF-Sif kostar tím- inn 180 þúsund krónur. Kristján Guðjónsson hjá Trygg- ingastofnun segir að þeir fái alla reikninga vegna hefðbundins sjúkraflugs. Hann sagðist kannast vel við að sjúkraflugsmálin hafl verið í lausu lofti. „Þetta er búiö að vera í lausu lofti í gegnum árin en nú á hins vegar að fara að taka þetta fostum tökum með útboði í haust.“ Reikningar vegna sjúkraflugs hafa samkvæmt samningi við Mýflug numið 114.600 krónum á hvert flug. Auk þess hefur félagið að sögn Kristjáns fengið 500 þús- und króna styrk á mánuöi. Þann samning mun nú vera ætlunin að framlengja til áramóta. Sjúkraflug með stærri vélum eins og Metró er þó dýrara og kostar t.d. frá Akur- eyri um 160 þúsund krónur. Varðandi sjúkraflug með gæslu- þyrlu sagðist Kristján ekki efast um að það væri dýrara. „Hins veg- ar koma engir reikningar vegna þess inn á borð hjá okkur. Land- helgisgæslan er á fóstum fjárlögum og er þetta tekið af því. Almennt á þó að nota venjulegar sjúkraflug- vélar þegar þvi verður við komið, annað er bara tfl vara,“ sagði Krist- ján. -HKr. Fulltrúi sýslumannsins í Kópa- vogi krafðist þess í Héraðsdómi Reykjaness í gærdag að 23 ára gam- all maður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í dauöa 21 árs gamallar konu i síðasta mánuði, sæti geð- rannsókn. Ástæðan er sú að gloppur eru í frásögn mannsins. Einnig vill fulltrúi sýslumannsins láta kanna hvort hugarástand mannsins á þeim tíma er konan lést geri það að verk- um að maðurinn sé ekki sakhæfur. Erlendur Gislason hrl., settur verjandi mannsins, mótmælti kröf- unni á þeim forsendum að algengt væri að gloppur séu í frásögn fólks í sakamálum og að geðrannsókn myndi ekki skýra þær gloppur sem eru í frásögn mannsins. Hann var ölvaður er konan lést og sagði verj- andi að hvatir mannsins yröu ekki rannsakaðar með geðrannsókn. Guðmundur L. Jóhannesson hér- aðsdómari mun kveða upp úrskurð sinn varðandi geörannsókn í dag. íbúi í húsinu að Engihjalla 9 í Kópavogi fann konuna liggjandi fyr- ir utan húsið að morgni hins 27. maí sl. Hún hafði látist af af völdum falis af svölum á 10. hæö hússins. Fólkið hafði komið saman að hús- inu, en hvorugt þeirra bjó í húsinu. Maðurinn hefur aö hluta til gengist við sakargiftum. -SMK Kristnitökuhátíðin skarast á við Evrópukeppnina í knattspyrnu: Komast ekki í bæinn í tæka tíð Kristnir fótboltaáhugamenn ættu að gera sér grein fyrir því að fari þeir Kristnitökuhátíðina á Þingvöllum á sunnudag eiga þeir á hættu að missa af úrslitaleik Evrópukeppninnar í knatt- spymu. Lögreglan gerir ráð fyrir að fólk í 19.000 einkabílum muni heimsækja Þingvelli hvom dag hátíðarinnar fyrir sig - alls 50.000 til 75.000 manns á dag - og má búast við talsverðum umferðar- þunga. Lögreglan mun beina umferð að hátíðarsvæðinu á Þingvöllum til klukk- an 16 báða dagana og hátíðargestir komast ekki af svæðinu í einkabílum fyrr en klukkan 17, þegar einstefna verður til Reykjavíkiu'. Úrslitaleikur- inn hefst klukkan 17.45, svo hætt er við að þeir sem koma í einkabílum missi af hluta af leiknum, ef ekki honum öllum. Athygli skal vakin á því að hópferða- bílar munu geta yflrgehð svæðið fyrir klukkan 17 á sunnudag en þar sem Sleipnismenn neituðu Kristnitökuhá- tíðinni um verkfallsundanþágu er óvíst um það hversu margir hópferðabílar verða í notkun. Nesjavallaleið er opin í bæinn fyrir sjúkrabifreiðar og neyðar- tilfelli en leikurinn telst ekki til neyð- artilfella og fótboltaáhugamönnum verður því ekki hleypt þar í gegn. -SMK Útsvarshækkun ekki útilokuð Innan tiðar mun sameiginleg nefnd ríkis og sveitarfélaga skila af sér tillögum um endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga, eða jafn- vel um miðjan næsta mánuð. Ekki er útilokað að þessi endurskoðun muni leiða til einhverjar hækkunar á útsvari. Dagur sagði frá. Vill selja ríkisjarðir Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra segist hlynnt- ur því að ríkisjarð- ir verði seldar, en ríkið á nú 516 jarð- ir. Guðni segir betra að jarðirnar séu í eigu einstak- linga en rikisins, fyrir utan einstak- ar náttúruperlur. Hann vill selja hæstbjóðanda sé forkaupsréttur ekki nýttur og vonast til þess að fækka ríkisjörðum um helming á næstu árum. Sjónvarpið sagði frá. I lagi í rigningunni Lögreglunni á Hvolsvelli hafa ekki borist neinar tilkynningar um erfiðleika fólks sem gistir í tjöldum vegna jarðskjálftanna en mikil rign- ing var í nótt á Suðurlandi. Ekki hefur þó blásið neitt að ráði, að sögn lögreglunnar. í dag verður ekið um og ástandið kannað. Mbl. sagði frá. Trúlausir vonsviknir Samfélag trúlausra lýsir furðu sinni og vonbrigðum yfir þeirri ákvörðun allra þingflokka að hálfur milljarður af peningum skattgreið- enda skuli lagður í svokallaða gjöf til íslensku þjóðarinnar þegar því er fagnað að eitt þúsund ár eru liöin frá því trúfrelsi var afnumið á Þing- völlum. Dagur sagði frá. Jaröskjálftahnökrar Á fundi útvarpsráðs í gær var fjallað um viðbrögð Ríkisútvarpsins og Sjónvarpsins við jarðskjálftanum hinn 17. júní sl. Fundarmenn vöru sagðir hafa verið sammála um að hnökrar hefðu verið á útsendingum og að gera hefði mátt betur. Mbl. sagði frá. Afsöluðu sér sætinu „Með því að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn Linunets aðeins hálf- tíma fyrir aðalfund og lýsa því jafnframt yfir að minnihluti sjálfstæðismanna myndi ekki tilnefna borgarfulltrúa í stjórnina var Sjálf- stæðisflokkurinn sjálfur að afsala sér sæti í stjóminni," sagði Alfreð Þor- steinsson, stjómarformaður Línunets, um gagnrýni oddvita sjálfstæðis- manna. Mbl. sagði frá. Einkunnum skilaö seint í HÍ Skil á einkunnum við Háskóla ís- lands voru ekki sem skyldi á vormiss- eri en einkunnum úr 32% prófa var skilað eftir að þriggja vikna skilafrest- ur kennara rann út. í lagadeild var ástandið verst þar sem 55% prófa lentu í vanskilum, en fast á hæla þeim kom viðskiptadeild þar sem hlutfallið var 53%. Mbl. sagði frá. Tekjuafgangur 6, Tekjuafgangur á ríkissjóði fyrstu fimm mánuði ársins nemur rúmlega 6,5 milljörðum króna, miðað við 4,3 millj- arða króna á sama tímabili í fyrra og 0,7 milljarða árið 1998. Hreinn lánsfjárjöfnuður þetta tímabil var jákvæður um 5,6 milljarða króna sem er einnig talsvert hagstæðara en árin 1998 og 1999. Mbl. sagði frá. Langt í heildarmat Margar vikur tekur að meta heild- artjónið af völdum jarðskjálftanna á Suðurlandi, að sögn Geirs Zoéga hjá Viðlagatryggingu Islands. „Þetta er svo óhemjumikið af tjónum. Það þarf að heimsækja og tala við hvem ein- asta aðila,“ sagði Geir við Mbl. -GAR 5 milljaröar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.