Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2000, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 Fréttir I>V Hitaveita Rangæinga stórskemmdist í skjálftanum en var fljótlega komin í gagnið: Hitaveitustarfsmenn unnu þrekvirki - segir Ingvar Baldursson hitaveitustjóri Ingvar Baldursson, hitaveitu- stjóri á Hellu, segir starfsmenn sína í Hitaveitu Rangæinga hafa unniö þrekvirki í uppbyggingu á hita- veitukerfinu eftir þjóðhátíöar- skjálftann fyrir rúmri viku. „Þeir unnu nánast sleitulaust dag og nótt í þrjá sólarhringa við að koma heita vatninu á aftur og þeir voru einstaklega ósérhlífnir og fórn- fúsir,“ segir Ingvar. 10 manns unnu að viðgerðum á hitaveitukerfinu eftir skjálftann og segir hann hitaveitustarfsmennina hafa þurft aö yfirgefa íjölskyldur sínar á erflðum tíma strax eftir jarðskjáltann. „Þeir þurftu að byrja að vinna að því að lagfæra hitaveitukerfið strax eftir að skjálftinn reið yfir en þá voru fjölskyldurnar auðvitað mjög hræddar og urðu að vera eftir í húsum sínum sem voru mis- skemmd," segir Ingvar. Að sögn Ingv- ars hefur enn ekki tekist að koma í veg fyrir einhverjar bilanir í hitaveitukerfinu. „Það eru enn þá smábilanir hjá einkaaðilum og í dreifikerfi og svo er dæluhúsið á Laugalandi enn skemmt auk þess sem vatnsmagn hefur snarminnkað í ákveðnum borholum," segir hann. Þegar DV hafði samband við Ingvar vildi hann ekki gefa út nein- ar staðfestingar á fjárhagslegu tjóni hitaveitunnar áður en álit starfs- manna viðlagasjóðs væri fengið. „Mitt persónulega mat er að við getum verið að tala um tugi millj- óna en það veltur mikið á því hvort borholurnar jafni sig,“ segir hann. Á dögunum var gefin út viðvör- un um að kalt vatn væri mögulega mengað á skjálftasvæðunum. Að sögn Guðmundar Inga Gunnlaugs- sonar, sveitastjóra á Hellu, er um að ræða lítil vatnsból og vatnslagnir en að hans viti sluppu stórar vatnsveit- ur á Suðurlandi við áíoll. „Það er fyrst og fremst í einka- veitum, þar sem vatnsból gruggast upp eða losnar í leiðslum sem fólk þarf að vara sig og á það því við um sumarbústaðarfólk," segir hann. - Hvemig er hljóðiö í fólki á Hellu? „Við lítum björtum augum fram á veginn og vonum að það séu að minnsta kosti 100 ár í næsta stóra skjálfta en annars hristum við þetta af okkur með timanum," segir Guð- mundur. -jtr Ingvar Baldursson „Þeir unnu nán- ast sleitulaust dag og nótt í þrjá sóiarhringa. “ íslendingur heldur til Vesturheims eftir 3 til 4 daga: í kjölfar Eiríks rauða og Leifs heppna - ís á siglingaleið tefur brottför Víkingaskipiö íslendingur og áhöfn þess er nú statt í Ólafsvík og biður þess að sigla til Vesturheims eftir að hafa lagt formlega úr höfn á laugardag frá Búðardal, heimahöfn Eiríks rauða, en þar höfðu Dala- menn undirbúið viðamikla dagskrá í tilefni brottfarar íslendings. ís á siglingaleiðinni tO Græn- lands hindrar það að skipið geti lát- ið úr höfn frá Ólafsvík sem verður þó líklega innan örfárra daga og þá verður haldið til Brattahlíðar. Áætl- aður siglingatími er 2 vikur og þar á íslendingur að vera 15. júlí nk. is við Grænland ku vera meiri en í meðalári og því notar áhöfnin tím- ann til að búa skipið undir förina. Þegar DV hafði samband við einn skipverja, Ellen Ingvadóttur, í blíðuveðri í Ólafsvík, var áhöfnin um borð að strekkja á köðlum og búa skipið undir forina og siglingu á opnu hafi. Hugur var í víkingunum og hljóð- ið gott: „Við erum öll við hesta- heilsu, mórallinn um borð er stór- kostlegur og samheldnin er mikil,“ sagði Ellen. „Það var okkur mikil hvatning aö heyra hlýjar kveðjur og góðar óskir í Búöardal þegar við lögðum úr höfn. Dalamenn höfðu lagt mikla vinnu í að gera brottför skipsins sem veglegasta." I áhöfn íslendings eru 9 manns og staðnar eru 6 klst. vaktir. „Fram undan er lengsti leggurinn, lengsta siglingin sem mun reyna mjög á og því erum við undir það búin að við vissar aðstæður þurfi öll áhöfnin að standa vaktina.“ Ellen sagði að ekki væsti um skipverja. „Vistin er mjög góð en það er þröngt, víkingaskip getur aldrei verið neinn lúxus-dval- arstaður. En við erum samheldinn hópur.“ Engin vandamál hafa komið upp og skipið reynst eins og við var að búast: „Þetta er hið besta fley og veðurguðirnir eru okkur hliðhollir. Hvað varðar ísinn þá er það nú eðli sjómennsku að aöstæður geta breyst frá degi til dags. Veðurspáin er ekki slæm og við vonumst til að geta lagt í hann innan örfárra daga.“ Með í fór á heiðursstað í stefni víkingaskipsins voru tveir ungir DVWNDIR Óll Lagt í hann frá Eiríksstöðum, fæðingarstað Leifs heppna / vöggu landafunda Grænlands og N-Ameríku aö Eiríksstööum í Haukadal var áhöfninni boöiö í víkingaveislu ásamt samgönguráöherra, feröamálaráöherra Nýfundnalands, fulltrúum Dalabyggöar og Eiríksstaöanefndar. Áhöfnin kom ríöandi aö höfninni í Búöardal eins og lög gera ráö fyrir. íslendingur kvaddur Mikiö fjölmenni var saman komiö í nýrri höfn í Búðardal til aö sjá ís- lending láta úr höfn á laugardag. Gunnar Marel Eggertsson skipstjóri fór meö sjóferöabæn áöur en lagt var úr höfn og þaö var Sturla Böövarsson sem leysti landfestar. hrafnar en að sögn Ellenar var hlut- verk þeirra að vera eins konar vemdargripir. Þeim var þó ekki ætlað lengra ferðalag en til síðasta viðkomustaðar á íslandi og hafa nú verið sendir Húsdýragarð’inum í Laugardal í Reykjavík sem gjöf til íslenskra barna frá áhöfninini. Hrísey er fylgdarskip íslendings og er með í for af öryggisástæðum. Þar um borð er 5 manna áhöfn og vistir íslendings geymdar. Þar er einnig í áhöfn ein kona, Elsa Harð- ardóttir. íslendingur verður í New York 5. október og von er á áhöfn- inni til landsins flugleiðis í kring- um 20. október. Spurð um örlög ís- lendings að aflokinni ferðinni segir Ellen ekki hægt að segja neitt á þessu stigi, það eigi eftir að koma í ljós. -HH Sandkorn 11 Urnsjón: HÖrður Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.is Hlægileg hugmynd Útvarpshlustend- ur þekkja fóðurbíl- stjórann og hlátur- vélina Jóhannes Gunnarsson sem á mörgum liðnum árum hefur verið vinæll viðmælandi þáttastjórnenda í útvarpi. Á laugar- dagsmorguninn var fékk Jóhann- es upphringingu frá öðrum síhlæj- andi manni, honum Hemma Gunn, sem þá var í beinni út- sendingu úr útvarpsþætti sinum á Bylgjunni. Ræddu þeir Jóhannes og Hemmi um ýmislegt sem á daga Jóhannesar hafði drifið og reyndist það allt vera öldungis sprenghlægOegt svo undir tók í viðtækjum landsmanna. Þegar far- ið var að sneiðast um umræðuefni undir lok samtals þeirra félaga flaug Hemma í hug að spyrja fóð- urbílstjórannn hvort hann hygðist láta sjá sig á Kristnitökuhátíðinni á Þingvöllum. Kom þá stutt hlé í samræðuna þar til báðir virtust átta sig samtímis á fáránleika hugmyndarinnar og hláturinn gusaðist hjartanlegur og miskunn- arlaus eins og sprenging yfir rétt- láta jafnt sem rangláta... Óvarlegt Gífurlegum flölda tjóna- tilkynninga hefur rignt yfir Geir Zoéga, fram- kvæmdastjóra Viðlagatrygginga, að imdanfomu. Er þar um að ræða tjón vegna jarðskjálfta á Suðurlandi. Þykir Geir sem Davíð Oddsson hafi tal- að óvarlega þegar hann var með yfirlýsingar um að allir fengju tjón sitt bætt. 1 þessu sambandi hafa margir spurt sig hvort það sé þá ekki alveg óþarfi að vera með tryggingar yfirleitt. Minnast menn náttúruhamfara á Vestfjörðum þegar téður Davíð var líka með yf- irlýsingar. Á þeim forsendum var byggt upp heilt þorp frá gmnni í Súðavík. Ýmsir velta því nú fyrir sér hvort svipað sé í uppsiglingu á Suðurlandi... Skítur á ströndinni Nauthólsvík komst í sviðsljósið um helgina er hald- ið var strandpartí af tilefni Fókusaf- mælis. Var fjöl- menni mikið og skemmtu menn sér hið besta. Búið ar að gera þama fal- lega strönd með ljósum sandi, rétt eins og á suðurhafseyju. Glöggir sandkornslesendur hafa þó bent á að í öllum finheitunum leynist ýmislegt misjafnt. Hundar fái til dæmis að ganga óáreittir skítandi og mígandi um fjöruna. Þykir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þvi hafa sýnt mikið hugrekki að svamla þar göróttan sjóinn á dögunum... Kjalarnesið dugir Kári Stefáns- son hefur verið orðaður við að sækja um lóð í Skerjafirði við hlið Davíðs Oddssonar. Nýj- ustu fréttir af slöku gengi deCODE og miklum halla- rekstri þykja þó draga nokkuð niður frægðarsól Kára. Gárungar velta því fyrir sér hvort hann verði bara ekki að láta sér Kjalar- nesið nægja ef ekki fer að rætast úr stöðunni...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.