Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
Fréttir
Olíufélögin ákvarða nýtt bensínverð eftir helgi:
Bensínlækkun á
fjórðu krónu
- er krafa Félags íslenskra bifreiðaeigenda - samkeppnisyfirvöld óvirk
100 Verð á 95 oktana bensíni 1 b\+æ
—janúar til júlí 2000 »8,30
Q£ : z
92 90 91,90 / jP
89’9° " ^ Æ
87,511 8750 C*
QC 1 1 1 L 1 I 1
jan. feb. mars apríl maí júní júlí
Bensínverö ætti að lækka nokkuö
á fjórðu krónu hér á landi eftir
helgi, miðað við þá verðlagsþróun
sem hefur orðið á Rotterdammark-
aði undanfamar vikur og mánuði,
að mati talsmanna Félags íslenskra
bifreiðaeigenda.
„Meðalverðið í júlí er ekki ósvip-
aö þvi sem var í maí,“ sagði Runólf-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
við DV. „í ljósi þess erum við að
tala um útsöluverð á bensíni í
ágústmánuði á svipuðum nótum og
það var í júní. Þá kostaöi lítrinn
94,50. Ég sé fyrir mér að nýtt bens-
ínverð verði á þeim nótum. Dollar-
inn er að vísu óhagkvæmari um ríf-
lega tvö prósent en lækkunin ætti
þó að verða á fjórðu krónu.“
Runólfur sagði að skattar á bens-
íni á íslandi væru þekkt stærð.
Flutningar yfir hafið hefðu einnig
kostnað í för með sér. Hins vegar
væri vægi birgða í útreiknuöu út-
söluverði „löngu afskrifað". Að
óreyndu væri ósennilegt að tal um
birgðir væri með vitund og vilja for-
ráöamanna olíufyrirtækjanna. Þeir
vissu betur um verðmyndanir á ol-
íumarkaði en svo.
„Séu menn að stýra innkaupum
þannig að þeir séu að kaupa inn í
miklu magni á dýrasta tíma þá er
það vísbending um að þeir hafi ekki
hagsmuni viðskiptavinarins að leið-
arljósi. Það eru óskrifuð lög að á
hverju ári gengur bensínverö upp
fyrri hluta sumars vegna mikillar
eftirspumar.
Ef menn eru að kaupa mikið elds-
neyti á þessum tíma þá er það mjög
óeðlileg innkaupastýring sem sýnir
skort á samkeppni. Þá virðast menn
vilja viðhalda háu útsöluverði til að
hafa meiri veltu. Eina eðlilega við-
miðunin varðandi verðmyndun á
þessum markaði er meðalgengi
heimsmarkaðar.“
Runólfur sagði að hér ættum við
að sjá verðhækkanir og verðlækk-
anir seinna heldur en gerist í ná-
grannalöndunum vegna fjarlægðar
við markaði. En miðað við 12 mán-
aða tímabil ætti íslenski neytand-
inn í grunninn að keyra á sama
bensínverði og aðrar þjóöir.
Óvirk samkeppnisyfirvöld
Hann sagði enn fremur að
sænska samkeppnisstofnunin hefði
tekið þarlend olíufélög til bæna eft-
ir að hafa fengið ádrátt um samráð
milli þeirra. Þau hefðu verið sektuð
um háar fjárhæðir í kjölfarið. Hluti
af því hve verðbreytingar séu fljótar
að skila sér í Svíþjóð sé tilkominn
vegna þess að þau séu að reyna að
bæta ímynd sína
„Hér liggja aftur á móti nokkurra
ára gamlar athugasemdir inni hjá
samkeppnisyfirvöldum sem eru enn
til skoðunar. Þama sést hver áhrif-
in eru þegar eftirlitsstofnanir hins
opinbera af þessu tagi eru virkar og
vinna vel. Þegar yfirvöld bregðast
er það neytandinn sem borgar brús-
ann.“
„Við keyrum á meðaltalinu til að
reyna að tryggja okkur fyrir þeim
stóru sveiflum sem eru á heims-
markaðinum," sagði Magnús Ás-
geirsson, vörustjóri eldsneytis hjá
Essó, aðspurður um hvort ekki væri
hægt að kaupa farma hingað til
lands þegar verðið væri lágt á
heimsmarkaði. „Með því fyrirkomu-
lagi á innkaupum kæmi vaxtakostn-
aður og geymslukostnaður ofan á
verðið. Við reynum að halda uppi
eðlilegum veltuhraða og reynum að
tryggja okkur með meðaltalsverði
gagnvart markaðinum." -JSS
DV-MYND ÓG
Knörrinn Hvítserkur
Ferð hans hingaö er í tengslum viö
gjöf Norömanna til íslendinga á
stafkirkjunni sem vígö veröur
á sunnudaginn.
Sigling knarrarins frá Noregi:
Hvítserkur
í Eyjum
Olafur
Ólafsson
bæjartækni-
fræöingur.
DV, VESTMANNAEYJUM:
Knörrinn Hvít-
serkur kom til Vest-
mannaeyja í vikunni
eftir um níu daga
siglingu frá Noregi,
með viðkomu i Fær-
eyjum. AUs voru átta
í áhöfn og þar af var
einn íslendingur,
Ólafur Ólafsson, bæj-
artæknifræðingiu- í Vestmannaeyj-
um, sem ekki sagðist hafa staðist
freistinguna þegar honum bauðst
tækifæri til að sigla með víkinga-
skipinu. „Ferðin gekk mjög vel og
við fengum að kynnast bæði góðu
og slæmu veðri. Skipið stóð sig frá-
bærlega og náði allt að 13 mílna
ferð í brælu,“ sagði Ólafur. Koma
skipsins til Eyja tengist afhendingu
stafkirkjunnar sem risin er í Vest-
mannaeyjum og er þjóðargjöf Norð-
manna. Skipið kom með altarið í
kirkjuna og hellu sem á aö þjóna
hlutverki tröppu í kirkjunni. -ÓG
DVWYND EINAR J.
Norsku konungshjónin komin
Norsku konungshjónin ientu á Keflavíkurflugvelli kl. rúmlega þrjú í gær. Haraldur V Noregskonungur og Sonja drottn-
ing koma hingaö til lands í boöi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands. Munu þau m.a. taka þátt í Reykholtshátíð
og vígslu stafkirkju í Vestmannaeyjum.
Mosfellsbær:
Miklar framkvæmdir í vændum
DV, MOSFELLSBÆ:
Fyrirhugaðar eru í Mosfellsbæ
stórfelldar gatna- og lóðafram-
kvæmdir. Á fundi tækninefndar
þann 25. júlí voru opnuð tilboð í
fimmta áfanga gatnagerðar í Höfða-
hverfi. Tækninefnd lagði til við bæj-
arstjóm að gengið yrði að tilboði
lægstbjóöanda, Verkframa og Ála-
fossverktaka. Tilboð þessara aðila
hljóðaði upp á 42.493.670 krónur.
Þá hafa einnig verið opnuð tilboð
í stígagerð í Mosfellsdal. Tækni-
nefnd lagði til við bæjarstjóm að
gengið yrði að tilboði Guðjóns Har-
aldssonar, að upphæð 4.499.300 krón-
ur, í göngu- og reiðstígagerð í daln-
um. Enn fremur verði legu stígsins
breytt frá Dalsgarðsgatnamótum út
fyrir landamörk Lundar þannig að
hann verði á svæði Vegagerðarinn-
Eir en ekki á einkalandi. Þar af leið-
ir að stígurinn mjókkar á þessu
svæði frá áður hönnuðum stíg.
Útboðsgögn um stígagerð til
Reykjavíkur voru einnig kynnt.
Gert er ráð fyrir hjóla- og göngustíg
frá golfvellinum við Úlfarsá og enn
fremur færslu á reiðstíg úr íjörunni
samsíða golfvelli. Samþykkt var
með 4 samhljóða atkvæöum að und-
irbúningi verði haldið áfram og til-
boð fengin i verkið.
Að lokum voru útboðsgögn um
lóðaframkvæmd við grunnskólann
kynnt og leggur tækninefnd það til
við bæjarstjóm aö gengið verði til
samninga við Mottó ehf. á grund-
velli tilboðs þess um framkvæmdir i
ár, að upphæð 4.000.000 krónur, en á
fjárhagsáætlun ársins er áætlað að
leggja 4.000.000 króna í lóðina. Áætl-
að er að heildarkostnaður við allt
verkið verði 7.600.000 krónur sam-
kvæmt útboðsgögnum. -DVÓ
mmmmi
Konungshjón á landinu
Norsku konungs-
hjónin komu til
landsins um fjögur-
leytið i gær. Harald-
ur V Noregskon-
ungur og Sonja
drottning koma
hingað til lands í
boði Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands. Visir.is
greindi frá.
Sýningin Samskipti opnuð
Hvemig hljómar stafrófið á ólík-
um tungumálum Evrópubúa og
hvemig breytist mælt mál í stafræn
merki? Þetta er meðal þess sem
gestir farandsýningarinnar Sam-
skipti geta kynnt sér. Sýningin
verður opin almenningi í Fjar-
skiptasafni Símans í gömlu loft-
skeytastöðinni við Suöurgötu frá
sunnudeginum 30. júli til loka októ-
ber nk. Visir.is greindi frá.
Eignast 2/3 hlutafjár
Gengið hefur verið frá kaupum
Svínabúsins Brautarholti ehf. á 2/3
hlutafjár í Síld og fiski ehf. og á öll-
um fasteignum félagsins aö Dals-
hrauni og á Minni-Vatnsleysu. Var
afsal vegna kaupanna undirritað í
gær. Visir.is greindi frá.
Vörubíll valt
DVA1YND INGÓ
VörubiU valt á mótum Sæbrautar
og Kambsvegar um tvöleytið í gær
og tók með sér vatnshana og einn
ljósastaur. ökumaður vörubílsins
slapp ómeiddur. Ekki er vitað um or-
sök óhappsins. Bylgjan greindi frá.
Bílvelta á Hellisheiði
Maður á niræðisaldri slasaðist al-
varlega þegar jeppi hans valt marg-
ar veltur Héraðsmegin á Hellisheiði
eystri í fyrradag. Að sögn læknis í
Neskaupstað er maðurinn úr lífs-
hættu. Billinn er ónýtur eftir velt-
umar en lögregla telur að bUlinn
hafl farið 20 til 30 metra niður
bratta hlíðina. RÚV greindi frá.
Tap ÚA 203 milljónir króna
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
var rekið með 203 mUljóna króna
tapi fyrstu sex mánuði yfirstand-
andi árs. Veltufé frá rekstri var 353
milljónir króna. Þetta er umtalsvert
lakari afkoma en á sama tímabili í
fyrra en þá var félagið rekið með
um 180 mihjóna króna hagnaði. Vis-
ir.is greindi frá.
Fékk á sig grjót
Fjallgöngumaður fékk á sig grjót
þar sem hann var á göngu rétt inn-
an við Súðavík. Atvikið var tilkynnt
um hálfeitt I gær en björgunarsveit-
armenn úr Súðavík em nú að bera
hann í sjúkrabíl. Ekki er vitað
hversu alvarleg meiðsl mannsins
eru en hann er með fulla meðvit-
imd. Visir.is greindi frá.
Geir vinsælastur
Geir H. Haarde
fjármálaráðherra
nýtur mestra vin-
sælda ráðherra í
ríkisstjóminni sam-
kvæmt skoðana-
könnun Gallups
sem birt er í dag.
Rétt tæp 70% að-
spurðra segjast ánægö með störf
hans. RÚV greindi frá. -KEE