Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 26
26 Helgarblað LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 I Yfirbókarinn blekkti alla í kringum sig: Stórsvindlari bókari hjá Scotland Yard Anthony Williams hafði dreymt um framtíð hjá Scotland Yard alveg frá því að hann var drengur. Hann var þó nógu raunsær til að gera sér grein fyrir þvi að hann hefði varla mikla möguleika á að komast að hjá hinnu frægu lögreglu því hann var mjög grann- vaxinn, nærsýnn og með krónískan asma. Hann við- urkenndi fyrir sjálfum sér að hann yrði að fara inn bakdyramegin. Og það tókst. Árið 1967 fékk hann vinnu í reikningshaldi Scotlands Yards. Anthony var þá 27 ára. Hinn hægláti, talnaglöggi maður var ánægður í vinn- unni og hann stóð sig vel. Hann hækkaði smátt og smátt í tign þar til hann var gerður að yfirmanni hjálparsjóðs lögreglunnar sem velti um 10 milljónum punda á ári. Það var árið 1980. Næsti áfangi á ferlin- um yrði starf fjármálastjóra lögreglunnar. Arfur eftir ríkan frænda En samtímis gerðust hlutir sem gjörbreyttu lífi bókarans. Hann hafði feng- ið arf eftir óhemjuríkan frænda sinn í Noregi. Ant- hony fullvissaði þó æðsta yfirmann Scotlands Yards, sir Paul Condon, að hann hefði ekki í hyggju að segja upp starfi sínu. Hann væri þvert á móti afar ánægður í vinnunni. Hann væri samt glaður yfir því að hann og fjölskylda hans gætu veitt sér svolítið meira. Það er óhætt að segja að það hafi hann gert. Á nokkrum vikum keypti Anthony og eiginkona hans, Kay, lúxusvillu í Surrey og tvær ibúðir í Mayfair-hverfmu í London. Þau keyptu sér einnig sumarhús á Costa del Sol. En það var í Skotlandi sem Ant- hony Williams spreðaði fyrir alvöru fénu sem hann hafði erft eftir norska frændann sinn. Og þó að get- Konungurskoska hálandanna Bæjarbúar litu á hann sem frelsara sem útvegaði þeim fjölda atvinnutæki- færa. Hann var jafnframt styrktaraðili Skosku hálandaleikanna á svæð- inu. Árið 1986 keypti hann sér titilinn Laird of Tomin- toul. „Ég lifi stórkostlegu lífi,“ sagði hann í viðtali við skoska sjónvarpsstöð. „Peningarnir mínir hafa skapað nýtt líf og glatt mikið og gert íbúana stolta. Þó svo að ég gegni enn ábyrgðarfullu starfi mínu er hjarta mitt hér í hálöndunum. Líf mitt hef- ur breyst í dásamlegan draum.“ Draumurinn breyttist í martröð Því miður breyttist draumurinn í martröð. En þótt ótrúlegt megi virðast liðu 13 ár þar til einhverjir fóru að efast um að til hefði verið norskur frændi og þar til bankamenn í London fóru að velta fyrir að því er virtist ótakmörk- uðu fjárstreymi inn á reikning bókara lögregl- unnar. Sumarið 1993 sprakk sprengjan þegar fulltrúar þriggja banka í London fóru til Scotland Yard með þær fréttir að einn af yf- irmönnum lögreglunnar væri sam- viskulaus kassaþjófur sem um ára- bil hefði stolið yfir 5 milljónum punda og eytt öllu fénu nema um 200 þúsundum punda. Eitt mesta fjársvikamál aldarinnar Sir Paul Condon var nær fallinn í yfirlið. Hann bar ábyrgð á einu mesta fjársvikamáli aldarinnar. Hann baðst afsökunar í fjölmiölum og hét því aö slíkur glæpur yrði aldrei framinn aftur. Ári seinna kom það fram við rétt- arhöldin hvemig Ánthony Williams Eiginkonan Kay Williams naut einnig góös af arfi eiginmannsins. Hún tilkynnti að hún ætlaöi aö bíöa eftir eiginmanninum. ið væri um lifnaðarhætti Anthonys í fjölmiðlum velti enginn því fyrir sér hjá Scotland Yard að hinn til- tölulega lágt launaði bókari gæti lif- að eins og hann væri auðjöfur. Bókarinn hafði fallið fyrir litla bænum Tomintoul í skosku hálönd- unum. Þangað fór hann nokkrum sinnum i fri áður en hann ákvað að kaupa stóran hluta paradísar sinn- ar. Fyrst keypti hann sér orlofshús og gerði það upp fyrir 100 þúsund pund. Því næst tók hann við hótel- inu í bænum. Endurnýjun þess kostaði allt að eina milljón punda. Anthony varði 250 þúsundum punda í tvær aðrar eignir. Alls eyddi bókarinn yfir 3 milljónum punda í uppbyggingu í litla bænum. WCT" ' ^ I m c r: j , 18 i "j. i' j|ag£*f - *! ■’ i [ÍV-:1 1 il’ j 3J n - teSáiill m n i ‘jW 9 Lúxusíbúðirnar Anthony Williams veitti sér ýmis lífsins gæði fyrir féö sem hann stal úr sjóöi lögreglumanna. Hann keypti meöal annars tvær íbúöir í þessu húsi í Mayfairhverfinu í London. Bókarinn Anthony Williams vissi aö hann yröi aö fara inn bakdyramegin hjá Scotland Yard. Honum tókst þaö. hafði lifað herramannslífi og skapað sér orð sem velgjörðarmaður á kostnað lögreglunnar. Þetta hafði allt byrjað 1981 þegar lögreglumaður hafði fengið vilyrði fyrir láni upp á 200 pund vegna orlofs veikrar eiginkonu sinnar. Peningarnir voru hins vegar ekki sóttir og bókarinn stakk þeim í eigin vasa. Þegar hann uppgötvaði hversu auðvelt þetta var hélt hann svindlinu áfram beint fyrir framan nefið á duglegustu rannsóknarlögreglumönnum heims. Féð, sem átti að fara til þurfandi lögreglumanna, fór í að greiða lifnaðarhætti sem bókarinn hafði ekki einu sinni látið sig dreyma um. Hann var um skeið umsjónarmaður sjóðs upp á 7 „Sumarið 1993 sprakk sprengjan þegar fulltrúar þriggja banka í London fóru til Scotland Yard með þær fréttir að einn af yfirmönnum lögreglunnar væri samviskulaus kassaþjófur..." milljónir punda. Fénu átti að verja til hertrar baráttu gegn glæpum. Af sjóðsfénu hafa aðeins fundist 5 milljónir punda. Afganginum eyddi Anthöny Williams. Á samsvarandi hátt hvarf 1 milljón af fé sem átti að fara til baráttu gegn hryðjuverkum. Bókarinn viðurkenndi þjófnað og svik í 17 tilfellum upp á yfir 5 milljónir punda. 600 atriði eru enn óupplýst. Verjandinn, James Sturman, sagði að skjólstæðingur sinn iðraðist sáran gerða sinna. „Hann varð að ljúga að fjölskyldu sinni og vinum. Hann hefur lifað á lygi. Og hann hefur lifað tvöföldu lífi, bæði sem skyldurækinn embættismaður og sem aðalsmaður og næstu viku Myrt með öxi Heike vildi ekki giftast velgjörðarmaður hinum megin við skosku landamærin. Anthony Williams vildi ekki láta vitni tala fyrir hans hönd. „Ég vil ekki þvinga vini mína til að fullyrða að ég sé heiðarlegur. Það er augljóst að það hef ég ekki verið.“ Konungsríki bókarans lokað Bókarinn var dæmdur í sjö ára fangelsi. Þingið áleit dóminn allt of mildan. Anthony Williams yfirgaf réttarsalinn fallega brúnn eftir velheppnað frí í Karíbahafi. Með sér úr salnum hafði hann plastpoka með aleigunni í. Konan hans, Kay, fullvissaði hann um að hún myndi bíða eftir honum þar til hann hefði afplánað fangelsisdóminn. í Tomintoul í Skotlandi sleikja íbúarnir sárin eftir draumana sem urðu að engu. Hald var lagt á allar eigur Anthonys Williams. Búið er að loka kránni, hótelinu og veitingastaðnum. Næstum helmingur bæjarbúa er nú atvinnulaus. En enginn álasar Anthony Williams. Það er mat manna að hann hafi alls ekki verið svo slæmur. „Hann var góður vinur okkar og við munum sakna hans mikið," segir þegnarnir í konungsríki bókarans í Skotlandi. sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.