Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 14
14 Helgarblað LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 DV Innlent fréttaljós Eiríkur Jónsson blaöamaöur Þama hætti Ólafur Ragnar að hlaupa, aldrei þessu vant. Stóð á Seltjarnamesinu miðju og vissi vart í hvom fótinn hann átti að stíga. Margt hafði hann heyrt í útvarpinu á hlaupum sínum en fátt komið honum meira á óvart en þetta. Seinna sagði hann að þama hefði hann ákveðið að láta slag standa og fara í forsetaframboð. Síðan eru lið- in rúm íjögur ár. Inn og út um gluggann Forsetlnn bregöur á leik meö innfæddum í Eystrasaltsheimsókn sinni. Kveðjustund Forsetinn og helstu stjórnmálaleiötogar þjóöarinnar viö útför Guörúnar Katrínar Þorbergsdóttur. í útvarpinu heyrðl hann... í útvarpinu eru tveir menn að ræða væntanlegar forsetakosning- ar. Upp úr þurru ákveða þeir að efna til skoðanakönnunar meðal hlustenda um nýjan forseta og síma- línumar verða samstundis rauðgló- andi. Ólafur Ragnar hleypur áfram á jöfnum hraða og hlustar sem fyrr. Eftir að tveir hlustendur höfðu Guðbergur Bergsson rithöfundur: Drappaður „Hann hefur farió til Hollywood en ég veit ekki hvort árangurinn þar var jafn mikill og í ástinni. Hann Ólafur er ósköp líkur þessari þjóö því hann er drappaöur og fellur ákaflega vel í kramiö. En ég held aö hann vinni engin stór afrek þó þaö sé náttúrlega löngun hans, eins og allra íslendinga, aó vinna afrek án þess aö leggja mikiö á sig. “ Melra en hjón Á þriðjudaginn sver Ólafur Ragnar Grímsson forsetaeið sinn í annað sinn í Alþingishúsinu að viðstöddu fjölmenni. Margt er breytt frá því fyrir fjórum árum og sá veruleiki sem blasir viö forset- anum nú er ailt annar en var við upphaf kjörtímabils hans. Þar skiptir mestu að eiginkona hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, er látin og ný kona mun að öllum lík- indum standa við hlið hans á svöl- um Alþingishússins á þriðjudag- inn og veifa til mannfjöldans. Guð- rún Katrín gegndi lykilhlutverki í framboði Ólafs Ragnars fyrir fjór- um árum og margir eru þeirrar skoðunar að hún hafi í raun ekki átt minni hlut í kosningasigri Ólafs Ragnars sumarið 1996 en for- setinn sjálfur. Enda lagði Ólafur Ragnar ríka áherslu á það í kosn- ingabaráttu sinni það ár að þau hjónin væru saman í framboði og undirstrikaði það í sífellu með orð- unum: „Við Guðrún Katrín...“. „Ólafur Ragnar og Guðrún Katrin voru meira en hjón. Þau voru vinir, félagar og ekki síst pólitískir samherjar. Ég held að Olafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff opinberuöu trúlofun sína á Bessastöóum í vor í leifturljósi fjölmiölanna. pólitísk áhrif Guðrúnar Katrínar verði seint metin til fulls. Án henn- ar hefði Ólafur Ragnar ekki verið svipur hjá sjón og öruggleg aldrei orðið forseti," sagði gamall vinur þeirra beggja aðspurður. „Eftir andlát hennar var forsetinn mjög niðurdreginn, svo mjög að starfs- fólk hans á forsetaskrifstofunni fór að þétta dagskrá hans til muna svo hann hefði nóg fyrir stafni. Hann átti það til að bresta í grát á skrif- stofu sinni þegar hann ræddi and- lát eiginkonu sinnar." Vertu áfram, Vigdís! í raun var það röð tilviljana sem olli því að Ólafur Ragnar Grimsson varð forseti íslands. Þar skipti þó ekki minnstu það lið manna sem Ólafur Ragnar hafði komið upp í Forseti í f jögur ár Nýr heimur og nýtt líf blasir við Ólafi Ragnari Grímssyni þegar hann hefur annað kjörtímabil sitt sem forseti íslands á þriðjudaginn Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi jfjármálaráð- herra, var aó skokka í námunda viö heimili sitt á Seltjarnarnesi eins og hann geröi jafnan snemma árs 1996. Að venju var hann tengdur litlu útvarpstœki sem hann bar jafnan í vinstri brjóstvasa jafnt á hlaupum sem í erli hins dag- lega lífs. Útvarpið tengdi hann við umrœöu líðandi stundar og Ólafur Ragnar vildi ekki missa af neinu. Jafnvel á hlaupum safnaði hann upplýsingum sem hann nýtti sér síðar. Skipti engu hversu léttvœgar þær voru. nefnt nöfn tveggja kvenna sem þeg- ar höfðu lýst yfir framboði sínu til forseta er nafn Ólafs Ragnars Grímssonar nefnt. Fjármálaráðherr- ann fyrrverandi brosir í kampinn og heldur áfram að hlaupa. Hlust- endur halda áfram að hringja og nú gerist hið ótrúlega: Nafn Ólafs Ragnars er nefnt ótt og títt og aðrir komast ekki að. Engu er líkara en æði hafi runnið á hlustendur. Allir vilja Ólaf fyrir forseta. Honum er hrósað í hástert og mærður sem aldrei fyrr. Fortíðin er gleymd og framtíðin ein blasir við. Hlustendur eru á einu máli um að Ólafur Ragn- ar hafi allt til að bera til að gegna forsetaembættinu: Vel menntað glæsimenni sem víða hafi farið. Og svo sé hann vel kvæntur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.