Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Stundum vantar börn foreldra og foreldra börn: Nýlega kom 100. barnið hingað frá Indlandi. Stoltir foreldrar ásamt börn- un sínum við komuna til landsins. Þau komu tvö í einu og því ekki ákveð- ið hvort barnið var hið hundraðasta - enda skiptir það minnstu í stórmáli eins og því aö eignast barn. Þessari auglýsingu er ætlað að hitta á markhópinn, ungt fólk sem er að byrja að búa, ungt fólk sem verður að átta sig á því að það er ekkert elsku mamma lengur þegar kemur að því að fá þvegið af sér. CD Fieira töff frá inDesu á frábæru verði: Kæliskápar, frystiskápar, frystikistur, uppþvottavélar, eldavélar, helluborð, bakaraofnar. Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is Þvottavél og þurrkari tvö tæki á aðeins \ .59.800 kr.'stgr Ýmsir greiðslumöguleikar Það vakti athygli í dönsku pressunni, nánar tiltekið Berlingske tidende, að heldur hefði minnkað áhugi í Dan- mörku á œttleiðingum erlendis frá og ástœðan sögð sú að of dýrt væri að œttleiða. Á íslandi eru nú um og yfir fjögur hundruð böm sem komið hafa frá öðr- um löndum og biðlisti vœntanlegra foreldra langur. Hjá félaginu ís- lensk œttleiðing, sem eru samtök þeirra sem hafa þegar œttleitt bam eða böm og hinna sem bíða eftir ættleiðingu, varð Lísa Karen Yoderfyrir svörum. „Við verðum ekki vör við það að kostnaðurinn hafi fælt fólk frá,“ svar- aði Lísa. „Heildarkostnaður er líklega á bilinu 350.000-700.000 kr. fyrir utan ferðalög en þegar fólk hefur tekið ákvörðun um að ættleiða bam þá set- ur það ekki peninga fyrir sig heldur lítur á það sem óhjákvæmilegan fylgi- fisk. Reyndar má geta þess að í Svíþjóð fá foreldrar greiddar 40.000 sænskar krónur þegar þeir ættleiða bam og kjörforeldrar í Danmörku og Noregi fá einnig styrki, en hér greiðir fólk allan kostnaðinn sjálft og fær ekkert til baka. Sem kannski ætti að vera því þær sem eignast bam á hefðbundinn hátt fara í mæðraskoðun, fæða og fá eftirlit án nokkurs kostnaðar. En það er hins vegar ekki aðalmálið í okkar augum, heldur það að eignast bam. Það skiptir mestu.“ Nú era að ganga I gildi lög sem kveða á um að við gerumst aðilar að Haag-sáttmálanum sem setur ákveðn- ar reglur um ættleiðingar á milli landa og gerir að verkum að við getum ættleitt böm frá fleiri löndum, m.a. Kína, en margir hafa haft áhuga á því. Flest bömin sem hér em hafa komið frá Indlandi og á dögunum kom 100. bamið frá Indlandi, en það fyrsta kom árið 1988. Þar á undan kom stór hópur frá Sri Lanka. Einnig hefur íslensk ættleiðing milligöngu um ættleiðingu bama frá Rúmeníu og þaðan komu funm böm til íslands á síðasta ári. Félagið Islensk ættleiðing tekur, ásamt sænskum og bandarískum aðil- um, þátt í rekstri bamaheimilis í Kalkútta í samvinnu við indverska að- ila og segir Lísa að 10-15 böm komi þaðan á hverju ári til íslands. „Þvi miður minnkar þörfin ekkert fyrir kjörforeldra. Mest em þetta böm ein- stæðra mæðra sem engan veginn geta séð um sig og bömin, en oft á tíðum reynist okkur erfitt að fá einhveijar upplýsingar um þau, ætt þeirra og upp- runa. Við hvetjum alla sem taka að sér barn að fara og sækja það svo þeir geti að minnsta kosti frætt bamið um það seinna úr hvers konar umhverfi það kom og hverju landið þess er líkt.“ Lítill sólargeisli frá Indlandi „Þetta er líkt og með meðgöngu, maður bíður eftirvæntingarfullur eftir baminu sínu,“ segja þau hjón Gerður Guðmundsdóttir og Óskar Þorbergsson sem í júlí í fyrra sóttu lítinn dreng til Indlands. Hann heitir Daníel og er fæddur 20. janúar 1999 í Kalkútta þar sem hann dvaldi fyrstu sex mánuðina á bama- heimili því sem Islensk ættleiðing á hlut í. Þar em að jafnaði um 50 böm en heldur færra starfsfólk en hér á landi þannig að þó vel sé hugsað um bömin fá þau ekki sömu örvun og hér tíðkast. „Ferðin til Indlands var okkur mikil- væg og við heíðum ekki viljað sleppa henni,“ segir Gerður. „Við vOdum kynnast að einhverju leyti umhverfi því sem Daníel kom úr til þess að geta sagt honum frá því seinna og svo gát- um við einnig nýtt ferðina að hluta tU sem sumarleyfi því við skoðuðum okk- ur talsvert um í Dehli.“ Það sem vakti athygli mína var að þrátt fyrir kofahreysi, jafnvel búin tU úr pappakössum og jámplötum á miðj- um moldarhaug, var fólk að sópa mold- ina og reyna að gera snyrtUegt í kringum sig.“ Þau segja biðina eftir drengnum hafa verið ótrúlega stutta en telja skriffinnskuna erfiða við að eiga eins og víða annars staðar. „Það ríkir þama mikið skrifræði sem ekki er undarlegt þar sem mikU bresk áhrif eru í Indlandi. Hver emb- ættismaður hefur sitt mál til meðferðar og fari hann í frí eða komi ekki til vinnu af einhverjum ástæðum bíður einfaldlega bunkinn eftir honum á borðinu. Engir afleysingamenn þar,“ segir Óskar. „Umsóknimar fara ákveðna leið í kerfinu og foreldrar fara ekki af stað tU Indlands fyrr en allt er frágengið." Löng leið heim Ferðin frá Kalkútta og heim tU ís- lands var löng. MUlUent var í Dehlí og þá beðið í vélinni í um það bU eina klukkustund og tveggja tíma stopp var í HoUandi. „Frá þvi að við yfirgáfum hótelið í KaUcútta og þar tU við vomm komin heim, liðu um það bU 22 tímar. Það er ótrúlegur munur að fljúga með KLM,“ segja hjónin. „Við fengum aUa aðstoð sem hægt var að hugsa sér. Það var komið með burðarrúm sem hægt var að festa á vegginn, með öryggisbelti og tilheyrandi, við fengum rúmgóð sæti, teppi og leikfóng fyrir barnið. Það er greinUegt að HoUendingamir kunna eitthvað fyrir sér í því að fljúga með smáböm og fyrir vikið var ferðin hin þægflegasta þó hún væri löng.“ Daníel litli var ekki stór við fæð- ingu, aðeins 1750 g og 42 sm að lengd. Þegar hann var sex mánaöa og tUbúinn tU að fara heim tU Islands hafði hann þyngst talsvert og var orðinn rúm fjög- ur kg og þar með orðinn á stærð við myndarlegt íslenskt bam við fæðingu. Þegar heim var komið tók Gestur Páls- son bamalæknir við honum og skoðaði Gerður Guðmundsdðttir og Oskar Þorbergsson ásamt Daníel litla. hann en Gestur hefur skoðað nær öU börn af erlendum uppmna sem koma hingað. Nú, þegar hann er orðinn hálfs ann- ars árs, er hann fmgerður og kannski svolítið minni en íslensk börn á sama aldri, en duglegur. „Það verður gaman þegar hann kemst í leikskólann i haust,“ segir Gerður. „Hann hefur mjög gaman af öðmm bömum og er ekkert feiminn við þau heldur viU endUega leUia sér við þau eins og krakkar á hans aldri vUja gjarnan. Hann er nýfarinn að ganga óstuddur og hefúr mUcið gaman af.“ Framtíðin blasir við litlu fjölskyld- unni i Kópavoginum og þau eru glöð og ánægð með sitt og segjast hafa ver- ið svolítið hissa á þvi hvað þetta var í rauninni lítið mál - svona miðað við það sem þau höfðu gert sér i hugar- lund. „Við emm alveg óskaplega ánægð með aUa þjónustu hjá íslenskri ættleið- ingu og ekki síst með litla drenginn okkar, þennan sólargeisla sem við fengum frá Indlandi," segja þau hjón að lokum. -vs Þrjár góðar ástæður fyrir 0inDesiT 1. Mamma er búin að fá nóg 2. Verð og kjör gera ungu fólki kleift að kýla á ný tæki í stað þess að taka sénsinn á þreyttum notuðum og hallærislegum tækjum frá því á síðustu öld. 3. Indesit er töff hönnun, eins og annað sem kemur frá ítalanum, og fellur því vel að smekk ungs fólks. Ættleiðing góður kostur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.