Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Page 6
Sandkorn
§y Umsjon:
Höröur Kristjánsson
notfang: sandkorn@ff.is
'
Stafkirkja frá Ameríku?
Stafkirkjan í
Vestmannaeyj-
um þykir
merkileg smið
og gerð að alda-
gamalli fyrir-
mynd norskrar
stafkirkju. Sag-
an segir hins
vegar að deila
megi um upp-
runa þessarar „norsku" kirkju
sem sjálfur Noregskóngur vígir á
morgun. Það hafi nefnOega sést til
Áma Johnsen, forgöngumanns
um byggingu kirkjunnar, á vappi
við ónefnda timbursölu í Kópa-
vogi. Haft er eftir Gróu gömlu á
Leiti að þingmaðurinn hafi þar
einmitt verið að kaupa fjalir í staf-
kirkju. Hafi honum verið boðinn
Kalifomíurauðviður sem eigi fátt
sameiginlegt með norskri furu og
sé ekki einu sinni ættaður frá
Noregi...
Fréttir
Vestmannaeyjar:
Stafkirkjan vígö
Vandræði í góðæri:
Bílum hent
- skildir eftir á bílastæðum fjölbýlishúsa
„Þetta eru hundruð bíla á ári sem
fólk er að henda með því að skilja
eftir á bílastæðum fjölbýlishúsa og
kostnaðurinn lendir svo á húsfélög-
um fjölbýlishúsanna," sagði Guö-
mundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnar-
fjarðar- og Kópavogssvæðis, um
vanda sem stofnun hans á við að
glíma og ræður vart fram úr. „Það
er flutt inn svo mikið af nýjum bíl-
um að fólk einfaldlega hendir þeim
gömlu. Bílapartasalar taka ekki við
meiru, auk þess sem eftirspumin
hjá þeim hefur hruniö vegna allra
nýju bílanna.
Við erum að hirða gömlu bílana
úti um allt, jafnvel úti í hrauni, en
verst er þetta á bílastæðum fjölbýl-
ishúsanna. Það vantar skilagjald á
gamla bíla, svona líkt og er á dósum
og flöskum. Þá væri vandamálið úr
sögunni," sagði Guðmundur Einars-
son. -EIR
Yfirgefnir
Númerslausir bílar viö fjölbýlishús fjarlægðir á kostnaö húsfélaganna.
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
I>V
Stafkirkjan í Vestmannaeyjum
verður vigð með mikilli viðhöfn nú
á sunnudaginn. Margt fyrirmenna,
bæöi íslenskra og norskra, verður
viðstatt vígsluna. Undirbúningur er
á lokastigi og er svæðið í kringum
Skansinn og hafnargarðinn, þar
sem kirkjan hefur verið reist, að
verða hið glæsilegasta.
Fjöldi tiginna gesta
Ámi Johnsen alþingismaður,
Guöjón Hjörleifsson bæjarstjóri og
séra Kristján Björnsson sóknar-
prestur hafa borið hitann og þung-
ann af undirbúningi vígslunnar.
Sjálfur á Ámi hugmyndina að staf-
kirkjunni sem hann kom á framfæri
við Norðmenn sem gripu hana á
lofti og fannst kjörið að gefa staf-
kirkju íslendingum í tilefni 1000 ára
kristnitökuafmælis. Hefur Árni ver-
ið formaður byggingarnefndar staf-
kirkjunnar frá upphafi. Þessi þjóð-
argjöf er ekki síst til minningar um
þá Hjalta Skeggjason og Gizur hvíta
sem reistu fyrstu kirkju á íslandi
árið 1000. Frá Vestmannaeyjum
héldu þeir á Þingvöll til að boða
mönnum trúna á Hvíta-Krist.
Meðal gesta sem koma til Eyja á
sunnudaginn eru Haraldur Noregs-
konungur og Sonja drottning hans,
forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og Dorrit Moussaieff,
unnusta hans, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og kona hans, Ástríð-
ur Thorarensen, biskup íslands,
herra Karl Sigurbjömsson, og eigin-
kona hans, Trond Giski, kirkju-
málaráðherra Noregs, Sólveig Pét-
ursdóttir kirkjumálaráðherra og
eiginmaður hennar, Geir Haarde
fjármálráðherra og frú, norski
sendiherrann, forseti Alþingis,
þingmenn Suðurlands og bæjar-
stjóm. Því miður verður að tak-
marka aðsókn því það eru ekki
nema milli 40 og 50 sæti í stafkirkj-
unni. „Hún er þjóðargjöf Norð-
manna og því verður að fylgja
ákveðnum reglum þegar ákveðið er
hverjir eiga að vera viðstaddir og
það er eitthvað sem við ráðum ekki
við,“ sagði Guðjón Hjörleifsson bæj-
arstjóri.
Trappa frá Noregi
Að sögn Áma Johnsens verður
öflugu hátalarakerfi komið upp
þannig að fólk geti fylgst með því
sem er að gerast inni í kirkjunni en
athöfnin fer líka fram utandyra.
Gert er ráð fyrir að athöfnin byrji
klukkan 13.20 en sjálf vígslan verð-
ur svo á milli klukkan 14.00 og 15.00.
Bæjarstjórn býður hinum tignu
gestum i mat á Þórshamri og er
matseðillinn sagður mjög gimilegur
þó að ekki fáist uppgefið hvað á
honum verður. Þá verður boöið í
siglingu i kringum Heimaey með
PH-Viking.
Dagskráin er mjög fjölbreytt og
koma bæði norskir og íslenskir
listamenn við sögu. Má þar nefna
Lúðrasveit Vestmannaeyja, Védísi
Guðmundsdóttur flautuleikara, Há-
DV-MYND ÓG
Stafkirkja risin
Árni Johnsen átti hugmyndina aö stafkirkjunni.
Allt að koma
Efniviöurinn í kirkjuna kemur víöa aö.
tíðarkór Vestmannaeyja, en í hon-
um er fólk bæði úr Samkómum og
Kirkjukórnum, norskan leikflokk
frá eynni Monstur sem sýnir leikrit-
ið Sverðið og krossinn, þjóðsöngva
þjóöanna tveggja sem verða fluttir
og bjargsig úr Dönskutó í Heima-
kletti. Norski kirkjumálaráðherr-
ann mun svo afhenda Davíð Odds-
syni forsætisráðherra kirkjuna fyr-
ir hönd Norðmanna. Davíð mun sið-
an afhenda biskupi íslandslyklana
að kirkjunni en umsjón hennar
verður í höndum nefndar sem heyr-
ir undir þjóðkirkjuna, Þjóðminja-
safnið og Vestmannaeyjabæ. Stjóm-
unin verður hjá þjóðkirkjunni,
Þjóðminjasafnið mun sjá um við-
hald og Vestmannaeyjabær mun sjá
um ferðaþjónustuþáttinn.
Víkingaskipið Hvítserkur, sem
var væntanlegt frá Noregi, er komið
til Eyja en það kemur með altari í
kirkjuna og steinhellu sem mun
gegna hlutverki tröppu inn í kirkj-
una. „Hellan kemur frá Holtásen en
þangað er fyrirmyndin að kirkj-
unni sótt,“ sagði Ámi.
List að fornri fyrirmynd
Margt fallegra muna verður í
kirkjunni og má þar nefna kross og
líkneski eftir Svein Ólafsson, hand-
smíðaða kertastjaka úr kopar eftir
Björgvin Svavarsson sem gerðir eru
eftir 1000 ára gömlu mynstri sem
varðveitt er á Þjóöminjasafhinu.
Annar stjaki er gerður eftir stjaka
Umeskirkju í Noregi og er hann i
líki vikingaskips. Kaleikurinn er
gerður af ívari Bjömssyni, letur-
grafara og silfursmið, og er fyrir-
myndin kaleikur frá Grund í Eyja-
firði sem er frá miðöldum. Hann
gerir líka patinu til minningar um
forfeður sína sem fórust við Eyjar
snemma á 20. öldinni. Altaristaflan
er eftirgerð elstu altaristöflu sem
finnst í Noregi. Er hún gjöf norsku
kirkjunnar og kostar 3 til 4 milljón-
ir en þaö eru íbúar í Lom, bænum
þar sem kirkjan er smiðuð, sem gefa
hana.
Stefán Lúðvíksson í Eyjablikki
smíðar ljósakrónu fyrir sex kerti í
kór og er það eigin útfærsla Stefáns
á norskri fyrirmynd og Alexander
Einbjörnsson smíðar 14 ljósa krónu
í sjálft kirkjuskipið. Norska lista-
kona Marit Benthe Norheim er aö
gera skímarfontinn úr steini úr
nýja hrauninu en það var Kristinn
Pálsson sem valdi steininn. Þá eru
tíu listmálarar, sex Eyjamenn og
fjórir fastlendingar að mála jafn-
margar myndir úr ævi Krists. Þeir
eru Bjarni Ólafur Magnússon, Sig-
mund Jóhannsson, Sigurfinnur Sig-
urfinnsson, Sigurdís Arnarsdóttir,
Guðjón Ólafsson og Steinunn Ein-
arsdóttir frá Vestmannaeyjum, og
Benedikt Gunnarsson, Karólina
Lárusdóttir, Sigrún Eldjárn og
Kristín Gunnlaugsdóttir frá megin-
landinu.-ÓG
Svíkja lit
Gárungum
norðan heiða
og sérlegum
áhugamönn-
um um SS-
pylsur er lit-
ið skemmt
þessa dagana
og segja farir
sínar ekki
sléttar. Á
Akureyri
munu reknar for-
láta sjoppur í eigu Höldurs sem
aUir hafi haldið að hefðu einungis
SS-pylsur á boðstólum. Sérlundað-
ir sunnlenskir pylsuunnendur
munu hins vegar ekki láta snúa á
sig og fullyrða að Höldur svíki lit
og hafi laumað KEA-pylsum í
pottana, öllum að óvörum...
Bónus aftur
Fyrst Akur-
eyri er uppi á
borðinu þá
minnast menn
innrásar Jó-
hannesar í
Bónusi fyrir
nokkrum
árum sem
mistókst
hrapallega.
Akureyringar eru nefnilega
sannkristnir í öllu sem lýtur að
norðlenskum uppruna. Því vörðu
þeir með oddi og egg KEA-veldið
sem þeir höfðu þó bölvað í hljóði
árum saman fyrir hátt vöruverð.
Var Bónus algjörlega sniðgenginn
svo auðvitað sigraði KEA í þeim
slag. Bónus mun hins vegar ekki
vera af baki dottinn og eftir að
hafa sleikt sárin um nokkurn tíma
fara menn þar senn að blása í her-
lúðra við opnun á nýrri verslun á
Akureyri. Sagt er að almenningur
bíði spenntur eftir verðslagnum
því nú sé eins víst að borgað verði
með matarkörfunni...
Þaggað niöur í Kollu
Kolbrún
Halldórsdótt-
ir, þingmaður
með meiru, er
m.a. þekkt fyr-
ir að vera
röddin í far-
símanum þeg-
ar ekki er
svarað á hin-
um endanum.
Nú mun verða breyting á því
Landssíminn er að skipta út sjálf-
virkum stöðvum og um leið rödd-
inni í símanum. Gárungar fuUyrða
hins vegar að pólitískar ástæður
liggi að baki því að nú sé þaggað
niður i Kollu. Forstjórar Lands-
síma og Landsvirkjunar, Þórarinn
og Friðrik, séu nefnilega góðir
vinir en Kolbrún hefur einmitt
haft sig mjög í frammi gegn hvers
kyns virkjunarframkvæmdabrölti
Friðriks Sophussonar á hálend-
inu...