Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 29. JULI 2000
Helgarblað
DV
Brögð til þess að verjast árásarmönnum:
Svona er hægt að koma
í veg fyrir nauðgun
Verslunarmannahelgin nálgast
óðum. Henni fylgja því miður
alltaf nauðganir. DV fékk Hinrik
Fjeldsted hjá Jiujitsufélagi Reykja-
víkur til liðs við sig. Hinrik brá sér
í hlutverk árásarmanns og sýndi
um leið hvemig hægt er að verjast
þeim með nokkrum einfoldum
brögðum.
Hér er ekki tæmandi upptalning
bragða sem hægt er að beita og
ættu allir að fara á námskeið til
þess að geta varið sig þegar nauð-
syn krefur. Oft er enginn annar til
hjálpar en maður sjálfur.
iðiÉ m
Boöungsgrip
4) Árásarmaður grípur í flík stúlkunnar og hún bregst við
meö því að taka fast um hönd hans. Þumall hennar er á
handarbaki árásarmannsins og vísifingur er í miðjum lófa
hans. Þetta gerir henni kleift að losa manninn fra sér. Svo
snýr hún upp á úlnliðinn með því að ýta með hinni hendinni á
handarbak hans,
gagnstætt þumli.
Liggjandi kyrkíng
5) Hér liggur árásarmaðurinn ofan á stúlkunni, milli fóta
hennar. Hann heldur um háls hennar. Þá er mikilvægast að
hún ýti hökunni niður svo að hann geti ekki svæft hana. Svo
krossleggur hún hendurnar innan handa hans. Hún slær hönd-
unum út og færir höfuðið um leið til þess að höfuð árás-
armannsins skalli hana ekki þegar hann fellur níður. Hún
grípur í hár hans og ýtir fast á höku hans eða undir nefið.
annig veltir hún honum til hliðar. Að lokum rekur hún hnéð
fast í pung hans og það ber augljósan árangur.
Grip að framan, hendur fastar
1) Hér kemur árásarmaðurinn að
stúlkunni, grípur um hana og heldur
henni þannig fastri. Stúlkan rekur þa þumalfingurna i nára
hans sitt hvorum megin og ýtir fast frá sér. Við það skapast
svigrúm til þess að spenna greipar og slá fast upp í solar
plexus. Að lokum rekur hún hnéð fast í pung hans.
Putti í kok
2) Árásarmaður
ræðst hér að fórn-
arlambi og tekur
það hálstaki. Með
því að pota fingri
fast rétt fyrir neð-
an barka arás-
armannsins hörfar
hann. Mikilvægt er
að potað sé þett-
ingsfast og hér er
gott að vera með
langar neglur.
Hálstak aftan frá
3) Árásarmaðurinn
kemur aftan að
fórnarlambinu og
tekur það hálstaki.
Það tekur í hönd
hans til þess að
losa um öndun og
kýlir oinboga í sol-
ar plexus sem er
þar sem rifbein
koma saman.
Höggið losar árás-
armanninn frá fórn-
arlambinu.
Neyðarmóttakan er alltaf opin:
Tvær til þrjár nauðganir í viku hverri
„Þessi þjónusta kostar ekki neitt,
um hana er algjör trúnaður og hér
er opið allan sólcU-hringinn,“ segir
Eyrún Jónsdóttir, yfirhjúkrunar-
fræðingur á Neyðarmóttökunni,
sem tekur móti á öllum þeim sem
orðið hafa fyrir nauðgun. Hvort sem
viðkomandi hefur hugsað sér aö
kæra atburðinn eða ekki þá er
henni boðið upp á læknisskoðun og
jafnvel fyrirbyggjandi lyf gegn t.d.
klamedíu og lekanda, og sýni eru
tekin vegna lifrarbólgu og eyðni.
„Við tökum einnig sýni sem nota
má ef fólk vill kæra. Það skiptir því
mjög miklu máli að manneskjur
komi í þeim fótum sem þær voru i
þegar atburðurinn gerðist eða hafi
fatnaðinn meðferðis og þá sérstak-
lega nærfot. Best er að fólk fari ekki
í bað áður en það kemur og þvi fyrr
sem það kemur því betra - eftir því
sem það líður lengri tími þeim mun
minni líkur eru á því að það takist
að fmna einhver sakargögn eins og
sæðissýni og annað,“ segir Eyrún.
Sálræn skyndihjálp
Fyrir utan læknisaðstoð býður
Neyðarmóttakan líka upp á sálræna
skyndihjálp og lögmaður á bakvakt
veitir ókeypis lögfræðiaðstoð,
„Að koma hingað er ekki bundið
við kæru en einungis rúmur helm-
ingur þeirra sem hingað koma kæra
þessi mál. Sönnunarbyrðin er oft
mjög erfiö í þessum málum, yfirleitt
er þetta orð gegn orði, þannig að
það skiptir miklu máli að einhver
sakagögn séu til staðar. Aðalmálið
er líka velferö manneskjunnar
sjálfrar, að hún fái læknisskoðun og
að orð hennar séu tekin trúarleg.
Hér er hlúö að henni og henni veitt
sálræn skyndihjálp og viötöl hjá
ráðgjafa og síöan jafnvel hjá sál-
fræðingi, ef því er að skipta. Það
sem skiptir mestu máli er að mann-
eskjan geti unnið sig út úr þessu
áfaúi,“ segir Eyrún sem hefur feng-
ið stúlkur á öllum aldri til sín. Sú
yngsta var 12 ára og sú elsta 78 en
flestar eru stúlkumar þó milli 16
ára og tvítugs.
Nauöganir á skemmtistöðum
Neyðarmóttakan veröur ekki með
neinn aukaviðbúnað vegna verslun-
armannahelgarinnar þar sem sú
helgi er víst ekkert verri en aðrar
helgar hvað nauðganir varðar.
„Fólk er mikið úti að skemmta
sér um helgar og lendir í alls konar
aðstöðu og þarf ekki útihátíð til.
Reynsla okkar hefur sýnt að versl-
unarmannahelgin er ekkert verri en
aðrar helgar og ég held að það sé
vegna þess að í kringum þessa helgi
er mikil umijöllun um þessi mál og
vinirnir passa betur hver upp á
annan heldur en um venjulegar
helgar. Á skemmtistöðunum hér 1
bænum er fólk alveg eins útsett fyr-
ir það að lenda í svona, eins og á
útihátíðunum, t.d. inni á klósettun-
um,“ segir Eyrún en Neyðarmóttak-
an fær að meðaltali tvö fómarlömb
í viku hverri og er það yfirleitt
bundið við helgamar.
í sambandi við verslunarmanna-
helgina þá er vert að minna á það
að stúlkur þurfa ekki aö bíða með
það að fara í skoðun þar til þær
koma eftur í bæinn.
„Á hátíðum úti á landi geta
manneskjur leitað til lögreglunnar á
staðnum og líka á heilsugæslustöðv-
arnar. Stúlkur þurfa ekki að bíða
með það að fara í skoðun þar til þær
koma í bæinn þó svo langflestar
stúlkur sem eru úr bænum kjósi að
koma hingað. Það er um að gera að
leita sér aðstoðar á staðnum," segir
Eyrún.
Ef það hefur liðið meir en vika
frá nauðgun hefur það þá eitthvað
upp á sig að koma til ykkar?
„Já, það er um að gera að koma
en þegar liðinn er einhver tími frá
nauðguninni er fint að hringja á
undan og þá getum við fundið tíma
sem hentar bæði manneskjunum og
læknunum. Það er hentugra þannig
að manneskjan þurfi ekki að bíða
hér þar sem ný tilfelli eru alltaf lát-
in ganga fyrir," segir Eyrún. -snæ
Nauðgun í miöbænum?
Það er ekki bara nauðgaö um verslunarmannahelgar eins og tölur sanna.