Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
E>V
* Tilvera
lí f iö
Hestadagur í
Árbæjarsafni
Það er alltaf mikið um að vera
í Árbæjarsafninu og þessi helgi
er engin undantekning þar á. Á
morgun verður haldinn hesta-
dagur í safninu. Hestvagn verð-
ur á svæðinu frá 13 til 16 og
póstlest verður einnig á ferð um
safnsvæðið. Þá verður sýnd roð-
skógerð og tóvinna í Árbænum,
netahnýtingar i Nýlendu og
kafflhlaðborðið verður á sínum
stað í Dillonshúsi. Meðal nýrra
sýninga i Árbæjarsafni er sýn-
ingin Saga byggingatækninnar.
Djass
■ TRÍÓ RICHARDS GILLIS Á JÓM-
FRUNNI Níundu sumartónleikar veit-
ingahússins Jómfrúrinnar viö Lækj-
argötu fara fram á laugardaginn kl.
16-18. Aö þessu sinni kemur fram
tríó trompetleikarans Richards Gillis
sem er kanadískur en af íslensku
bergi brotinn. Aðgangur er ókeypis.
Klassík
■ ATONAL FUTURE A AKUREYRI
Tónlistarhópurinn Atonal Future
verður meö tónleika í Deiglunni á
Akureyri í kvöld, klukkan 20.30.
Hópurinn er skipaöur sjö ungum ís-
lenskum hljóöfæraleikurum og tón-
skáldum sem hafa starfað saman
frá árinu 1998. Sérhæfir hópurinn
sig í flutningi nýrrar íslenskrar tón-
listar og notar oft óheföbundin hljóö-
færi.
■ ÁRBÆJARSAFN Það veröur Ijúf
stemmning í Arbæjarsafni í dag þeg-
ar Pétur Jonasson kemur fram
ásamt Helgu Aöalheiöi Jónsdóttur
blokkflautuleikara. Þau munu fiytja
endurreisnar- og barokkverk. Þetta
eru fyrstu opinberu einleikstónleikar
Helgu eftir aö hún lauk námi í vor.
Þ j óðarbókhlaðan:
Höll lestrar og leiðinda eða
griðastaður grúskarans?
Þegar skólastarf hefst fyllist Þjóðarbókhlaðan af
námsmönnum víðs vegar að þó flestir þar séu
stúdentar við Háskóla íslands. Á sumrin þegar
glitrandi geislar sólarinnar gægjast inn fyrir
rimla glugga Þjóðarbókhlöðunnar er ekki að finna
marga stúdenta þar en hún fyllist jafnt og þétt
þegar líða fer á sumarið og haustprófin nálgast.
Blaðamaður DV fór á staðinn og heyrði hljóðið í
nokkrum bókaormum til þess að athuga hvort
Þjóðarbókhlaðan rís undir því að vera Höll lestrar
og leiðinda eða hvort hún sé griðastaður grúskar-
ans sem les yfir sumarið.
DV-MYND E. ÓL.
Nóg pláss og fínt næöi
Berglind segir góöa veöriö ekki trufla enda sé að mörgu leyti betra að tæra é Þjóöarbókhlöðunni é sumrin en veturna.
Berglind Snæland viðskijptafræðinemi:
Ekki opið nogu lengi
Berglind Snæland sat límd fyrir
fram tölvuna og var djúpt sokkin i
vinnu sína þegar blaðamaður trufl-
aði hana. „Ég er héma eins og
margir aðrir að lesa undir haust-
próf. Ég fer í tvö próf, rekstrarhag-
fræði eitt og tvö.“
Berglind er nemi í viðskipta-
fræðideild við Háskóla íslands og er
að ljúka fyrsta ári sínu. „Mér flnnst
ekkert verra að vera héma yfir
sumarið, það er til dæmis miklu ró-
legra héma og svo er auðvitað nóg
pláss, ólíkt því sem vUI verða þegar
próftn nálgast um jólin og á vorin,“
sagði hún, það væri þó mikill ókost-
ur fyrir vinnandi námsmenn sem
þurfa að notfæra sér aðstöðuna á
sumrin að Þjóðarbókhlaðan væri
opin mun styttri tíma þá en þegar
skólinn stæði yflr. „Fólk í fuUri
vinnu getur ekki nýtt sér aðstöðuna
og það verður bara að lesa heima.
Sjáif er ég í hlutastarfi þannig að ég
get komið hingað til þess að lesa.“
Finnst þér ekki leiðinlegt að
hanga inni að læra þegar veðrið er
svona gott? „Nei, veðrið skiptir mig
engu máli. Ég er að læra fyrir þessi
tvö próf í sumar þannig að þetta er
ekki svo strembið."
-þor
■ MÝVATNSSVEIT Kl. 21 verða
fjórðu sumartónleikarnir við Mývatn.
Arnaldur Arnarson gítarleikari leikur
I Reykjahlíöarklrkju tónlist frá Spáni
v og Suður-Ameríku, ásamt íslenskum
þjóðlagaútsetningum fyrir gítar eftir
Jón Ásgeirsson. Aðgangseyrir kr.
800.
Leikhús
■ ÍR-HÚSK) ENDURLÍFGAÐ í kvöld,
kl. 20, verður aftur líf og fjör í ÍR-
húsinu við Túngötu. Hópur fólks:
listverksmiðja, frumsýndi húsið í
gær en þau eru búin að taka það
undir sig fyrir gallerí og leikhús.
Ókeypis inn. Allir velkomnir!
Kabarett
■ FRIMÉRjLÍÁKÉPF’Nj Á Kiarvals-
stööum stendur yfir viðamikil frí-
t, merkjasýning. Þar eru 8 sölubásar
og þar veröa Islandspóstur, Færeyja-
póstur og Thorvaldsensfélagiö með
bása. En hápunktur dagsins er án
efa kl. 10 þegar keppni norrænna
unglinga í frímerkjafræöum fer
fram. Islendingar hafa tvisvar unnið
farandbikarinn, Elginn, og nokkrum
sinnum komist nærri því. Annars er
sýningin opin frá kl. 10-18 í dag.
Feröir________________________
■ VHPÉY Heígargangan í Viöey
verður að þessu sinni um vestur-
eyna. Farið verður með Viðeyjarferðj-
unni kl.14, en gangan hefst við
kirkjuna kl. 14.15. Margt er að sjá
úti í eynni og munu göngugarpar
koma fróðir til baka eftir tvo tíma.
Fólk er beðið að búa sig eftir veðri,
einkum til fótanna. Gjald er ekki
annað en ferjutollurinn sem er kr.
400 fyrir fulloröna og kr. 200 fyrir
börn.
*
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
María Guömundsdóttir viöskiptafræðinemi:
Ágætistilbreyting
að koma hingað
„Ég er nú ekki hér allan daginn,"
sagði María Guðmundsdóttir, nemi i
viðskiptafræðideild við Háskóla ís-
lands, þegar blaðamaður spurði hana
hvemig hún kynni við sig sitjandi inni
við lestur í blíðskaparveðri. María er
eins og svo margir aðrir háskólanemar
að fara í haustpróf sem nálgast óðum.
Hún sat niðursokkin við lestur og ekki
virtist það trufla einbeitingu hennar að
úti var finasta veður og allar aðstæður
til þess að njóta sumarsins til hins
ýtrasta. María fer í próf í rekstrarhag-
fræði í lok ágústs og hefur því ekki ver-
ið að vinna í sumar. Hún er að ljúka
sínu fyrsta ári i viðskiptafræðideild-
inni en áður en hún hóf nám sitt við
Háskólann var hún í barneignarfríi.
Hvemig er að læra um sumar sem er
i huga marga námsmanna helgasti tími
ársins þegar frí er frá öllum bókum?
„Þetta er nú í fyrsta skipti sem ég
kem hingað í sumar að lesa og ég er
satt best að segja rétt að byrja að lesa
undir prófið. í vetur las ég yfirleitt
heima en það er ágætistilbreyting að
koma hingað," sagði María og hélt
lestrinum áfram. -þor
Þaö styttist í prófiö
María Guömundsdóttir sat meö hrúgu bóka fyrir framan sig í óöaönn að
undirbúa sig fyrir væntanlegt haustpróf í rekstrarhagfræöi.
Eins og hver önnur vinna
Ásta Kristín var búin aö koma sér þægitega fyrir í stól meö bók í hönd. Hún
segir iestur yfir sumariö bara vera eins og hverja aöra vinnu sem þurfi aö sinna.
Ásta Kristín Jónsdóttir íslenskunemi:
Maður kemst ekki í burtu
Fyrir þá sem ekki þurfa að glósa
eða reikna er ákjósanlegt að koma
sér þægilega fyrir í bláum hæginda-
stólum Þjóðarbókhlöðunnar. í ein-
um slíkum stól sat Ásta Kristín
Jónsdóttir, nemi í íslensku við Há-
skóla íslands, þegar blaðamann bar
aö garði.
„Ég er nú nánast búin að ljúka
mínu námi. Þessa dagana er ég að
skrifa BA-ritgerð mína sem er um
þýðingar á skjátextum kvikmynda,"
sagði Ásta Kristín þegar blaðamað-
ur DV spurði hana hvað hún væri
að lesa. „Ég er rétt að byija á rit-
gerðinni og stefni að því að útskrif-
ast í október. Maður er ágætlega
bjartsýnn að eðlisfari," sagði hún
enda ljóst að mikið verk er fran
undan.
Aðspurð hvernig henni fyndist aö
sitja inni við í fallegu sumarveðrinu
við lestur sagði Ásta að það væri
bara fmt. „Það er gott að vera héma
núna, nú er nóg pláss en yfirleitt er
hér aílt fullt af fólki. Veðrið fer ekki
i taugamar á mér enda er þetta
bara svipað því og að vera í vinnu.
Maður kemst ekki í burtu heldur á
að vera að sinna vinnunni. Þetta er
bara nánast eins og að vera á stimp-
ilklukku, eða ætti að minnsta kosti
að vera það,“ sagði Ásta Kristín að
lokum. -þor