Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Side 56
£JP*
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Innher j arannsókn:
Lýkur vonandi
sem allra fyrst
- segir stjómarformaður
„Ég er að vonast til að þessari
—• rannsókn ljúki sem allra fyrst fyrst
hún er í gangi,“ sagði Benedikt Jó-
hannesson, stjórnarformaður hjá
Skeljungi, um athugun rikislög-
reglustjóraembættisins á því hvort
einn stjórnarmanna Skeljungs
kunni að hafa brotið gegn lögum
með innherjaviðskiptum. Benedikt
kvaðst ekki hafa kynnt sér málið
nánar í gærdag, eftir að DV greindi
frá því, enda staddur úti á landi.
í frétt í DV í gær kom fram að rík-
islögreglustjóraembættinu hefur
borist mál frá Pjármálaeftirlitinu
varðandi grun um innherjasvik
stjómarmanns Skeljtmgs.
Innherjar eru fólk innan hlutafé-
laga sem hafa yflr trúnaðarupplýs-
ingum fyrirtækisins að ráða, til
1 dæmis stjórnarmenn hlutafélaga,
lögfræðingar, endurskoðendur og
nánustu fjölskyldur þessa fólks.
Viðskipti innherja eru lögleg innan
ákveðinna marka. Þegar innherjar
misnota sér þá vitneskju sem þeim
hefur verið trúað fyrir í krafti stöðu
sinnar er um innherjasvik að ræða.
Þá skiptir engu máli hvort svikin
hafa gróða í för með sér eða ekki,
svikin eru jafn mikil. Sem dæmi um
svik af þessu tagi er ef lykilstarfs-
maður fréttir af breytingu sem mun
c auka verðmæti hlutabréfa fyrirtæk-
isins og kaupir hlutabréf í því áður
en þessar upplýsingar hafa verið
gerðar opinberar.
Jón Snorrason, yflrmaður efna-
hagsbrotadeildar rikislögreglu-
stjóra, sem mun hafa með þetta mál
að gera, er í fríi fram á mánudag og
náðist því ekki í hann vegna þessa
máls. Samkvæmt upplýsingum DV
mun ríkislögreglustjóraembættið
rannsaka hvort háttsemi stjómar-
mannsins hafi varðað við lög.
Ekki náðist í Kristin Björnsson,
forstjóra Skeljungs, siðdegis í gær.
-SMK/JSS
Pantið í tíma
i
Á slysstað við Stíflisdalsvatn dv-myndir ingó
Heimagerð flugvél mannsins var illa leikin þegar að var komið.
Flugslys á Mosfellsheiði:
Hrapaði í Þingvallaferð
Maður um þrítugt stórslas-
aðist þegar lítil, heimagerð
flugvél hans hrapaði við Stífl-
isdalsvatn á Mosfellsheiði
skömmu fyrir klukkan 18 í
gær. Maðurinn var einn um
borð í vélinni og hafði verið að
fljúga umhverfis Þingvalla-
vatn fyrr um daginn. Var
hann á heimleið þegar slysið
varð.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
fór til móts við sjúkrabifreið á
Til móts vlð sjúkrabifreið
Þyrla Landhelgisgæslunnar á Mosfellsheiði í gær.
Mosfellsheiði og flutti
manninn á Landspítalann í
Fossvogi. Að sögn læknis á
vakt á gjörgæsludeild var
flugmaðurinn mjög slasað-
ur, með áverka á útlimum
og í andliti, og gekkst hann
undir aðgerð á sjúkrahús-
inu í gærkvöld. Ekki er
ljóst hvað olli slysinu en
vél mannsins var illa brot-
in þegar að var komið í
gær. -EIR
12 erlend stórfyrirtæki vilja semja við Magnús Scheving:
- samningar á næsta leiti
Árekstur við BSÍ:
Beltislausir
slösuðust
Tveir menn slösuðust í hörðum
árekstri sem varð á Vatnsmýrarvegi
við Umferðarmiðstöðina um kvöldmat-
arleytið í gær. Hinir slösuðu voru í bif-
reið sem ekið var út öá bílastæðum
BSÍ og var hvorugur þeirra í bílbelti.
Skall annar i framrúðuna en hinn fram
á stýrið. Skera þurfti hluta af hlið bif-
reiðarinnar til að ná þeim út. Farþegar
hinnar bifreiðarinnar sluppu án
meiðsla. Aðkoma á slysstað var ófógur
og eru báðir bílamir stórskemmdir, ef
ekki ónýtir. -EIR
A Vatnsmyrarvegi
Lögregla og sjúkraliðar á slysstað skömmu eftir áreksturinn.
DV-MYND INGO
Kvikmynda- og dreifingarfyrir-
tæki í Kanada, Bandaríkjunum,
Þýskalandi, Bretlandi og á Spáni
hafa sýnt Latabæ Magnúsar
Schevings mikinn áhuga og eru til-
búin til samninga á allra næstu vik-
um:
„Hér er um 12 fyrirtæki aö ræða
sem ég valdi sjálfur og hef staðið í
samningaviðræðum við. Að baki
liggur mikil vöruþróun hér heima
sem hefur þegar kostað tugi millj-
óna en alls mun kynningarstarf
okkar i Latabæ ekki kosta undir 200
milljónum króna. Þetta gerir maður
ekki einn. íslenskt hugvit er í hæsta
gæðaflokki og það eru margir í
þessu með mér,“ sagði Magnús
Scheving sem hefur verið á fleygi-
ferð á milli fyrrgreindra landa og
ætlar nú að fara að gera upp hug
sinn: „Þetta er eins og maöur sé á
bæjar fyrir stjórnendum erlendu
stórfyrirtækjanna en þar er um að
ræða leikrit, bækur, spil, kennslu-
efni fyrir skóla, tölvuleiki og teikni-
myndir.
„Við höfum látið hanna stórar
latex-dúkkur af persónunum í Lata-
bæ og mér sýnist sem mesti áhug-
inn sé á því að framleiða sjónvarps-
þætti með dúkkunum. Ég er ánægð-
ur með viðtökumar því að á ferðum
mínum milli þessara stórfyrirtækja
hef ég aðeins fengið eitt nei. Það tók
Walt Disney 29 ár og þrjú gjaldþrot
að koma Andrési önd og félögum á
framfæri. Hann fékk að auki 302 nei
í bönkum," sagði Magnús Scheving
sem að auki ráðgerir að reisa Lata-
bæjar-skemmtigarð fyrir böm í
Laugardalnum. Tillögur hans þess
efnis em til meðferðar hjá Reykja-
víkurborg. -EIR
fjörugum dansleik með Öskubusku
og eigi bara eftir að máta skóinn og
flnna þá einu réttu,“ sagði Magnús
sem hefur kynnt allar hliðar Lata-
Ætla að sigra heiminn
Magnús Scheving og Guðmundur
Þór Kárason brúðugerðarmaður með
Nenna níska úr Latabæ.
200 milljónir til kynningar á Latabæ
Dollarinn hækkar
bíómiða
„Allir kvikmyndasamningar em
gerðir í dollurum og síðast þegar ég
vissi stóð dollarinn í 79 krónum. Sú
er skýringin á því að miðaverð hjá
okkur á nýjar stórmyndir, eins og
Mission Impossible 2, er komið upp
í 700 krónur," sagði Einar Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Há-
skólabíós, um hækkanir kvik-
myndahúsanna undanfarið. Miða-
verðið hefur verið að þokast upp á
við að undanfomu og hefur nú víða
brotið 700 króna múrinn. Sama
verð gildir fyrir börn og fullorðna
þannig að það kostar hjón með tvö
börn 2800 krónur að fara í bíó. Er
poppkorn og gos þá ekki meðtalið.
Dýr stjarna
Það kostar 700 krónur að sjá Tom
Cruise í Háskólabíói.
Þorvaldur Ámason, formaður Fé-
lags kvikmyndahúsa, tók undir
skýringar Einars og taldi ekki ólík-
legt að 700 króna miðaverðið yrði
almennt áður en langt um liði: „Við
erum enn með flestar okkar mynd-
ir á 650 krónur en hversu lengi það
verður veit ég ekki.“ -EIR
Grafarvogur:
Börn kveikja í
bensíni
Tveir drengir, sem lokuðust inni
í hjólageymslu í Grafarvogi þegar
eldur kom upp i henni, voru fluttir
á slysadeild með reykeitrun í gær-
dag. Að sögn slökkviliðsins í
Reykjavík virðist sem drengimir
hafi verið að leika sér með bensin
fyrir sláttuvél sem geymt var í
hjólageymslu fjölbýlishússins.
Minnstu munaði að illa færi, enda
er bensin ákaflega eldfimt. Slökkvi-
liðið í Reykjavík biður fólk um að
geýma bensín ekki þar sem böm og
unglingar ná til.
Bömin voru flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi og í fram-
haldi af því voru þau lögð inn á
lyfjadeild sjúkrahússins. Að sögn
læknis þar fengu báðir drengimir
reykeitrun og em undir nákvæmu
eftirliti.
Slökkviliðið reykræsti hjóla-
geymsluna og nálægar íbúðir.
-SMK