Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 Fréttir I>V Samruni ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar: Snurða hlaupin á þráðinn MikUl viðsnúningur til hins betra í rekstri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum á yfírstandandi fiskveiðiári virðist hafa fengið stjórn félagsins til að endurmeta stöðu fyrirtækisins gagnvart áætl- uðum samruna við ísfélag Vest- mannaeyja. Langstærstu hluthafar félaganna tveggja tilkynntu fyrir rúmum mánuði að af samrunanum yrði og að honum yrði lokið fyrir ágústlok. Stjórn ísfélagsins samþykkti sam- runaáætlunina á fundi sínum 27. júlí sl. en stjórn Vinnslustöðvarinn- ar ákvað hins vegar óvænt að fresta afgreiðslu málsins á fundi sínum í byrjun ágúst. Geir Magnússon, for- stjóri Olíufélagsins og stjórnarfor- maður Vinnslustöðvarinnar, sagði í samtali við DV að ljóst væri að ekki tækist að ljúka samrunanum á áætl- uðum tíma en aftók að málið væri í uppnámi. Hann sagði stjórn Vinnslustöðvarinnar einfaldlega hafa þurft rýmri tima til að meta fyrirliggjandi gögn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem reynt er að sameina þessi tvö fyrir- tæki, þó það hafi ekki tekist til þessa. Vinnslustöðin hefur á síðustu árum verið rekin með miklu tapi. Eftir mikla hagræðingu í rekstrin- um, m.a. með lokun vinnslustöðva og tilheyrandi uppsögnum starfs- fólks, hefur loks tekist að snúa þeirri þróun við. Reikningsár Vinnslustöðvarinnar miðast við fiskveiðiárið, það er frá 1. septem- ber til ágústloka næsta árs. Fyrstu níu mánuði síðasta reikningsárs (1998-1999) nam tap félagsins 583 milljónum króna en hins var varð hagnaður upp á 53 milljónir króna á sama tímabili yfirstandandi reikn- ingsárs. Heimildir DV segja þessa stað- reynd hafa orðið til þess að blása byr í segl andstæðinga sameiningar- innar sem eru fjölmargir í Vest- mannaeyjum, ekki síst meðal starfs- manna fyrirtækjanna. Það er ljóst að stærstu hluthaf- amir í Vinnslustöðinni og þeir sem höfðu frumkvæði að samrunanum, Olíufélagið og aðaleigendur ísfélags- ins, með Sigurð Einarsson forstjóra í broddi fylkingar, hafa yfirburða- stöðu í Vinnslustöðinni með um tvo þriðju hluta bréfa í félaginu og haldi þeir við fyrri ákvörðun sína er ekk- ert sem stendur í vegi sameiningar- innar. -GAR Sumarleikur smáauglýsinga DV og Vísis.is: Tækniteiknari vann tjaldvagn Petra Rós Ólafsdóttir, tvítugur tækniteiknari í Grindavík, datt heldur betur í lukkupottinn þegar hún vann glæsilegan Combi-Camp tjaldvagn, að verðmæti 400.000 kr., í smáauglýsingaleik DV í sumar. Hún tók ásamt unnusta sínum, Unnari Magnússyni, og syninum, Ólafi Þór, við vagninum í Sportbúð Títan á Seljaveginum í Reykjavík i gærdag. „Systir mín er að byggja og var að selja tjaldvagninn sinn og ég sagði henni að ég myndi fara með henni í ferðalag núna,“ sagði Petra Rós með bros á vör. „Við erum mjög leikjaglaðar, systumar, við erum saman búnar að vinna tvær utan- landsferðir áður. Maður vinnur náttúrlega ekki nema maður taki þátt. En ég hef aldrei unnið neitt í líkingu við þetta." Petra Rós og unnusti hennar eru nýbúin að kaupa sér hús í Grinda- vík svo þau hefðu ekki haft efni á þvi að kaupa sér tjaldvagn sjálf. Þau hafa notast við kúlutjaldið sem Petra Rós fékk i fermingargjöf þeg- ar þau hafa farið í ferðalög og reynt að ferðast með fólki sem á tjaldvagn því auðveldara er að sinna baminu í tjaldvagni en í litlu kúlutjaldi. Petra Rós sagði að eina vanda- málið væri að þrátt fyrir að þau ættu bíl þá vantaði á hann kúluna til þess að draga vagninn. Hún hélt samt að það myndi bjargast því systkini hennar tvö og foreldrar eiga öll bíla sem geta dregið vagn- inn. Mikil þátttaka var i leiknum þar sem allir þeir sem sett hafa smáaug- lýsingu í DV síðan í byrjun júlí vora sjálfkrafa með, auk þeirra þátt- DV-MYND EINAR J. Feröalög fram undan Petra Rós Ólafsdóttir getur nú lagt kúlutjaldinu sem hún fékk í fermingargjöf og feröast meö stæl um landiö meö unnusta sínum, Unnari Magnússyni, og tveggja ára gömlum syninum, Ólafí Þór, því hún vann Combi-Camp tjaldvagn í smáauglýsingakeppni DV. takenda sem fundu og svöruðu smá- auglýsingunni á Vísi.is. Leikurinn gekk út á það að starfs- fólk Smáauglýsingadeildar DV valdi skemmtilegustu smáauglýsinguna sem birst hafði í blaðinu þá vikuna annars vegar og hins vegar var sér- merkt smáauglýsing á smáauglýs- ingavefnum á Visi.is. Þeir sem fundu og svöruðu auglýsingunni fóru í pott sem úr var dregið viku- lega. Fengu vinningshafar verðlaun frá Bílaþvottastöðinni Löður og Húsgagnaversluninni Verona. -SMK Veörið í kvöld Sólargangur og sjavarfölí REYKJAVIK Sólarlag í kvöld 21.29 Sólarupprás á morgun 05.35 Síödeglsflóó 21.03 Árdeglsflóö á morgun 09.24 'Sýtíngsr á ysðuriáltmmi 10 AKUREYRI 21.23 05.10 01.36 13.57 j'^viNDÁrr -10° M/INDSTYRKUR I nietrum á sekúmlu HiTI HHÐSKÍRT *> í)i)0 Hæg breytileg átt Fremur hæg breytileg átt eöa hafgola og bjartviöri í dag. Hiti veröur 8 til 18 stig, hlýjast inn til landsins. LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ w w © RIGNING SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA Ö P d* ' r= ' ÉUAGANGUR ÞRUMtF VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: Rangt hjá Alfreð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Ég reyni af fremsta megni aö ástunda fag- leg vinnu- brögö. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, segir full- yrðingar Alfreðs Þorsteinssonar í DV í gær um framgang mála í málefnum Línu.Nets rangan. „Þegar mál Línu.Nets um lagn- ingu á ljósleiðara- kerfi fyrir grunn- skólana var afgreitt á fundi Innkaupa- stofnunar þá fullyrti tölvuráðgjafi Reykja- víkurborgar að ekk- ert annað fyrirtæki gæti sinnt þessu verkefni. Síðar fullyrtu forsvars- menn annarra fyrirtækja á sviði fjarskiptamarkaðar að þeir bæði gætu og hefðu áhuga á að sinna þessu verkefni. Þegar það lá staðfest fyrir þá þótti það bæði sjálfsagt og heiðarlegt að þessir aðilar fengju að bjóða í verk- efnið. Ég flutti um það tillögu i stjóm Innkaupastofnunar sl. mánu- dag. Ef samviska R-listans hefði verið í lagi í þessu máli hefðu þeir átt að samþykkja þessa tillögu mína en ekki ástunda óeðlileg og óheiðarleg vinnubrögð eins og þeir stunda nú. Þetta mál sýnir ásamt fleirum að því fyrr sem R-listinn hverfur frá völdum í Reykjavík því betra.“ - Hvað með vinskap ykkar Al- freðs? „Ég á ágæta kunningja og vini í öllum stjómmálaflokkum. Þeir sem þekkja mín störf á vettvangi sveitar- stjórnarmála, þeir vita manna best að ég læt ekki aðra stjórna því hvað ég geri. Ég reyni af fremsta megni að ástunda fagleg vinnubrögð og hef ekki áhyggjur af því hverjir eru vin- ir hverra í þjóðfélaginu." -HKr. DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON Afleiöíngar Skaftárhlaupslns. Skaftárhlaupiö olli því aö mikiö vatn safnaöist saman viö Lághrauniö en vestast í því var vatniö nærri fariö yfir þjóöveginn eins og sjá má. Fólk sem býr i nágrenninu þekkir aö um 11 dögum eftir Skaftárhlaup veröur vatnagangur í hrauninu viö þjóöveg 1. HAáUi££* AKUREYRI BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI alskýjaö súld á léttskýjaö léttskýjaö léttskýjaö rigning léttskýjaö 7 7 10 13 15 10 8 13 Flestir hálendisvegir færir stærri bílum Helstu þjóövegir landsins eru greiöfærir. Hálendisvegir eru nú flestir færir jeppum og stærri bílum. Vegur F88 er lokaöur viö Lindaá vegna vatnavaxta. Þá er enn ófært í Hrafntinnusker. •ru lolutölr þv W vsröur auolýst Skýjaö vestanlands Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjaö vestanlands og dálítil súld við ströndina en víöa léttskýjað í öörum landshlutum. Hiti 9 til 18 stig að deginum, mildast SA- og A-lands. Mamrtíi íESíiy. Þriðjifd Vindur: Hiti 9° til 20° Suóvestlæg átt og rignlng meó köflum sunnan- og vestanlands en aó mestu þurrt noróaustan tll. ifáM Vindur: / Míövfkud 4—6 m/s Hiti 9° tif 20' O Suóvestlæg átt og rignlng meó köflum sunnan- og vestanlands en aó mestu þurrt noróaustan tll. Hlýjast i Noróaustur- og Austuriandl. SBr Vindur: 4-6 m/s Hiti 9° til 20° Suólæg átt meó rlgnlngu víóa um land. BERGEN HELSINKI KAUPMANNAHÖFN ÓSLÓ ST0KKHÓLMUR ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR ALGARVE AMSTERDAM BARCELONA BERLÍN CHICAGO DUBUN HAUFAX FRANKFURT HAMB0RG JAN MAYEN LONDON LÚXEMB0RG MALLORCA M0NTREAL NARSSARSSUAQ NEW YORK ORLANDO PARÍS VÍN WASHINGTON WINNIPEG léttskýjaö úrkoma skruggur léttskýjaö skýjaö slydda skýjaö skýjaö heiðskírt skýjaö hálfskýjaö skýjaö alskýjað skýjað léttskýjaö skýjaö léttskýjaö súld skúrir skýjaö heiöskírt léttskýjaö skýjað alskýjað 12 14 16 21 19 20 12 14 27 21 29 22 17 17 16 25 21 7 18 23 31 14 11 18 þokumóöa 22 r skýjaö 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.