Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 x>v Á flótta eftir sprengingu Viöskiptavinir verslanamiöstöðvar í Ríga yfirgefa húsiö eftir aö tvær sprengjur sprungu þar á fimmtudag. Fólk flutt burt vegna hótunar Lögreglan í Lettlandi rýmdi versl- anamiðstöð og aðra staði i höfuö- borginni Ríga i gær eftir að sprengjuhótanir höfðu borist henni. Á fimmtudag sprungu tvær sprengj- ur í verslanamiðstöðinni og særðu 35 manns. Fréttamenn fengu að sjá teikn- ingu af karlmanni um fertugt sem lögreglan leitar vegna tilræöisins. Maðurinn sást í námunda við versl- anirnar fyrir sprengingarnar. Lögreglan sagði hins vegar að sprengjutilræðiö væri ekki verk eins manns. Talið er aö ástæðan kunni að vera vonbrigði vegna mis- heppnaðra viðskipta eða þá að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Efnahagsástand gott á Grænlandi Ráðgefandi nefnd danska forsæt- isráðherrans um grænlenskt efna- hagslíf er ánægð og leist vel á þaö sem hún sá á ferð sinni til Græn- lands á dögunum, að sögn Christens Sorensens prófessors. Uppgangur er í efnahagslífi granna okkar, atvinnuleysið er á undanhaldi og tekjur launþega hafa hækkað. Prófessorinn hrósar grænlensk- um stjórnmálamönnum fyrir að skapa skilyrði fyrir vexti efnahags- lífsins. Hann telur að miklir mögu- leikar séu í útflutningi krabba sem Grænlendingar eru famir að veiða í vaxandi mæli. Sprengt í Pristlna Albanskur maöur viröir fyrir sér skemmdirnar sem uröu í sprengjutil- ræði í Kosovo í gær. Öfgamenn sakaö- ir um sprengingu Bernard Kouchner, yfirmaður stjórnar Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, kenndi öfgamönnum um sprengjutilræði í Pristina, höfuð- borg héraðsins, í gærmorgun. Sprengja sprakk í húsi þar sem stjórnmálaflokkar og serbnesk yflr- völd hafa aðsetur sitt. Tveir menn særðust lítillega. Kouchner sagði að tilræðið hefði verið verk öfgamanna sem vildu valda ólgu í héraðinu fyrir kosning- amar þar í október. „Við erum sannfærðir um að allir öfgamenn, hvort heldur frá Belgrad eða héðan, séu staðráðnir í að spilfa fyrir kosn- ingunum," sagði Kouchner eftir að hafa kannað verksummerki. Sprengingin heyrðist um alla borgina. Flotaforingjar hræddir viö loftþrýstinginn í Kúrsk: Pútín segir litlar líkur á björgun Vladímír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að þegar í upphafi hefðu verið litlar líkur á að tækist að bjarga áhöfn rússneska kjarn- orkukafbátsins Kúrsk á lffi. Kafbát- urinn sökk í Barentshafi fyrir viku eftir að tvær sprengingar urðu um borð. Háttsettur foringi innan rúss- neska sjóhersins sagðist þó gera sér vonir um að hægt yrði að bjarga einhverjum mannanna 118 sem eru í kafbátnum. Pútín sagðist hafa rætt við vam- armálaráöherrann um leiö og hann hefði fengið fréttimar af kafbátnum og ráðherrann hefði upplýst sig um að likurnar væru litlar á að hægt yrði að bjarga áhöfninni. Pútín heim til Moskvu Forsetinn sneri heim til Moskvu í gær úr sumarleyfi. Hann haföi þá sætt harðri gagnrýni fyrir að hraða sér ekki til Moskvu þegar í stað. Pútín sagði að hann hefði ákveðið að vera áfram í fríi þar sem hann óttaöist að nærvera hans myndi hamla björgunaraðgerðunum. Þá upplýsti Pútín að hann þekkti skip- stjórann á Kúrsk. „Hegðun forseta okkar er ósið- leg,“ sagði Borís Nemtsov, leiðtogi umbótasinna á rússneska þinginu. Nemtsov studdi Pútín þegar hann var kjörinn forseti. Vjatsjeslav Popov, yfirmaður Norðurflotans, sagðist enn lifa í voninni um að hægt yrði aö bjarga áhöfninni en menn hefðu áhyggjur af þrýstingnum í kafbátnum. „Ég hef miklar áhyggjur af því að samkvæmt útreikningum okkar er þrýstingurinn í kafbátnum hærri en eðlilegur loftþrýstingur. Mat okkar á því hversu lengi mennirnir gætu lifað af hafa byggst á því að loft- þrýstingurinn væri eðlilegur. Ástandið er mjög alvarlegt," sagði Popov. Hann viðurkenndi að tvær sprengingar hefðu orðið um borð í Kúrsk á laugardag. Mælar norskrar jarðskjálftastofnunar skráðu tvær sprengingar í kafbátnum og var sú siðari á við tvö tonn af sprengiefn- inu TNT. Hjálp á leiðinni ígor Babenkó, talsmaður Norður- flotans, sagði að fjórum sinnum í gær hefði tekist að koma köfunar- kúlu að neyðarhlerum kafbátsins en ekki tókst aö tengja hana vegna um- fangsmikilla skemmda á skrokki kafbátsins. Tuttugu skip eru við björgunar- aðgerðirnar yfir kafbátnum og njóta aðstoðar þyrlna og flugvéla. Breskar og norskar björgunar- sveitir eru á leið á slysstað og vænt- anlegar þangað einhvem tíma í dag, laugardag. Bretarnir hafa með sér dvergkafbát sem miklar vonir eru bundnar við. Bandaríkjamenn hafa boðið fram aöstoð sína en hún hefur ekki enn veriö þegin. Ættingjar koma til Múrmansk Eiginkona og dóttir sjómanns um borö í kjarnorkukafbátnum Kúrsk, sem liggur á botni Barentshafsins, í fyigd meö liösforingja úr rússneska sjóhernum viö komuna til Múrmansk í gær. Allar tilraunir til aö bjarga áhöfn Kúrsk úr stórskemmdum kafbátnum hafa mistekist til þessa. Efasemdir eru um aö nokkrum veröi bjargaö á lífi úr þessu. A1 Gore eykur fylgi sitt eftir landsfundinn: Fjögurra daga sigling nið- ur Mississippi fram undan A1 Gore og Joseph Lieberman, forseta- og varaforsetaefni demó- krata, fengu gott veganesti þegar þeir lögðu upp í fjögurra daga sigl- ingu niður hið mikla Mississ- ippifljót í gær. í skoðanakönnun, sem gerð var að loknu flokksþingi demókrata í Los Angeles á fimmtudagskvöld, var Gore kominn fram úr mótfram- bjóðanda sínum, George W. Bush, rikisstjóra í Texas, forsetaefni repúblikana. Gore fékk stuðning 46 prósenta aðspurðra í könnun NBC sjónvarpsstöðvarinnar en Bush 43 prósenta stuðning. Munurinn er ekki marktækur þar sem skekkju- mörkin eru 4,4 prósent. Niðurstöðumar sýna að lokaræða Haldiö í siglingu Al Gore, Joseþh Lieberman og eigin- konur þeirra ganga um borö í fljóta- bát á Mississippiánni. Gores á landsfundinum hefur farið vel í kjósendur. Hvort þetta þýðir einhverja stefnubreytingu hjá kjós- endum á aftur á móti eftir að koma í ljós þegar frá líður. Gore og Lieberman ætla að sigla 640 kílómetra niður Mississippi í fljótabát, frá Wisconsin til bæjarins Cairo í Missouri, fæðingarstaðar rithöfundarins Marks Twains, og reyna að fá kjósendur til að slást í for með sér til betri framtíðar. George W. Bush sagði frétta- mönnum á leið til Tennessee, heimaríkis Gores, að keppinautur hans kynni að hafa hleypt kappi í kinn stuðningsmanna sinna en að kjósa hann jafngilti því að kjósa Bill Clinton þriðja sinni. Sterkari evrunnar vegna Poul Nyrup Rasmussen, forsæt- isráðherra Dan- merkur, segir í við- tali við Aktuelt að evran, sameiginleg- ur gjaldmiðill Evr- ópusambandsins, geri það að verkum að rödd Evrópu verði sterkari í efnahagslegum og pólitískum samn- ingaviðræðum. Norðmenn iítt hrifnir Norskir ferðamenn eru margir hverjir lítt hrifnir af því að eyða frí- inu í Danmörku þar sem þar gerist allt of lítið. Kaupmannahöfn er þó undantekning. Hreint ekki útdauðir Indíánaþjóðflokkur einn í Brasil- íu, sem allir héldu að hefði dáið út fyrir um 100 árum, skaut nýlega upp kollinum þegar hann mótmælti áformum um þjóðgarð á landi sínu langt inni í Amasonfrumskóginum. Minni umferð á brú Umferö um Eyrarsundsbrúna nýju milli Danmerkur og Sviþjóðar er nú orðin minni en spár rekstrar- fyrirtækisins gerðu ráð fyrir. Einnig eru færri farþegar í Eyrar- sundslestunum. Vilja stöðva aftöku Mannréttindasamtökin Amnesty Intemational hafa hvatt bandarísk stjómvöld til að fresta aftöku geð- sjúks afbrotamanns sem var aðeins 17 ára þegar hann framdi morð. Schröder brýnir klærnar Gerhard Schröder Þýskalandskanslari hét því i gær að lát- t ið yrði til skarar skríða gegn ofbeldis- verkum nýnasista sem hann sagði að væru á góðri leið með að skaða ímynd Þýskalands erlendis. Þá sagði hann að ofbeldið gæti valdið efnahagslegu tjóni. Milljarðar fyrir gíslana Líbisk stjórnvöld hafa fallist á að greiða sem svarar um tveimur millj- örðum íslenskra króna í lausnar- ; gjald fyrir gíslana sem íslamskir uppreisnarmenn hafa í haldi á Fil- ippseyjum. Byrja átti að sleppa gísl- unum 28 í nótt. Barak aftur fyrir Bibi Ehud Barak, for- sætisráðherra ísra- els, nýtur nú minni vinsælda meðal kjósenda en Benja- min Netanyahu, 1 forveri hans, að því er kom fram í nýrri skoðanakönnun sem birtist i gær. Leki í kjarnorkuveri Lítillega geislavirkt vatn lak úr finnsku kjamorkuveri í gærmorg- un, í annað sinn á tveimur dögum. Grænfriðungar teknir Tyrkneska strandgæslan hafði af- skipti af liðsmönnum Greenpeace sem reyndu að mótmæla mengun frá olíuefnaverksmiðju vestan við borgina Izmir í gær. Tveir menn á skipi Grænfriðunga voru teknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.