Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 32
32 41 Helgarblað + LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 I>V LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 DV Helgarblað Jón Ragnarsson veitingamaður: Skúrkurinn í Valhöll - mín eign án kvaða og má selja hana hverjum sem er Þaö er óhætt að fullyrða að þjóðarsálin hafi tekið bak- föll af undrun og hneykslun þegar það varð heyrinkunnugt fyrir rúmri viku að breskur milljarða- mæringur, Howard Krúger, byðist til þess að kaupa Hótel ValhöO á Þingvöllum fyrir 3,8 mUljónir sterl- ingspunda. Það iætur nærri að vera um 460 milljónir íslenskra króna og þótti mörgum ríflegt, ekki síst í ljósi þess að brunabótamat Valhallar er 154 milljónir. Þingvallanefnd tók andköf af æs- ingi vegna þessa máls og nefndar- menn kepptust við að lýsa andstöðu sinni við fyrirhuguð viðskipti og ijölmörgum meinbugum sem menn töldu sig sjá á því að þessi rúmlega 100 ára gamla bygging í hjarta helg- asta staðar þjóðarinnar kæmist í hendurnar á erlendum auðkýfing- um. Þingvallanefnd hafði auk þess ekki verið látin vita neitt um fyrir- huguð kaup og las fyrst um þau í DV eins og afgangurinn af þjóðinni. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í fjölmiðlum að hann tryði varla þessum málatilbúnaði, hótel- rekstur á Þingvöllum heföi verið með óviðunandi hætti árum saman og þetta mál væri allt með miklum ólíkindum. Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra og formaður Þingvallanefndar, segir í grein um málið á vefsíðu sinni að málið verði alls ekki leitt til lykta án afskipta opinberra yfirvalda. Hann telur málið þurfa sérstaka meðferð þar sem erlendur maður vilji kaupa, all- ar ráðstafanir séu undir forsjá Þing- vallanefndar og eignarhaldi á Val- höll fylgi skylda á að sinna þjón- ustuhlutverki innan þjóðgarösins. Það hlýtur að vera slæmt fyrir veitingamann að fá hálfgerða van- traustsyfirlýsingu frá forsætisráð- herra og menntamálaráðherra. Heföi átt aö hringja í nefndina DV hitti Jón Ragnarsson, veit- ingamann og aðaleiganda Valhallar, að máli í sólskini á Þingvöllum. Það er fallegt á þessum sögufræga stað þegar tær haustbirtan vakir yfir og heimurinn stendur á haus 1 Þing- vallavatni. Jón tekur á móti okkur úti á tröppum á Valhöll en við fáum ekki kaffi því rafmagnið er farið. Jón er gráhærður meðalmaður, stimamjúkur og rólegur og minnir á yfirþjón eða bryta í breskri sápuóp- eru eða miðaldra bandarískan ijár- hættuspilara í myndbandi eftir Kenny Rogers. Það liggur beinast við aö spyrja Jón hvort hann hafi móðgað Þingvallanefnd með því að segja henni ekki frá því hvað til stæði: „Svona eftir á að hyggja hefði ég átt að gera það og sé eftir því,“ seg- ir Jón og glottir. „Ég var hins vegar sannfærður um að á þessum eignum hvíldu eng- ar þær kvaðir sem hindruðu mig í að selja þær. Ég fékk tilboð frá rík- issjóði fyrir fáum árum í eignina sem var að mínu mati hlægilega lágt og taldi því að Þingvallanefnd Jón Ragnarsson, eigandi Valhallar á Þingvöllum, er alinn upp í veitingabransanum og lærði hótelrekstur í Sviss. „Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mál afar slétt og fellt. Valhöll er mín eign, án sérstakra kvaöa, og ég má selja hana þeim sem vill kaupa og þaö skiptir engu máli hverrar þjóöar hann er. “ Jón er ekki sáttur viö allt sem hefur veriö sagt um þetta mál. „Ég verö aö sætta mig viö þaö aö vegna þess hvernig Valhöll er staösett þá er allur rekstur hér undir smásjá almennings. Hvert einasta smáatriöi sem úrskeiðis fer ratar á síöur blaöanna og í sjálfu sér er ekkert athugavert viö þaö en þaö er ekki mjög gott fyrir ímynd staöarins. “ hefði engan áhuga á þessu máli. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mál afar slétt og fellt. Valhöll er mín eign, án sérstakra kvaða, og ég má selja hana þeim sem vill kaupa og það skiptir engu máli hverrar þjóð- ar hann er. Hvað nýr kaupandi gerir svo við eignina er ekki mitt mál. Það segir sig sjálft aö ef hann ætlar að setja hér upp einhvern annan rekstur þá þarf til þess viðeigandi leyfi. Það er ekkert flókið. Ég þyrfti líka ný leyfi ef ég ætlaði að setja hér upp nætur- klúbb eða spilavíti eða hvað sem er.“ í Mbl. 17. ágúst segja lögfræðing- ar, sem sérfróðir eru á sviði eignar- réttar, að ekkert standi í vegi fyrir því að viðskiptin geti farið fram. Er það ekki léttir að þessum vafa skuli vera eytt? „Þetta eru eng- ar fréttir fyrir mig,“ segir Jón. Því hefur verið haldið fram að ríkið hafi viljað greiða Jóni 100 milljónir fyrir eignina fyrir tveimur árum en hann vill ekkert staðfesta um það. „Þetta voru að- eins hugmyndir sem fóru ekkert lengra og engin ástæða til að rifja það upp.“ Tilboö sem ekki var hægt aö hafna Jón segist ekkert þekkja væntan- legan kaupanda og lítið um hann vita. Honum hafi einfaldlega borist tilboð í eignina gegnum Magnús Leópoldsson fasteignasala og orðið undrandi í fyrstu en ákveðið að svara. „Fyrsta tilboðið var miklu lægra og ég hafnaði því. Síðan var verðið hækkað þar til ég sá mér ekki ann- að fært en að ganga að því. Ég hef verið hér viðloðandi síðan 1963 og hef miklar taugar til staðar- ins. Faðir minn hóf hér hótelrekstur árið 1963. En þetta eru einfaldlega viðskipti og þá koma tilfinningar ekkert þar við sögu. Með þessu lýk- ur afskiptum minnar fjölskyldu af þessum stað.“ Komið hefur fram að Howard Krúger er fertugur breskur miflj- ónamæringur af gyðingaættum sem hefur oft komið til íslands og flutt hingað fjölda skemmtikrafta. Hann gerði tilboð í hótelið Holiday Inn í Reykjavík fyrir nokkrum árum með það fyrir augum að breyta því í spilavíti. Heyrst hefur að hann ætli að gera Valhöll að sumarhúsi sínu. „Ég veit ekkert hvað hann hyggst fyrir,“ segir Jón. „Þetta eru aðeins getgátur í fjölmiðlum sem ekkert er á að byggja.“ Hver einasti veitingamaður myndi vilja kaupa En er þetta verð ekki alltof hátt fyrir hús eins og Valhöll? „Ekki fmnst mér það,“ segir Jón. „Það er ljóst að hér skiptir stað- setningin miklu máli. Ef þetta hús stæði einhvers staðar annars staöar væri annað uppi á teningnum. En ég var ekki að hugsa um að selja þegar þetta tilboð barst. Ég er viss um að ef ég hefði auglýst Valhöll til sölu hefði ég fengið tilboð frá hverj- um einasta veitingamanni í land- inu. Ég vildi gjarnan eiga staðinn áfram en tilboðið er of gott til aö hægt sé að hafha því. Þetta eru bara viðskipti." Jón lagði fyrir tveimur árum fram tiflögur um stækkun og endur- bætur á hótelinu fyrir Þingvalla- nefnd. Davíö veit ekkert um ástandið í Valhöll Nefndin neitaði honum um heim- ild til að stækka hótelið og gerði ýmsar athugasemdir við aðbúnað og frágang, sér.staklega á frárennsli. Var þetta allt í ólestri? „Mér fannst afgreiðsla nefndar- innar á sínum tíma ekkert sérstak- lega málefnaleg. Ég kippti auðvitað í lag því sem þurfti en það hefði orð- ið mun ódýrara ef það hefði verið hluti af endur- hönnun og end- urbyggingu stað- arins í heild. Ég hef átt mjög lítið samstarf við Þingvallanefnd en ágætt það litla sem það er. Hvað varðar aðflnnslur manna, eins og t.d. forsætisráð- herra um rekst- urinn hér, þá get ég fullyrt að hér er allt samkvæmt ströngustu kröf- um eins og fjöldi ánægðra gesta vitnar um. Ég get hins vegar fullyrt að Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur ekki komið hér árum saman og hefur því haft slæma ráðgjöf um það hvemig ástandið væri hér í Val- höfl. Ég verð að sætta mig við það að vegna þess hvernig Valhöll er stað- sett þá er allur rekstur hér undir smásjá almennings. Hvert einasta smáatriði sem úrskeiðis fer ratar á síður blaðanna og í sjálfu sér ekkert athugavert við það en það er ekki mjög gott fyrir ímynd staðarins. Þetta er gamalt hús og margt hér innan dyra er ekki eins nýtiskulegt og í Perlunni en það er 1 anda stað- arins og hefur sinn sjarma." Þetta er engin refskák Valhöll er í eigu hlutafélags sem Jón og systkini hans eiga. Þar á Jón stærstan eignarhlut, eða 65% á móti 35% hinna. Því hefur verið haldið fram að allur þessi málatilbúnaður sé leiktjöld sem Jón hefur reist og tefli í þessu máli refskák við íslensk stjómvöld þar sem megintilgangur- inn sé að fá ríkiö til að kaupa af sér eignirnar á mun hærra verði en það hefur áður fengist til að bjóöa. Er þetta satt? „Allt tal um að þetta sé einhver refskák af minni hálfu er bara bull. Ég vildi lítið ræða við stjórnvöld á sínum tíma því mér fannst tilboð þeirra í húsið hálfgerð móðgun. Þetta eru aðeins eðlileg viðskipti sem mun ljúka á næstunni og.síðan afhendi ég nýjum eiganda hótelið fyrir lok september.“ Datt ekki í hug að selja bréfin Bent hefur verið á að þú hefðir getað selt nýjum eiganda Iflutabréf- in í hlutafélaginu sem á Valhöll og það að þú skulir ekki hafa gert það staðfesti að um einmitt svona ref- skák sé að ræða. „Ég hugsaði satt að segja ekkert út í þann möguleika. Auk þess á hlutafélagið að starfa áfram og setja söluverð Valhallar í nýjar fjárfest- ingar. Þessi möguleiki hvarflaði ekki að mér.“ I umræðum um málið í heild sinni hefur Jón Ragnarsson verið dreginn upp sem hálfgerður skúrk- ur. Er það rétt ímynd? „Það getur vel verið að einhverjir vilji að ég líti út eins og skúrkur en ég er það ekki. Það hafa margir sagt sína skoðun á þessu máli og hún hefur ekki alltaf verið byggð á traustum heimildum. Ég áttaði mig á því strax að þetta gæti orðið hita- mál og ákvað að segja sem minnst en það sem ég segi er satt. Það er best að hafa það svoleiðis." Alinn upp í Þórskaffi Jón Ó. Ragnarsson, eða Jón Óð- inn eins og hann heitir fullu nafni, er alinn upp í veitingabransanum. Hann er sonur Ragnars Vals Jóns- sonar sem árum saman rak skemmtistaðinn Þórscafé og var kenndur við hann. Ragnar í Þórscafé fæddist austur í Gaulverja- bæ en kom blásnauöur sveitadreng- ur til borgarinnar á árunum milli stríðanna. Hann lærði til veitinga- manns, var kokkur til sjós, rak veit- ingastaðinn Kuðunginn í Vest- mannaeyjum, fékkst við búskap hér og þar en hóf eigin rekstur í Reykja- vík í gamla Golfskálanum á Öskju- hlíð, ekki langt frá þar sem menn setjast enn prúðbúnir að snæðingi í Perlunni. Þetta var á stríðsárunum og Ragnar kom vel undir sig fótun- um og hóf rekstur Þórskaffis eftir stríðið en staðurinn var þá til húsa á Hverfisgötu 116, beint á móti nú- verandi lögreglustöð. Ragnar byggði stórhýsi við Brautarholt, þangað sem Þórscafé var flutt 1957 og naut mikilla vinsælda í áratugi. Þarna ólst Jón Óðinn upp og lærði til þjóns en fór síðan á hótelskóla í Sviss. „Mín fyrstu skref á þessari braut, þegar ég kom heim 1962, voru við veitingarekstur í Oddfellowhúsinu sem ég hafði á leigu í nokkur ár.“ Byrjaði í bíórekstri Jón ílentist ekki í veitingarekstri því hann keypti Hafnarbíó við Skúlagötu 1968 og rak í nokkur ár. Þetta var þegar sjónvarpið var ný-, komið og bíóbændur reru lifróður í samkeppninni. „Ég haíöi spumir af því að er- lendis hefði bíórekstur náð sér á strik aftur svo ég þraukaði," segir Jón og sú varð raunin því Jón segir að gestir í Hafnarbíói hafi verið 37 þúsund á ári þegar hann tók við en hafi losað 200 þúsund þegar afskipt- um hans lauk. Síðan setti Jón á laggirnar kvik- myndahúsið Regnbogann við Hverf- isgötu og rak árum saman en það blundaði alltaf í honum löngun til að fást við hótelrekstur í meira mæli. Ragnar faðir hans keypti Val- höll 1963 ásamt Sigursæli Magnús- syni, kenndum við Sælakaffl, og Þorvaldi Guðmundssyni í Síld og fisk. Jón hellti sér síðan út í hótel- bransann fyrir alvöru árið 1989 þeg- ar hann skipti við Framkvæmda- sjóð ríkisins á húseignunum sem hýstu Regnbogann við Hverfisgötu og Hótel Örk í Hveragerði sem sjóð- urinn hafði nýlega eignast eftir gjaldþrot. Á síðustu árum hefur Jón margfaldað umsvif sín á þessu sviði meö kaupum á Hótel Norðurlandi á Akureyri og kaupum á gömlu skóla- húsi á Skútustöðum í Mývatnssveit sem var breytt í hótel. Auk þess leigir Jón húsnæði í Borgartúni þar sem Cabin Hótel er rekið. Þetta eru samtals fimm hótel og Jón segist geta hýst 700 manns samtals á nóttu. En er þetta góður tími til að reka hótel á íslandi? „Það er uppsveifla í þessum iðn- aði en mörg vandamál, s.s. stuttur ferðamannatími sem er þó að lengj- ast. En þetta gengur alveg prýði- lega.“ Verður að vaka yfir þessu Jón segist vera í þann veginn að fara í eina af mörgum ferðum sín- um norður í land en það aö reka fimm hótel í jafnmörgum sveitarfé- lögum útheimtir mikið eftirlit. „Það er gömul saga að þessi rekst- ur gengur ekki nema menn séu sjálfir vakandi og sofandi yfir þessu. Ég reyni að velja mér gott starfsfólk til að vinna með. Margt af því hefur unnið hér lengi og veit að ég er kröfuharður og smámunasam- ur og tekur mér eins og ég er.“ Benz eða Cadiliac Jón er kvæntur Hrafnhildi Valde- marsdóttur og þau eiga tvö börn, Valdimar, f. 1965, og Júlíönu, f. 1968. Jón segist ekki eiga nein áhugamál utan við vinnu og ekki vera í nein- um félögum, fyrir utan að hafa ver- ið um hríð í lionsklúbbi en leiddist hálfpartinn allan tímann. Hann við- urkennir þó að hafa gaman af góð- um bílum og sumir myndu reyndar segja að hann væri með væga bíla- dellu. Um það er til skemmtisaga á þá leið að Jón keypti sér Cadillac Fleetwood-bifreið fyrir um 2Q árum en hann hafði þá átt glæsilegar Benz-bifreiðar árum saman. Hann var spurður hverju þetta sætti og mun hafa svarað að bragði: „Það er ekkert gaman að vera á Benz þegar annar hver sendisveinn i bænum er kominn á Benz.“ Jón sýnir okkur kádiljákinn sem enn malar eins og köttur, enda að- eins ekinn 200 þúsund kílómetra, að sögn eigandans sem segist hlífa hon- um við malarakstri og eiginlega að- eins aka honum á sumrin, en viöur- kennir að nú um stimdir eigi hann Benz líka, rétt eins og hinir sendi- sveinamir. -PÁÁ „Það getur vel verið að einhverjir vilji að ég líti út eins og skúrkur en ég er það ekki. Margir hafa sagt sína skoðun á þessu máli og hún hefur ekki alltaf verið byggð á traustum heimildum. Ég áttaði mig á því strax að þetta gceti orðið hitamál og ákvað að segja sem minnst en það sem ég segi er satt. “ 4-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.