Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 Helgarblað________________________________________________________________________________________________py Einlægasti knattspyrnumaður landsins er án efa Hermann Hreiðarsson. Hann er alinn upp í þriggja systk- ina hópi í Vestmannaeyjum þar sem hann sprangaði í klettum Heimaeyjar og æfði fótbolta frá blautu barnsbeini. Hann er einnig dýrasti knattspyrnumaður íslands: Þyngdar sinn- ar virði í gulli Ær og kýr Hermann hefur æft knattspyrnu frá fimm ára aldri og lék handknattleik frá því hann var 11 ára og til 18 ára aldurs. Hann gaf handboltann þó upp á bátinn til þess aö geta einbeitt sér aö knattspyrnunni. ekki langt aö bíöa að ekki þurfti að minna mann á aö fara - þetta var það eina sem komst að. Þetta hafa verið mínar ær og kýr síð- an.“ Sameiginlegt áhugamál Hermann var samt ekki einung- is í knattspymu. Strax 11 ára gam- ali var hann farinn að taka þátt í handknattleik líka og þótti efni- legur. Hann var þó alltaf viss um að hann myndi láta fótboltann ganga fyrir. „Ég spilaði handbolta frá því ég var 11 ára þar til ég varð 18 ára með öðrum flokki. Þá hætti ég að spila handknattleik og ákvað að einbeita mér meira að fótboltanum. Ég hafði alltaf ætlað að velja hann í raun og veru. Ég hafði ákaílega gaman af handbolt- anum - þar var góður félagsskap- ur og það var ákaflega gaman að vera alltaf að keppa á mótum en fótboltinn átti hug minn allan. Ég hef þó enn mjög gaman af því að spila handbolta og geri það ef tækifæri gefst.“ Hermann vill ekki kannast við það að fátt annað en fótbolti kom- ist að í hans lífi en neitar því þó ekki að hann spili stóra rullu á heimilinu. Hermann er giftur Rögnu Lóu Stefánsdóttur, sem hef- ur einnig verið viðriðin knatt- spymu í gegnum tíðina, og eiga þau saman eina dóttur, Telmu Lóu, sem er 9 mánaða. Ragna á tvö börn frá fyrra sambandi, Stef- án Kára og Elsu Hrund, og segir Hermann að Stefán sé strax farinn að spUa knattspymu. „Þetta er vissulega sameiginlegt áhugamál fjölskyldunnar. Ég spila leiki á laugardögum og Stefán Kári spUar leiki á sunnudögum sem við fylgjumst að sjálfsögðu með. Síðan er æft stíft aUa daga. Við reynum vissulega að gera hluti saman sem ekki tengjast knattspyrnunni. Þar sem við búum rétt suður af London er aUtaf nóg að gera. Við fáum mikið af gestrnn sem við reynum að sinna eftir bestu getu.“ Krefjandi að búa erlendis Þrátt fyrir að kunna vel við að búa í heimsborginni London segir Hermann að hann kunni aUtaf best við sig á íslandi og að fyrstu árin utan landsteinanna hafi ver- ið krefjandi. „Eftir aö hafa verið í Bretlandi veit maður að aUt er „tipp-topp“ á íslandi. Héma er aUt 100%, hrein- legast, Uottast, besti maturinn og svo framvegis. Þegar maður flytur af landi brott þá tekur maður bara með sér það jákvæða um eigið land. Síðan eru kannski aðrir hlutir erlendis sem eru betri þar en héma heima - þar með talið veðrið! Helsti kosturinn við það að búa erlendis er að maður fær almennUegt sumar og ekki slæma vetur þar sem aUt er á kafi í snjó. Eitt af því besta er aö losna við þetta eUífa rok sem hér er, að geta spUað fótbolta í logni er alveg nýtt fyrir rnanni," segir Hermann og glottir út í annað. „Þegar ég fór utan var ég ást- fanginn og rosalega ánægður með það að vera kominn út í atvinnu- mennsku - nokkuð sem manni fannst einu sinni bara vera fjar- lægur draumur. Hlutimir gerðust líka ákaUega hratt og það hefur líklega haft jákvæö áhrif á mann. Ég var ákaUega upptekinn strax frá byrjun og hafði því lítinn tíma til þess að eignast vini. Við félag- amir i liðinu æfðum að sjáifsögðu á hverjum degi og það var bara eins á hverjúm öðrum vinnustað. Einu sinni í mánuði eða svo var kannski kíkt aðeins út. Mér leið samt mjög vel að vera einn en ef mig vantaði að tala við einhvem hringdi ég bara heim. Mér leiddist aldrei. Ragna Lóa kom síðan til mín á kannski mánaðarfresti og dvaldi hjá mér nokkra daga í hvert skipti.“ Gengur kaupum og sölum „Ég fæddist í Reykjavík en hef alltaf búið í Eyjum. Sökum eld- gossins 1973 í Vestmannaeyjum þurfti fjölskyldan að Uytjast um hríð til Reykjavíkur og því fædd- ist ég þar. Við Uuttum þó aftur til Eyja um leið og hægt var." Hermann er ótrúlega jarðbund- inn ungur maður og þegar talað er við hann sést strax aö uppgangur hans í lífmu hefur ekki stigið hon- um til höfuös. Hann viðurkennir það fúslega að honum þykja það forréttindi að fá að spila fótbolta allan ársins hring - hvað þá aö fá laun fyrir það lika? „Mig langaði aUtaf til þess að spUa knattspymu sem atvinnu- maður en það hefur aUa tíð verið fremur fjarlægur draumur. Nú þegar ég hugsa um það stöku sinn- um hristi ég bara hausinn og á erfitt með að átta mig á því að það skuli vera satt,“ segir Hermann inni á herberginu sínu á Hótel Loftleiðum þar sem hann hvílist fyrir landsliðsæfingu dagsins. Fimm ára í fótbolta „Eins og áður sagði þá ólst ég upp í Vestmannaeyjum og kunni ákaflega vel við það. Ég held að það sé paradis fyrir krakka að al- ast upp í Eyjum. Maður er ótrú- lega frjáls og öryggið er mikið - ég Feriíl Hermanns gy* t ....... Ár FJöldi lelkja UO 1993 2 ÍBV 1994 18 ÍBV 1995 18 ÍBV 1996 19 ÍBV 1997 11 ÍBV SddurH Cfysta) Palace fyrir 60 nbiíáir' j 1997- 98 26 Ciyital Pateca Seldurtt Bredtonl fyrir 90 miQóair 1998- 99 33 Bredterd Seidur tt WimbeitM fyrk 290 iifljóali 1999- 00 25 Wlmbeftea >..J..-wggsgp«g|saggi.»...- jcKiur m ipwwiiy^LWW — 2000- 7 7 Ipmridi gæti ekki hugsað mér nokkum annan betri stað til þess að alast upp á. Það er eitthvað svo heil- brigt að alast þar upp. Þama sprangaði maður bara í klettun- um og lék sér úti fram eftir hverju kvöldi." Foreldrar Hermanns skildu um 1980 og í kjölfarið fluttist hann, þá sex ára gamall, til Selfoss. Þau stoppuðu ekki lengi á Selfossi og að sex mánuðum liðnum var Her- mann aftur kominn til Eyja í fylgd móður sinnar og eldri systur. Um svipað leyti hóf Hermann að æfa fótbolta. „Systir hennar mömmu og mað- urinn hennar voru bæði tengd íþróttum. Hann þjálfaði yngri flokkana hjá Þór og hún kenndi íþróttir. Það varð því svo að mað- ur flæktist stundum með þeim og fannst það óneitanlega skemmti- legt að vera í kringum bolta. Áður en maður vissi af var farið að senda mann á æfingar og þess var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.