Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Síða 46
* 54 Tilvera LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 DV í smáhöll á toppi hæðar upp af Freiburg er rekinn veitingastaður: * Borðað á toppnum Hinn kyrrláti helgidómur var nafnið sem eigandinn, Hermann Tröndlin von Greiffenegg, gaf hús- inu sínu þegar hann hafði lokið við að reisa það árið 1805. Það er kannski ekki skrýtið því húsið, sem raunar er ekkert smáhús held- ur öllu fremur smáhöll, er á toppi hæðar sem rís upp af Freihurg og ;Jpr uppi er friður og ró - eða hef- ur að minnsta kosti verið áður en bílaumferðin varð eins mikil og nú. Veitingastaðurinn í húsinu er nú rekinn veitinga- staður sem heitir eftir von Greiffenegg, eða Greiffenegg Schlössle Restaurant. Auðvelt er að komast í veitingastaðinn með lyftu frá homi Schlossbergring og Salzstrasse í miðborginni. Við lyft- una er bílageymsluhús þar sem þeir sem em akandi geta geymt bila sína. Þeir sem vilja geta geng- ið upp undurfallega leið eftir skóg- ^arstígum. Það tekur ekki mjög langan tíma og útsýnið er vel þess virði. Smám saman sést meira af borginni og umhverfi hennar eftir þvl sem ofar dregur og þegar kom- ið er í bjórgarðinn, sem er fyrir framan veitingahúsið sjálft, sést Svartiskógur, Rínardalurinn og borgin breiðir úr sér fyrir neðan. Kokkamir kaupa mest af hrá- Janúar í bjórgarði Hér sést hluti bjórgarðsins og útsýn- iö yfir Freiburg. efni sínu ferskt af markaðnum í Freiburg þar sem bændumir koma í hverri viku með nýjar vörur til að selja á torginu fyrir framan kirkjuna: kartöflur, grænmeti af öllu tagi, heimatilbúið vín og sult- ur, kerti og osta, svo eitthvað sé nefnt. Borðað útl og innl Hægt er að borða úti við, í bjór- garðinum og á svölunum en einnig inni í salnum sem er mjög fallegur eins og raunar húsið állt. Matseð- illinn er ekki flókinn en breytist ört og verðið er mjög hagstætt. Þar að auki fá ellilífeyrisþegar og skóiafólk afslátt. í bjórgarðinum er seldur bjór og léttar veitingar og oft er þétt setinn Horft yflr miöborgina Frá veitingastaðnum sést vel yfir Freiburg. bekkurinn langt fram á kvöld ef vel viðrar. Stórt útisvæði er rétt fyrir neðan húsið þar sem fólk kemur gjaman til að njóta útsýnis- ins og lífsins. Á sólardögum má sjá fjölskyldufólk, skólafólk, ástfangin pör og fólk á öllum aldri sitja á bekkjunum, ganga um skóginn og á virkisveggjunum til að horfa yfir borgina og umhverflð. Þetta er sem sagt frábær staður til að eyða dag- parti á, sé fólk á annað borð í borg- inni, borða góðan mat í fallegu um- hverfl og fá svolítið af sögu staðar- ins um leið í kaupbæti. Opið er frá kl. 11-24 daglega. -vs Margir hafa gaman af að smakka ýmsar tegundir víns og skoða víngerð á vettvangi: Við Stól keisarans Stjörnumerkjavín. Framleitt var vín fyrir hvert stjörnu- merki og er flöskunum stillt fallega upp. Hópur íslendinga á leið í vínsmökk- un eftir skoðunarferð um verksmiöj- una. Notað er sérstakt glas fyrir hvert vín og brauð boriö fram með til að borða á milli tegunda. Verslunin er opin mánudaga til fostudaga, frá kl. 8-12 og 13-17.30, og laugardaga frá kl. 9-13, nema mánuðina janúar, febrúar og mars, þá er lokað á laugardögum. Best er að hringja eða senda fax. Sími: 07667\900 270. Fax: 07667 900 232. Heimasíöan er: httpWwww.bad- ischer-winzerkeller.de n Eikartunnurnar eru fjölmargar og hver með sínum útskurði. Þær eru um þaö bil mannhæðarháar og á þeim krani svo hægt sé að smakka vínið. Hóflega drukkið vín gleður manns- ins hjarta segir einhvers staðar og má til sanns vegar færa. Nokkum veginn mitt á milli Basel í Sviss og Strassborg- ar í Frakklandi er Kaiserstuhl í Þýska- landi, hæð sem hefúr verið mótuð af mannahöndum líkt og gríðarstór stigi og á tröppunum er ræktaður vínviður ►sem verður að dýrindis víni. Vínberin enda hjá Den Badischen Winzerkeller í Breisach, rétt við Stól keisarans, en þar er gríðarmikil víngerð. Vínberin koma þó víðar að þvi heildarræktunar- svæðið nemur rúmlega 16.000 hektur- um og nær frá Mannheim 1 norðri til Basel í suðri. Þegar mest gengur á og uppskeran er í fullum gangi er unnið úr 4,5 milljón kg af vínbeijum á dag! Vin í eikartunnum Vinin eru margvísleg og í verk- smiðjunni er stór og falleg vínbúð þar sem hægt er að kaupa vín á lægra verði en gengur og gerist. Þetta not- færa sér margir og er talsverð umferð í verslunina og einnig í skoðunarferð- ^ir og vínsmökkun sem er vinsælt tóm- stundagaman. Verksmiðjan er stór og undir henni að hluta er sýningarsvæði þar sem hægt er að skoða víngerðar- tæki horfmna daga. Einnig má sjá gríðarstórar eikartunnur sem hver um sig er listilega útskorin með merki og táknum hvers vínbónda fyrir sig. í þessum tunnum er sérstakt vín hvers og eins. Vínsmökkun Hægt er að velja á milli þess að smakka 3, 5 eða 7 víntegundir og fer verðið eftir fjölda tegundanna. Best er ^aö fara í hóp eða leita upplýsinga um Býrðu í Kaupmannahöfn? Ertu á leidinni ??? >■ www.islendingafelagid.dk Verð á vínsmökkun 3 vínteg. DM 5 5 vlnteg. DM 7,50 7 vínteg. DM 9,50 það hvenær næsti hópur fer í skoðun- arferð og/eða vínsmökkun. Ef farið er með böm eða fólk sem ekki drekkur áfengi er boðið upp á óáfengan epla- eða beijasafa, al- veg ótrúlega ljúffengém. Skoðunarferð- in tekur um það bil klukkustund og vínsmökkunin svipaðan tíma, með fyr- irlestri um bragð og innihald vinsins. Þetta er hin ágætasta skemmtun og ekki síst fyrir þá sem áhuga hafa á góðu víni. Breisach liggur vel við heimsókn- um. Með tilkomu nýju lestarstöðvar- innar i Frankfúrt er auðvelt að komast hvert á land sem er. Líka er þægilegt að fljúga til Basel eða Zúrich og aka þaðan upp með Rin. -vs Týndur farangur Talið er að einn af hverjum tíu 1 ferðamönnum í heiminum verði fyr- j ir því óláni að týna farangrinum sínum en þetta kom fram í nýrri könnun sem breskt tryggingarfyrir- tæki lét gera. Þá kom einnig í ljós að týndur farangur finnst oftast í ! Egyptalandi. Önnur lönd sem voru ofarlega yfir lönd þar sem farangur kemur oftast fram í leitimar eru Holland, Spánn, Bandaríkin og Þýskaland. Þá er mikið um að far- ; angur finnist á flugvöRunum í Amsterdam og Bangkok. Þemaferðir á vígvelli Ferðamálayfirvöld í Víetnam hafa tilkynnt um að innan þriggja ára muni þau að öllum líkindum hefja skipulagðar ferðir á vígvellina þar sem hið blóðuga Víetnamstríð var háð. Ef af ferðunum verður mun þær verða famar á svæðið í kringum Ho Chi Minh Trail sem gegndi lykilhlutverki í stríðinu. Þar standa nú yfir umdeildar fram- kvæmdir á nýjum þjóðvegi sem verður um 1690 kílómetra langur. Ho Chi Minh Trail var nefnt eftir frelsishetju úr stríðinu en þar fóru fram mikilvægir flutningar á her- mönnum og vopnum frá norðri til suðurs. Nú þegar hafa ýmsar leiðir verið kortlagnar á svæðinu og er hug- myndin að bjóða upp á ferðir með mismunandi þema. Ferðamenn gætu þá farið í ferðir eins og „Heim- sókn á fyrrum vígvelli" eöa „Fylgt í fótspor frelsishersins". Ferðalög á þetta fyrrum styrjaldarsvæði í Ví- etnam hafa aukist á undanfornum árum og telja ferðamálayfirvöld að áhugi muni enn aukast þegar farið verður að bjóða upp á skipulagðar ferðir, sérstaklega á meðal ungs fólks. Höfuðföt í kirkjugörðum í Berlín er aö finna stærsta gyð- ingakirkjugarð í Vestur-Evrópu. Hann ber nafnið Weissensee og var reistur árið 1880. Elsti gyðinga- kirkjugarður borgarinnar er hins vegar Grosser Hamburger Strasse sem reistur var á sautjándu eða átj- ándu öld. Kirkjugarðurinn var eyði- lagður að mestu af nasistum i seinni heimsstyrjöldinni. Þar er þó að finna minjar um gyðinga, m.a. um helforina Einnig er í garðinum minnismerki um heimspekinginn Moses Mendelsson. Schonhauser Strasse er síðan þriðji gyðinga- kirkjugarðurinn í Berlín en þar hvílir málarinn Max Libermann. Sú regla gildir í öllum gyðingakirkju- görðum að gestir verða að bera höf- uðfót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.