Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Síða 48
*~56
Tilvera
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
I>V
Svalandi
melónudrykkur
Vatnsmelónnr þykja einkar
svalandi og góðar við þorsta á
heitum sumardögum. í Banda-
ríkjunum eru viða haldnar
vatnsmelónuhátíðir á sumrin. Á
slíkum hátíðum er meðai annars
keppt í vatnsmelónukasti,
vatnsmelónuátkeppni og steina-
spýtingarkeppni. Einnig keppa
menn um það hver eigi þyngstu
vatnsmelónuna. Samkvæmt
- Heimsmetabók Guinness vó
þyngsta vatnsmelóna sem rækt-
uð hefur verið alls 131 kíló. Fyr-
ir þá sem þykja vatnsmelónur
góðar er hér einfold hugmynd að
vatnsmelónu-limónaði fyrir
fjóra. í drykkinn fara 6 bollar af
vatnsmelónu í teningum, 1/4
bolli rifsber, bolli af vatni, 1/3
bolli af sykri og 1/2 bolli af
sítrónusafa. Vatnsmelónan, rifs-
berin og vatnið er maukað vel
saman í blandara og síðan sigtað
í könnu. Sykrinum og
- sítrónusafanum er síðan hrært
saman við. Gott er að hafa
drykkinn í um klukkustund í ís-
skáp áður en hann er borinn
fram.
Melónusaiat
með rækjum
Mjög vinsælt er að nota
melónur í salöt. Hér er ein hug-
mynd að bragðgóðu rælgu- og
melónusalati. Hráefni í salatið
eru 3 tsk. af hnetuolíu, 1/2 kíló
af rækjum, 1 tsk. fersk engifer-
rót, fínt skorin, bolli af melónu-
bitum að eigin vali, 1/3 bolli af
súraldinsafa, 2 niðurskomir
laukar, 1 tsk. sykiu', 1 tsk.
sesamolía, 1 tsk. sojasósa, 1/4
tsk. rauð piparsósa og salat að
vali hvers og eins. Hnetuolían er
hituð í potti á meðalhita. Rækj-
umar og engiferrótin em settar
út í og látið krauma í 4 til 5
mínútur. Gott er að hræra af og
til f rækjunum. Þær em síðan
settar í stóra skál. öllum hinum
hráefnum nema salatinu er
blandað saman í eina skál og
búin til melónublanda. Þetta er
síðan geymt í kæliskáp í einn
klukkutíma. Þegar bera á salatið
fram er byrjað á að setja salat í
hring á hvem disk. Rækjumar
em síðan hrærðar saman við
k melónublönduna og settar á
miðjan salathringinn. Það hent-
ar einnig mjög vel að nota súr-
aldinsafa sem dressingu yflr sal-
atið.
Melónusúpa
Súpuáhugamenn geta einnig
notað melónur þegar matreiða á
súpur. Cantaloupe-melónan
hentar vel þegar búa á til kalda
súpu. í slíka súpu þarf eina
Cantaloupe-melónu, 1/2 bolla af
sérrli, 1/4 bolla sykur og 1/4
^ boUa appelsínusafa. Best er að
byrja á að hreinsa melónuna vel,
taka burt steina og kjöt. Melón-
an og annað hráefni er síðan
maukað saman i matvinnsluvél.
Súpunni er síðan hellt 1 skál sem
kæld er f ísskáp f nokkra tíma.
Mjög gott er að bera hana fram f
* köldum skálum.
eru fullþroskaðar.
Þær eiga að vera
fremur þungar,
gefa örlítið eftir
og vera ilmgóð-
ar. Melónur eru
oftast borðaðar
kaldar í sneiðum
og eru vinsælar í
ávaxtasalöt en það
er hægt að nota þær í
margs konar rétti. Melónur
hafa mikið vökvainnihald og eru sætar.
Talið er að melónur hafi fyrst verið
ræktaðar í Súdan og víðar í Austur-Afríku
fyrir rúmlega fjögur þúsund árum. Meðal
annars er getið um melónur í Biblíunni en
ísraelsmenn söknuðu þeirra þegar þeir
sneru til fyrirheitna landsins. Þær voru
einnig vinsælar í Róm og Páll páfi annar
lést árið 1471 úr melónuofáti. Melón-
ur hafa safaríkt aldinkjöt og eru yfir-
leitt stórir ávextir. Þeim má skipta í
fjóra flokka. Það eru hnöttóttar melónur,
net- og moskumelónur, vetrarmelónur og
að lokum vatnsmelónur. Þar sem melónur
hafa hart hýði er oft erfitt að sjá hvort þær
marens
Súkkulaðikom-
Gunnvant Baldur Ármannsson á veitingastaðnum Við Tjörnina
Melónuuppskrift
handa silungsveiði-
mann-
inum
Þessi er einfóld og við allra hæfi.
4 eggjahvítur
220 g sykur
50 g komflex
50 g suðusúkkulaði
Krem
3 dl rjómi
150 g suðusúkkulaði
100 g komflex
1 dl ijómi
3 msk. kókosmjöl
Þeytið eggjahvítur vel og blandið
sykri saman við. Þeytið þar til sykur
er vel uppleystur, saxið niður
súkkulaðið og blandið út i ásamt kom-
flögum. Smyrjið út tvo botna á pappír,
bakið við 140" í 50-55 mín. Þeytið
rjómann (3 dl), hitið 1 dl af rjóma að
suðu og hellið yfir saxað súkkulaðið.
Hrærið vel þar til allir kekkir em
horfnir. Blandið þá komflögunum út í
og hrærið varlega saman. Blandið svo
kókosmjöli saman við, hrærið þessu
svo saman við rjómann og setjið á
botninn.
„Það er langbest að borða melónu
eins og hún er því það er ekki
margt sem hægt er að elda úr
melónum,“ segir Gunnvant Baldur
Ármannsson, matreiðslumaður á
veitingahúsinu Við Tjörnina.
Hann segir að melónur henti þó
einkar vel í ávaxtasalöt og þær sé
hægt að nota í heita rétti. En ef
melónur eru notaðar í heita rétti
verður að passa að nota þær aðeins
í lokin því melónur þoli ekki mikla
eldun. „Ef fólk ætlar að elda melón-
ur á að elda þær sem allra minnst,“
segir Gunnvant. Að sögn Gunn-
vants eru melónur mjög hollar og
innihalda mikið vatn. Þess vegna
þurfa menn ekki að hafa áhyggjur
af aukakílóunum ef þeir eru
hrifnir af melónum. Gunnvant
fannst tilvalið að bjóða upp á ein-
faldar uppskriftir jpar sem melón-
ur eru notaðar í ávaxtasalat og sósu
með nýveiddum íslenskum silungi.
Ávaxtasalat
í ávaxtasalatið er gott að nota
cantalopumeiónu, hunangsmelónu,
vinber, jarðarber og appelsínur.
Ávextirnir eru hreinsaðir og
þeim blandað saman. Gott
er að gera kúlur úr melón-
unum. Einnig má nota
melónumar sem skál og
bera salatið á borð í
þeim. Þá er hægt að búa
til sósu með salatinu. í hana
er hægt að setja appelsínusafa
eða líkjör, sykur og melónusafa. Því
er öllu hrært saman og síðan látið
sjóða saman á pönnu þar til sósan
Silungur með melónusósu
íslenskur silungur er skorinn í
tvennt og flökin pensluð með hvít-
lauk og krydduð með salti, pipar og
steinselju. Hann er síöan steiktur
hæfilega stutt á pönnu. Með
silungnum er borin fram
melónusósa.
I sósuna fer ein smátt
skorin cantaloupmelóna, 2
dl fiskisoð, 1 tsk. balsa-
mikedik, steinselja og salt og
pipar eftir smekk. Melónan er soð-
in í fiskisoðinu og edikinu og stein-
seljunni síðan blandað saman við.
Hægt er að þykkja sósuna með
er orðin
hæfilega þykk.
smjöri ef
menn vilja. Silungurinn bragðast
vel með grilluðum kúrbít og tómata-
salati. Þessi
réttur ætti
að henta vel
fyrir þá sem
era nýbúnir
að renna
fyrir silung.
Svo er hægt
að nota
ávaxtasalat-
ið sem eftir-
rétt. -MÓ
N æringarinnihald
Vatnsmelónur innihalda efni sem varna því að menn fái krabba-
mein og aöra slíka sjúkdóma. Þær eru taldar mjög góöur heilsu-
matur og í þeim er mikil orka. Vatnsmelónur eru líka algjörlega
fitulausar.
280 grömm af vatnsmelónu innihalda:
Kaloríur 90 Prótín 1 g
Fita O g
Kolvetni 23 g