Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2000, Blaðsíða 26
FTMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 '!4 Tilvera DV Lærði að velja og hafna Flestir leikarar sem hafa orðið frægir i sjónvarpinu hafa ekki átt erindi sem erfiði í kvikmynda- heiminum og fljótt gleymst, en ekki George Clooney, sem styrkir stöðu sína með hverri mynd. Clooney segir að Batman í Batman and Robin (1997) hafi kennt honum lexíu og eftir þá reynslu hafi hann ákveðið að leika aðeins í kvikmynd- um sem gerð eru eftir handriti sem honum líkar: „Þegar ég var á ferðalagi að kynna Batman og Robin, leit ég í eigin barm og viðurkenndi að hand- ritið var slæmt og ég var ekki góður í myndinni. Og þar sem ég er ekki pen- inga þurfl ákvað ég að leika aðeins í kvikmyndum sem höfða til mín. Ef ég nú leik í slæmum myndum þá get ég aðeins sakast við sjálfan mig og heimsku mína. Þess má geta að nýjasta kvikmynd Clooneys, 0 Brother, Where Art Thou?, sem Coen- bræður gera, hefur fengið frábæra dóma og þykir ein besta kvikmynd þeirra bræðra. Englar Charleys Ein af stóru myndunum í vetur er Charlie’s Angels, sem gerð er eftir vinsælli sjónvarpsseríu, sem meðal annars gerði Farah Fawcett og Jacquline Smith frægar á sínum tíma. í hlutverkum englanna þriggja eru Cameron Diaz, Drew Barrymore og Lucy Liu og þurftu þær víst að taka sig held- ur betur á í líkams- ræktinni fyrir hlut- verkin. Upphaflega átti Thandie Newton (Mission Impossible 2) að vera þriðja hjólið en hún hætti við á síðustu stundu og Lucy Liu, sem hingað til hefur verið þekktust fyrir leik sinni í Ally McBeal, fékk hlutverkið. Eina karl- hlutverkið í myndinni sem eitthvað kveður að er i höndum Bill Murray og leikur hann tengilið stúlknanna við yfirmann þeirra. Týndar sálir Yfirleitt þurfum við hér á klakan- um ekki að bíða lengi eftir nýjum bandarískum kvikmyndum og stund- um kemur það fyrir að myndir eru frumsýndar hér á landi um sama leyti og í Bandaríkjunum. Þannig verður það með Lost Soul, nýja hryllingsmynd með Winonu Ryder, Ben Chaplin og John Hurt í aðalhlutverk- um. Hún verður frumsýnd vestan- hafs 13. október og sama dag verur hún tekin til sýningar i Laugar- ásbíói. Um er að ræða mynd sem er í anda The Exorcist og The Omen og tjallar um konu sem reynir að hindra Satan í að komast til valda á jörðinni. Leikstjóri er Janusz Kaminski, þekkt- ur kvikmyndatökumaður (Saving Pri- vate Ryan, Lost World, Jerry Mas- guire) sem hér er að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd. Snatch Beðið hefur verið með óþreyju eftir nýrri kvikmynd frá Guy Ritchie, sem sló svo eftirminnilega í gegn með Lock, Stock and Two Smoking Barrels. Nú er sú bið á enda, Snatch, hefur verið frumsýnd i Bretlandi og sýnist sitt hverjum. Allir eru þó sammála um að hún nái ekki gæðum Lock... en hafi samt margt sér til ágætis, með- al annars stórleik Brad Pitts í hlutverki hnefaleika- kappa. Pitt bauð Ritchie eftir að hafa séð Stock... að hann mætti leita til hans hvenær sem er og Ritchie, sem þessa dagana er þekktastur fyrir að vera bamsfaðir Madonnu, greip gæs- ina meðan hún var heit og fékk Brad Pitt til að leika eitt hlutverk, en í Snatch. Snatch verður frumsýnd hér á landi 3. nóvember. John Standing í hlutverki sínu í nýjustu kvikmynd Peter Greenaways sem sýnd veröur á hátíöinni. Kvikmyndahátíð í Reykjavík fram undan: Fjölbreytt úrval frá mörgum löndum Með haustinu blása ferskir vind- ar í kvikmyndahúsum höfuðborgar- innar þegar árleg Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst. í stað þess að þurfa að horfa upp.á hverja amerísku kvikmyndina af annarri, sjást á hvíta tjaldinu kvikmyndir frá öðr- um menningarþjóðum og borgin verður allt í einu iðandi í alþjóð- legri kvikmyndalist þar sem list- rænn metnaður ræður ríkjum. Kvikmyndhátíð Reykjavíkur hefst 29. september og er eins gott fyrir alla kvikmyndaáhugamenn að fara að setja sig í startholurnar því ekki vantar forvitnilegar úrvalskvik- myndir frekar en á fyrri hátíðum. Þegar skoðaður er listi yfir leik- stjóra sem eiga myndir á hátíðinni þá eru þar á meðal þekktir kappar á borð við Wim Wenders, Ang Lee, Giuseppe Tornatore, Mike Figgis, David Lynch, Atom Egoyan, Peter Greeaway og sérstakur gestur hátíð- arinnar, Dusan Makavejev, en nokkrar mynda hans verða sýndar. Á móti kemur að meðal leikstjór- anna eru nöfn sem ekki eru eins þekkt, menn á borð við Takeshi Kitano, Veit Helmer, Kaige Chen, Roy Anderson, Gianni Amelio og Vestur-íslendinginn Sturlu Gunn- arsson, sem mun heimsækja okkur meðan á hátiðin stendur yfir. Á hátíðinni eru myndir sem hafa verið að vekja athygli á kvikmynda- hátíðum erlendis og er skemmst að minnast að um síðustu helgi fékk kvikmynd Ang Lees, Crouching Ti- ger, Hidden Dragon, People’s Choice verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Toronto, en það er mesta viður- kenningin á þessari hátíð og má geta þess aö í fyrra fékk American Beauty þessi verðlaun og er óþarfi að rekja framhaldið með þá mynd. Aðrar verðlaunamyndir eru The Buena Vista Social Club (Wim Wenders), Cosi Ridevano (Gianni Amelio), The Straight Story (David Lynch, Kikujiro (Takeshi Kitano), Gohatto (Nagisa Oshima) Sozhou River (Lou Ye). í heildina verða eitthvað á fjórða tug kvikmynda sýndar á hátíðinni og verða flest kvikmyndahús borg- armnar stendur. nýtt meðan á hátiðinni -HK Toronto Það voru ekki aðeins íslensku kvikmyndirnar 101 Reykjavík og Englar alheimsins sem vöktu at- hygli á nýafstaðinni kvikmyndahá- tíð i Toronto. Sigurjón Sighvatsson var mættur á hátíðina með splunku- nýja kvikmynd, Weight of Water, sem ekki er farið að sýna enn þá. Var hann ásamt félögum sínum að kynna hana fyrir dreifmgaraðilum. Myndin vakti mikla athygli, sem þykir lofa góðu um framhaldið, enda fór svo að bandaríska dreifmg- arfyrirtækið Lions Gate borgaði eina milljón dollara fyrir að fá að dreifa henni í Bandaríkjunum og er ætlunin að hún fari á markaðinn á næsta ári. Weight of Water er byggð á skáld- sögu eftir Anitu Shreve sem fengið hefur afbragðs dóma. Fjallar mynd- in um blaðaljósmyndara, Jean, sem fer á söguslóðir þar sem tvær konur voru myrtar árið 1873 og ætlar hún að tengja það við tvöfalt morð í nú- tímanum. Hún uppgötvar skjöl sem skráð eru af manneskju sem varð vitni að morðunum. í myndinni er síðan skipt á milli nútímans og frá- sagnar vitnisins, auk þess sem inn í söguna blandast hjónabandserfið- leikar Jean. Spennumyndaleikstjórinn Kathryn Bigelow (Strange Days, Point Break) leikstýrir Weight of Water og í aðalhlutverkum eru Catherine McCormack, Sean Penn, Sarah Polley, Elizabeth Hurley og Josh Lucas. Bíógagnrýní Fráhrindandi og heimsk Weight of Water Sean Penn og Joss Lucas í hlutverkum sínum h Háskólabió/Stjörnubíó - Battlefield Earth: i Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Sigurjón í góðum mál- um í John Travolta hefur mikið á sam- viskunni þessa dagana. Hann er ábyrgur fyrir því að eytt var hundrað miUjónum dollara í að gera Battlefield Earth, sem er ekki aðeins vond kvik- mynd, hún er heimsk og einstakléga fráhrindandi. Myndin sem byggð er á miklum doðranti eftir L. Ron Hubb- ard, sem er víst nokkurs konar goð í augum þeirra sem fylgja vísindakirkj- unni bandarísku (Þar er Travolta i fremstur í flokki) hefur verið hugar- fóstur Travolta í mörg ár. Upphaflega ætlaði hann að leika hetjuna Jonnie, en eftir því sem töfrn var meiri á gerð myndarinnar kom að því að Travolta var orðinn of gamall fyrir hlutverkið og tók þá að sér að leika illmennið Terl, auk þess sem hann er framleið- andi. Battlefield Earth á að gerast á fjórða árþúsundinu. Langt er síðan geimverur af ættflokki Sæklóa, nán- ast gjöreyddu öllu lífi á jörðinni. Þær fáu hræður sem enn eru við líði eru komnar á steinaldarstigið (ekki það að Sæklóamir séu ekki langt frá því heldur). Svo einkennilega vill til að þótt þúsund ár séu frá því að jörðin var nánast sprengd í tætlur má enn þá sjá borgarskilti, hálfhrunda skýja- kljúfa og bílhræ, auk þess sem not- hæfar orrustuflugvélar eru enn í flug- skýlum sínum. Þessi upptalning er að- eins lítill hluti þeirra mótsagna sem er að finna í þessari kvikmynd, sem er með slíkum endemum að maðm hlýtm að spyrja sjálfan sig hvort nokkm hafi vitað hvað hver var að gera við gerð hennar. Aðalpersónmnar em tvær, Jonnie (Barry Pepper), ungur maður sem spyr sjálfan sig hvort llfið bjóði aðeins upp á eymd og örbirgð og Terl (John Travolta), stöðvarstjóri Sæklóa á jörð- inni, sem er ekki ómennskari en það að græðgi ræður gerðum hans. Gullæði rennm á hann og til að koma áformum sínum í framkvæmd kemm hann „vitinu" fyrir Jonnie, sem að sjálfsögðu notar það í eigin þágu og er ekki lengi að gera úr félögum sinum striðsmenn sem fara létt með að stjórna fullkomnustu orrustuþorum nútímans. Ekki hjálpa leikarar mikið upp á ósköpin. John Travolta, sem er að vísu óþekkjanlegm í myndinni, er ekki sannfærandi illmenni og þótt út- litið blekki.þá er röddin auðþekkjan- leg og er hún á skjön við útlitið. For- est Whitaker, sem leikur hans hægri hönd, vill sjálfsagt gleyma þáttöku sinni sem fyrst, enda er samleikm þeirra eins og í misheppnuðum farsa. Nýliðin Barry Pebber fer troðnar slóð- ir, ljóshærður og vel útlítandi en með takamarkaða leikhæfileika. Leikstjóri: Roger Christian. Handrit: Cor- ey Mandell. Kvikmyndataka: Giles Nuttg- ens. Tónlist: Elia Cmiral. Aðalhlutverk: John Travolta. Barry Pebber, Forest Whitaker, Kim Coates og Richard Tyson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.