Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Page 13
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
13
I>V
Fréttir
Alaskalóðin í Breiðholti seld:
íbúðarhús fyrir
ellilífeyrisþega
- Breiðholtsbúi vill sjá lystigarð
Búið er að selja landið sem
gróðrastöðin og blómabúðin Alaska
stóð á í Breiðholti og ætlar hinn nýi
eigandi, Ólafur og Gunnar Bygging-
arfélag ehf., að byggja íbúðarhús á
svæðinu. Það er þó ekki búið að
setja endapunktinn á deiliskipulag-
ið og vilja íbúar í Breiðholtinu sjá
minnisvarða reistan um Jón H.
Bjömsson.
„Það er alveg griðarlega mikið
magn af plöntum þarna eftir Jón H.
Bjömsson. Mér fyndist það synd og
skömm ef það á ekki að reisa þess-
um manni einhvem minnisvarða,
heldur bara urða allan gróðurinn og
byggja þarna einhver íbúðarhús,"
segir Sveinn Þorsteinsson, íbúi í
Breiðholtinu, sem vill láta búa til
lystigarð til minningar um Jón H.
Bjömsson, fyrsta landlagsarkitekt
íslands, garðyrkjumann og stofn-
anda Alaska á Miklatúni og í Breið-
holti. „Það má segja að flestallur
gróður í görðum hér í Reykjavík í
dag sé mikið til þessum tveimur
frumkvöðlum, Jóni og Óla Val
Hanssyni, að þakka. Þetta voru þeir
menn sem voru einna fyrstir til þess
að fara til Alaska og víðar í leið-
angra að safna plöntum."
Jón ræktaði mikinn gróður á
svæðinu, auk þess sem hann rak
blómaverslun í gömlu fjósi úr Breið-
holtsbænum sem þar stóð. Þetta
fjós, sem stendur enn, fellur undir
fomminjar og þarf að bera áætlanir
um það undir Árbæjarsafn. Einnig
liggur landið að opnum útivistar-
svæðum fyrir almenning, Seljabotn-
um og Skógabrekkum.
Ekkert ákveöiö enn
„Það er veriö að búa til hugmynd-
ir, þetta er allt í biðstöðu eins og er.
Þetta er auðvitað dýr lóð. Ein hug-
myndin er að byggja lítil hús fyrir
ellilífeyrisþega þama,“ segir Ólafur
Friðriksson, eigandi byggmgarfyrir-
tækisins. Hann bætti því við að ör-
uggt væri að engin háhýsi yrðu
byggð á svæðinu, og þótt ekki hefði
verið tekin nein ákvörðun um hvort
lystigarður yrði gerður er ljóst að
reynt verður eftir fremsta megni að
vemda gróðurinn sem fyrir er á
svæðinu.
„Þetta er dýrmaetur staður og
hann er vandmeðfarinn. Við ætlum
ekkert að styggja einn eða neinn
þama, við fórum varlega í sakim-
ar,“ segir Ólafur.
Þegar búið er að gera deiliskipu-
lag fyrir svæðið þarf að bera það
undir garðyrkjustjóra Reykjavíkur.
Málið er þó ekki komið svo langt.
„Þama væri náttúrlega tilvalið að
gera einhvem lítinn, fallegan lysti-
garð, þar sem landslagsarkitektar
gætu reist Jóni brjóstmynd og hafa
þetta garð fyrir almenning. Það
36 skjálftar í
Mýrdalsjökli
- yfir 300 skjálftar
f vikunni voru staðsettir 305
skjálftar á landinu. Mesta virknin
var á Holta- og Hestfjallssprungun-
um á Suðurland eins og undanfam-
ar vikur. Jarðskjálftavirkni heldur
áfram undir vestanverðum Mýr-
dalsjökli. 34 skjálftar mældust
0,8-2,3 stig, og í nótt mældust tveir
skjálftar til viðbótar. Sá fyrri var kl.
01.10, að styrkleika 2,4 á Richter og
hinn varð kl. 3.25 og mældist 2,7 á
Richter.
Lítil virkni var á Norðurlandi, en
tveir skjálftar mældust undir
Grímsvötnum, 1,7 og 1,8 að stærð.
Einhver virkni var á Torfajökuls-
svæðinu og sunnan við Langjökul,
samkvæmt upplýsingum frá
skjálftavakt Veðurstofu íslands,-
væri hægt að taka gamla fjósið í
gegn og hafa þama einhverjar kaffi-
veitingar og gera þetta virkilega
huggulegt í stað þess að fara að
ryðja þessu öllu um, malbika og
steypa þarna einhverja steinkumb-
alda,“ sagði Sveinn. -SMK
DV-MYND GVA
Vili láta setja lystigarö til minningar um frumkvööul
Sveinn Þorsteinsson, íbúi í Breiðholtinu, vill láta byggja lystigarö til minn-
ingar um Jón H. Björnsson, fyrsta iandlagsarkitekt íslands, á Alaskalóö-
inni í Breiöholti. Byggingarfélag hefur keypt lóðina og segir eigandi þess
aö gróöur á svæöinu veröi verndaöur eftir fremsta megni.
Kawasaki
fjórhjólin
traust & lipur
„Svo fáum við okkur kannski
•v á eftir"
í sfðustu kjarasamningum VR var stigið stórt skref í átt að auknum
lífsgæðum þegar samþykkt var í fyrsta sinn i áratugi aó stytta
vinnuvikuna um 30 mínútur.
Frá 1. október styttist vinnuvikan hjá afgreiðslufólki og verður 36 klst.
og 35 mínútur án kaffitima samkvæmt kjarasamningi við SA.
30 mínútur á viku virðist ekki mikið við fyrstu sýn, en ef þú hefur
tækifæri til aó safna tímunum saman geturðu reglulega átt auka
fridag. Að sjálfsögðu þarftu að hafa samráð við atvinnurekanda
þinn og ræða við hann um möguleika þína á að nýta tímana
betur og bóka frjálsar stundir. Lffsgæði eru nefnilega fólgin í því
að njóta lífsins.
Virkur vinnutlmi Áður Nú
Afgreiðslufólk 37:05 36:35
Skrifstofufólk 36:45 36:15