Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
Helgarblað
DV
Magnús Ver enn sterkur:
Vill komast í
kvikmyndir
- selur bætiefni fyrir milljón dollara á árinu
Magnús sigraöi í keppninni Sterkasti maður heims f fimm skipti.
Hann segist taka lífinu meö ró um þessar mundir eftir hnjáaðgeröir
og hjartaáfall fyrir tveimur árum.
„Ég kynntist þessum manni,
Greg E. Smith, síðastliðið haust.
Hann hafði þá i nokkum tíma rekið
fyrirtæki sem framleiðir fæðubótar-
efni undir vörumerkinu Ironcurta-
inLabs.com. Ég gekk til liðs við hann
snemma á þessu ári og nú eigum við
fyrirtækið saman. Ég er þó minni
hluthafi og legg einkum til nafn mitt
og orðstír en hann sér um reksturinn.
Þetta hefur gengið alveg prýðilega og
stefnir í sölu fyrir eina milljón dollara
á þessu ári.
Ég hef verið að draga úr þátttöku
minni í keppnum um tíma en tók tals-
verðan þátt í sýningum og kynningar-
verkefnum fyrir amerísk stórfyrir-
tæki. Ég er að jafna mig eftir aðgerð
sem var gerð á hnjánum á mér og tel
að ég sé langt kominn með að ná fyrri
styrk aftur, ekki sist þakka ég það
þessum efnum sem fyrirtæki okkar
framleiðir.
Þegar maöur er búinn að vinna
þennan titil nokkrum sinnum þá er
ekkert eftir til að stefna að. Þá vantar
grimmdina og löngunina til að vinna
en löngunin hefur verið að aukast
jafnhliða þvi sem formið og hnén
verða betri.“
í kjölfar Jóns Páls
Þannig segir Magnús Ver Magnús-
son, 37 ára gamall kraftajötunn sem
fjórum sinnum hefur unnið titilinn
sterkasti maður heims, frá breyttum
verkefnum sínum sem tengjast krafta-
keppni.
Magnús sigraði fyrst í umræddri
keppni árið 1991 sem var jafnframt í
fyrsta sinn sem hann tók þátt. Á þeim
tima var mönnum boðin þátttaka en
undankeppnir voru engar. Jón Páll
Sigmarsson átti að keppa en forfallað-
ist á síðustu stundu vegna meiðsla.
Magnús var þá nýbakaður Evrópu-
meistari í kraftlyftingum og var boðið
að koma í hans stað.
Af þessu leiðir að Magnús
er talsvert þekktur í
Bandaríkjunum og getur
haft atvinnu af því að
koma þar fram. Honum
er t.d. kunnugt um
a.m.k. 8 börn í heimin-
um sem hafa verið skírð í
höfuðið á honum.
„Ég vann keppnina og menn áttu
ekki til orð yflr þessum óðu íslending-
um.“
Magnús varð síðan í öðru sæti 1992
og 1993 en sigraði 1994, ‘95 og 1996 og
ætlaði að taka keppnina 1997 í neflð
en meiddist á síðustu stigum undir-
búnings og varð að láta Finnanum
Jouko Ahola eftir titilinn.
Skírt í höfuðið á Magnúsi
Á þeim árum sem Magnús sigraði í
þessum keppnum var byrjað að sjón-
varpa þeim um gervöll Bandaríkin og
útbreiðsla þessara sérstæðu keppna
jókst talsvert. Af þessu leiðir að
Magnús er talsvert þekktur i Banda-
ríkjunum og getur haft atvinnu af þvi
að koma þar fram. Honum er t.d.
kunnugt um a.m.k. 8 börn í heiminum
sem hafa verið skírð í höfuðið á hon-
um.
„Foreldramir hafa séð mig keppa í
sjónvarpinu og orðið hrifnir og skírt
næsta barn eftir mér. Ég hef fengið
bréf frá þessu fólki og víðast hvar þar
sem ég fer í Ameríku þekkir fólk
mig.“
Fékk hjartaáfall
Magnús hefur tekið lífinu með ró
undanfarin ár, bæði vegna hnjá-
meiðsla sem nýlega voru löguð en
ekki síður vegna hjartaáfalls sem
hann fékk 1998.
„Ég fékk blóðtappa í kransæð sem
læknar blésu í burtu eftir að hafa
reynt að eyða honum með lyfjuin.
Þetta kom mér gríðarlega á óvart þar
sem ég hafði alltaf verið passasamur
með mataræðið og farið reglulega til
læknis í hjartalínurit og ómskoðun og
þess háttar. Ég hafði verið talsvert
veikur af flensu skömmu áður og
læknamir telja að það hafi verið galli
í æðavegg og þama safnaðist fyrir
stærðar blóðtappi þó æðarnar væru
að öðra leyti víðar og hreinar."
Afi og langafi líka
Magnús segir lækna fullyrða að
ekki hefði mátt sjá tappann fyrir og
heldur sjálfur að um erfðagalla hafi
verið að ræða en bæði afi og langafi
Magnúsar fengu álíka áfóll frekar
ungir að aldri. Magnús var sjálfur 35
ára þegar þetta gerðist. Varð hann
ekki hræddur?
„Jú, vissulega verður maður það og
ég tók það mjög rólega um tíma með-
an ég var að byggja upp sjálfstraustið.
Ég hef alltaf vanið líkama minn á
miklar æfingar og hellti mér fljótlega
út í þær á ný. Það þýðir ekki að missa
kjarkinn þótt eitthvað svona komi
upp á. Ef minn timi hefði verið kom-
inn þá hefði ég farið þegar þetta kom
upp. Það varð ekki.“
En er hægt að tengja þetta áfall við
lífshætti Magnúsar í þeim skilningi
að hann hafi með kraftakeppnum of-
boðið líkama sínum?
„Ég held ekki. Hitt er annað mál að
ef það leynast í manni einhverjir gcill-
ar þá er álagið gríðarlegt og því koma
þeir áreiðanlega fyrr fram en ella.“
í skugga Jóns Páls
Magnús hefur starfað sem krafta-
jötunn síðustu 10 ár. Lengi var Jón
Páll Sigmarsson heitinn hinn eini
sanni kraftajötunn. Stendur þú í
skugga Jóns?
„Fólk var stundum að segja við mig
að ég ætti að gera þetta eða hitt eins
og Jón Páll en ég hef alltaf farið mín-
ar eigin leiðir án þess að apa eftir öðr-
um. Ég held að ég sé þekktari erlend-
is en Jón Páll varð nokkum tíma,
fyrst og fremst vegna þess að keppn-
inni var sjónvarpað til Ameríku með-
an ég var á toppnum en meðan Jón
Páll var á tindinum var þetta einkum
bundið við Evrópu og Norðurlönd."
Fæ kannski hlutverk
Það vakti nokkra athygli á dögun-
um þegar fréttist af því að Magnús
Ver ætlaði að snúa sér að kvikmynda-
gerð. Það sem er um að ræða er hand-
rit að kvikmynd sem Greg E. Smith,
viðskiptafélagi Magnúsar, hefur skrif-
að og heitir My Way. Þetta er saga
ungs manns sem á í nokkurs konar
valdabaráttu við foður sinn sem vill
stjórna lífi sonar síns. Er þetta byggt
á ykkar eigin reynslu?
„Ég skrifaði þetta ekki heldur Greg
sem byggir þetta á sinni ævi en ég
kom með ýmsar hugmyndir og mitt
innlegg."
Færðu að leika í myndinni?
„Það veit ég ekki en það verða ein-
hverjar áflogasenur í henni.“
Enn sem komið er hafa þeir félagar
ekki selt handritið en hafa sýnt það
ýmsum aðilum.
„Við erum í sambandi viö menn hjá
„Foreldramir hafa séð
mig keppa í sjónvarpinu
og orðið hrifnir og skírt
næsta bam í höfuðið á
mér. Ég heffengið bréf
frá þessu fólki og víðast
hvar þar sem ég fer í Am-
eríku þekkirfólk mig.“
Paramount, sem kaupa af okkur
IroncurtainLabs-vörur, og erum að
reyna að komast inn hjá þeim gegn-
um það.“
Bók eftir Magnús
Einnig er rétt óútkomin bók sem
Magnús Ver verður titlaður höfundur
að en maður að nafni Judd hefúr fært
í letur og mun líklega heita How to
Become the World’s Strongest Man
eða How to Become a World Class At-
hlete. Þetta er nokkurs konar leiðar-
vísir til þeirra sem vilja reyna fyrir
sér í kraftakeppnum, byggt á reynslu
Magnúsar Vers.
„Bókin er að fara í prentun og kem-
ur út í Ameríku fljótlega. Ég á inni
boð um að koma fram í sjónvarps-
þætti hjá Howard Stem og mun þá
nota tækifærið til að kynna bókina
sem á að koma út i Ameríku."
Hvort sem það er verðskuldað eða
ekki þá sjá sennilega fáir kraftajötun
eins og Magnús sitja mikið við skrift-
ir enda viðurkennir hann að hafa
ekki lært almennilega á tölvu fyrr en
fyrir tveimur árum.
„Ég held að ég sé betri í að tala en
skrifa."
Eins og í góðu hjónabandi
Stimdum hefur mátt greina ákveð-
inn ríg miili fylkinga í hópi íslenskra
kraftajötna. Annars vegar era þeir
Hjalti Úrsus Ámason og Andrés Guð-
mundsson sem standa fyrir Hálanda-
leikunum og hins vegar Magnús og
Hjalti, félagi hans, sem halda Vest-
fjarðavíkinginn sem Magnús keppti
reyndar í sl. sumar og sigraði. Hann
segist keppa á Hálandaleikum félaga
sinna þegar hann kæri sig um en tel-
ur að of mikið sé gert af því að blanda
saman skemmtun og sýningu likt og
Hálandaleikamir eiga að vera og hins
vegar kraftakeppni eins og Vestfiarða-
vikingurinn sé hugsaður. En era ekki
öll dýrin í skóginum vinir?
„Jú, við vinnum saman þegar það á
við en við erum alls ekki alltaf sam-
mála frekar en tíðkast í góðum hjóna-
böndum.“ -PÁÁ
Magnús Ver Magnússon kraftajötunn
Magnús réö mann til að skrifa bók fyrir sig sem kemur út í Ameríku á
næstunni. Hann og félagi hans eru einnig aö reyna aö selja Paramount
kvikmyndahandrit. Þeir félagar selja fæöubótarefni fyrir milljón dollara á
þessu ári.
iMCCSmart 02/99
Voctra GL 1600 08/97 (98)
28 þús. km, grænn, 5 g., abs, álfelgur.
ekinn 14 þús. km, gulur, 6 g., abs, litað gler,
llknarbelgur.
r ^ | mmsoí
pTiár-f
Daowoo Lanos SX 1600 03/99 ekinn 25 þús. km, rauður, ssk., cd, abs, álfolgur, þjófavorn, liknarbelgur, vindskeiö. H Nissan Patrol GR Turbo Elogance 05/00 ■ ekinn 10 þús. km, grænn, 5 g., 33' breyttur.H 3000 cc slagrými, topplúga, cd. abs, álfelgur.^B loftkæling o.fl. Dacwoo Nubira SX Wagon 06/98 ekinn 38 þús. km, blár, 5 g., cd, abs, þjófavörn, álfelgur, llknarbelgur, þokuljós. 1
Verð 1.220.000 Verð 4.090.000 Verð 1.150.000