Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
JOV
Fréttir
Skoðanakannanir DV og fylgi Framsóknarflokksins í þingkosningum:
Framsókn rétt mæld
- staðhæfingar Halldórs Ásgrímssonar um skoðanakannanir DV rangar
Halldór Ásgrímsson
Fylgi Framsóknarflokksins:
Skoðanakannanir DV í gegnum tíð-
ina endurspegla vel afstöðu almenn-
ings til flokkanna. Framsóknarmenn
hafa öðrum fremur gagnrýnt áreiðan-
leika DV-kannana og telja þær ekki
fara sérlega nærri raunverulegri út-
komu í kosningum. Slikt virðist
hefðbundinn hluti af pólitískri
vamarbaráttu.
Við höfum reynslu...
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í Degi sl.
þriðjudag, í kjölfar skoðanakönnunar
DV, umræðuna mn Evrópusambandið
ekki vísbendingu um fylgistap Fram-
sóknarflokksins. „Ég held að þessi
könnun sé ekki nægilega marktæk
vegna þess að nær helmingur að-
spurðra svaraði ekki. Við höfum
reynslu af því að það fólk sem svarar
ekki í þessum skoðanakönnunum DV
sé fólk sem styður okkur í kosningum.
Við tökum mun meira mark á skoð-
anakönnunum Gallups," sagði Halldór
Ásgrímsson.
Staðreyndir segja annað
Útkoma skoðanakannana DV eru
sérstaklega athyglisverðar þegar litið
er á fylgi Framsóknarflokksins fyrir
þrennar þingkosningar 1991, 1995 og
1999. Niðurstaðan eftir talningu at-
kvæða úr kjörkössum landsmanna var
hreint ótrúlega lík síðustu könnunum
DV fyrir kosningamar. Árið 1991
munaði 0,1% á niðurstöðu og könnun
DV. Árið 1995 var niðurstaðan alveg
eins og könnun og í kosningunum 1999
munaði einungis 0,2 prósentum.
Nánast enginn munur
Þann 18. apríl 1991, tveim dögum
fyrir kosningar, sýndi skoðanakönnun
DV Framsóknarflokkinn með 19%
fylgi. I kosningunum 20. aprfl 1991
urðu úrslitin þau að
Framsóknarflokkurinn fékk 18,9%.
Þama munaði aðeins 0,1% á
skoðanakönnun DV og veruleikanum
þegar talið var upp úr kjörkössum. í
febrúar 1995, þegar líða tók að
þingkosningum það ár, mældist Fram-
sóknarflokkurhm með 22,4% fylgi í
skoðanakönnun DV. Næstu tvær
kannanir 10. og 24. mars sýndu báðar
minnkandi fylgi sem var þá komið i
20,6%. í könnun sem kom fyrir al-
menningssjónir 7. apríl, degi fyrir
þingkosningamar 1995, mældist fylgi
Framsóknarflokksins í skoðana-
könnun DV 23,3%. Þegar talið var upp
Formaöur Framsóknarflokksins
þykist sjá ósamræmi í könnunum
DV og niðurstöðum kosninga.
Staðreyndir segja annað.
úr kjörkössum reyndist niðurstaðan
síðan vera nákvæmlega sú sama og í
könnun DV, eða 23,3%.
Fýlgið sveiflast
Vinsældir Framsóknarflokksins
vora þá greinilega á mikilli siglingu og
í næstu könnun eftir kosningamar 11.
maí mældist flokkurinn með 27% fylgi.
Tólfta júlí mældist það síðan í könnun
DV 24,7% og 22. september var það
26,6%, en 2. desember það ár var fylg-
ið mælt 20,5%.
í ársbyrjun 1996, eða þann 20. janú-
ar, sýndi skoðanakönnun DV Fram-
sóknarflokkinn með 24,3% fylgi. 6.
mars mældist fylgið enn meira, eða
25,5%. Siðan fór það verulega niður á
við og 18. apríl var það 22% og 31. mai
20,4%. Botninum 1996 náði fylgið í
könnun 28. júní og var þá 19,1%. 7. júlí
það sama ár fór fylgið heldur upp á
við, eða i 20,8%.
Næstu mánuði fór gengi Framsókn-
arflokksins verulega niður og 3. febrú-
ar 1997 mældist það aðeins 16,1%.
Heldur rofaði til í mars en þá sýndi
könnun DV Framsókn með 19,1%
fylgi. Á haustmánuðum 1997 var fylgið
Hörður Kristjánsson
blaðamaður
mælt 6. október og reyndist þá sam-
kvæmt skoðanakönnun DV vera 17%.
Þann 11. febrúar árið 1998 er enn skoð-
anakönnun og er niðurstaðan sú að
Framsókn mælist með 18,3%. Tvær
kannanir 17. mars og 12. maí 1998 sýna
sömu prósentutölu, eða 16,1%. Þá
koma sveitarstjómarkosningar þar
sem ekki er hægt að gera óyggjandi
samanburð á flokkunum á landsvísu
vegna þátttöku Framsóknarflokksins í
R-lista-framboði í Reykjavík.
Hugmyndir um
vinstn hreyfingu
Skoðanakönnun DV um haustið
1998, eða 16. október, sýndi lægsta pró-
sentuhlutfall Framsóknarflokksins á
síðai'i tímum, eða 13,5%. Án efa má
rekja þá niðurstöðu til þess að þá var
verið að velta vöngum yfir hugsanlegri
sameiningu á vinstri væng stjómmál-
anna og spurt hvort fólk myndi kjósa
nýtt framboð af þeim toga. Líklegt er
að fjölmargir framsóknarmenn hafi þá
greitt slíku framboði atkvæði sitt.
í hefðbundinni skoðanakönnun um
fylgi flokkanna 12. janúar 1999 mælist
fylgi Framsóknarflokksins nær raun-
veruleikanum, eða 18,4%. Næstu kann-
anir þar á eftir sýna sveiflur upp á eitt
til tvö prósent: 9. febrúar 16,6%, 19.
mars 18,6%, 23.
aprfl 17,9% og 30.
apríl mældist fylg-
ið 18,5%.
DV með rétta
spá
í síðustu könn-
un fyrir kosning-
amar, sem sjá
mátti í DV þann 7.
maí 1999, degi fyr-
ir kosningar,
mældist fylgi
Framsóknar-
flokksins 18,2%.
Miðað við mál-
flutning formanns
flokksins hefði
mátt ætla að nið-
urstaða kosninganna sýndi allt annað
en skoðanakönnun DV. Það er öðra
nær, niðurstaðan varð sú að Fram-
sóknarflokkurinn fékk 18,4% atkvæða
svo einungis munar 0,2 prósentum.
Niðurstaðan af þessu öllu saman er
því sú að skoðanakannanir DV fyrir
kosningar sýna nánast sömu tölur á
fylgi Framsóknarflokksins og raun-
veruleg niðurstaða í kosningum. Sam-
anlögð skekkja í tvennum alþingis-
kosningum er aðeins 0,2 prósent.
Halldór Ásgrímsson segist treysta
könnunum Gallups betur en DV. Sam-
anburð við aðra sem slíkar kannanir
hafa gert verður því fróðlegt að skoða
örlítið nánar í DV á morgun.
Hærri skatttekjur:
Ingimundur fer
frá góöu búi
Ingimundur Sig-
urpálsson, bæjar-
stjóri i Garðabæ,
yfirgefur gott bú í
vikunni er Ásdís
Halla Bragadóttir
tekur við sem bæj-
arstjóri. Skatttekj-
ur Garðabæjar
verða 69,4 milljón
krónum hærri á
þessu ári en gert
var ráð fyrir og verða því 1.555,7
milljónir króna.
Þetta kemur fram í tillögu bæj-
arstjóra um breytingu á fjárhags-
áætlun ársins 2000 sem lögð var
fram í bæjarráði í gær. Sam-
kvæmt tillögunni hækka rekstr-
argjöld um tæpar 25 milljónir og
verða 1.190,5 milljónir. Gjaldfærð
og eignfærð fjárfesting hækkar
um rúmar 104 milljónir og nemur
gjaldfærð fjárfesting þá 408,9
milljónum króna en eignfærð
fjárfesting 286,7 milljónum. Mestu
munar um 32,6 milljóna króna
stofnkostnað vegna slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins og 15 millj-
óna króna stofnframlag til orku-
fyrirtækisins Jarðlindar. Tillögu
bæjarstjóra var vísað til af-
greiðslu bæjarstjórnar. -DVÓ
Kona vinnur mál
vegna ólögmætr-
ar uppsagnar
DV, AKRANESI:
Hæstiréttur dæmdi í síðustu
viku Fjölbrautaskóla Vesturlands
til að greiða Þuríði Gísladóttur,
fyrrverandi kennara skólans, 620
þúsund krónur í bætur vegna
ólögmætrar uppsagnar. Þuríður
var ráðin til Fjölbrautaskóla
Vesturlands 14. ágúst 1997 og sagt
upp störfum þann 28. nóvember
sama ár. Þuríður taldi að ólöglega
hefði verið staðið að uppsögninni
og gerði kröfu um bætur vegna
fjárhagstjóns að upphæð 1.340
þúsund krónur.
Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði Fjölbrautaskólann af öll-
um kröfum þann 29. desember á
síðasta ári en ákveðið var að
áfrýja málinu til Hæstaréttar.
Auk fyrrgreindrar upphæðar ber
Fjölbrautaskóla Vesturlands að
greiða Þuríði dráttarvexti af upp-
hæðinni frá 1. apríl 1998 til
greiðsludags. Þá skal stefndi
greiða málskostnað í héraði og
fyrir Hæstarétti, samtals 300 þús-
und krónur. -DVÓ
DV, GARÐABÆ:
Ingimundur
Sigurpálsson
Ví.-ÁríÁ i kvoid
I * ŒapEpíffl p;
gÍYKJÁVlK' AKUREYRI
Léttir til á Austurlandi
Hægt vaxandi suðaustanátt og þykknar upp
vestanlands í dag en lægir og léttir til á
Austurlandi. Suöaustan 13 til 18 m/s og
rigning vestanlands í nótt en mun hægari og
þykknar uþp austan til.
Sólariag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síödegisflóö
Árdeglsflóö á morgun
18.42 18.29
07.52 07.40
24.05 04.38
00.05 04.38
Skýriisgar á veöurtáknuHi
j /♦^.VINDÁTT
15)
VINDSTVHKUR
í metrum á sekúntíu
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF-
SKÝJAO
RIGNiNG SKÚRIR
ÉUAGANGUR ÞRUMU-
VEÐUR
)°4— hiti 0°
XFROST HEIÐSKÍRT
e o
SKÝJAÐ AtSKÝJAÐ
Q Q
SLYDDA SNJÓKOMA
SKAF- RENNINGUR ÞOKA
t tviO
Færöin
Allir helstu þjóövegir landsins eru
greiöfærir. Ekki er vitaö um færö á
sumum hálendisvegum.
CZZlSNJÓR
mm ÞUNGFÆRT
H ÓFÆRT
Hlýnandi veður
Snýst í suðvestan 8 til 13 m/s með skúrum vestanlands á morgun en
suöaustan 10 til 15 og rigning austan til. Vægt frost til landsins í dag en
3 til 8 stig viö sjóinn. Hlýnar í veöri á morgun.
ismikuj
Vindur: / O X. Hiti 4° til 9° WÆ Vindur: 8-13 m/% Hití 3° til 8°
Suövestan 5 til 8 m/s og Noröaustan 8-13 m/s
skúrir eöa dálrtll rignlng norövestanlands en annars
sunnan- og vestanlands, breytlleg átt, 5-10 og víöa
en úrkomulitiö noröaustan rignlng eöa skúrlr. Hlti 3 til
tll. Hltl 4 tll 9 stig. 8 stlg.
VinduR
8-11 m/.
Hiti 1- tii 6'
Ákveöln noröanátt meö
rigningu eöa slyddu
noröanlands en þurru veöri
fyrir sunnan. Kólnandi
veöur
Vcóriö Rl. 6 -
AKUREYRI frostúöi 1
BERGSSTAÐIR skýjaö 0
BOLUNGARVÍK skýjaö 0
EGILSSTAÐIR 2
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 2
KEFLAVÍK léttskýjaö 2
RAUFARHÖFN alskýjaö 1
REYKJAVÍK hálfskýjað 1
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 2
BERGEN alskýjaö 11
HELSINKI þokumóöa 11
KAUPMANNAHÖFN þoka 12
ÓSLÓ súld 12
STOKKHÓLMUR moldrok 11
ÞÓRSHÖFN skúr 7
ÞRÁNDHEIMUR skúr 10
ALGARVE heiöskírt 17
AMSTERDAM skýjaö 13
BARCELONA léttskýjaö 15
BERLÍN þokumóöa 15
CHICAGO skýjaö 12
DUBUN skýjaö 6
HAUFAX alskýjaö 13
FRANKFURT þokumóöa 12
HAMBORG lágþokuþlettir 10
JAN MAYEN súld 4
LONDON súld 12
LÚXEMBORG skýjaö 11
MALLORCA skýjaö 13
MONTREAL alskýjaö 10
NARSSARSSUAQ rigning 3
NEW YORK alskýjaö 18
ORLANDO léttskýjaö 23
PARÍS súld 13
VÍN þoka 12
WASHINGTON léttskýjaö 19
WINNIPEG alskýjaö 3
■4V4a»wsawi.mMKMW4H:»i.;ini.-iw.'iigi