Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 28
2* FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 Ung kona stöðvuð: Ofsaakstur á Reykjanesbraut Lögreglan á Keflavíkurflugvelli og í Hafnarfirði veitti skömmu fyrir miðnætti í gær ökumanni eftirfór frá Flugstöð Leifs Eirikssonar inn í Garðabæ þar sem hann loks náðist. Ökumaðurinn, sem er 22 ára gömul kona, virti ekki stöðvunarmerki lög- reglu og ók á ofsahraða eftir Reykja- nesbrautinni með lögregluna á eftir sér. Þegar komið var inn í Garðabæ náði konan ekki beygju við Engidal i Garðabæ og missti stjóm á bíl sínum sem hafnaði utan vegar. Konan var ein í bílnum og er ekki grunuð um ölvun við akstur. -SMK Reykjavík: Bílaþjófar > handteknir Þrír ungir menn voru handteknir í Hlíðahverfi Reykjavíkur um klukkan hálffimm í morgun. Menn- irnir voru staðnir að því að brjótast inn i bíl og ekki þykir ólíklegt að þeir hafl brotist inn í fleiri bíla í hverfmu. Mennirnir voru vistaðir í geymslum lögreglunnar og er málið í rannsókn. -SMK t > ( r Sjónvarpsstjörnur og tónlistarfólk í Fókusi á morgun ræða nokkrir einstaklingar um okkar ástsælu sjón- varpsfréttamenn og gefa þeim ein- kunnir fyrir frcimmistöðuna. Bjöm Jörundur Friðbjömsson er að fara að gefa út aðra sólóplötu sína og auk þess að segja frá henni ræðir hann um leik- ferilinn og það að vera orðin sjón- varpsstjama. Hljómsveitin Gyllinæð mætir í spjall og hið sama gera þeir fé- lagar í Flaming Lips sem væntanlegir em á klakann á Airwaves-hátiðinni. Þá ræðir Egill Sæbjömsson um alla heima og geima auk þess sem Lífið eft- ir vinnu er á sínum stað, nákvæmur leiðarvísir um skemmtana- og menn- ingarliflð. DV-MYND E.ÓL. Sælla er aö gefa en þiggja Börn í Laugarneshverfi komu saman í Laugarneskirkju í gær meö leikföng sem þau eru hætt aö nota. Markmiöiö var aö selja sem mest afgamla dótinu og nota ágóöann til hjálparstarfs. Greinilegt er aö glatt var á hjalla hjá krökkunum. Einar K. Guðfinnsson: Sigur fyrir mín sjónarmið „Mér flnnst þetta mikið fagnaðar- efni,“ sagði Einar K. Guðfinnsson al- þingismaður um niðurstöðu skoð- anakönntmar DV þar sem spurt var hvort menn væra fylgjandi eða and- vígir flutningi rik- isstofnana út á land. 63,2 prósent vora því fylgjandi en 36,8 prósent andvígir. “Umræðan um flutning ríkisstofh- ana hefur að mínu mati verið mjög einhliða gegn þessum hugmyndum," sagði Einar. „Ég vek athygli á því að í leiðurum DV og Morgunblaðsins hef- ur verið skrifað gegn þessu þannig að mér fmnst þetta vera mikifl sigur fyr- ir þau sjónarmið að færa ríkisstofnan- ir út á land.“ -JSS ísafjörður: rúður 22 bíla í nótt og boðaði þá í skoðun. Að sögn lögreglunnar er ekki lengur klippt af bílum þegar þeir eru komnir fram yfir sinn skoðunartíma nema þeir séu annað- hvort komnir tvö ár fram yfir skoð- unartímann eða ef eigendur þeirra hafa ekki sinnt fyrri boðunum lög- reglu, en vikufrestur er gefinn þeg- ar boðunin er límd á rúðumar. Er þetta gert að skipan Ríkislögreglu- stjóraembættisins tfl þess að minnka óþægindi ökumanna. -SMK Olíuverðið er að sliga útgerðirnar Útgerðarmenn kolmunnaskipa segja hátt olíuverð vera að sliga reksturinn og kolmunnaveiðarnar séu orðnar glórulausar. Sævald Pálsson í Vestmannaeyjum gerir út Berg VE og segist hafa sent skipið til að taka þann litla síldar- kvóta sem skipið hafi, en að ekki svari kostnaði að eltast við kolmunn- ann. „Það er vonlaust fyrir einstak- linga í útgerð að eiga við þetta. Það er helst að þeir reyni að þrauka sem era með bræðslumar á bak við sig. Olíu- verðið hefur rokið upp og þetta er orðin ein endaleysa." Sævald segir útgerðarmenn lítið hafa rætt saman um þetta háa olíu- verð en menn hafi fylgst með umræð- unni úti í heimi og verið að vonast eftir kraftaverki. Emfl K. Thorarensen, útgerð- arstjóri á Eskifirði, segir olíuverðið komið í nær 30 krón- ur á lítra, fyrir utan virðisaukaskatt. „Mönnum þótti nóg um þegar verðið fór í 18 og síðan 20 krónur, hvað þá nú. Olíukostnaðurinn er orðinn svo hár að það er ekkert vit orðið í þessu útgerðarrugli. Hraðfrystihús Eskifjarðar hefur gert út tvö skip, Hólmaborg og Jón Kjartansson á kolmunna, og Síld- arvinnslan hefur líka verið með tvö skip, SR-mjöl með Svein Benedikts- son, Loðnuvinnslan með sitt skip, Hof- fellið, og Vopnfirðingarnir hafa stað- ið í þessu. H. Ben í Sandgerði hefur líka verið með skip og HB hefur einnig verið með tvö skip. Olíukostn- aðurinn er orðinn slíkur að maður hefur aldrei séð annað eins. Hann get- ur numið 60%-70% af aflaverðmæti og siðan era vinnulaun um 40%. Svo er ýmis rekstrarkostnaður og ekkert Hólmaborg. Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.: Hmm í forstjóraflækju - gömlu forstjórarnir hættir „Við erum að vinna í þessu og erum nú með fimm í sigtinu af þeim tuttugu sem sóttu um,“ sagði Gísli Guðmunds- son, stjómarformaður Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf., en stjóm flug- stöðvarinnar hefur enn ekki ráðið framkvæmdastjóra. Ómar Kristjáns- son, forstjóri Flugstöðvarinnar, og Guðmundur Karl Jónsson, forstjóri Fríhafnarinnar, hafa báðir látið af störfúm og sinna staðgenglar störfum þeirra þar til framkvæmdastjóri hefúr verið ráðinn. Nýr framkvæmdastjóri Flugstöð Leifs Eiríkssonar Farþegarnir streyma í gegn en forstjórann vantar. tekur við stöfum beggja forstjóranna sem fyrr voru nefndir í nýju hlutafé- lagi um rekstur Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar sem veltir fjórum milljörð- um á ári og er með 160 starfsmenn. „Þetta er mikilvægt starf og við erum að leita að manni á alþjóðamæli- kvarða sem hefúr reynslu af erlendum samskiptum í ýmsum myndum. Svona menn eru ekki tíndir af tijánum og era oft með langan uppsagnarfrest í þeim störfúm sem þeir gegna fyrir þannig að allt tekur þetta sinn tíma,“ sagði Gísli Guðmundsson. -EIR fæst upp í afskriftir. Ofan á allt sam- an er verð á lýsi og mjöli mjög lágt. Það er því heldur betur verið að keyra þetta á tapi. Menn hafa verið að ströggla þetta til að öðlast veiði- reynslu með langtímamarkmið í huga. Þetta er samt orðið glórulaust og ekki bætti álit auðlindanefndar- innar úr skák. Ofan á þetta á þannig að skattleggja sjávarúrvegsfyrirtæk- inn á línuna. Umræðan og öfundin út í útgerðina gengur út yfir öll mörk. Auðlindaskatturinn er rýtingsstunga i bak sjávarútvegsplássa allt í kimg- um landið," segir Emil Thorarensen. -HKr. brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafoort Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Gæði og glæsileiki smort (sólbadstofa) Grensásvegi 7, sími 533 3350.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.