Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 23
27 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 DV Tilvera Kate 25 ára Breska leik- konan Kate Winslet fagn- ar aldarfjórð- ungsafmæli sinu i dag. Það hefur lít- ið borið á Kate síðustu misseri en hún gat sér heimsfrægð þegar hún fór með aðalhlut- verk í einni vinsælustu kvikmynd Gildir fyrír föstudaginn 6. október Vatnsberinn 120. ian.-ts. fehr.t , Þú þarft að sætta þig ' við að aðrir fá að mestu að ráða um framvindu mála sem þiTert flæktur í. Gáta sem þú hef- ur velt fyrir þér leysist óvænt. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Vonbrigði þróast yfir í lánægju þegar þú færð fréttir frá vini eða ætt- ingja. Samband þitt við ákveðinn einstakling fer batn- andi. Hrúturinn (21. mars-19. aorii): Ferðalög eru ef til vill á dagskrá í nánustu framtíð. Það borgar sig að hafa augun opin í dag og hHista vel á ráðleggingar annarra. Nautið (20. apríl-20. mai): Þú ræður sjálfur miklu um framvindu dagsins og ættir að treysta á dómgreind þíná. Hegðun einhvers kemur þér á óvart. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Margt sem þú heldur " áríöandi í dag er ekki endilega jafhmikilvægt og þér finnst. Haltu fast við skoðanir þínar. 1 viuuramir iz Krabbinn (22. iúni-22. iúiíi: Dagurinn veröur við- | burðarikur og þú hef- ' m meira en nóg að gera. Varaðu þig i ekki of tortrygginn. Happatölur þínar eru 5, 9 og 35. Liónið (23. iúlí- 22. ágústl: Atburðir dagsins gera þig líklega bjartsýnan en þú verður að gæta hófs, sérstaklega í pen- ingamálum. Ekki vera kærulaus. Vogin (23. se Mevian (23. áeúst-22. sept.l: Einhver vandamál koma upp en þegar þú ^^V^lfckynnir þér málið nán- ^ f ar sérð þú að þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Fáðu hjálp ef þú getur. Vogin (23. sept.-23. okt.): Taktu ekki mark á fólki sem er neikvætt og svartsýnt. Kvöldið verður afar skemmti- legt í góðra vina hópi. Happatölm- þínar eru 5, 8 og 23. Soorðdreki 124. okt.-2i. nóv.t i Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum pog rækta samband þitt við ákveðna mann- eskju sem þú ert að fjarlægjast. Rómantíkin kemur við sögu í dag. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: LEitthvað sem þú vinn- rur að um þessar mund- ir gæti valdið þér hug- arangri. Taktu þér góðan tímá til að íhuga málið. Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög. Stelngeitin (22. des.-l9. ian.): Haltu þig við áætlanir þínar eins og þú getur og vertu skipulagður. Þér bjóðast góð tæki- færi í vinnunni og skaltu fremur stökkva en hrökkva. Sviösljós Jamie í baráttu við áfengið Tígri í Kringlunni Krakkaklúbbur DV, Penninn og Kringluvinir voru staddir í Kringlunni sl. laugardag aö dreifa bæktingi varöandi listasamkeppni Pennans, Krakkaklúbbs DV og Kringluvina. Tígri var auövitaö mættur á staöinn og var aiveg rosalega duglegur aö hjálpa. Meö Tígra á myndinni eru Sigríöur Þóra Kristinsdóttir, starfsmaöur Pennans, og Guörún María Jónsdóttir, starfsmaöur Krakkakiúbbs DV. Kvikmyndastjaman Jamie Lee Curtis greinir frá því í viðtali við Red Book Magazine að henni hefði tekist að sigra í baráttunni við áfengið með aðstoð 13 ára kjördóttur sinnar. „Ég komst að þeirri nið- urstöðu að það væri ekki þess virði að eiga í deOum við dóttur mína vegna áfengisneysl- unnar,“ segir Jamie. Hún kveðst beitt öllum vilja- styrk sínum til að hætta áfengis- neyslu og segir að hún hafi að lokum haft sigur. Að sögn Jamie er það eins og að vakna aftur til lífs- ins að segja skilið við flöskrma fyrir fúllt og allt. Princess Monoke Maðurinn Pétur Jónasson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Catherine Zeta dáir drenginn Velska leikkonan með hrafn- svarta hárið, hin elskulega Catherine Zeta Jones, veit ekkert skemmtilegra en að sitja og dást að átta vikna gömlum syni sínum, Dyl- an Douglas. „Hann er alveg dásam- legur,“ segir leikkonan sem er sko meira en til í að leika aukahlutverk þegar kúturinn er annars vegar. Catherine Zeta og unnusti henn- ar, leikarinn knái og smái, Michael Douglas, eru þessa dagana í Wales til að sýna skyldmennum hennar litla drenginn. gegn náttúrunni Mel C kynnti kærastann Kryddpían Mel C er búin að kynna leynikærastann sinn fyrir vinkonum sínum. Hinn heppni heit- ir Dan Williams og er í tiltölulega óþekktri rokkhljómsveit sem heitir Tomcat. Rokkararnir voru upphit- unarhljómsveit á tónleikaferðalagi Mel C um England fyrir ijórum vik- um. Eftir þriggja daga ferð um þjóð- vegina var farið að fara sérstaklega vel á með Mel C og Dan. Samkvæmt vini Dans er hann enn varla búinn að uppgötva að hann sé með Kryddpíu. Japönsk anime-teikni- myndahefð hefur verið að þróast þar í landi og er orðin geysivinsæl. Hins vegar hefur hún verið lítið þekkt á Vesturlöndum en hin síðustu ár hefur mátt sjá breytingar á þvi. Það er gaman að sjá að Hollywood er farin að taka eftir þessari kvikmynda- grein. Sú Princess Mononoke sem sýnd er á kvikmyndahátíð er banda- ríska útgáfan þar sem leik- arar á borð við Claire Danes, Minnie Driver, Gillian Anderson og Billy Bob Thornton tala fyrir persónumar. Myndin segir frá Shi- taka, prinsi í afskekktum þjóð- flokki. Hann drepur skrímsli sem ræðst á þorpið hans en hlýtur sár og verður fyrir bölvun. Hann þarf því að leggjast í ferðalag til að komast að eðli bölvunarinnar og hvort hægt sé að aflétta henni. Hann finnur námubæ þar sem Lady Eboshi ræð- ur ríkjum en ófriður ríkir milli íbúa bæjarins og skógarvera í aðliggj- andi skógi vegna skógarhöggs í tengslum við námugröft bæjarbúa. Einn af helstu andstæðingum Ebos- hi er prinsessan Mononoke, dóttir úlfaguðs skógarins. Ashitaka heill- ast af henni og bjargar henni frá Bíógagnrýni Princess Monoke Ævintýri eins og best getur oröiö. gildru bæjarbúa. Hann reynir að miðla málum og fá mannfólkið og skógarverurnar til að lifa í sátt | mX+A 29. Mptembar - 12. október 2000 Kvikmyndahátíð í Revkiavík hvað við annað en hvorugur aðilinn er reiðubúinn til að fyrirgefa og stríð er óumflýjanlegt. Inn í málin blandast síðan munkur sem er stað- ráðinn í að finna sjálfan skógarand- ann og höggva af honum höfuðið. Það kostaði einar tuttugu milljón- ir dollara að framleiða þessa mynd og það má sjá þess merki í glæsi- legri og vandaðri teiknun. Mörg at- riðin eru mikilfengleg og hug- myndaauðgin er mikil í sköpun alls kyns óvætta, guða og einkennilegra vera, hvergi meiri en í trjáöndunum litlu sem eru i einfaldleika sínum frábrugðnir öllu sem ég hef séð, hvort sem er í teiknimyndum eða leiknum myndum. í myndinni eru vandamál vegna umgengni manns- ins við náttúruna persónugerð í baráttu námufólksins og dýraguð- anna í skóginum. Boðskapurinn er alls ekki einfeldningslegur og dreg- in eru fram jákvæð áhrif iðnvæð- ingar og þeirra þjóöfélagsumbóta sem henni fylgir. Þetta er ekki hin einfalda barátta góðs og ills. Sam- fara fullorðnislegum efnistökum er bamslegur ævintýrablær yfir myndinni sem þó er á köflum of of- beldisfull til að henta ungum börn- um. Myndin minnti mig á góðar stundir við lestur Tolkien og slíkra ævintýrabókmennta og henni tekst að vera skemmtilegt fóður fyrir aug- að, sálina og hugann. Pétur Jónasson Leikstjórn: Hayao Miyazaki. Handrit: Hayao Miyazaki og Neil Gaiman. Raddlr: Billy Cru- dup, Claire Danes, Minnie Driver, Gillian Anderson, Billy Bob Thornton og Jada Pin- kett. Bandarísk, 2000. (Japönsk, 1997). Lengd 133 mín. Maður og kona Une Uaíson pornographique - ★ ★ Asgrímur Sverrisson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. A r t- Hér fellur flest í hinn hefðbundna franska farveg þar sem öll vötn falla til þess Dýrafjarðar sem býr í sálar- kytrunni og tilfinningalíf- inu. Frakkar gera allt of mikið af svona myndum þar sem dælan er látin ganga um flest það sem orð ná ekki að höndla. Maður og kona hittast í þeim tilgangi að hafa mök á hótelherbergi og verða smám saman ástfang- in. Frásögnin er römmuð inn með viðtali við báða þátttak- endur þar sem þau tala um reynsluna og tilfmningar sin- ar. Þetta fyrirkomulag er náttúrlega þrautleiðinlegt en Une Liaíson pornographique. Heföbundinn franskur farvegur. > 29. septembor - 12. október 2000 Kvikmyndahátíð 1 Reykjavík það sem bjargar myndinni fyrir horn er fmn og blæbrigðaríkur leik- ur hjá Baye og Lopez. Svo er mynd- in blessunarlega stutt sem og þessi dómur. Þó skal áhugasömum bent á eina afburðamynd franska sem kannar svipaðar slóðir en margfalt betur og beittar, með þögninni, því sem ekki er sagt og tónlist sem nán- ast hvíslar. Þetta er Un Coeur en Hi- ver eða Kalið hjarta eftir meistar- ann Claude Sautet sem nú er nýlát- inn. Hún fæst á betri myndbanda- leigum bæjarins. Ásgrímur Sverrisson Leikstjóri: Frédéric Fonteyne. Handrit: Philippe Blasband. Aðalhlutverk: Natalie Baye, Sergi Lopez. Puffy boðaður í réttarsalinn Nú er komið að skuldadögum. Hipphoppkóngurinn Puffy, eða Puff Daddy, eða Sean Combs, hefur verið boðaður í réttarsal í New York strax eftir áramótin til að svara til saka fyrir ólöglegan vopnaburð. Eins og mörgum er eflaust í fersku minni var hipphopparinn og unnusti hinn- ar kynþokkafullu Jennifer Lopez viðriðinn skothríð á diskóteki í stórborginni. Það verður því vænt- anlega ekki mikið um nýársgleði hjá kappanum sem á yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisvist verði . hann fundinn sekur. Vonandi þó ekki, Jennifer vegna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.