Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 22
26
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
x>v
Ættfræði__________________
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Storafmæli
90 ára__________________________
Sigríöur Jóhannsdóttir,
Vtöihliö, Selfossi.
85 ára__________________________
Árbjörg Ólafsdóttir,
Suðurhólum 30, Reykjavík.
Siguröur B. Sigurðsson,
Dvalarheimilinu Höföa, Akranesi.
Oddný Bergsdóttir,
Freyjugötu 44, Sauðárkróki.
Árni J. Haraldsson,
Víöimýri 3, Akureyri.
Bára Sigfúsdóttir,
Bjargi, Reykjahliö.
Ásta G.
Þórarinsdóttir,
Selvogsgrunni 16,
Reykjavík.
Hún veröur aö heiman.
Guömundur Runólfsson
fyrrv. útgeröarmaöur,
Hrannarstíg 18, Grundar-
firöi, veröur áttræður þann
9.10. nk.
Guðmundur og fjölskylda
hans taka á móti gestum í
Samkomuhúsi Grundarfjaröar laugard.
7.10. kl. 17.00-20.00.
Þeir sem hafa hug á að gleöja afmælis-
barniö meö blómum eöa gjöfum eru vin-
samlega beðnir að láta fremur andviröið
renna til Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna, sími: 588-7555.
75 ára_________________________________
(ristinn Guömundsson,
Langagerði 74, Reykjavik.
Andrea Halldóra Oddsdóttir,
Fífuseli 14, Reykjavik.
Sigríöur Jakobsdóttir,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
70 ára_________________________________
Hallgrímur Guömundsson,
Stórholti 47, Reykjavík.
Ólafur Sveinsson,
Skógargerði 7, Reykjavik.
Siguröur Steinsson,
Álfhólsvegi 49, Kópavogi.
Ólafur Magnússon,
Hólagötu 11, Njarðvík.
Garöar Magnússon,
Sjávargötu 38, Njarðvík.
Ari Bogason,
Múlavegi 27, Seyöisfirði.
60 ára_________________________________
Valgeröur Sumarliöadóttlr,
Arkarholti 16, Mosfellsbæ.
Bjarndís Sumarliöadóttir,
Brekkutanga 4, Mosfellsbæ.
Unnar Ragnarsson,
Borgabraut 2, Hólmavík.
50 ára_________________________________
Kristjana Magnúsdóttir,
Birkimel lOa, Reykjavík.
Bryndís Gísladóttir,
Granaskjóli 10, Reykjavík.
Ásthildur Kjartansdóttir,
Logalandi 22, Reykjavik.
Kári Svavarsson,
Stekkjartröð 9a, Egilsstööum.
40 ára_________________________________
Hrefna Þórey Eiríksdóttir,
Austurbrún 4, Reykjavik.
Ellen Guðrún Stefánsdóttir,
Frostafold 6, Reykjavík.
Guömundur Sævar Hreiðarsson,
Arnarsmára 16, Kópavogi.
Halldór R. Halldórsson,
Ljósalind 10, Kópavogi.
Dröfn Ágústsdóttir,
Hæðarbyggð 4, Garöabæ.
Anna Guörún Garöarsdóttir,
Dalsgeröi 2f, Akureyri.
80 ara
Árni Sigurjónsson, fyrrv. fulltrúi lögreglu-
stjóra, lést á heimili sínu sunnud. 1.10.
Aage R. L’Orange lést sunnud. 1.10.
Áslaug Ólafsdóttir White, frá Vest-
mannaeyjum, til heimilis á 22 Hillsdale
Road, Edison, New Jersey 08820,
Bandaríkjunum, andaðist á heimili sínu
föstud. 29.9.
Frú Helga Símonardóttir Melsted, frá
Vatnskoti í Þingvallasveit, áður til heimil-
is á Rauðarárstíg 3, Reykjavík, er látin.
Vilhelm Ragnar Guðmundsson, Baröa-
stööum 11, Reykjavík, lést á gjörgæslu-
deild Landspitalans viö Hringbraut
mánud. 2.10.
Guöjón Böðvar Jónsson tónmennta-
kennari, Hátúni 4, áöur til heimilis að
Safamýri 35, lést mánud. 2.10.
Sjötugur
Sigtryggur Helgason
forstjóri í Reykjavík
Sigtryggur Helgason forstjóri,
Hlyngeröi 12, Reykjavík, er sjötugur
í dag.
Starfsferill
Sigtryggur fæddist í Vestmanna-
eyjum og ólst þar upp. Hann lauk
landsprófi frá Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar 1947, stúdentsprófi frá MR
1951 og prófi í viðskiptafræði frá HÍ
1955.
Sigtryggur var skrifstofustjóri hjá
föður sínum, Helga Benediktssyni í
Vestmannaeyjum, 1955-63, fram-
kvæmdastjóri Þ. Jónsson & Co
1963-74, framkvæmdastjóri Toyota-
varahlutaumboðsins frá 1974 og
stofnaöi, ásamt Jóhanni Jónssyni
og fleirum, Brimborg ehf. 1977 og
var þar forstjóri uns hann lét af
störfum á sl. ári
Sigtryggur er félagi í Akoges í
Reykjavík frá 1970, er stofnfélagi frá
1991 í Pálnatókavinafélaginu, ásamt
Jóni Böðvarssyni og fleirum, og er
stofnfélagi í áhugamannafélaginu
Blátindur VE-21 sem hefur það
markmið að endurbyggja fyrrnefnd-
an bát og koma honum í sýningar-
hæft ástand.
Fjölskylda
Sigtryggur kvæntist 10.4. 1955
Halldóru Guðmundsdóttur, f. 29.11.
1934, húsmóður. Hún er dóttir Guð-
mundar Hróbjartssonar, skósmiðs í
Landlist í Vestmannaeyjum, og Þór-
hildar Guðnadóttur húsmóður.
Börn Sigtryggs og Halldóru eru
sonur, f. 18.7.1955, d. sama dag; Þór-
hildur, f. 14.9. 1956, læknir, gift
Hrafnkeli Óskarssyni lækni og eru
börn hennar Anna Kristín, f. 5.7.
1980, Sigtryggur Óskar, f. 27.12.1988,
og Kristján Hrafn, f. 25.5.1990; Krist-
björg Hrund, f. 28.5. 1962, viðskipta-
fræðingur, gift Skapta Haraldssyni
prentara og eru börn hennar Fjöln-
ir, f. 26.9. 1998, og Halldór, f. 28.1.
1990; Fjölnir, f. 18.7. 1967, d. 24.1.
1989, jarðfræðinemi við HÍ.
Systkini Sigtryggs: Stefán, f. 16.5.
1929, ökukennari í Vestmannaeyj-
um; Guðmundur, f. 12.5. 1932, d.
15.5. 1953, útvarpsvirki; Páll, f. 14.6.
1933, ferðafrömuður í Vestmanna-
eyjum; Helgi, f. 31.10. 1938, d. 28.8.
1960, nemi; Guðrún, f. 16.2. 1943,
verslunarkona í Reykjavík; Arnþór,
f. 5.4.1955, deildarstjóri á Seltjamar-
nesi; Gísli, f. 5.4. 1955, deildarstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Sigtryggs: Helgi Bene-
diktsson, f. 3.12. 1899, d. 8.4. 1971,
kaupmaður og útvegsbóndi í Vest-
mannaeyjum, og k.h., Guðrún Stef-
ánsdóttir, f. 30.6. 1908, dvelur ná á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Ætt
Helgi var sonur Benedikts, odd-
vita á Þverá, bróður Jónasar lækn-
is, afa Jónasar Kristjánssonar, rit-
stjóra DV. Benedikt var sonur Krist-
jáns, b. á Snæringsstöðum, Krist-
jánssonar, b. í Stóradal, Jónssonar,
b. á Snæringsstöðum, Jónssonar, b.
á Herjólfsstöðum, Jónssonar, b. á
Mörk, Jónssonar, ættföður Harða-
bóndaættarinnar. Móðir Benedikts
var Steinunn, systir Jóhannesar
Nordal íshússtjóra, föður Sigurðar
Nordal prófessors, föðui; Jóhannes-
ar Nordal, fyrrv. seðlabankastjóra.
Steinunn var dóttir Guðmundar, b.
í Kirkjubæ í Noröurárdal, Ólafsson-
ar. Móðir Guðmundar var Sigríður
Guðmundsdóttir, systir Vatnsenda-
Rósu.
Móðir Helga var Jóhanna Jóns-
dóttir, b. á Höskuldsstöðum, Krist-
jánssonar. Móöir Jóns var Jóhanna
Fímmtugur
Páll Á. Jónsson
forstööumaður hjá Landssímanum
Páll Á. Jónsson forstöðumaður,
Nesbala 78, Seltjarnarnesi, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Páll fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám í raf-
magnstæknifræði við Tækniskólan-
um í Odense og lauk þaðan prófum
Fjölskylda
Páll
kvæntist
10.4. 1974 Ás- ___________________
dísi Björgvinsdóttur, f. 6.10. 1953,
skrifstofumanni. Hún er dóttir
Björgvins Ingibergssonar, blikk-
smíðameistara í Reykjavík, og Aðal-
heiðar Bjargmundsdóttur húsmóð-
1978.
Að námi loknu starfaði Páll hjá
Póst- og símamálastofnun í tvö ár,
hjá Sjónvarpinu í eitt ár, við jarð-
stöðina Skyggni i þrjú ár og hjá IBM
á íslandi í tvö ár.
Hann hóf störf hjá Pósti og síma,
nú Landssíma íslands, 1986 og hefur
starfað þar síðan, lengst af sem for-
stöðumaður ljósleiðaradeildar.
Páll sat í stjóm Tæknifræðinga-
félags Islands 1991-97, var formaður
félagsins 1995-97, var skipaður í
nefnd á vegum menntamálaráðu-
neytisins til að koma með tillögur
um sameiningu náms í tæknifræði
og verkfræði 1996, sat í skólanefnd á
Seltjarnamesi 1990-94, er formaður
Mótorsportklúbbs íslands frá 1999
og er formaður Mótorsportsam-
bands íslands frá 2000.
ur.
Börn Páls og Ásdísar eru Jón
Helgi Pálsson, f. 23.12. 1976; Krist-
björg Pálsdóttir, f. 9.8. 1983.
Foreldrar Páls: Jón Pálsson, f.
28.9. 1914, d. 29.6. 1985, póstfulltrúi í
Reykjavik, og Sigurlaug Sigurðar-
dóttir, f. 4.2. 1919, er starfrækti
nudd- og gufubaðsstofu um árabil.
Ætt
Meöal föðursystkina Páls: Páll S.
Pálsson lögmaður; Gísli Pálsson
bóndi á Hofi; Hermann Pálsson, pró-
fessor í Edinborg; Þórunn Pálsdóttir
hússtjómarkennari. Jón var sonur
Páls Jónssonar, b. í Sauðanesi, og
Sesselju Þórðardóttur.
Sigurlaug er dóttir Sigurðar
Bjarnasonar, b. á Vigdísarstöðum,
og Ingibjargar Daníelsdóttur.
Sigtryggur Helgason, fyrrv. forstjóri Brimborgar
Sigtryggur er áhugasamur um sðgu og minjar og hefur látið gera líkön af
öllum bátum föður síns. Hann nýtur þess að hlusta á hátt stillta tilþrifamikla,
klassíska tónlist í hljómsterkum hátölurum og lýsir upp húsiö sitt í
skammdeginu á horni Hlyngerðis og Bústaðavegar með þúsundum jólaljósa.
Jónsdóttir, b. í Kasthvammi, Ás-
mundssonar, bróður Helga, ættföð-
ur Skútustaðaættarinnar.
Guðrún er dóttir Stefáns, útgerð-
armanns í Skuld í Vestmannaeyj-
um, Björnssonar, b. á Bryggjum í Á-
Landeyjum, Tyrfmgssonar. Móðir
Bjöms var Anna Bjömsdóttir. Móð-
ir Önnu var Sigríður Magnúsdóttir,
b. í Ártúnum, Árnasonar, pr. í
Steinsholti, bróður Bövðars, afa
Þuríðar, langömmu Vigdísar Finn-
bogadóttur. Árni var sonur Presta-
Högna Sigurðssonar. Móðir Stefáns
var Guðríður Sigurðardóttir, b. á
Geldingalæk, Magnússonar, bróður
Sigríðar, langömmu Ingólfs, ráð-
herra á Hellu.
Móðir Guðrúnar var Margrét,
systir Guðjóns, föður Guðmundar
söngvara. Margrét var dóttir Jóns í
Búð í Þykkvabæ, Ólafssonar. Móðir
Margrétar var Guðfinna Eggerts-
dóttir, b. í Hákoti í Þykkvabæ, bróð-
ur Gísla, langafa Eggerts G. Þor-
steinssonar ráðherra og Þorsteins
fiskimálastjóra og Eggerts skip-
stjóra Gíslasona.
Sigtryggur hyggst halda upp á af-
mælið með fjölskyldu sinni.
Sjötugur
wmm
Þráinn Jónsson
framkvæmdastjóri í Fellabæ
Sigmundur Þráinn Jónsson, Lag-
arfelli 3, Fellabæ, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Þráinn fæddist í Gunnhildargerði
og ólst þar upp. Hann lauk
búfræðiprófi frá Hvanneyri 1951.
Þráinn var bóndi í Gunnhildar-
gerði 1959-64, stundaði veitinga-
rekstur í Ásbíói á Egilsstöðum
1964r-68 og í flugstöðinni á Egilsstöð-
um frá 1965 auk þess sem hann
starfrækti bilaleigu og hefur verið
umboðsmaður Sjóvár-Almennra hf.
Þráinn var varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Austurlandi, sat í
sveitarstjóm Tunguhrepps í átta ár
og Fellahrepps í tuttugu ár, oddviti
þar lengst af og lengi hreppstjóri.
Fjölskylda
Þráinn kvæntist 17.6. 1959 Ing-
veldi Önnu Pálsdóttur, f. 12.4. 1935,
hússtjórnarkennara, dóttur Páls
Jónssonar skólastjóra og Sigríðar
Guðnadóttur húsmóður.
Böm Þráins og Ingveldar: Jón, f.
7.3. 1960, vélvirki á Seltjarnamesi,
kvæntur írisi Margréti Þráinsdótt-
ur og eiga þau tvö böm; Sigríður, f.
5.12. 1961, framleiðslumaður í Fella-
bæ, gift Þór
Ragnarssyni
og á hún tvö
börn; Anna
Bima, f. 18.1. 1963, d. 23.2. 1965;
Anna Bima, f. 25.12. 1967, lögfræð-
ingur í Varmahlíð undir Eyjafjöll-
um, gift Sigurði Jakobi Jónssyni og
eiga þau tvö börn; ÞórhaOa, f. 22.2.
1969, matvælafræðingur á HeOu, gift
ÞorgOs Torfa Jónssyni og eiga þau
tvö börn.
Systkini Þráins: Margrét, f. 30.5.
1927, d. 24.11.1988, hússtjórnarkenn-
ari í Reykjavík; Guðrún Ingibjörg, f.
18.10. 1928, húsmóðir í Reykjavík;
Þórunn Kristbjörg, f. 28.5.1932, póst-
freyja í Reykjavík; Ólafur Heiðar, f.
25.11.1934, laugavörður í Reykjavík;
Sesselja Hildigunnur, f. 4.11. 1936,
húsfreyja á Desjarmýri; Sofiía
Hrafnhildur, f. 15.8. 1939, stöðvar-
stjóri hjá íslandspósti; Jóndóra El-
ísabet, f. 25.5. 1947, í Reykjavík.
Foreldrar Þráins: Jón Sigmunds-
son, f. 25.10. 1898, d. 18.5. 1957, bóndi
í GunnhOdargerði, og k.h., Anna
Ólafsdóttir, f. 29.8. 1902, d. 20.3.1987.
Þráinn og Ingveldur Anna verða
stödd á Hotel Adria í Prag, sími 420-
2210-81111, fax: 420-2210-81300.
IWcrkir Ibtendíngar
Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson, knattspyrnukappi
og ráðherra, fæddist í Reykjavík 5.
október 1923, sonur Guðmundar Gíslason-
ar, guOsmiðs í Reykjavík, og k.h.,
Indíönu Katrínar Bjamadóttur húsmóð
ir. Albert lauk prófi frá Samvinnuskól-
anum og Skerry’s CoOege í Glasgow.
Albert var fyrsti atvinnumaður ís-
lendinga í knattspymu og lék um ára- I
bO í Glasgow, London, Nancy, MOanó, I
París og Nice. Hann var stórkaupmað-
ur í Reykjavík frá 1956, alþingismaöur
Reykvíkinga 1974-89, fjármálaráðherra
1983-85, iðnaðarráöherra 1985-87, sendi-
herra í París frá 1989, var borgarfuOtrúi
1970-86 og sat i borgarráði 1973-83. Þá var
hann frambjóðandi í forsetakjöri 1980.
Albert var aðsópsmikill og geðríkur stjóm-
málamaður en með afbrigðum raungóður
og því oft nefndur Vinur litla mannsins.
Vinsældir hans náðu langt út fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn en bakhjarl hans var
svokaOaður Hulduher.
Þorsteinn Pálsson vék Albert fyrir-
varalaust úr ráðherraembætti 1987. Sú
ákvörðun átti eftir að verða afdrifarík.
Albert klauf þá Sjálfstæðisflokkinn
með stofnun Borgaraflokksins. Það
haföi umtalsverð áhrif á stjómmálaþró-
un næstu ára og átti sinn þátt í þvl eins-
dæmi að Þorsteinn var feOdur í for-
mannskosningu á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins 1991.
Albert lést í Reykjavík 7. aprO 1994.
Útför Helenu Drafnar Hjaltadóttur frá
Dvergasteini, Álftafirði, fer fram frá
Súðavíkurkirkju laugard. 7.10. kl.
15.00. Sæti fyrir kirkjugesti verða einnig
í íþróttahúsi barnaskólans.
Guðný Ólöf Stefánsdóttir, Laugavegi 37,
Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglu-
fjarðarkirkju laugard. 7.10. kl. 14.00.
Útför Vals Fannars gullsmiðs, Hlégerði
31a, Kópavogi, fer fram frá Kópavogs-
kirkju föstud. 6.10. kl. 15.00.
Magnús Gestsson frá Ormsstööum,
fyrrv. safnvöröur á Laugum, Dalasýslu,
verðurjarðaðurfrá Staöarfelli laugard.
7.10. kl. 14.00.
Jóhanna Sigurlaug Valdimarsdóttir verð-
urjarðsungin frá Blönduóskirkju laug-
ard. 7.10. kl. 14.00.