Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
11
DV
Fréttir
Tillögur auðlindanefndar um fjarskiptarásir:
Of hátt gjald getur
takmarkað nýtingu
í skýrslu auðlindanefndar kemur
fram að nefndin leggi til að við út-
hlutun leyfa vegna hinnar svoköil-
uð þriðju kynslóðar farsíma sé
heppilegasti kosturinn að þau fari í
hreint útboð eða aðrar hlutlægar að-
ferðir verði notaðar við úthlutun
þeirra. Nefndin telur að um tak-
markaða auðlind sé að ræða eða í
mesta lagi fjórar rásir.
Ekki takmörkuð auðlind
Þórólfur Ámason, forstjóri Tals,
segir að það sé rangt hjá auðlinda-
nefiid að um takmarkaða auðlind sé að
ræða og því sé forsenda þeirra röng en
ef menn vilji skattleggja slika þjónustu
sé það í lagi. „Það er pláss fyrir fimm
til sjö fyrirtæki í rekstri á þessum
markaði," segir Þórólfur og bætir við
að hann þekki engan rekstur á lands-
vísu þar sem fleiri en fimm til sjö fyr-
irtæki bjóði upp á þjónustu um allt
Þórólfur
Árnason
forstjóri Tals
land. Hann segir
að gjaldtaka geti
einnig verið þjóð-
hagslega óhag-
kvæm því hún tak-
marki nýtingu á
þjónustunni. Að-
gangstakmörkun
með háu gjaldi
myndi lika gera
það að verkum að
það verður erfið-
ara fyrir nýja
menn að komast inn í þennan rekstur
að mati Þórólfs.
Má ekkí hamla útbreiðslu
Að sögn Lárusar Jónssönar, fram-
kvæmdastjóra tækni- og þróunarsviðs
Halló-Fijáls fjarskipta, er það mjög
mikilvægt fyrir þriðju kynslóð farsíma
að heimamarkaðurinn sé sterkur en
hætta er á að sú verði ekki raunin ef
Takmörkuð auölind eöa...
Auölindanefnd telur að núverandi fjarskiptarásir séu takmörkuö auölind og
telur því fulla ástæöu til aö athuga hvort ekki sé hægt aö endurúthluta þeim
meö sama hætti. Meöal núverandi fjarskiptarása er tíöni fyrir sjónvarp og út-
varp. Myndin er frá úsendingu Stöövar 2
Sjónvarps- og útvarpstíðni:
Ekki takmörkuð auðlind
í stafrænu umhverfi
- segir framkvæmdastjóri Noröurljósa
Hreggviöur
Jónsson
Lagaieg óvissa
varöandi
endurúthlutun.
Auðlindanefnd
telur að núverandi
fjarskiptarásir séu
takmörkuð auð-
lind og telur því
fulla ástæðu til að
athuga hvort ekki
sé hægt að endur-
úthluta þeim með
sama hætti. Meðal
núverandi fjar-
skiptarása er tíðni
fyrir sjónvarp og
útvarp.
Hreggviður
Jónsson, framkvæmdastjóri Norður-
ljósa, segir að íslenska útvarpsfélagið
sé í dag að greiða gjald fyrir sjónvarps-
og útvarpstíðni sem nemi milljónum
króna á hveiju ári og hafi gert það frá
upphafi. Hann telur einnig að lagaleg
óvissa ríki um það hvemig standa eigi
að því að taka til baka eitthvað sem
búið er að borga fyrir. Hreggviður seg-
ir að þær breytingar, sem verði i sjón-
varpsrekstri með stafrænum útsend-
ingum, muni leiða það af sér að mun
betri nýting verði af tíðnisviðinu
þannig að tíðnisviðið verður ekki tak-
Arni Þór
Vigfússon
Fagnar
hugmyndunum.
mörkuð auðlind.
„Þá verður mögu-
leiki á fleiri rásum
en nokkur þarf á
að halda,“ segir
Hreggviður. Hann
telur að ef rökin
fyrir útboðsleið-
inni séu að um
takmarkaða auð-
lind sé að ræða
verði þau ekki
lengur til staðar í
stafræna umhverf-
inu.
Ámi Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri
á SkjáEinum, segir að menn verði að
bíða og sjá hvort þessar hugmyndir
verði að veruleika og þá hvemig.
Hann segir að SkjárEinn mundi fagna
því ef um endurúthlutun yrði að ræða
því þá yrðu líklega fleiri rásir i boði.
„Við á SkjáEinum hljótum þá að fá
fleiri rásir og fleiri dreifmgarleiðir og
getum þá gert fleiri og betri hluti,“ seg-
ir Ámi og bætir við að þar á bæ séu
margar hugmyndir uppi á borðinu
varðandi sjónvarpsrekstur. -MA
Olafur Stephen-
sen upplýsinga-
fulltrúi Lands-
slmans
Eyþór Arnalds
framkvæmda-
stjóri íslands-
síma
útboð verður fyrir valinu. Það sé í lagi
að hafa einhver gjöld en þau megi ekki
vera það há að þau komi niður á neyt-
endaverðinu. „í löndum eins og Bret-
landi og Þýskalandi þar sem útboð hef-
ur farið fram áætla menn að kerfið
verði aðeins notað af stórfyrirtækjum
og það verður mjög dýrt,“ segir Láras.
Hann er sammála forstjóra Tals um að
ekki sé um takmarkaða auðlind að
ræða. „Ríkið fær miklu meiri tekjur á
fyrstu þremur árunum með víðtækri
notkun í staðinn fyrir að leggja himin-
hátt gjald í upphafi," segir Láras. Ef
það sé gert sé verið að skattleggja
framtíðina. Hann segir að það sé skilj-
anlegt að menn vilji skoða þetta en
passa verði að sú leið sem farin verður
hamli ekki útbreiðslu á kerfmu.
Gæta veröur hófs
Eyþór Amalds, framkvæmdastjóri
Islandssíma, segir að mjög fróðlegt
verði að sjá hvemig útfærslan á tillög-
um auðlindamefndar muni verða.
„Það er verið að tala um nokkrar leið-
ir og þá er mikilvægt að þessar leiðir
séu jafnræðisleiðir," segir Eyþór og
bætir við að þá velti menn því fýrir sér
hvort ekki verði einnig að bjóða út
sjónvarpstíðni og þá sérstaklega VHF-
rásir sem hafi hvað mesta útbreiðslu.
Hann telur heppilegast að fara bil
taka gjald en það megi ekki
vera of þungt gjald. „Þá er hætta á að
þráðlaust Intemet eða farsímar með
netaðgangi verði munaðarvara," segir
Eyþór. Hann telur því að gæta verði
hófs í gjaldtökunni og ein leið til þess
sé að hafa gólf og þak á útboðið og ef
margir fari upp úr þakinu sé hægt að
greina úr því með því að fara eftir því
hversu víðtækt kerflð á að vera.
Ólafúr Stephensen, upplýsingafúll-
trúi Landssímans, segir að tillögur
auðlindamefndar séu nú til umræðu
hjá fyrirtækinu en vildi ekki tjá sig
um afstöðu þess til málsins. -MA
Goði hf.:
Hefur
fengið lóð
í Reykjavík
Samkvæmt borgarskipulagi
Reykjavíkur er búið að skipuleggja
svæðið þar sem höfuðstöðvar hins
nýja kjötiðnaðarfyrirtækis Goða hf.
standa við Kirkjusand i Laugarnes-
hverfmu sem íbúðarsvæði því fyrir-
tækið hefur ákveðið að flytja af
svæðinu á næsta ári.
Goði hf. er stærsti slátuleyfishafi
landsins en fyrirtækið varð form-
lega til með sameiningu fimm slát-
urhúsa og kjötvinnsla í ágúst síðast-
liðnum. Þrír stærstu eigendur þess
eru Norðvesturbandalagið, Þríhyrn-
ingur og Kaupfélag Héraðsbúa.
Samkvæmt heimildum DV hefur
Goði hf. fengið úthlutað rúmlega 11
þúsund fermetra lóð hjá hafnaryfir-
völdum í Reykjavik en ekki náðist í
Valdimar Grímsson, framkvæmda-
stjóra Goða hf., vegna málsins þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. -MA
óskast
á hjólbarðaverkstæði
Sólningar í Kópavogi.
Framtíðarstörf í boði
UDDlvsingar í síma 544 5020 oq 544 5030
SÓlNiNG
Smjð/uveg/ 32 • 200 Kópa vogí
Vilt þú nd tilfjöldcms?
Já auðvitað, hver vill það ekki?
Við hjá DV bjóðum þér að auglýsa í einu af vinsœlasta
sérblaði okkar sem kemur út miðvikudaginn 18. okt.
Fjallað verður um
HEIMILIÐ
Við œtlum að skoða strauma og stefnur i innanhússarkitektúr.
Við kíkjum í heimsókn á nokkur heimili.
Einnig lítum við á uppáhaldshluti og staði á heimili nokkurra einstaklinga.
Fjöllum um húsbúnað ogfólk sem gerir upp gamla hluti.
Skoðum sálfrœði lita og hvemig litir henta mismunandi manngerðum.
Þetta blað hefur notið mikilla vinsælda hjá lesendum
og því kjörið tækifæri fyrir þig að auglýsa þína vöru.
Umsjón auglýsinga:
Selma Rut Magnúsdóttir,
sími 550 5720, netfang: srm@ff.is
Pantanir þurfa að berast okkur
eigi síðar en fimmtudaginn 12. október.
-