Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
Skoðun
Hvernig fyndist þér ef
Rtkissjónvarpið setti
auglýsingar inn í kvikmyndir?
Lilja Hrönn Baldursdóttir nemi:
Það er í lagi, þær eru eiginlega komn-
ar upp í vana þessar auglýsingar.
Jóhannes Sigurðarson markaðsfull-
trúi:
Þaö er lélegt. Þaö er virkilega
óspennandi.
Guðmundur Björnsson, sölu- og mark-
aðsfulltrúi:
Mér líst vel á þaö. Næsta skref er
svo bara aö einkavæöa Ríkissjón-
varpiö.
Ósk Sigurjónsdóttir:
Þaö er allt of amerískt.
Ingólfur Isebarn:
Svona í meöallagi.
Brynjólfur Óskarsson rafvirki:
Þaö er alveg vonlaust, ekki nógu
gott.
formann
Hlýðum á Halldór
Ingvi Guðmundsson
skrifar:
Hvers vegna er fylgi Framsóknar-
flokksins stöðugt að minnka? Ýmsar
skýringar er verið að nefna í fjölmiðl-
um og einnig í hinum svokölluðu
heitu pottum. Mér sýnist alveg krist-
altært að forystan verður að fara að
átta sig á því að það eru kjósendur
sem endurspegla það sem fram kemur
í könnunum en ekki ungliðarnir í
flokknum eða Alfreð Þorsteinsson.
Skýringarnar eru af þrennum toga
spunnar. Fyrsta og aðalskýringin er
Reykjavík. Horfumst bara í augu við
það. Það er ekki vænlegt til árangurs
samkrulliö með R-listanum. Undan-
farið hefur hver uppákoman á fætur
annarri litið dagsins ljós í Reykjavík.
Yfirlýsingar Aifreðs Þorsteinssonar í
ijölmiðlum og skoðanir hans þar yfir-
leitt eru ekki til þess að hvetja fólk til
„Mér sýnist alveg kristal-
tœrt að forystan verður að
fara að átta sig á því að
það eru kjósendur sem end-
urspegla það sem fram
kemur í könnunum en ekki
ungliðamir í flokknum eða
Alfreð Þorsteinsson. “
stuðnings við Framsókn. Við fram-
sóknarmenn eigum að koma okkur
burt af þessum vettvangi hið fyrsta og
endurnýja forystuna í Reykjavík og
ekki seinna en á flokksþinginu næsta
vor.
í öðru lagi ákváðu ungliðarnir að
allt væri þetta samstarfsflokknum að
kenna og nú þyrfti að ráðast á hann
og hann ætti bara að skila ráðuneyt-
um sínum og þá myndi fylgið fara
upp. Er þetta trúverðug skýring eöa
er hún að skila árangri?
í þriðja lagi er þetta daður við Evr-
ópusambandið ekki trúverðugt. Ég
þykist vita að Hafldór Ásgrímsson
meinar vel og vill fá fram kosti og
galla varðandi hugsanlega inngöngu
okkar i Evrópusambandið. Það þyrfti
hins vegar ekki að vera svona mikill
hamagangur í kringum málið; 50
manna nefnd og stöðug fjölmiðlaum-
fjöllun um að Framsókn sé að leiða
okkur inn 1 sambandið og mislukkaða
evruna. Framsóknarflokkurinn þarfn-
ast þess eins nú að skynja andrúmið
og greina vandann á hlutlægan hátt.
Skoða sinn nafla og hlusta á formann-
inn einu sinni og þá ættu hlutimar
aðeins að fara að mjakast upp á við.
Áfengisútsala í Grafarvogi?
Daði
skrifar:
Það er með eindæmum ef satt reyn-
ist að hið opinbera ætli að að opna
áfengisútsölu í Spönginni í Grafar-
vogi, i stærsta bamahverfi á íslandi,
vitandi að eftir nokkur ár, þar sem
flestir unglingarnir verða að sjálf-
sögðu, verði þar góður markaður og
ákjósanleg staðsetning fyrir vínsal-
ann.
Dóminos pizza, Subway samlokur,
heilsugæsla og ÁTVR, allt á sama
bletti. Og er þá ekki allt upptalið. 1
staðinn fyrir að fólkið fari í „Ríkið“
ætlar ríkið að koma til fólksins. Þama
skýtur hið opinbera yfir markið
vegna þess að það er tfl fólk héma
„Þarna skýtur hið opinbera
yfir markið vegna þess að
það er til fólk héma upp
frá sem kœrir sig ekkert um
ÁTVR á þessum stað. “
upp frá sem kærir sig ekkert um
ÁTVR á þessum stað. Ástæðan er ein-
faldlega sú að þarna er stærsti ung-
lingaskóli landsins, hálfkláraður að
vísu, barnaskóli beint fyrir neðan og
leikskóli. Það sér hver hugsandi mað-
ur að út frá öðm en markaðssjónar-
miði yrði það stórslys að planta ÁTVR
hér.
Eins og öll stór hverfi sem byggjast
hratt upp verður Spöngin væntanlega
samkomustaður unglinganna okkar í
nánustu framtíð, sem er líka í lagi á
meðan hverfið er svona „ungt“, en þá
hugsun er varla hægt að hugsa til
enda að þeir séu að sniglast fyrir utan
„Ríkið". En af hverju er ekki hægt að
staðsetja ÁTVR fjarri skólunum okk-
ar hérna í Grafarvogi? Sjáið t.d Ár-
bæjar-“ríkið“, það er Heiðrún í iðnað-
arhverfi. Það er ágæt staðsetning þvi
ekki vildu Árbæingar sjá „Ríkið“ inn
í hverfið sitt og málið var leyst á
þennan snyrtilega máta og flestir sátt-
ir. Er ekki kominn tími til að
„tengja"? Tölum ekki bara um for-
vamir, framkvæmum forvarnir.
Dagfari______________________
Nýjasta skáldverk forsætisráðherra
Dagfara þótti það mjög upplýsandi í bók-
menntalegu tilliti að hlusta á umræður um stefnu-
ræðu forsætisráðherra í fyrradag. Ekki tókst hon-
um alveg að hlusta á allar ræðumar fyrir sakir
þreytu, en skreið til hvilu stómm vitrari um bók-
menntir heimsins. Steingrímur J. Sigfússon fór
með brot úr kvæði eftir Jón úr Vör - Þú ert svona
stór - um gamalmennið sem grætur á gröf móður
sinnar af því allir era dánir sem það þekkir.
Sverrir Hermannsson er víðlesinn maður og vitn-
aði bæði í Gúnter Grass og Grettlu i sinni ræðu en
Svanfríður Jónasdóttir treysti sér eiginlega ekki
lengra en í Forrest Gump; lífið er eins og konfekt-
kassi... Bjargaði sér þó fyrir hom með því að
minnast í framhjáhlaupi á Lilju Eysteins munks.
Dagfari komst ekki hjá því að taka eftir að for-
sætisráðherra þurfti ekkert á því að halda að
vitna í aðra. Hann opnaði að vísu ræðu sína með
því að vitna í Hafldór Laxness, en það gera aflir sem
vilja höfða til þjóðarinnar án þess að taka áhættu.
Davíð þarf ekkert á því að halda að vísa i aðra höf-
unda því hann sjálfur er á góðri leið með að verða
viðurkennt skáld á mælikvarða alheimsins. Stór-
skáld sem gerir lítið annað en að lesa úr verkum sín-
um í erlendum borgum.
Með tilliti til þessa fannst Dagfara furðulegt að
heyra hvemig hinir bókhneigðu þingmenn brugðust
við stefnuræðunni, nýjasta skáldverki forsætisráð-
Og auðvitað var maðurinn að gnn-
ast. Auðvitað var hann bara að
skálda eins og hann er svo leikinn
í. Það gerðu líka bœði Laxness og
Þórbergur. Þeir tóku atvik úr raun-
verunni og bjuggu til úr þeim
skáldskap.
herra. Þeir tóku margir að hnýta í hann með leið-
indanagi mn að allt sem hann segði í ræðunni
væri lygi. Forsætisráðherra vissi að þetta var
ekki svaravert - því slikt er eðli skáldskaparins.
Menn era alla tíð að láta ljúga að sér og njóta
þess. Skáld af þeirri stærðargráðu sem forsætis-
ráðherra er veit að lygin er ekki lygi heldur
skáldskapur.
Og auðvitað var maðurinn að grinast. Auðvit-
að var hann bara að skálda eins og hann er svo
leikinn í. Það gerðu líka bæði Laxness og Þór-
bergur. Þeir tóku atvik úr raunverunni og
bjuggu til úr þeim skáldskap - smíðuðu utan um
þau kassa af fallegum orðum með ritleikni og
stílfimi. Þetta er einmitt það sem forsætisráð-
herra er að gera. Hann er að leika sér með tölur
og staðreyndir og smíða handa okkur skemmti-
sögur: Skuldir ríkissjóös hafa aldrei verið
minni...minnkandi þensla mun draga hægt og öragg-
lega úr viðskiptahalla...kaupmáttur ellilifeyrisþega
hefur aukist...góðærið er líka handa öryrkjum...ein-
stakt tímabil í íslenskri efnahagssögu.
Orð sem drjúpa af tungunni eins og hunang. Sæt-
ur skáldskapur sem loðir við góminn. Hvers vegna
þarf fólk að vera svo menningarsnautt að spyrja
hvort þetta sé allt saman satt?
Erlendir ekki
á Alþingi
Björn Sveinsson hringdi:
Ekkert líst mér á
málflutning forseta
Islands um að er-
lendir þjóðarleiðtog-
ar sem hingað koma
í opinberar heim-
sóknir fái að ávarpa
Alþingi með form-
legum hætti, lýsi
stefnu sinni og við-
horfum eða gætu
lagt sjónarmiðum
okkar og hagsmun-
um „aukið lið“ eins
og forsetinn orðaði
það. Að mínu mati
kemur þetta yfirleitt ekki til greina og
helst vegna þess að hinir erlendu
þjóðarleiðtogar era nú ekki allir æski-
legir til að leiðbeina okkur frá Al-
þingi. Hvað með menn eins og
Ceausescu hinn rúmenska, sem eitt
sinn heimsótti forseta á Bessastöðum?
Eða Milosevic? Allt voru þetta þjóð-
höföingjar sinna landa. - Nei, takk,
ekki þessa eða aðra líka höfðingja inn
á Alþingi hér.
Olafur Ragnar
Grímsson, for-
seti íslands
Vill leyfa aukna
liðveislu er-
lendra á Alþingi.
Niðurlægjandi
fyrir aldraða
Inga hringdi:
Ég er orðin öldrað kona og vil veg
eldri borgara þessa lands sem mestan.
Aldraðir eiga heimtingu á að lifa eins
og menn. Mér finnst hins vegar afar
niðurlægjandi hvernig hinir öldraðu
ganga fram með víli og voli. Mér
blöskrar lítilsvirðingin sem öldraðum
er sýnd með mótmælagöngum hvers
konar og að við sem ekki vælum skul-
um þurfa að sitja undir þessu volæði.
Margt af þessu fólki sem mest vælir
hefur samt mest þegar upp er staðið
og grannt er skoðað.
Fjármagn
og skattleysi
Gísli Jónsson skrifar:
Er ekki kominn
tími til að skatt-
rannsóknarstjóri
taki á honum
stóra sínum og
krefjist rannsókn-
ar á því hvemig
íslenskir ríkis-
borgarar geti
beinlínis strokið
með fé héðan til að
fjárfesta í erlend-
um fyrirtækjum
eða til að leggja
einfaldlega inn á
erlenda banka og komast þannig hjá
skattgreiðslum hér? Þeir alþingis-
menn sem hafa sett lög sem heimila
mönnum að losna við skattgreiðslur
með „löglegum" hætti eiga að íyrir-
verða sig. Það er rétt sem kom fram 1
leiðara Mbl. 3. þ.m. að hér er ekki vel
að verki staðið af hálfu Alþingis. Hér
virðist vera um felumál að ræða sem
ekki þykir rétt að ræða hátt um. Það
er hneyksli.
Vægi flugsins
minnkar
Þorbergur skrifar:
Ég las ágætan pistil í Degi nýlega
eftir Sigurð Boga Sævarsson um
minnkandi vægi innanlandsflugsins
hér á landi og vandamálin í Vatns-
mýrinni í Reykjavík. Þar er réttilega
bent á að þegar æfingaflugið hefur
verið flutt úr Vatnsmýrinni þá verði
áætlunarflugið algjör afgangsstærð á
Reykjavíkurflugvelli. Ég vil bæta því
við að það er bara tímaspursmál
hvenær þessum ólánsflugvelli verði
lokað, því vægi flugsins innanlands
minnkar stöðugt. Og ríkið hefur ekki
efni á að halda uppi flugsamgöngum
innanlands með styrkjum til hinna og
þessara bæjarfélaga eða kauptúna.
Fjármagnið
skattlaust og
falið
Gjaldeyririnn löng-
um eftirsóttur.
DVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.