Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
19
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Abstoöarritstjórí: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þvcrholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Burt með eignaskattinn
í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem lagt var fyrir Al-
þingi nú í þingbyrjun, er gert ráð fyrir að álagðir eigna-
skattar á árinu verði rúmir 10,6 milljarðar króna. Þar er
um að ræða eignaskatta einstaklinga og fyrirtækja, erfða-
íjárskatt og stimpilgjöld og sértæka eignaskatta. Gert er
ráð fyrir að skatturinn hækki um milljarð milli ára.
Hækkunin stafar fyrst og fremst af áætlaðri hækkun fast-
eignamats. Áætluð hækkun á næsta ári er þó til muna
minni en varð á síðasta ári en þá hækkaði eignaskatts-
stofninn um 17,6 prósent. Þar munaði mest um hækkanir
á fasteignamarkaði sem námu 14,5 prósentum. í áætlun
fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að heldur hægi á og að
eignaskattsstofn einstaklinga hækki um 10 prósent.
Ekki er greiddur skattur af rúmlega 3,8 milljóna króna
eign einstaklings en af stofni ofan við þessar 3,8 milljónir
er greiddur 1,20 prósenta eignaskattur. Sérstakur eigna-
skattur er greiddur af eignaskattsstofni sem er tæplega 5,3
milljónir króna. Sá skattur nemur 0,25 prósentum af verð-
mæti eignar. Af þessum tölum sést að fjöldinn verður að
greiða eignaskatt af því einu að hafa komið sér upp þaki
yfir höfuðið. Viðmiðunartölumar eru lágar, ekki síst eftir
öra hækkun fasteignaverðs.
Áætlaðir eignaskattar á einstaklinga á næsta ári eru
um 3,5 milljarðar króna. Þeir skattar eru ósanngjarnir og
þá ætti að fella niður sem fyrst. Það er fráleitt að fólk sé
skattlagt fyrir það eitt að eiga ibúð utan um fjölskylduna.
Sú eign er enda afrakstur vinnu sem þegar hefur verið
skattlögð.
Hjá öðrum þjóðum hefur vægi eignaskatta minnkað og
víða eru eignaskattar ekki lagðir á einstaklinga. Þar sem
eignir einstaklinga eru skattlagðar er skattprósentan oft
lægri en hér á landi.
íslensk stjórnvöld hafa loks viðurkennt óréttmæti þess-
arar skattheimtu. í sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra að rétt væri að afnema
eignaskatt, sérstaklega af íbúðarhúsnæði. Ráðherrann
sagði við það tækifæri að ísland væri eitt fárra rikja sem
innheimtu eignaskatta og sú innheimta væri gamaldags.
í viðtalinu við forsætisráðherra kom fram að ekki væri
ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar og vilji væri fyrir
því að afnema eignaskattinn. Það væri hins vegar ólíklegt
að slíkt yrði gert i vetur þar sem efnahagsráðgjafar mæltu
gegn skattalækkun í þvi góðæri sem ríkt hefur.
Vissulega hefur ríkt hér góðæri en ástæðulaust er að
fresta afnámi hins óréttláta skatts. í fjárlagafrumvarpi
næsta árs er gert ráð fyrir meiri tekjuafgangi ríkissjóðs en
nokkru sinni fyrr. Ríkissjóður þolir því tekjutapið. Að
auki er reiknað með að einkaneysla aukist minna á næsta
ári en undanfarin ár og að fjárfesting dragist saman.
Reiknað er með að hægi á hagvexti.
Gangi þessar spár eftir má reikna með meira jafnvægi
í efnahagslífinu. í fjárlagafrumvarpinu er tekið fram að
mikilvægasta markmið hagstjórnarinnar sé að varðveita
þann árangur sem náðst hefur í efnahagsmálum að und-
anfórnu og tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Að-
haldssöm stefna í rikisfjármálum stuðli að stöðugu rekstr-
arumhverfi atvinnulífs og skapi svigrúm til frekari niður-
greiðslu skulda og lækkunar skatta.
Þar sem reiknað er með að heldur hægi á þenslunni og
enginn ágreiningur er innan ríkisstjórnarinnar um afnám
eignaskatts, einkum af íbúðarhúsnæði, ætti sú skatta-
lækkun að koma til framkvæmda þegar frá næstu áramót-
um.
Jónas Haraldsson
DV
Skoðun
Allt í járnum í forsetaframboöi
„Þessi kosningábarátta er nú þegar sú tvísýnasta síðan 1960
þegar Kennedy sigraði Nixon með nokkur þúsund atkvæðum.
Allt bendir til að baráttan verði í járnum allt fram á síðasta
dag. “ - Forsetaframbjóðendur i Bandaríkjunum takast á.
Svo virðist sem kappræð-
ur frambjóðenda í banda-
rísku forsetakosningunum
hafi litlu breytt. Ef eitthvað
er hefur Bush unnið á með
því einu að koma fram á
sama sviði og varaforsetinn
án þess að gera sjálfan sig að
viðundri. Sjálfum fannst mér
A1 Gore sigra með yfirburð-
um, bæði i framkomu og rök-
semdafærslu, en Bandaríkja-
menn hafa önnur viðmið.
Bush talaði almennt og yfir-
borðslega, Gore var rökfastur og sann-
færandi. En fáir virðast hafa skipt um
skoðun á frambjóðendum.
Samkvæmt skyndikönnunum rétt eft-
ir sjónvarpsútsendinguna hefur Gore
enn lítils háttar meira fylgi en Bush, en
aðeins rúmlega skekkjumörk. Þetta þýð-
ir að næstu kappræður á þriðjudaginn
verða þeim mun mikilvægari. Fyrir
kappræðurnar var talað um að Gore
hefði meiru að tapa en Bush, því að all-
ir viðurkenna að hann er miMum mun
reyndari. Það eitt að Bush tapaði ekki
afgerandi samkvæmt áliti þeirra kjós-
enda sem spurðir voru er á vissan hátt
sigur.
I raun og veru er Bush aðeins i fram-
boði vegna þess að hann er sonur fóður
síns. Nafnið Bush fellur
repúblíkönum vel í geð og
Bush yngri hefur höfðað til
þjóðarstoltsins vegna sigursins
í Persaflóastríðinu undir stjórn
fóður síns með því að hafa sér
til ráðuneytis hershöfðingjana
Powell og Schwarzkopf úr því
stríði. En Bush þykir léttvæg-
ur, reynslulaus og vitmaður í
meðallagi. Einmitt það kann að
falla Bandaríkjamönnum í geð,
Gore þykir of yfirþyrmandi
hæfur og er oft sakaður um að
tala niður til fólks. Það gerir Bush ekki
og þykir alþýðlegri og opnari.
Úrslit kosninganna 7. nóvember
kunna að ráðast einfaldlega af því hvor
frambjóðandi fellur almenningi betur í
geð persónulega og þar virðist Bush
hafa vinninginn, enda þótt á málefna-
grundvelli standi Gore betur. Mjög mik-
ið ber á milli í mörgum málum og svo
virðist sem úrslit kunni að ráðast af at-
kvæðum kvenna. Mikill munur er á
fylgi frambjóðenda eftir kynjum, Gore
hefur um 20 prósent meira fylgi meðal
þeirra, en Bush aftur á móti um 13 pró-
sent meira meðal karla.
Málefnin
Næsti forseti mun fyrirsjáanlega út-
nefna þrjá eða jafnvel flóra nýja hæsta-
réttardómara. Það gæti þýtt nýtt valda-
jafnvægi i réttinum sem gæta mundi i
áratugi. Fóstureyðingar eru löglegar
núna, en Bush er á móti þeim og mundi
útnefna dómara sem mundu ógilda fyrri
úrskurði hæstaréttar um þetta mál.
Gore er fylgjandi fóstureyðingum. Þetta
er ekki mikið uppi í umræðuni en því
meira undir niðri og fylgi Gores meðai
kvenna byggist meðal annars á þessu.
Annað mikið mál er niðurgreiðsla á
lyfseðilsskyldum lyfium, þar sem Gore
þykir hafa betri áætlun og höfðar þar
með til eldri borgara, sem eru einn mik-
ilvægasti hópur kjósenda. Aðalmál
Bush er mikil skattalækkun, sem Gore
segir að muni fyrst og fremst koma auð-
mönnum, um einu prósenti skattgreið-
Hafa mannréttindi þá landamæri?
enda var minnt á það í
ávarpi að margt væri und-
anskilið á þeim spjöldum
sem þama var haldið á loft.
Það voru ungliðar í Vinstri-
hreyfingunni - grænu fram-
boði sem boðuðu til fundar-
ins til að vekja athygli á af-
leiðingum viðskiptabanns-
ins á írak sem Bandaríkja-
stjórn stendur ótvírætt fyr-
ir. Með viðskiptabanninu er
heilli þjóð haldið í svelti
með þeim afleiðingum að á
aðra miljón manns hafa látið lífið
beinlínis af völdum þess og dauðs-
follunum fiögar með hverjum degi
sem því er haldið áfram.
Þetta er ekki bara skoðun unglið-
anna í Vinstrihreyfingunni og fá-
einna gamalla herstöðvaandstæð-
inga. Samtök og stofnanir á borð við
Rauða krossinn og Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna hafa farið hörðum
orðum um viðskiptabannið og Mann-
réttindaráð SÞ telur að það standist
ekki alþjóðalög. Það er því brýnt að
bera fram öflug mótmæli gegn við-
skiptabanninu og í ljósi þess að
gagnrýni á það hefur verið miklu al-
mennari en gagnrýni á aðrar gerðh
Bandaríkjanna og einnig í ljósi þess
að allar ungliðahreyfingar stjórn-
málaflokkanna gátu sameinast um
mótmæli gegn Li Peng, forseta kín-
verska þingsins, nokkru fyrr, þótti
nokkur von í að nú mætti ná viðlíka
samstöðu.
Litlar undirtektir
Það er skemmst frá að segja að
undirtektir voru litlar. Einungis
talsmaður Frjálslynda flokksins tók
vel í erindið. Frá ungum sjálfstæðis-
mönnum bárust engin svör en ann-
ars staðar kom fram að þeh
kenna stjómvöldum í
Bagdad alfarið um ófarir
íraka. Ungh framsóknar-
menn sögðu Albright ekki
réttan aðila til að beina
mótmælum að þar sem ör-
yggisráð Sameinuðu þjóð-
anna stæði að viðskipta-
banninu. Þannig komu þeir
sér undan mótmælum gegn
þessari vinkonu Halldórs
Ásgrímssonar.
En hrekklaus maður gat
ímyndað sér að ungir jafnaðarmenn
tækju höndum saman við ungliða
Vinstrihreyfingarinnar og gengið
yrði af krafti í að undirbúa öflug
mótmæli gegn þessum afmörkuðu
gerðum Bandarikjastjómar þar sem
afstaðan til NATO-aðildar og hersetu
yrði látin liggja milli hluta. En þeir
komust að sömu niðurstöðu og ungh
framsóknarmenn.
Við verðum þá væntanlega að bíða
efth því að utanríkisráðherra ís-
lands bjóði öllu öryggisráðinu í
heimsókn og kann nú að verða bið á
því. Af svörum ungra framsóknar-
manna og ungra jafnaðarmanna má
ráða að þeir treysti sér ekki til að
neita því að viðskiptabannið sé brot
á mannréttindum.
En ef svo er, þá er líka ljóst að
mannréttindi hafa landamæri að
þeirra mati þvert á það sem var yfh-
skrift mótmælanna gegn Li Peng.
Það er óhætt að mótmæla mannrétt-
indabrotum ef í hlut á Kínverjinn Li
Peng, en þegar um er að ræða full-
trúa Bandarikjastjómar er fundin
tylliástæða til að vera ekki með. Þá
vitum við það
Einar Ólafsson
Einar Olafsson
rithöfundur
Laugardaginn 30. september síð-
astliðinn komu um hundrað manns
á mótmælafund í Reykjavík vegna
heimsóknar Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna.
Þessi hópur hélt á spjöldum með
ýmsum áletrunum, svo sem: Stöðvið
stríðið gegn írak. Stöðvið stríðið
gegn Júgóslavíu. Afléttið viðskipta-
banninu. 500 þúsund börn hafa verið
drepin, er ekki nóg komið? Ekkert
stjörnustríð, hættið viö gagnflauga-
áætlunina. ísland úr NATO, herinn
burt.
Ærln ástæða
Það er ljóst að sumum finnst ærin
ástæða til að mótmæla þegar utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna kemur
í heimsókn og þá er af nógu að taka,
„Það er óhœtt að mótmcela mannréttindabrotum ef í
hlut á Kínverjinn Li Peng, en þegar um er að rœða
fulltrúa Bandarikjastjómar er fundin tylliástœða til
að vera ekki með. Þá vitum við það. “
Með og á móti
nú?
Innanlandsflug - sameiginlegt verkefni
„Svarið er ein- vallarskilyrði þess að byggð
falt - já. Að mínu mf um landið verði ekki ein-
mati er ríkis- ungis viðhaldið heldur
styrkt innan- II ■* einnig treyst. Ef almenn-
landsfiug fullkomlega rétt- ik M ingssamgöngur eru í ólestri
lætanlegt og reyndar sjálf- H .<^B^H er augljóst, að svo mun
sagt til þess að tryggja Jl ...^H aldrei verða.
nauðsynlega samfélagsþjón- Innanlandsflugið er því,
ustu. Bjarnason rétt eins og heilbrigðiskerf-
Það er mikilvægt að leit- aiþm. Vinstrihreyf■ iö og skólakerflð, sameigin-
að sé allra leiða til að jafna ingarinnar - græns legt verkefni velferðarsam-
tækifæri og möguleika í framboös félagsins og opinber stuðn-
þéttbýli og dreifbýli. Reglu- ingur við það fullkomlega
legar og öruggar almenningssam- réttlætanlegur hér eins og í ná-
göngur um allt land eru eitt grund- grannalöndum okkar.“
Ríkisrekstur út sem kostur er
„Það er ekki bora við gerð flugvalla er
réttlætanlegt að H J framlag skattborgaranna til
ríkið styrki inn- ■ 1 bætts samgöngukerfis
anlandsflug, sem ■ -s — j hinna dreifðu byggða, eins
og ekki hefur H -.rifM og raunin er til hafna- og
verið gert vegna áætlunar- H| 1 vegagerðar. Til þeirra staða
ferða fólksflutningabifreiða. HL JH þarf þó að líta yfir hörðustu
Sú meginstefna hefur verið vetrarmánuðina, þar sem
ríkjandi að fela einkaaðil- Guðmundur snjóruðningur á sér ekki
um frekari verkefni og að Hallvarðsson stað, til dæmis þrisvar i
ríkið dragi sig út úr rekstri aiþm. Sjáifstæöis- viku, og vegasamgöngur
sem nokkur kostur er. fíokksins ekki komnar í það horf sem
Fjármögnun hins opin- almennt er nú orðið.“
Forsvarsmenn dreifbýllsins hafa margir ýjað að aðstoð hins opinbera til að gera Flugfélagi Islands kleift að halda uppi óbreyttu flugi til áfangastaða á
landsbyggðinni.
enda, til góða.
Skattalækkun er ekki ofarlega í huga
almennings en menntamál og almanna-
tryggingar eru stórmál. Bush hefur
mikinn áhuga á menntamálum og hefúr
náð góðum árangri í þeim í Texas og
áætlanir hans þykja raunhæfar.
Öðru máli gegnir um almanna- og
sjúkratryggingar þar sem mikill ágrein-
ingur er um hvernig verja eigi fyrirsjá-
anlegum tekjuafgangi rikissjóðs. Bush
vill skila honum í formi skattalækkana,
en Gore vill efla tryggingakerflð. I raun
er furðulegt að kjósendur vilji skipta
um forstystu núna, eftir mesta uppgang
sem sögur fara af í efnahagslífi Banda-
ríkjanna undir stjórn Clintons.
Hvers vegna aöra stefnu
núna?
Bandaríkjamenn hugsa lítið um for-
tíðina og meira um framtíðina, og þeir
virðast leiðir á Clinton eftir tvö kjör-
tímabil. En þegar að því kemur að
greiða atkvæði í kjörklefanum er ekki
víst að þeir vilji í raun breytingar.
Þessi kosningabarátta er nú þegar sú
tvísýnasta síðan 1960 þegar Kennedy
sigraði Nixon með nokkur þúsund at-
kvæðum. Allt bendir til að baráttan
verði í jámum alit fram á síðasta dag.
Gunnar Eyþórsson
Ummæli
Skýrsla auðlindanefndar
„Augljóst er að
framsóknarmenn
hafa tekið öll völd í
þessari nefnd, enda
formaður þeirra höf-
undur kvótakerfisins
í fiskveiðum ... Þjóð-
areign á nytjastofn-
um gefur ekkert í aðra hönd. Sama
gildir um þjóðareign á notkun á
vatnsafli. Tilgangurinn er því að-
eins sá að blekkja almenning til að
fela áframhaldandi úthlutun á veiði-
heimildum til kvótakónga."
Önundur Ásgeirsson, fyrrv. forstjóri, í
Mbl. 5. okt.
Neytendur og veitendur
„Stjórnvöld hafa sett frjálsum við-
skiptum og athafnafrelsi borgaranna
ýmsa stóla fyrir dymar. Einna þyngst-
ur í vöfum og alvarlegastur virðist
vera lög nokkur sem hlutu númerið
8/1993 og eru í daglegu tali kölluð
samkeppnislögin. Með þeim lögum
veittu stjómvöld embættismönnum
sínum ótrúlegar heimildir til að
skipta sér af því sem einstaklingamir
taka sér fyrir hendur og hvernig þeir
haga rekstri sínum og annarri starf-
semi... Svo óhugnanlegt sem það er
þá eru ýmsir sem einlæglega trúa því
að opinber fyrirmæli um viðskipta-
hætti séu fallm til þess að stuðla að
frjálsri samkeppni. Sumir virðast
halda að á markaði starfi tvö ólík öfl,
góð og slæm; neytendur og veitendur.
Neytendur séu „góðir" og veitendur,
það er fyrirtækin, „slæm“ - og því
verri sem þau eru stærri."
Úr Vef-Þjðöviljanum 4. október.
Nýju fötin sægreifans
„Svokallað Geir-
finnsmál hrikti í
máttarvöldum þjóðfé-
lagsins á sínum tíma
og olli röskun á þjóð-
lifinu. Málið flæktist
í höndum dómsyfir-
valda og flækjan óx
þeim yfir höfuð ...
Ólafur Jóhannesson dómsmálaráð-
herra sá sæng sína uppreidda. Ráð-
herrann kallaöi á þýskan lögregluþjón
til að pakka málinu inn í umbúða-
pappír ... íslendingar vissu að Þjóð-
verjanum var ekki ætlað að fmna
sannleikann, heldur útgönguleið fyrir
ráðherrann og hyski hans. Farginu
var aldrei létt af þjóðinni heldur
dysjað í þjóðarsálinni. Davíð Oddsson
forsætisráðherra er nú í sporum Ólafs
Jóhannessonar og Auðlindanefnd í
hlutverki þýska lögregluþjónsins. Mán-
uðum saman hafa klæðskerar ráðherr-
ans setið við sauma og á fóstudaginn
var birtust „Nýju fótin Sægreifans“.“
Ásgeir Hannes Eiríksson verslunarm. í
Degi 5. október.
Má ekki tala
um kvótaeign?
Einn varaforseta Alþing-
is hefur sett ofan í við
óbreyttan þingmann, Sverri
Hermannsson, fyrir mál-
flutning sem stangast á við
þingsköp. Sverrir brigzlaði
Halldóri Ásgrímssyni utan-
ríkisráðherra um að láta
eigin fjárhagslega hagsmuni
ráða stefnu sinni í sjávarút-
vegsmálum. ítem: Halldór
og ættingjar hans eiga kvóta
að milljarðavirði og því er
Halldór nú hlynntur fjár- “
festingu útlendinga í íslenzkum sjáv-
arútvegi. Þannig græðir hann meira
þegar kaupandi finnst að fjölskyldu-
fyrirtækinu. Sverrir hafði ekki fyrir
því að svara þingforseta. Hann hristi
bara höfuðið og glotti.
Ofsóknirnar
Þetta er ekki nýtt umræðuefni. í
kosningabaráttunni í fyrravor kvart-
aði Halldór Ásgrímsson yfir því að
andstæðingar hans og fjölmiðlar of-
sæktu sig og aldraða móður sína
vegna útgerðarfyrirtækis fjölskyld-
unnar sem ætti svolítið af kvóta. Þeg-
ar Finnur Ingólfsson fór á eftirlaun
um áramótin tiltók hann þessar of-
sóknir líka sem eina sönnun þess
hversu ógeðfelld stjómmálaumræða
væri í landinu og að hér væri eigin-
lega ekki líft fyrir hælbítum.
Ofsóknimar á hendur Halldóri Ás-
grímssyni fólust í því, ef mig brestur
ekki minni, að einn fjölmiðill spurði
hann um kvótaeign hans einu sinni
(óstaðfestar fregnir
herma raunar að þetta
mál hafi líka verið til
umræðu i dreifiritinu
alræmda sem aldrei
kom fyrir augu lands-
manna).
Halldór svaraði
spumingunni á sínum
tíma og notaði svo
hvert tækifæri sem
hann fann til að
minna á að hann hefði
verið spurður þessar-
ar spumingar, hæfi-
lega ergilegur vegna
kosninganna sem
hann var að tapa.
Honum fannst ósann-
gjamt að hann væri
spurður um kvótaeign
sina, eins og verið
væri að bera honiun
Karl Th. Birgisson
blaöamaöur
óheiðarleika á brýn. Það er
mikill misskilningur, og
jafnreyndur stjómmála-
maður og Halldór ætti að
vita betur. Sérstaklega nú
hin seinni árin þegar hann
er orðinn sigldur.
í þeim nágrannaríkjum
okkar, þar sem lýðræði er
þroskaðra en hér, er það
gömul og álitin sjálfsögð
krafa að þingmenn veiti
upplýsingar um fjárhagsleg
tengsl sem kunna að skipta
máli í opinberum störfum þeirra.
Þetta á til dæmis við um hlutafjár-
eign, fjárframlög frá einstaklingum
og fyrirtækjum, gjafir og styrki, svo
það helzta sé nefnt. í þessum löndum
væru það ekki taldar ofsóknir að
spyrja sjávarútvegsráðherra til
margra ára um fjárhagslega hags-
muni hans af kvótakerfi sem hann
bjó til og hefur varið, blóðugur upp
að öxlum. Það væri einfaldlega talinn
sjálfsagður réttur kjósenda að vita
hvaða persónulegra hagsmuna
stjómmálamenn eiga að gæta þegar
mikilvæg mál koma til ákvörðunar
þeirra.
Á Sverrir kvóta?
1 eðlilegum samfélögum heföi það
þótt sjálfsagt mál og brýnt að spyrja
eins og Sverrir Hermannsson gerði.
Sverrir notaði að vísu sitt striga-
kjaftsorðcdag og líkti Halldóri við
Borís Jeltsin og rússneska mafíósa
sem hafa stolið þjóðareignum og
stofnað um þau fjölskyldufyrirtæki.
Það er líka mikill misskilningur.
Halldór hefur engu stolið, og þætti
þeim fráleitt sem þekkja til hans.
Fjölskyldufyrirtæki hans fékk, eins
og önnur útgerðarfélög í landinu,
milljarðaverðmæti gefins, með frum-
varpi Halldórs, lögum frá Alþingi og
síðar blessun Hæstaréttar.
Ekki veit ég hvurnig ijölskyldu-
fyrirtæki Halldórs hefur reitt af, en
hitt veit ég að aðrir hafa fundið not
fyrir þessa milljarða sem Halldór gaf
þeim. Einn Akureyringur seldi sitt
og labbaði út með þrjá milljarða í
vasanum. Aðrir hafa keypt fótboltafé-
lög á Englandi í von um seinni tíma
gróða og þægileg sæti á vellinum.
Það breytir ekki þvi að full ástæða er
til að spyrja: Hversu mikinn kvóta á
Halldór Ásgrímsson eða á í vændum?
Hvaða persónulegu fjárhagslegu
hagsmuna á hann að gæta við að
verja óbreytt kvótakerfi?
Og hvað um aðra þingmenn? Á
Sverrir Hermannsson kvóta? Stein-
grímur J. Sigfússon? Og allir hinir?
Þetta eru spurningar sem á og verð-
ur að spyrja. Ef Halldór Ásgrímsson
hefur ekki bara fengið Evrópuglýju í
augim á ferðum sínum til Brussel
hefur hann vonandi fengið nasasjón
af því að í alvörulöndum verða al-
vörustjómmálamenn að svara al-
vöruspumingum. Hvað sem öllum
þingsköpum liður.
Karl Th. Birgisson
„Hversu mikinn kvóta á Halldór Ásgrímsson eða á í vœndum? Og
hvað um aðra þingmenn?Á Sverrir Hermannsson kvóta? Stein-
grímurj. Sigfússon? Og allir hinir? Þetta eru spumingar sem á og
verður að spyrja. “