Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2000, Síða 23
27
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
DV
Tilvera
John Le Carre
sjötíu og eins árs
Breski rithöfimdurinn
John Le Carre verður sjö-
tíu og eins árs i dag.
Carre er talinn einn besti
njósnasöguhöfundur
heimsins og hafa mörg
snilldarverkin á því sviði komið frá
honum. Hann hlaut heimsfrægð þegar
hann sendi frá sér Njósnarann sem
kom inn úr kuldanum en hún, ásamt
fleiri bókum hans, hefur komið út á ís-
lensku. Le Carre býr í Comwall ásamt
eiginkonu sinni, Jane. Þau eiga íjögur
böm og era bamabömin orðin tíu.
Stjörnuspa
Gildir fyrir föstudaginn 20. október
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
, Þú ættir ekki að treysta
algerlega á eðlisávísunina
þar sem hún gæti bmgð-
ist þér. Þú hittir persónu
sem heiilar þig við fyrstu sýn. Farðu
varlega því ekki er aUt sem sýnist.
Fiskarnir (19. febr,-20. marsi:
Þú lætur gamlan
Idraum rætast og sérð
ekki eftir því. í félags-
lífinu verður mikið um
að vera á næstunni. Happatölur
þínar eru 6, 9 og 35.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
ÍV Þú tekur þátt í leik
™ sem gefúr þér aukið
sjálfstraust. Þú verður
leiðandi í samskiptum
við vini I&na. Happatölur þínar
eru 7, 9 og 30.
Nautið (20. apríl-20. maDl
Gamall vinur skýtur
upp kollinum og á eft-
ir að hafa heilmikil
áhrif á gang mála hjá
er á næstunni. Einhver biður þig
um greiða.
Tvíburarnir (21, maí-21. iúní):
Þú ert mun bjartsýnni
’ en þú hefur verið lengi
og tilbúinn að takast á
við flókin verkefni.
Þér verður ágengt f heilsuræktar-
átaki þínu.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
Garövinna tekur mikið
I af tíma þínum og ef þú
' átt ekki garð þá ein-
hvers konar útivinna.
Natturubamið í þér kemur upp á
yfirborðið.
Llónid (23. iúií- 22. áeústl:
Þú þarft að vanda þig í
samskiptum þínum við
erfiða aðila og er samt
ekki vlst að það dugi
til farsælla samskipta. Sumir eru
bara svona.
Nlevian (23. áeúst-22. sent.):
a. Þú kynnist einhverjum
sem á eftir að hafa
^^^lLmikil áhrif á þig. Ekki
* f er ólíklegt að ástin
komi verulega við sögu á næst-
unni.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Þér gæti sinnast við
ástvin þinn, en með ró-
legum viðræðum verð-
ur hægt að leysa úr
þenn vanda, enda er hann á mis-
skilningi byggður.
SpQfðdreki (24. okt.-21. náv.l:
IÞú verður beðinn að
; ráðleggja vinum þín-
jium í máli sem ekki er
1 auðvelt viðfangs.
ess að gleyma engu sem
þú þarft að gera.
Bogamaður (22. n6v.-2i. des.):
LÓtti sem þú hefúr bor-
rið í brjósti við niður-
' stöðu ákveðins máls
. reynist ekki á rökum
réisturogþú getiu- tekið gleði
þína á ný.
Steingeltin (22. des.-19. ian.):
Misskilningur kemur
upp á vinnustað þínum
og á eftir að leiða af
sér leiðindi og það tek-
■ viuuiamii
Gættu
ur tíma að leiðrétta þau. Happa-
tölur þínar eru 8, 34 og 35.
DV-MYND PÉTUR
Heimsókn nemenda úr Laugalækjarskóla
Þessir krakkar úr 8. bekk í Laugalækjarskóla heimsóttu DV í gær. Þeir heimsóttu líka Dag, Vísi.is og ísafoidarprent-
smiöju og var sýnt og sagt frá hvernig dagblöö og netmiöill veröa til. Heimsóknin var iiöur í verkefninu Dagblöö í skól-
um en í síöustu viku fengu krakkarnir öll dagblööin send í skólann og unnu meö þau i íslenskutímum.
Örbylgjupopp
handa Britney
Bandaríska poppstjarnan Britney
Spears kom hótelhöldurum í
Manchester á Englandi í opna
skjöldu um daginn þegar hún fór
fram á að fá örbylgjuofn í herbergið
sitt. Stúlkan gat ekki hugsað sér að
geta ekki poppað fyrir háttinn, eftir
strembið kvöld á tónleikasviðinu.
Eða eins og einn starfsmaður hót-
elsins i Manchester orðaði það svo
skemmtilega: „Hún kann að líta á
sig sem drottningu poppsins en við
kölluðum hana nú bara poppkoms-
drottninguna." Sem sagt, dæmigerð-
ur unglingur.
DVMYND
Risastór
Þær kanadísku slá íslenskar gjörsamlega út hvaö stæröina varöar eins og
sjá má á þessari mynd. Guöni Þorsteinsson var ánægöur meö þaö sem kom
út af kanadíska útsæöinu. Kartaflan vó 470 grömm þegar hún kom
upp úrgaröinum.
Kartöflur:
Risi ársins er inn-
flytjandi frá Kanada
„Ég fékk útsæðiskartöflur frá
Kanada í fyrra og uppskeran er fin,
flestar kartöflumar reyndust stórar
og nokkrar á við þessa,“ sagði Guðni
Þorsteinsson sjúkraliði en hann og
kona hans, Júlíana Ragnarsdóttir,
hafa gaman af hvers konar ræktun,
líka kartöflurækt, og era með sumar-
bústað við Meðalfellsvatn í Kjós.
Guðni segir að þau hjón hafi feng-
ið þetta tvær til fjórar stórar kartöfl-
ur undan hverju grasi og afrakstur-
inn sé góður. Kannski má lappa eitt-
hvað upp á íslenska kartöflustofninn
eins og ætlunin er með kúastofninn?
-JBP
Prestur í London rýfur þögnina:
Díana ætlaði
að giftast Dodi
ítalskur prestur,
sem þjónaði í Kens-
ington í London
þar sem Díana
prinsessa bjó, hef-
m- nú greint frá því
að hún hafi sagt
honum frá ást
sinni á Dodi Fayed
og að hún hafi ætl-
að að giftast ást-
manni sínum.
Presturinn, faðir
Gelli, sem er af
ítölskum ættum,
segir að prinsessan
hafi meira að segja
spurt hvort hann
gæti gefið þau sam-
an.
„Díana var ákaf-
lega hamingjusöm og mjög ástfang-
in. Hún leit björtmn augum á fram-
tíðina," segir presturinn í viðtali
við breskt blað.
Presturinn kveðst hafa séð Díönu
á bæn í kirkjunni sem er rétt hjá
Kensingtonhöll. Þau töluðust þó
Díana
Prinsessan tjáöi presti frá ást
sinni á Dodi.
ekkert við fyrr en eft-
ir að hann hafði skrif-
að henni bréf í kjölfar
bíóferðar hennar og
sona hennar. Díana
sætti gagnrýni fyrir
að hafa farið með litlu
prinsana á mynd um
IRA, írska lýðveldis-
herinn, og presturinn
skrifaði að sér þætti
gagnrýnin óréttmæt.
Díana hringdi í prest-
inn og boðaði hann á
sinn fund. Þetta var í
júlí 1997. Þau ræddust
við nokkrum sinnum í
síma eftir það og hitt-
ust einnig aftur. Við
þau tækifæri spurði
Díana prestinn, sem
hafði dvalið í Tyrklandi, hvemig
múslímar kæmu fram við konur
sínar.
Að sögn prestsins naut Díana
þess hversu Dodi sýndi henni mikla
ástúð og virðingu. Prinsessan á
einnig að hafa sagt að Dodi væri
ákaflega hrifinn af bömum hennar.
Rétt áður en Díana lést í París í
ágúst 1997 hringdi hún í prestinn og
sagðist vera með góðar fréttir. Hann
er viss um að Díana og Dodi hefðu
gifst hefðu þau lifað.
Ellen elskar
óþekkta stúlku
Ellen DeGeneres hélt sig við
stelpurnar eftir að margumtalað
ástarsamband hennar og Anne
Heche rann út í sandinn. Nú hefur
verið upplýst að nýja konan í lífi
hennar sé ung og óþekkt sjónvarps-
leikkona, Alexandra Hedison. Sú
hefur meðal annars komið fram í
smáhlutverkum í þáttaröðinni Mel-
rose Place.
Að sögn slúðurdálkahöfunda í
New York Daily News mættu þær
Ellen og Alexandra saman á upp-
töku rokkkvennaþáttar fyrir sjón-
varpsstöðina Lifetime. Þær munu
víst ætla að fara rólega í sakimar
því flas er jú eigi til fagnaðar.
Mamma Ellen hefur hitt Alexöndru
og segir hana indæla stúlku.
Þegar hefur verið greint frá nafni
karlsins sem Anne Heche tók sam-
an við eftir sambandsslitin.
George keypti
píanó Lennons
Bresk-gríski popparinn George
Michael átti ekki í vandræðum með
að reiða fram hátt í tvö hundruö
milljónir króna fyrir píanóið sem
John Lennon notaði við að semja
hið fræga lag Imagine.
Ekki ætlar George þó að spila
sjálfur á gripinn, sem er af gerðinni
Steinway, heldur gaf hann bítlasafn-
inu í Liverpool hljóðfærið þegar í
stað.
Vinur Georges sagði eftir kaupin
aö popparinn ungi hefði alltaf verið
mikill aðdáandi Lennons og að hon-
um hefði fundist píanóið eiga heima
i Bretlandi.
Sendlar óskast
Sendlar óskast
á blaðadreifíngu DV
eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
Upplýsingar í síma 550 5746.