Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Side 11
11
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000
I>V
Utlönd
Slobodan Milosevic:
Reisir hús í Belgrad
fyrir 240 milljónir
Slobodan Milosevic, fyrrverandi
forseti Júgóslavíu, reisir lúxusvillu
fyrir um 240 milljónir íslenskra króna
við hliðina á bústað breska sendiherr-
ans í diplómatahverfínu í Beigrad.
Breska blaðið Sunday Times greindi
frá þessu í gær.
Húsið er í hverfinu Dedinje þar
sem Milosevic og eiginkona hans,
Mira Markovic, eiga þegar lúxusbú-
stað. í nýja húsinu ætla hjónin að
dvelja á efri árum.
Samkvæmt skipuiagsyfirvöldum i
Serbíu hefur smíði hússins verið
haldið áfram þrátt fyrir atburði síð-
asta mánaðar. Þykir það benda til að
hjónin séu enn þeirrar skoðunar að
þau geti haldið stöðu sinni meðal
þeirra sem gegna æðstu embættum
þjóðarinnar.
Þegar smíði hússins hófst fyrir um
ári var byggingaverkamönnunum tjáð
að það væri ætlað herforingjanum Ne-
bojsa Pavkovic. En Pavkovic á að
fiytja inn í húsið sem Milosevic býr í
núna. Forsetinn fyrrverandi vill flytja
inn í nýja húsið vegna betra öryggis-
kerfis í því.
Fulltrúi skipulagsyflrvalda segir að
Undirbúa framtíöina í Belgrad
Slobodan Milosevic og eiginkona hans, Mira Markovic, ætla að búa áfram í
fínasta hverfinu í höfuðborg Serbíu. Eru hjónin að láta reisa þar nýja
lúxusvillu.
einn manna sinna hafi spurt hver
væri að láta reisa húsið. Hann var þá
stöðvaður af herlögreglu sem sagði
húsið eign ríkisins og skipaði honum
að koma sér burt.
Margir samstarfsmanna Vojislavs
Kostunica, nýs forseta Júgóslavíu,
hafa sagt að allar byggingafram-
kvæmdir í Dedinjehverfmu verði
rannsakaðar á næstu mánuðum.
Margir nánustu samstarfsmanna
Milosevics búa í hverfinu.
Serbneskir stjórnmálaskýrendur
segja að Milosevic kippi enn i spott-
ana. Forsetinn fyrrverandi stýrði á
fóstudaginn fundi í æðstu stjórn Sósi-
alistafiokksins. Haft er eftir ónafn-
greindum heimildarmanni að mikil
spenna hafi verið i loftinu en að lok-
um hafi verið tekin ákvörðun sem
æðstu haukarnir sættu sig við.
Milosevic er einnig sagður bera
ábyrgð á því að þingið frestaði um
helgina að samþykkja ráðherra
nýrrar bráðabirgðastjórnar þar til í
dag. Bandamenn Kostunica mótmæltu
fyrir helgi tilnefningu harðlínumanna
í þjóðstjómina sem fara á með völdin
þar til kosningar verða 23. desember.
Tölvufræðingar á
kafi í fíkniefnum
Yfirlæknir fikniefnameðferðar-
stofnunar í Kalifomíu í Bandaríkj-
unum, Alex Stalcup, segir í viðtali
við bandarískt blað að 40 prósent
sjúklinga sinna séu ungt fólk í
tölvubransanum. Læknirinn segir
þetta ekki koma sér á óvart. Unga
fólkið vinni mikið og hratt. Það taki
inn kókaín til þess að halda sér vak-
andi og heróín til þess að geta sofið.
Forstöðumaður meðferðarstofn-
unar i Stokkhólmi, Vivianne
Ronneman, kveðst hafa orðið vör
við fikniefnamisnotkun starfs-
manna tölvugeirans í Sviþjóð. Hún
segir misnotkunina vegna streitu.
Rafstöðvar
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
YANMAR
Sími 568 1044
Nýttu hana í sláturtíð, framtíð,
berjatíð, nútíð, vertíð og gúrkutíð því
verðið er í þátíð
Sú blákalda staðreynd, að AEG
frystikisturnar okkar hafa verið á sama
verði í ríflega eitt ár, ætti að ylja mönnum
um hjartarætur.
Verðfrysting
Heræfing
Konur í n-kóreska hernum á æfingu fyrir hersýningu. Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til N-Kóreu í gær til viðræðna viö
leiðtoga landsins, Kim Jong-il.
Ovenjuefnilegur
frambjóðandi
Bandaríska blaðið New York
Times lýsti í gær yfir stuðningi við
Hiilary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, sem sækist eftir öldunga-
deildarþingsæti fyrir New York.
Segir blaðið Hillary óvenjuefnilegan
frambjóðanda.
Blaðið gagnrýndi þó jafnframt
forsetafrúna og sagði hana hafa til-
hneigingu til að koma fram við
pólitíska andstæðinga sína eins og
óvini. Hún hefði ekki sagt allt satt
við yfirheyrslu rannsóknarmanna
auk þess sem hún aðhylltist um of
stefnu Clintons forseta varðandi
gjafir í kosningasjóði.
New York Times segir
repúblikanann Rick Lazio verðugan
keppinaut Hillary. Hillary sé hins
vegar gædd fleiri og meiri hæfileik-
um heldur en Lazio.
teso
3 ára ábyrgð
Klárari en keppinauturinn
Hillary Clinton og Rick Lazio,
keppinautur hennar.
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Vörunr. Heiti Brútto Lítrar Netto Lítrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fyigja Læsing Einangrun þykkt i mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klst Verð áður Tilboðsverð
12HS HF120 132 126 86 55 61 1 Nei 55 0,60 43.092 29.900
23HL HFL230 221 210 86 79 65 1 Já 55 0,84 47.843 33.900
29HL HFL 290 294 282 86 100 65 1 Já 55 1,02 51.039 35.900
38HL HFL 390 401 382 86 130 65 2 Já 55 1,31 54.599 39.900
53HL EL 53 527 504 86 150 73 3 Já 60 1,39 65.116 46.900
61HL EL 61 607 581 86 170 73 3 Já 60 1,62 73.287 53.900
RdDIOsHAtlST
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
1