Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
I>v
9
Fréttir
Síml 552-2125 09 895-9376.
Magnarar
frá 9.900 kr.
Rafmagnsgítar,
magnari m/effekt,
ól og s.núra.
Aður 40.400 kr.
Nú 27.900 kr.
Trommusett m/diskum + kjuðum, 45.900,-
heldur hafa eytt þeim í heimilis-
rekstur og til eigin þarfa.
Maðurinn hlaut skilorðsbundinn
dóm um mitt ár 1999 vegna skatta-
lagabrota og var sá dómur skilorðs-
bundinn til þriggja ára. Þau brot
sem maðurinn var dæmdur fyrir nú
voru framin áður en sá dómur féll.
Manninum var gert að sæta 7
mánaða fangelsi en fullnustu dóms-
ins frestað í þrjú ár haldi maðurinn
almennt skilorð. Þá var maðurinn
dæmdur til greiðslu 4 milljón króna
sektar og komi 3 mánaða fangelsi í
staðs sektarinnar hafi hún ekki ver-
ið greidd innan 3 vikna. Þá var
manninum gert að greiða allan sak-
arkostnað. -gk
Haustið komið
með vindi og
fjúki
|i DV. SUDURLANDI:
Nú, þegar hausta tekur, fer vind-
urinn að verða ráðandi og með hon-
um kemur kuldi og snjór. Um helg-
ina var vindur af hafi við suður-
ströndina og seinnipart á sunnudag
| var farinn að fjúka sandur á Mýr-
dalssandi og Skeiðarársandi. Um
miðjan dag var þó fallegasta veður í
Víkinni. Vindur stóð af hafi og
sendi hluta af öldurótinu langt upp
eftir Reynisfjalli sem stendur eins
og stefni fram í úthafið með Reynis-
drangana eins og brimbrjót fyrir
framan sig. Reynisdrangar eru gríð-
1 arvinsælir meðal ferðafólks og oft
má heyra andvörp og hrifningaróp
| þegar það kemur út úr rútunum og
sér drangana í öllu sínu veldi undir
grónum hlíðum Reynisfjalls. -NH
Síldin:
33 þúsund
tonn á land
Tækin sett upp fyrir myndatöku og svo fjarlægð:
Leiktækjalaus hunda-
leikvöllur í Öskjuhlíð
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Fjögurra milljóna sekt
vegna virðisauka
DV, AKUREYRI:
Tæplega fertugur karlmaður á
Akureyri hefur verið dæmdur í
skilorðsbundið fangelsi og til
greiðslu hárrar sektar fyrir að
hafa ekki staðið skil á virðisauka-
skatti sem hann innheimti I sjálf-
stæðmn atvinnurekstri sínum á ár-
unum 1996-1998, en upphæð sú
sem maðurinn stóð ekki skil á nam
rétt tæplega tveimur milljónum
króna.
Skattrannsóknamefnd barst er-
indi vegna þessa máls í árslok 1998
og hófst rannsókn embættisins
skömmu síðar. Við yfírheyrslur
viðurkenndi maðurinn að hafa
ekki staðið skil á peningunum
| DV. AKUREYRI:
Síldveiðin á vertíðinni er nú orðin
ríflega 33 þúsund tonn. Um 7.500 tonn
hafa farið í frystingu, um 800 tonn hafa
verið söltuð en afgangurinn, eða um 25
þúsund tonn, hefur farið í bræðslu.
Mestum afla hefúr verið landað í
Neskaupstað eða 5.979 tonnum en aðr-
ir hæstu löndunarstaðir eru Höfn með
5.626 tonn, Akranes 4.092 tonn, Fá-
skrúðsfjörður 3.470 tonn, Þórshöfn
| 3.036 tonn, Vopnafjöröur 2.974 tonn,
Reykjavík 2.728 tonn og Grindavík
1 2.489 tonn. -gk
Hundaeigendur gi’ipu í tómt um
helgina þegar þeir hugðust
skemmta hundum sínum og kenna
þeim hlýðniæfmgar á nýja hunda-
leiksvæðinu við Öskjuhlíð. Þar var
ekkert hundaleiktæki af nokkru
tagi, aðeins ruslafótur. Hundaleik-
svæðið var „tekið í notkun“ á
dögunum en strax tekið niður af
Hundaræktarfélaginu. Leiksvæðið
verður ekki notað nema á tyllidög-
um í framtíðinni.
„Við erum óhreinu bömin henn-
ar Evu, borgin vill greinilega ekki
að við séum að koma með hundana.
Það komu margir hundaeigendur
um helgina til að nota leiktækin
sem allir fjölmiðlar slógu upp með
myndum og sögðu frá hundaleik-
skóla. Þama var ekki eitt einasta
tæki. Okkur datt í hug að tilkynna
þjófnað. Það er undarlegt af ráða-
mönnum borgarinnar að mæta og
UV-MYNU r'UUKUUK rihLuAoUIN
Dregið í
Starfsmenn Linu.Nets og Ljósvirkja voru aö skjóta strengnum í plaströrin,
sem plægö eru niður með jarbýtu, á sunnudagskvöldið.
Ljósleiðari frá
Reykjavík til Eyja
- og þar verður stungið í samband við umheiminn
DV. SELFOSSI:
Á vegum Línu.Nets er nú verið að
plægja niður ljósleiðaralögn á Suð-
urlandi sem mun liggja með þjóð-
veginum austur eftir Suðurlandi,
gegnum Selfoss, Hellu og Hvolsvöll
og ná út til Vestmannaeyja 1. des-
ember. Þar verður ljósleiðarinn
tengdur við Cantat-sæstrenginn
sem kemur til með að tryggja há-
marks-flutningsgetu í samskiptum
við útlönd. Framkvæmdir við plæg-
ingu röranna sem strengurinn er
idreginn i hafa gengið vel. Nú um
helgina var búið að plægja niður
rör austur fyrir Hvolsvöll. Ljósleið-
arastrengurinn sjálfur er síðan
þræddur í á eftir - skotið með loft-
þrýstingi fjóra kilómetra í einu, tvo
kílómetra í hvora áttina. Starfs-
menn Ljósvirkja, sem voru að störf-
:um austan Þjórsár á sunnudags-
kvöldiö, sögðu að vel hefði gengið
að þræða ljósleiðarann i rörin og aö
ekkert óvænt hefði komið upp á við
íramkvæmdina. -NH
Hunda„róló” í Öskjuhlíöinni
Það vakti gleði hundaeigenda að fá alvöru æfingasvæði fyrir hunda sína.
Svona leit svæðið út á föstudag - á taugardag var allt horfið.
láta fjölmiðla mynda sig við tæki,
sem er síðan ekki meiningin að
verði þarna á staðnum. Við héldum
að þetta yrði eins og róló fyrir börn-
in,“ sagði Sólveig Antonsdóttir
hundaeigandi sem var bitur út í
borgina vegna vanefnda í þessu
máli.
„Tækin eiga ekki að vera þarna
að staðaldri, Hundaræktarfélagið
kom með þessi tæki og hélt smásýn-
ingu. Þarna á ekkert að vera, nema
að menn geta komið með þessi tæki,
þetta eru létt tæki og ómögulegt að
geyma þau þama á staðnum, þau
yrðu strax eyðilögð," sagði Jóhann
Pálsson, garðyrkjustjóri borgarinn-
ar, i gær. Á nýja hunda„róló“ er
hins vegar hægt að vera með
hundana óbundna innan girðingar,
einn af örfáum stöðum í borginni
þar sem það er leyft.
-JBP
:
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Útveröir í suðri
Reynisdrangar og Reynisljall eru út-
verðir landsins í suðri og hafa staðið
af sér veður og brim í
gegnum aldirnar.
Slysagildra við
Miklubrautina
Framkvæmdir standa nú yfir við
breikkun Miklubrautarinnar, milli
Kringlumýrarbrautar og Háaleitis-
brautar. Framkvæmdaraðilinn hefur
iátið grafa þar djúpan skurð til upp-
fyllingar og byrgt hann með þungum
steinköntum. Þessir steinkantar eru
sérstaklega hannaðir til að beina öku-
tækjum aftur inn á akbrautina lendi
þau í að keyra utan í þá en verða þá
að vera samfelldir. Því miður er sú
ekki raunin þama þar sem þeim hef-
ur verið dreift með nokkurra metra
millibih og eru því meiri slysagildra
heldur en hitt.
VW Passat 1600, 4.d. skr.06’98,
svartur, ek.39.þ.km, bsk., álf., cd.
V.1.420.þ.
Dodge Durango SLT 5900, 5.d.,
skr.10’00, beis, NÝR, ssk„ a/c ABS
ofl. ofl. V.3.990.þ.
MMC Galant 2000, STW, 5.d„
árg.1998, skr.10’99, grár, ek.7.þ.km,
ssk. V.1.800.þ.
VW Passat 1600, STW, 5.d„
skr.10’97, rauður, ek.49.þ.km, bsk.,
m.krók. V.1.330.þ.
Hyundai Accent 1300, 3.d„
skr.06’98, silfur, ek.47.þ.km, bsk.,
álf. V.650.þ. 100% lán
VANTAR FLESTAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ
OG Á STAÐINN
VANTAR VÉLSLEÐA Á SKRÁ OG Á STAÐINN
B í L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
0PIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL.10-18.
LAUGARDAGA FRÁ KL.10-14.
__ (jijLASAUNiL
nöldur ehf.
MMC Pajero Sport 2500, DTI,
skr.05’99, vínr., 18.þ.km, bsk., álf.,
V.2.650.þ.
Toyota Landcr. 100 4200, DTI,
skr.06’99, d.blár, ek.30.þ.km, ssk.,
leður, ABS, sóll., 7.manna ofl.
V.5.290.þ.