Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 28
'i 44
Tilvera
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
DV-MYNDIR JAK
Glæsilegar stúlkur
Carmen Leahu frá Rúmeníu, fyrir miöri mynd, bar af i samanburðinum en
hún sigraöi í kvennaflokknum. Henni á hægri hönd er Sigurlína Guöjóns-
dóttir en henni á vinstri hönd er Sirpa Lauttaanaho frá Finnlandi.
Sigurvegarinn
Kristján Ársælsson, sem sigraöi í samanburöinum í karlaflokki, er hér
ásamt helstu keppinautum sínum, þeim Kjartani Guðbrandssyni og Pasi
Inkinen frá Finnlandi.
tónleika á
Gauknum
í kvöld mun Bubbi Morthens
lialda fyrstu tónleika sína á veit-
ingastaðnum Gaukur á Stöng.
Gaukurinn var opnaður fyrir
nokkrum dögum endurbættur, á
þremur hæðum og aldrei í ís-
lenskri tónlistarsögu hefur verið
boðið upp á jafn góða aðstöðu til
tónleikahalds bæði fyrir tónlist-
arfólk og gesti þess og er því vel
við hæfl að einn virtasti og vin-
sælasti tónlistarmaður landsins
haldi tónleika þar.
Bubbi mun m.a. flytja þrjú
nýju lögin sem er að ftnna á
nýju safnplötunni hans, Sögur
1990-2000. Lögin eru Pollýanna,
7 daga vima og Jakkalakkar.
Kabarett
■ FRÆÐSLU- OG
-SKEMMTIDAGSKRÁ UM MEXÍKÓ
^Cistaklúbbur Leikhúskjallarans býöur
til fræðslu- og skemmtidagskrár um
Mexíkó í kvöld, kl. 20.30. Ástæða
dagskrárinnar er sú að skapast hef-
ur sérstök hefð í Mexíkó til aö halda
„El día de los muertos" hátíðlegan
og verður gestum klúbbsins gert
kleift að færast nær þeim raunveru-
ieika. Ellen Gunnarsdóttir og Sigurö-
ur Hjartarson halda erindi,
mexíkóskar konur, búsettar á ís-
landi, leiða lautartúr út í kirkjugarð.
Allir eru velkomnir og húsið verður
opnað kl. 19.30. Aðgangseyrir er
800 kr. en námsfólki er boðið til
dagskrár fyrir 500 kr.
Klassík
■ LONPON MOZART PLAYERS
í kvöld, kl. 20, heldur ein af bestu
kammersveitum Evrópu,The London
* Mozart Players, tónleika í Salnum í
Tónlistarhúsf Kópavogs. Á efnisskrá
eru verk eftir Benjamin Britten, Ric-
hard Strauss, Mozart og Brahms.
Galaxy Fitness:
Guðdómlegir kroppar
Tímabrautin erfiðust
„Ég er mjög ánægður með þetta
mót. Það var keyrt hratt áfram og
var mjög skemmtilegt, mjög gott
skipulag,“ sagði Kristján eftir mótið.
„Ég get ekki annað en verið sáttur.
Ég er búinn að leggja mikla vinnu í
undirbúning fyrir það og uppskar
eins og til var sáð. Mér fannst tíma-
brautin erfiðust en þar reyndi svo á
úthaldið. Þegar kom að kaðlinum var
allt súrefni búið og lungun höfðu
ekki undan. Víð, íslensku strákarnir,
stöndum mjög framarlega í þessari
íþróttagrein, en við höfum ekki áttað
okkur á því. Ég stefni núna að því að
komast á heimsmeistaramótið en það
verður væntanlega haldið í Kína á
næsta ári.“
í kvennaflokknum var keppt í sam-
anburði sem gilti 50%, tímabrautinni
sem gilti 45% og bardaga þar sem
keppendurnir reyndu að slá hverjir
aðra niður af stalli með stöng með
púða á endanum en hann gilti 5%.
Rúmeninn sigraði. Carmen Leahu
frá Rúmeníu tryggði sér sigur í
kvennaflokknum með sigri í saman-
burðinum þar sem hún bar af öðrum
keppendum. Freyja Sigurðardðttir
keppti við Leahu um 1. sætið en slak-
ur árángur hennar í samanburðinum
dró! hana niður þrátt fyrir að hún
hefði sigrað í þrautabrautinni. „Ég er
mjög ánægð með keppnina sem var
mjög hörð og erfíð,“ sagði Carmen
Leahu. „Sérstaklega fannst mér tíma-
brautin hræðilega erflð en ég meiddi
mig á ökkla á æfingu fyrir viku og
það háði mér töluvert." -JAK
Kristján Ársælsson sigraði nokkuð
örugglega í alþjóðlegri fitness-keppni
sem haldin var í Laugardalshöll á
laugardagskvöldið. Keppnin var mjög
hörð og geysispennandi en þar áttust
við 17 keppendur, átta í karlaflokki
og niu í kvennaflokki. Af þessum
sautján keppendum voru átta erlend-
ir og komu þeir frá Finnlandi,
Hollandi, Rúmeníu og Spáni.
Karlaflokkur
í karlaflokki var keppt í upphífmg-
um og dýfum, tímabraut og í saman-
burði. Upphífíngamar og dýfurnar
giltu 25% en þar var keppt í því hver
gæti híft sig oftast upp á slá og látið
sig síga niður og lyft upp aftur á
tveimur stöngum. Kristján sigraði
með yfirburðum i þessari grein. í
þrautabrautinni þurftu keppendurn-
ir að fara ákveðna braut á tíma. Þar
þurftu þeir m.a. að hlaupa í dekkjum
og fiskikörum, handlanga sig eftir lá-
réttum stiga, klifra upp og niður net,
lyfta 90 kg steini á stall og klifra 7
metra upp kaðal. Þessi braut reynd-
ist mörgum keppendunum erfið og
ekki tókst öllum að ljúka henni. í
þessari grein varð Kristján Ársæls-
son að lúta í lægra haldi fyrir Kjart-
ani Guðbrandssyni en einungis mun-
aði 0,4 sek. á þeim. „Ég gaf mér of
langan tíma til að lyfta steininum og
missti Kjartan fram fyrir mig,“ sagði
Kristján. Síðasta greinin var saman-
burður en vægi hans í keppninni var
50%. Þar hafði Kristján töluverða yf-
irburði.
Sigurvegarinn í karlaflokki
Kristján Ársælsson sigraöi í karla-
flokki en hér sést hann á fullu í
þrautabrautinni.
Bestur i tímabrautinni
Kjartan Guöbrandsson stóö sig best
í tímabrautinni og virtist hann eiga
nóg eftir þegar kom aö kaölinum.
Eyjastúlkan knáa
Sigurlina Guöjónsdóttir klífur netiö
af miklum krafti.
Myndlist
■ GUÐRÚN HALLDÓRSPÓTTIR
Guðrún Halldórsdóttir leirlistarmað-
ur opnaði um helgina sýningu á
neðri hæð Listasafns Kópavogs
sem hún nefnir Freyjur og för. Guö-
rún sýnir 30 gripi sem eru unnir á
síðustu tveimur árum. Eins og nafn
sýningarinnar ber með sér er aðal-
efni hennar konur og skip. Konur
Guðrúnar eru stæðilegar og bera
forn íslensk og norræn nöfn. Skip
hennar minna á för víkinga, fornnor-
rænna farmanna og íslenskra fiski-
manna. Guðrún handbyggir verk sín
. og brennir í sagi. Þetta e,r fýrsta
einkasýning Guðrúnar á Islandi en
hún hefur numiö og starfaö í Banda-
ríkjunum undanfarin 10 ár. Sýningin
er opin alla daga nema mánudaga,
kl. 11 tii 17, og stendur til 26. nóv-
ember.
Sídustu forvöð
■ MARGRET GUÐMUNDSPOTTIR
Margrét Guðmundsdóttir lýkur í dag
sýningu á verkum sínum í kaffistof-
unni í Hafnarborg. Sýningin nefnist
Gluggi tll austurs blönduð tæknl/in-
fusion technique. Opið frá 11-18.
‘ Fundir
Hmynpakvold utivistarT
kvöld kl. 20 verður myndakvöld Útl-
vistar í Húnabúð. Útivist vill einnig
minna á aöventuferðir í Bása og Uti-
vistarræktina. Sjá utivist.is
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Tekur myndir af
Veiðistaðirnir
veiðistöðum á íslandi í
á diskum
þúsundatali:
heim í stofu
DV, AKUREYRI:_______________________
„Segja má að það hafi verið for-
vitni okkar veiðifélaganna fyrst og
fremst sem varð til þess að ég fór að
taka myndir af veiðstöðum úr lofti.
Þetta var tilraun í fyrstu en Laxá í
Þingeyjarsýslu, urriðasvæðið, varð
fyrir valinu. Okkur fannst þetta
koma mjög vel út og því var ákveð-
ið að halda áfram,“ segir Einar Guð-
mann á Akureyri, en hann hefur
heldur betur mundað myndavélina
að undanförnu og tekið loftmyndir
af veiðistöðum í fjölda veiðiáa og
vatna víðs vegar um land, en mest á
Suður- og Vesturlandi.
„Afrakstur sumarsins er um þrjú
þúsund myndir og árnar sem ég á
nú loftmyndir af eru tæplega 20 tals-
ins og annað eins af vötnum. Nú
liggur fyrir að gefa þetta út á disk-
um og verða fleiri en ein á á hverj-
um diski. Það hefur þó ekki verið
ákveðið hvemig þetta mun raðast
saman,“ segir Einar Guðmann.
Ámar sem um ræðir eru: Norð-
urá, Hítará, Sandá, Laxá í Kjós,
Grímsá, Langá á Mýrum, Hafljarð-
ará, Brynjudalsá, Sogið, Tungufljót,
Stóra-Laxá, Brúará, Laxá í Aðaldal,
bæði ofan og neðan virkjunar, Eyja-
DV-MYND GK.
Veiólstaðlr skannaðir
Einar Guömann viö tölvuna þar sem hann „skannar" myndirnar af veiöstöö-
um ánna um allt land.
fjarðará, Hörgá, Fnjóská og Litlaá 1
Kelduhverfi. Vötnin eru m.a. Hítar-
vatn, Sandvatn, Hlíðarvatn, Hval-
vatn, Skorradalsvatn og ár sem
renna úr og í það, Þingvallavatn,
Elliðavatn, Reynisvatn, Hreðavatn,
Oddstaðavatn, Holtavörðuvatn,
Hafravatn, Stíflisdalsvatn og Leir-
vogsvatn.
„Nú stendur fyrir dyrum að gefa
þetta út en þar er um nokkuð djarfa
tilraun að ræða. Hugmyndin er að
fá kunnáttumenn á hverjum stað til
að merkja inn nöfn veiðistaða í sin-
um ám og vötnum og svo fer þetta í
sölu. Diskar með Ijósmyndum hafa
ekki verið gefnir út áður, sennilega
vegna ótta manna við að lög um höf-
undarétt yrðu brotin, en ég tel að
veiðimenn séu það miklir heiðurs-
menn að þeir kaupi þessa diska en
láti ekki fjölfalda þá fyrir sig,“ segh
Einar. Hann segist ekki í nokkrum
vafa um notagildi diskanna fyrir
veiðimenn, enda er reynsla þeirra
sem hafa notað loftmyndir Einars
úr Laxá í Þingeyjarsýslu sú að
myndirnar eru mjög gott hjálpar-
tæki. „Menn læra heilmikið um ána
sína við að sjá hana úr lofti og þá tel
ég að myndirnar eigi ekki síöur eft-
ir að sanna notagildi sitt fyrir byrj-
endur sem geta fengið veiðileiðsögn
úr tölvunum sinum,“ segir Einar,
en upplýsingar um hvernig hægt er
að ná í ljósmyndirnar á diskum er
hægt að finna á heimasíðu Flugu-
veiðifélags íslands.
-gk