Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
DV
5
Fréttir
Ryödallurinn Omnya á Akureyri seldur til Noregs:
Akureyrarhöfn með
lögkröfu í skipið
- og það fer ekki frá Akureyri fyrr en sú skuld hefur verið gerð upp
DV, AKUREYRI:
Norskir aðilar, sem voru á ferð-
inni á Akureyri á dögunum og skoð-
uðu þar rússneska ryðdallinn
Omnya, munu hafa keypt skipið af
útgerð þess í Murmansk og hyggjast
sigla þvi til Noregs þar sem gera á
skipið upp. Ekkert hefur hins vegar
verið rætt við aðila sem eiga kröfur
á fyrri eigendur skipsins eins og
Akureyrarhöfn og Stáltak sem er
arftaki Slippstöðvarinnar.
Akureyringar ráku margir upp
stór augu þegar rússneska ryðdall-
inum var siglt inn á Pollinn í sept-
ember 1997 og bundinn fastur við
Torfunefsbryggju, nánast uppi í
miðbænum. Þar var þessi mikla
„bæjarprýði" svo höfð viö bryggju
fram á árið 1999 þrátt fyrir stöðugar
kvartanir bæjarbúa. Fyrstu mánuð-
ina var rússnesk áhöfn um borð og
hafði varla til hnífs og skeiðar.
Sumir aumkvuðu sig yflr áhöfnina,
s.s. Ámi Steinar Jóhannsson, nú-
verandi alþingismaður, sem bauð
Rússunum í mat á heimili sitt um
jólin 1997.
Þar kom að skipinu var siglt brott
úr „miðbænum" og því valinn stað-
ur á athafnasvæði Slippstöðvarinn-
ar en skipið hafði komið til Akur-
eyrar vegna þess að til stóð að
breyta því nokkuð og vinna á því
miklar endurbætur.
Slippstöðvarmenn höfðu hins
vegar lýst því yfir við rússneska eig-
endur skipsins í Murmansk að
vinna yrði ekki hafin við skipið fyrr
en útgerð þess hefði gert upp við
stöðina vegna vinnu sem fram hafði
farið í stöðinni við tvo aðra togara
útgerðarinnar.
Rússneska útgerðin virðist með
allt niður um sig og hefur ekki get-
að gert upp við Slippstöðina eða
Stáltak eins og fyrirtækið heitir í
dag. Skipið hefur legið við viðlegu-
kant stöðvarinnar, á besta staðnum,
Skora á ráð-
herra að girða
DV. ¥ORGARNESh
Fyrir skömmu
var haldinn fundur
á vegum umferðar-
öryggisnefndar
Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu og
Akraness í Hym-
unni í Borgarnesi
þar sem var fjallað
um lausagöngu bú-
Theodór Kr.
Þórðarson,
fjár í héraðinu en flest slys af völdum
búQár eru í umdæmi lögreglunnar í
Borgarnesi. Fyrir fundinum lá að
finna farsæla leið til framtíðarlausn-
ar á þvi hættuástandi sem lausa-
ganga búfjár skapar vegfarendum.
í ályktun fundarins var skorað á
samgönguráðherra að beita sér fyr-
ir þvi að vegurinn um Holtavörðu-
heiði að sunnanverðu, þar sem er
ógirtur afréttur, verði girtur á
næsta ári. Þama er um 11 kílómetra
langan vegarkafla að ræða og á
þessu svæði hefur verið ekið á um
20 kindur á hveiju ári, sem er um
þriðjungur þess heildarfjölda sem
lendir fyrir bílum í umdæmi lög-
reglunnar í Borgamesi. Þá beinir
fundurinn því einnig til samgöngu-
ráðherra að Vegagerðinni verði gert
skylt að girða með fram þjóðvegi 1,
frá Hvalfjarðargöngum að Holta-
vörðuheiði, svo og með fram öðrum
vegum þar sem umferð er 300 bilar
á dag eða meira að meðaltali yfir
sumartimann og að Vegagerðin
haldi þeim girðingum síðan við.
Theodór Kr. Þórðarson, lögreglu-
varðstjóri og formaður umferðarör-
yggisnefndar Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu og Akraness - UMBA , tók
að sér að koma erindinu á fram-
færi. -DVÓ
starfsmönnum til mikils ama. Akur-
eyrarhöfn lagði fyrir nokkru fram
uppboðskröfu í skipið vegna van-
goldinna hafnargjalda sem nema
um 1,5 milljónum króna. Fleiri aðil-
ar hérlendis munu eiga peninga
inni hjá útgerð skipsins, m.a. Stál-
tak, en þar er um rafmagnsreikn-
inga að ræða.
„Rússarnir svöruðu aldrei kröf-
um okkar um greiðslu hafnargjalda
og því fórum við fram á uppboð á
skipinu. Við eigum lögkröfu í skip-
ið og munum sjá til þess að það fari
ekki héðan fyrr en greidd hafa ver-
ið af því öll hafnargjöld," segir
Hörður Blöndal, hafnarstjóri á Ak-
ureyri. -gk
DV-MYND GK
Ryðdaliurinn Omnya
Skipiö fer ekki frá Akureyri fyrr en skuldir þar hafa veriö greiddar.
Fyrstur kemur
■
n
mikillar sölu á nýjum
y
búvéíum frá Ingvari Helgasyni hf.
wa
eigum við__________
notuðum búvélum
OPIÐ:
Mán.-fös. kl. 09-18
Sendum myndir af
notuðum vélum á
tölvupósti: skorri@ih.is
1. afborgun
apríl 2001.
Afhending
í dag
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
Véladeild
Netfang: veladeild@ih.is