Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Page 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viöskiptablaðiö
Rækjuverksmiðjan Miðfell:
Básafell á ný
meirihlutaeigandi
Fyrir nokkru keypti Básafell hf.
20% hlut Þormóðs ramma-Sæ-
bergs hf. í rækjuverksmiðjunni
Miðfelli hf. á ísafirði sem áður hét
Básafell. Þar með er Básafell hf.
komið með meirihlutaeign, eða
60%, en Hraðfrystihúsið-Gunnvör
hf. á 40% í rækjuverksmiðjunni.
Miðfell hf. hefur um eins árs
skeið verið með rekstur rækju-
verksmiðjunnar Sindragötu 1 á
ísafirði sem keyptur var af Bása-
felli hf. ásamt frystiklefa í Suður-
tanga. Þarna hefur verið starfrækt
rækjuverksmiðja um áratuga
skeið, fyrst undir nafninu O.N. 01-
sen, en til stofnenda hennar má
rekja upphaf rækjuveiða hér við
land. Má segja að þama hafi því
veriö vagga íslensks rækjuiðnað-
ar.
Þegar O.N. Olsen hf. var gert
upp á áttunda áratugnum hcifa
Rækjuverksmiöjan Miöfell hf.
Vagga íslensks rækjuiðnaöar aftur komin í meirihlutaeigu Básafells hf.
ýmsir aðilar komið að rækju- og
skelfiskvinnslu í húsinu, m.a.
Básafell hf. Við algjöra uppstokk-
un á Básafelli hf., sem fólst m.a. í
mikilli eignasölu, tók Miðfell við
rekstri rækjuverksmiðjunnar á
Sindragötu 1 í fyrra.
Stærstu hluthafamir í Miðfelli,
þegar rekstur rækjuverksmiðj-
unnar hófst í þess nafni á síðasta
ári, voru Hraðfrystihúsið-Gunn-
vör hf. með 30%, Básafell hf. með
30% og Þormóður rammi-Sæberg
hf. með 20% en nokkrir smærri
hluthafar áttu samtals 20%. Eins
og áður sagði standa nú tveir hlut-
hafar eftir, Hraðfrystihúsið Gunn-
vör hf. og Básafell hf., en Guð-
mundur Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri er nú aðaleigandi
þess fyrirtækis.
-HKr.
Hagnaður Sæplasts
fimm milljónir króna
Sæplast hf.
Hagnaður Sæplasts hf., móðurfé-
lags og dótturfélaga, var rúmar 5
milljónir króna eftir skatta fyrstu 9
mánuði ársins samkvæmt óendur-
skoðuðu milliuppgjöri félagsins.
Miðað við sex mánaða uppgjör
dróst hagnaðurinn saman um 18
m.kr.
Fyrir afskriftir og ijármagnsliði
var rekstrarhagnaður tæpar 210
m.kr. en var 132 m.kr. eftir níu
mánuði í fyrra. Hrein fjármagns-
gjöld voru 80 m.kr. en voru 33
m.kr. í fyrra. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Sæplasti.
Tekjur Sæplasts hf. og dótturfé-
laga í Kanada, Noregi og Indlandi
voru 1604 m.kr. fyrstu níu mánuði
ársins miðað við 683 m.kr. eftir níu
mánuði 1999 og 964 m.kr. allt árið
1999. Veltuaukning á milli ára er
því 135% enda gætir nú áhrifa dótt-
urfélaga Sæplasts í Noregi og
Kanada allt árið.
Eignir félagsins í lok september
voru 2200 m.kr. og höfðu hækkað
um rúmar 100 m.kr. frá áramótum
en á tímabilinu keypti félagið tvö
fyrirtæki, Nordic Supply
Containers og Atlantic Island ehf.
Eigið fé var 689 m.kr. og hafði
hækkaö um 19 m.kr. frá áramót-
um. Eiginfjárhlutfall samstæðunn-
ar var rúmlega 31%. Skuldir fé-
lagsins voru 1511 m.kr. og hafa
hækkað um 80 m.kr. frá áramót-
um. Veltufjárhlutfall þann 30. sept-
ember sl. var 1,72.
í sjóðstreymi kemur fram að
veltufé frá rekstri var tæpar 150
m.kr. fyrstu 9 mánuði ársins en
var 102 m.kr. á fyrstu 9 mánuðum
ársins í fyrra og 106 m.kr. allt árið
í fyrra.
Helsta ástæða þessa viðsnúnings
frá sex mánaða uppgjöri er fyrst og
fremst fali íslensku krónunnar en
gengistap félagsins á síðustu þrem
mánuðum nemur um 25 m.kr. I
öðru lagi hefur verið tap á rekstri
Nordic Supply Containers AS. en
félagið tók yflr þann rekstur í
mars sl. Búið er að loka þeirri
verksmiöju og sameina starfsem-
ina öðrum verksmiðjum í Noregi.
Kostnaður og tafir við yfirtöku á
Nordic Supply Containers hefur
raskað töluvert fyrri áætlunum
Sæplasts en mun skila sér á næsta
ári. í þriðja lagi hefur fallið til
töluveröur kostnaður á timabilinu
vegna sameiningar og hagræðing-
ar í Noregi.
Áætlanir félagsins vegna fjár-
festinga erlendis hafa að fullu
gengið eftir og mun áhrifa þeirra
þó ekki gæta að fullu fyrr en á
næsta ári. Afkoma félagsins verður
nokkru lakari en áætlanir gerðu
ráð fyrir vegna þeirra ástæðna
sem þegar hafa veriö nefndar. Gert
er ráð fyrir að hagnaöur Sæplasts
verði um 20 m.kr. á þessu ári og að
veltufé frá rekstri verði um 200
m.kr.
Dagvinnulaun hækka um 7,6%
Dagvinnulaun hafa hækkað að
meðaltali um 7,6% á tímabilinu frá
2. ársfjórðungi á þessu ári miðað
við sama tímabil í fyrra. Á sama
tíma hækkaði vísitala neysluverðs
um 5,7%. Samkvæmt því jókst
kaupmáttur dagvinnulauna um
1,8%. Launahækkun starfsstétta
var á bilinu 5,7% til 10,3% að með-
altali. Laun kvenna hækkuðu um
8,2% en karla um 7,2%. Laun á
höfuöborgarsvæði hækkuðu um
8,6% en laun utan höfuðborgar-
svæðis um 6,4%. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá Kjararann-
sóknarnefnd.
Kjarasamningar flestra launa-
manna á almennum vinnumark-
aði runnu út í febrúar sl. en all-
nokkur fjöidi kjarasamninga gildir
fram á síðasta fjóröung ársins.
Nýir kjarasamningar hafa tekið
gildi frá 1. febrúar og fram til
þessa tíma. Mismunandi gildis-
taka samninga og þ.a.l. mismun-
andi tímasetningar launahækkana
skekkir samanburð milli starfs-
stétta og einstakra starfsgreina á
2. ársfjórðungi og gildir það raun-
ar um allt árið 2000.
Almenn launahækkun þeirra
kjarasamninga sem gerðir hafa
verið á árinu var 3,9%, en sérstök
hækkun varð á lægstu launum.
Þeir kjarasamningar sem renna út
á síðasta fjórðungi ársins fólu í sér
3 til 3,5% hækkun launa um síð-
ustu áramót.
Meðalbreyting launa milli 2. ársfjórðungs í ár og
sama tímabils í fyrra
Starfsstétt Kyn
Almennt verkafólk 8,1 Karlar 7,2
Véla- og vélgæslufólk 6,9 Konur 8,2
Sérhæft verkafólk 8,7
Iðnaðarmenn 5,7
Þjónustu-, sölu- og afgreiðluf. 8,7 Svæði
Skrifstofiifólk 6 Höfuðtwrgarsvæðið 8,6
Tæknar og sérmenntað starfsfólk 10,3 Utan höfuðborgarsvæðis 6,4
Sérfræðingar 8,9 Allir 7,6
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
I>V
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 285 m.kr.
- Hlutabréf 135 m.kr.
- Spariskírteini 96 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Q Islandsbanki-FBA 30 m.kr.
Q Kaupþing 23 m.kr.
0 Opin kerfi 15 m.kr.
MESTA HÆKKUN
QBakkavör Group 5,1%
QKögun 3,9%
QEimskip 1,3%
MESTA LÆKKUN
©Eignarhaldsfélagið Alþýöub. 13,6%
©Marel 6,9%
©ÚA 3%
ÚRVALSVÍSITALAN 1361 stig
- Breyting O -1,05%
Hagnaður Hew-
lett-Packard langt
undir væntingum
Hagnaður Hewlett-Packard á
þriðja ársfjórðungi var langt undir
væntingum og féllu hlutabréf í fyr-
irtækinu í kjölfar þess. Minnkandi
hagnaður orsakaðist vegna óhag-
stæðrar gengisþróunar og kostnað-
arvandamála.
OPEC eykur ekki
olíuframleiðslu
að sinni
OPEC-ríkin ákváðu í gær að ekki
yrði tekin ákvörðun um að auka ol-
fuframleiðslu fyrr en um miðjan
janúar þrátt fyrir að olíuverð hefði
haldist hátt og vaxandi áhyggjur
væru af olíuskorti hjá iðnríkjum í
vetur.
Olíumálaráðherrar OPEC-ríkj-
anna hittust í Vín í gær. Niðurstaða
fundar þeirra var að fylgjast áfram
grannt með aðstæðum á markaðn-
um en að ekki væri þörf á að taka
ákvörðun um aukna olíuframleiðslu
fyrr en um miðjan janúar. „Við höf-
um þegar aukið framleiðsluna veru-
lega. Markaðurinn þarf tíma til að
meðtaka þá aukningu," sagði olíu-
málaráðherra Qatar.
Sdow jones 10517,25 o 0,86%
1 • ÍNIKKEI 14660,04 O 0,05%
HiUls&p 1351,26 O
(# NASDAQ 2966,72 O 0,62%
SSftse 6320,20 O 0,45%
~DAX 6793,25 O 0,51%
1 lCAC 40 6091,82 O 0,54%
físsm- 14.11.2000 M. 9.15
KAUP SALA
BSjPollar 86,810 87,250
SSPund 125,130 125,770
|*| Kan. dollar 56,220 56,570
2 Dönsk kr. 10,0230 10,0790
RjFjNorskkr 9,3480 9,3990
EgtSænsk kr. 8,6450 8,6930
!4Hn- mark 12,5686 12,6441
1 l'Fra. franki 11,3924 11,4609
P Bolg. frankl 1,8525 1,8636
[§! Sviss. franki 49,1700 49,4400
dÍHoll. gyllinl 33,9107 34,1144
”pýskt mark 38,2085 38,4381
■ Ih-Ura 0,03859 0,03883
ÚCSAust sch. 5,4308 5,4634
i; Port. escudo 0,3727 0,3750
S^Spé. peseti 0,4491 0,4518
pr'jap. yon 0,80510 0,80990
írskt pund 94,886 95,456
SDR 111,8400 112,5100
gECU 74,7293 75,1784