Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Page 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
JOV
FBI kölluö til
Deilurnar um forsetakosningarnar
bandarísku halda áfram í Flórída og
nú er alríkislögreglan í spilinu.
FBI beðin um að
líta á kosningar
Fulltrúar Als Gores, forsetaefnis
demókrata, hafa fariö fram á það að
bandaríska alríkislögreglan FBI
rannsaki hvernig á því standi að
þúsundir svartra stuðningsmanna
Gores hafi fengið atkvæðaseðla þar
sem þegar var búið að merkja við
andstæðing hans.
Demókratar segja að átt hafl ver-
ið við sautján þúsund atkvæðaseðla
á Miami-svæðinu og þeir kalla það
skipulagða spillingu. Fjöldi lögfræð-
inga er kominn til Flórída til að
taka niður framburð þeirra sem
halda því fram að þeir hafi verið
narraðir til að greiða Gore ekki at-
kvæði sitt.
Einn fulltrúa Gores sagði að til
þessa hefði verið talið að um mistök
væri að ræða.
Bandarísk at-
kvæði enduðu á
Fjóni í Danmörku
Þegar Helle og Brian Kain í Óð-
insvéum á Fjóni í Danmörku opnuðu
póstinn sinn síðastliðinn laugardags-
morgun fundu þau tvö umslög með
utankjörstaðaatkvæðum frá Banda-
ríkjunum. Hjónin höfðu pantað sjó-
kort frá Bandaríkjunum og héldu að
hin umslögin væru auglýsingar.
Hjónin hringdu í bandaríska sendi-
ráðið í Danmörku. Þar fengu þau
það svar að þetta skipti engu máli
þar sem úrslitin væru ljós. Þegar
Helle útskýrði að fjölmiölar vildu
vita hvað þau ætluðu að gera við at-
kvæðið var j>eim sagt að samtalið
væri óopinbert. Annar starfsmaður
vildi fá atkvæðin svo hægt væri að
senda þau til Bandaríkjanna.
Elísabet Englandsdrottning
Farsímar starfsmanna hringdu í
veislu fyrir tigna erlenda gesti.
Drottningin vill
ekki farsíma
Elísabet Englandsdrottning hefur
bannað starfsfólki sinu að ganga
með farsíma á sér, að þvi er tals-
menn hennar sögðu i gær. Breska
blaðið Sun greindi frá því að drottn-
ingin hefði sett bannið á eftir að far-
símar hringdu í veislu fyrir tigna
erlenda gesti.
Talsmaður hallarinnar sagði
þetta snúast um mannasiði. Aðeins
sérstakir starfsmenn fá að bera sím-
ana. Ekki var gefið upp hvort
drottningin sjálf ætti farsíma.
A1 Gore segir að lýðræðið sé í húfi:
Stuttar fréttir
Mikilvægt að öll
atkvæði séu talin
A1 Gore, forsetaefni demókrata,
lýsti því yfir í gær að lýðræði í
Bandaríkjunum væri í húfi þegar
hann sagðist ætla að berjast fyrir
því að hvert einasta atkvæði í Flór-
ída yrði talið. Lögmenn hans hafa
þegar farið fram á að yfirlýsing
embættismanns úr röðum repúblik-
ana um aö talningu verði hætt í
kvöld að íslenskum tíma verði felld
úr gildi.
Það var Katherine Harris, innan-
ríkisráðherra Flórídaríkis, sem til-
kynnti í gær að talningunni skyldi
verða lokið klukkan tíu í kvöld. Sú
ákvörðun gæti orðið til þess að Ge-
orge W. Bush, forsetaefni repúblik-
ana, færi með sigur af hólmi i for-
setakosningunum. Bush hefur tæp-
lega íjögur hundruð atkvæða for-
skot á Gore eins og málum er nú
háttað.
Lokafresturinn ákvarðast af lög-
um Flórída en demókratar segja aö
Harris geti framlengt hann ef hún
vilji. Endanleg niðurstaða fæst þó
ekki fyrr en á fostudag þegar taln-
Gore í Hvíta húsinu
At Gore, varaforseti og forsetaefni
demókrata, hitti fréttamenn á lóö
Hvíta hússins í gær og lýsti því yfir
aö hann kæröi sig ekki um aö vinna
forsetakosningarnar ef rangt væri
taliö. Því væri mikilvægt aö teija vel
hvert einasta atkvæöi.
ingu utankjörfundaratkvæða, sem
greidd voru erlendis, lýkur.
Dómari í Flórída sagöi i gær að
hann myndi úrskurða síðdegis í dag
um hvort lokafrestur innanríkisráð-
herrans ætti að standa eöur ei.
Bush og Gore fengu báðir 48,9
prósent þeirra tæpu sex milljóna at-
kvæða sem greidd voru í Flórída.
Kjörmenn Flórída, 25 að tölu, ráða
úrslitum um hvor þeirra verður
næsti forseti Bandaríkjanna.
Starfsmenn Bush þrýsta mjög á
það fyrir dómstólum að búið verði
að útidjá kosningamar á fostudag
og talskona Bush sagði að hann
myndi una úrslitunum sem þá
fengjust, hver sem þau væru.
„Þótt tíminn skipti miklu máli er
jafnvel enn mikilvægara að hvert
einasta atkvæði sé talið og talið
rétt,“ sagði Gore við fréttamenn.
í skoðanakönnun CBS og New
York Times kom fram að 72 prósent
Bandaríkjamanna eru viss um að
málið leysist í þessari viku eða þá
innan eins mánaðar.
Flóö í Svíþjób
Flóö er nú á götum bæjarins Arvika í Svíþjóö vegna hækkaös yfirborös í vatninu Glafsfjorden í kjölfar mikilla rigninga.
Yfirborö vatnsins hækkar enn og er nú 2,5 metrum hærra en venjulega. Lestarsamgöngur milli Noregs og nokkurra
sænskra bæja liggja niöri vegna vatnavaxtanna.
Barak segir það Palestínumanna að stöðva ofbeldið:
ísraelski herinn lokaði
Vesturbakkanum í morgun
ísraelskir hermenn reistu vegar-
tálma við byggðir Palestínumanna á
Vesturbakkanum i morgun í hefnd-
arskyni fyrir fjóra ísraela sem féllu
í átökum í gær, einhverjum blóðug-
asta deginum frá því átökin hófust í
lok september.
Liðlega fertug fimm barna móöir,
tveir ísraelskir hermenn og 26 ára
gamall flutningabílstjóri létu lífið í
skotárásum á Vesturbakkanum og
Gaza í gær. Alls hafa þá 214 manns
látið lífið frá upphafi átakanna,
langflestir þeirra Palestínumenn.
Fjórir Palestínumenn létust
einnig í gær. Tveir unglingar voru
skotnir til bana á Gaza, lögreglu-
þjónn á Vesturbakkanum og ung-
lingur sem særðist lífshættulega á
laugardag.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ehud Barak
Forsætisráöherra ísraels var vel
fagnaö á fundi gyöingaleiötoga.
ísraels, sem var í Chicago í gær á
fundi með gyðingaleiðtogum, ræddi
í síma viö hemaðarráðgjafa sína og
pólitíska aðstoðarmenn.
Barak sagði á fundi gyðingaleið-
toganna að það væri leiðtoga Palest-
ínumanna að binda enda á blóðbað-
ið á heimastjómarsvæðunum.
„Það er engin ástæða til að tala
neina tæpitungu. Við vorum tilbún-
ir að friðmælast og Palestínumenn
kusu átök,“ sagði Barak.
Palestínumenn saka ísraelska
herinn um óþarfa hörku I átökun-
um en ísraelar segjast aðeins vera
að verja hendur sínar.
„Leiðtogar Palestínumanna verða
að binda enda á ofbeldiö og koma
aftur á friði og ró. Við skulum gera
okkur ljóst að við verðlaunum ekki
ofbeldi," sagði Barak.
Hillary við útför Leuh
Hillary Clinton,
forsetafrú Banda-
ríkjanna og nýkjör-
inn öldungadeildar-
þingmaður, verður
viðstödd útfor Leuh
Rabin á morgun.
Leah, sem var
ekkja Yitzhaks
Rabins, fyrrverandi forsætisráð-
herra ísraels, lést af völdum krabba-
meins á sunnudaginn.
Lokuð inni í kæliklefa
Tveir Pakistanar voru handtekn-
ir í Danmörku í gær vegna meintr-
ar aöstoðar við þrjá þjófa sem að-
faranótt laugardags lokuðu 20 ára
ræstitækni inni í kæliklefa hjá
heildsala meö þeim afleiðingum að
hún beið bana. Þjófamir hafa viður-
kennt stuld á sígarettum fyrir um 10
milljónir íslenskra króna.
Steindautt samband
Fulltrúar 28 landa ákváðu í
Marseille i gær að leggja niður V-
Evrópusambandið. Halda á þó lág-
markssamvinnu í gangi.
Leitað við sjúkrabeð
Lögreglan í Indónesíu leitaði í
gær viö sjúkrabúð Suhartos, fyrr-
verandi forseta, að syni hans,
Tommy, sem dæmdur hefur verið í
fangelsi fyrir spillingu. Sonurinn
fannst ekki í lúxusvillu foðurins.
2 ára skotin í höfuðið
Tveggja ára stúlka var skotin í höf-
uðið fyrir utan blómabúð frænda
síns í Pollena Trocchia á Ítalíu á
sunnudaginn. Telpan lést í gær. Talið
er að hún hafi orðið fómarlamb
mafiuuppgjörs eða ránstilraunar.
Verkfall gegn Estrada
J' sér. Fulltrúadeild
spillingu. Þar með
verður réttað yfir forsetanum í öld-
ungadeildinni. Líklegt er talið að
réttarhöldin hefjist i. desember.
Vopnað rán á símalager
Talið er að vopnaðir ræningjar
hafi stoliö tugum þúsunda farsíma í
birgðageymslu í Stokkhólmi í gær.
Ræningjamir komust undan á bti-
um.
Viðurkenna handtöku
Vladimir Pútin
Rússlandsforseti er
að undirbúa undir-
ritun yfirlýsingar
um að Svíinn Ra-
oul Wallenberg hafi
verið fangelsaður
ólöglega í Sovétríkj-
unum og að hann
hafi dáið þar. Interfaxfréttastofan
greindi frá þessu í gær.
Blóraböggull
Njósnaforinginn Vladimiro
Montesinos í Perú segir í viötali viö
mexikanskt tímarit, sem birt var í
gær, að hann hafi veriö gerður að
blóraböggli og að Alberto Fujimori
forseti vtiji þagga niður í honum
endanlega. Montesinos er í felum í
Perú.