Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Side 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000____________________________________________________________________________________________
i I>V Útlönd
Rætt um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráðstefnu í Haag:
Agreiningur milli Banda-
I ríkjanna og Evrópulanda
Ágreiningur er kominn upp milli
Bandarikjanna og þjóða Evrópu um
hvemig fara eigi að því að draga úr
losun svokailaðra gróðurhúsaloft-
tegunda út í andrúmsloftið. Það lof-
ar ekki góðu fyrir loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna sem hófst í
Haag í Hollandi í gær og stendur
næstu tvær vikumar.
Fulltrúar 180 landa sem sækja
ráðstefnuna fengu ófagra lýsingu á
þvi sem koma skal komi iðnríkin
sér ekki saman um aðgerðir. Yfir-
borð sjávar mun hækka og fellibylj-
ir færast í aukana með þeim afleið-
ingum að margar smáeyjar munu
þurrkast út af yfirborði jarðar.
Strax á fyrsta degi ráðstefnunnar
varð þó ljóst að breitt bil er milli
Bandaríkjanna og Evrópu um
hvernig draga eigi úr losun eitur-
efna á borð við koldíoxíð sem marg-
ir vísindamenn telja að eigi sök á
hækkandi hitastigi á jörðinni.
Þjóðir Evrópusambandsins sögð-
Mótmæli í Haag
Andstæöingur hjarnorku lætur skoö-
un sína í Ijósi fyrir utan ráöstefnu-
höiiina í Haag í Hollandi þar sem
loftslagsbreytingar eru ræddar.
ust vilja að iðnríkin gerðu breyting-
ar á stefnu sinni í samgöngum og
orkumálum til að draga mætti úr
mengun í samræmi við það sem var
ákveðið á ráðstefnunni í Kyoto í
Japan fyrir þremur árum.
Vilja sveigjanleika
Fulltrúar Bandarikjanna sögðust
aftur á móti vilja mikinn sveigjan-
leika þannig að þau gætu keypt
mengunarkvóta af löndum sem
þurfa ekki á honum að halda, eins
og þróunarlöndunum.
„Þessi aðferð mun stuðla að ný-
sköpun og draga úr kostnaði," sagði
David Sandalow, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, á fundi
með fréttamönnum. „Við getum
ekki leyft okkur þann munað að
eyða dollurum, evrum eða jenum í
að berjast gegn loftslagsbreyting-
um.“
Takist fulltrúum á ráðstefnunni
ekki að komast að málamiðlun gæti
það gert að engu vonir manna um
að hrinda samkomulaginu frá
Kyoto í framkvæmd. Þar er kveðið á
um að á árunum 2008 til 2012 verði
dregið úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda um rúm fimm prósent miðað
við árið 1990. Þótt 180 þjóðir hafi
skrifað undir Kyoto-bókunina hafa
aðeins þrjátíu staðfest hana.
„Við þurfum að taka erflðar
ákvarðanir. Ef við drögum samn-
ingaviðræðumar á langinn og frest-
um því að taka ákvarðanir, eigum
við á hættu að þau markmið sem
við höfum sett munni renna okkur
úr greipum," sagði Jan Pronk, um-
hverfisráðherra Hollands og forseti
ráðstefnunnar, í ávarpi til fundar-
manna.
í Kyoto var ákveðið að draga úr
losun skaðlegra gróöurhúsaloftteg-
unda en tilgangur ráðstefnunnar í
Haag er að setja reglur um hvernig
það verði gert.
Stephen Hawklng
Hann hefur nokkrum sinnum fengiö
áverka en vill ekki segja hvernig
slysin hefur boriö aö höndum.
Harðneitar að
segja frá slysinu
Vinir vísindamannsins Stephens
Hawkings höfðu samband við lög-
reglu eftir að hann handleggsbrotn-
aði og fékk skurði í andlitið, að því
er breska blaðið Daily Mail greindi
frá í gær. Hawking, sem er bundinn
í hjólastól vegna taugasjúkdóms,
neitar að greina frá hvemig hann
fékk áverkana. Við eitt tilfelli kvaðst
hann þó hafa dottið úr stóinum.
Hawking hefur í annað sinn
kvænst Elaine, fyrrverandi hjúkr-
unarfræðingi sínum. Hawking yfir-
gaf fyrri eiginkonu sína, Jane, eftir
26 ára hjónaband. Þau eignuðust
þrjú börn.
Nútímaleg örkin hans Nóa
Martin Krog heitir maöurinn sem þarna losar keðju afgámi sem í voru nokkrir þeirra 22 gíraffa og þriggja
nashyrninga sem komu sjöleiöis til Suöur-Afríku álla leiö frá Spáni. Örkin hans Nóa, eins og gripaflutningaskipiö var
kallað, kom til Durban í gær eftir fjörutíu daga siglingu. Dýrin fóru til Spánar i október en þarlend stjórnvöld vildu ekki
hleypa þeim inn í landið og því ekki um annað aö ræöa en halda aftur heim til Afríku.
Kurteisin kostaði
skíðakennarann lífið
Breskur skíðakennari, sem var á
meðal þeirra 159 sem létust i elds-
voðanum i toglestinni við Kapran,
hafði látið eftir sæti sitt í næstu lest
á undan. Skíðakennarinn, Kevin
Challis, bjó í Salzburg ásamt austur-
rískri eiginkonu sinni, Christl. Að
sögn hennar lét Kevin fullorðna
konu fá sæti sitt við hlið átta ára
dóttur þeirra hjóna, Siobhan. Sagði
hann dótturinni að bíða eftir sér
uppi á fjallinu. Hann kom hins veg-
ar aldrei.
Samtímis því sem Siobhan beið
eftir foður sínum beið móðir ásamt
19 ára dóttur sinni eftir 8 ára göml-
um syni sínum. Þær höfðu farið
með lestinni á undan. Drengurinn
var í lestinni sem kviknaði í, ásamt
skíðaþjálfara sínum. Þeir fórust í
eldsvoðanum.
Sorg í Kaprun
Japönsk börn höföu fengiö skíöaferö
til Austurríkis í verölaun fyrir iöni viö
æfingar heima. Ættingjar þeirra
komu til Kaprun í gær.
Austurrískir björgunarmenn
höfðu í gær flutt lútamsleifar 66
lestarfarþega úr lestinni. Nær úti-
lokað er að bera kennsl á líkin en
reynt verður að gera það meö DNA-
rannsókn.
Rannsóknarmenn höfðu enn í
gær enga hugmynd um orsök elds-
voðans á laugardaginn. ívarúðar-
skyni vora ferðir þriggja toglesta
lagðar niður. Alls kyns hugmyndum
um orsök eldsvoðans hefur verið
varpað fram. Orðrómur hefur verið
á kreiki um að skemmdarverk hafi
veriö unnið og jafnvel að eldur hafi
komið upp vegna reykinga.
Farþegar gátu ekki opnað dyr
lestarinnar og engin slökkvitæki
voru í lestinni þar sem ekki var tal-
in nein hætta eldsvoða.
Ingiríður drottning jarðsett í dag:
Dómkirkjan í Hróars-
keldu í mildum litum
Mildir litir verða allsráðandi í
blómaskreytingunum þegar Ingiríð-
ur drottning verður borin til grafar
í dómkirkjunni í Hróarskeldu, hefð-
bundnum greftunarstað danskra
kónga, í dag. Ingiríður lést fyrir
viku, níræð að aldri.
Mikill fjöldi kóngafólks úr Evr-
ópu verður við jarðarförina i Hró-
arskeldu, enda er þetta fyrsta kon-
unglega jarðarförin sem eitthvað
kveður að í Evrópu síðan Díana
prinsessa var til grafar borin 1997.
Kista Ingríðar hefur legið á við-
hafnarbörum í Kristjánsborgarhall-
arkirkju þar sem rúmlega tuttugu
þúsund Danir hafa vottað henni
virðingu sína.
Vlð Hróarskeldudómklrkju
Útför Ingiríöar drottningar fer fram
frá Hróarskeldudómkirkju í dag.
.fyrir öll verkfæri
og þú kemur reglu á hlutina!
Öruggur staður fyrir
FEST0 verkfærin og
alla fylgihluti
SYSTEMlÖSkur.
..það sem
fagmaðurinn
notar!