Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Blaðsíða 15
14
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11, 105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Fer kringum eigin lög
Forsætisráðherra virðist sjá eftir að hafa lagt fram laga-
frumvarp um upplýsingaskyldu stjórnvalda og fengið það
staðfest á Alþingi. Að minnsta kosti sagði hann frá því á
hádegisverðarfundi sagnfræðinga um daginn, hvernig
hann fari kringum lögin og eyði áhrifum þeirra.
Davíð Oddsson lýsti því í smáatriðum, hvernig hann
fari að þessu. Hann skrifi minna niður, haldi síður dag-
bækur um gestakomur og láti ekki skrifa fundargerðir,
nema það sé beinlínis skylt. Hann talaði að vísu um
stjórnmálamenn almennt, en átti við sjálfan sig.
Að minnsta kosti hefur menntaráðherra þveröfug sjón-
armið. Björn Bjarnason skrifar allt hjá sér, stórt og smátt,
og birtir meira að segja á vefnum hugsanir sínar og frétt-
ir af samskiptum við annað fólk. Hann stundar opna
stjórnsýslu að hætti aldar tölvupósts og vefsíðna.
Forsætisráðherra sagði á fundunum, að fjölmiðlum sé
ekki treystandi fyrir upplýsingum. í skjóli innra griða-
bandalags fari þeir með getgátur, fullyrðingar og
brenglaðar fréttaskýringar, sem standi óhaggaðar, því að
ekki séu á boðstólum upplýsingar um hið gagnstæða.
Samkvæmt hugmyndafræði gegnsærrar stjórnsýslu er
einmitt komið í veg fyrir getgátur, fullyrðingar og
brenglaðar fréttaskýringar með því að loka ekki að hætti
Davíðs, heldur opna fyrir aðgang að opinberum gögnum
að hætti laganna um upplýsingaskyldu stjómvalda.
Forsætisráðherra dró hins vegar þá ályktun, að leynd-
arhyggja sín væri nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir
upplýsingaleka til fjölmiðla á viðkvæmu stigi málasýslu
hjá stjórnvöldum. Slíkur upplýsingaleki hefur að hans
mati ekki æskileg áhrif á niðurstöðu mála.
Þannig býr hann til rökfræðilega vítarunu, sem lítur
svona út: Fjölmiðlar fara með rangar fréttir, af því að þeir
hafa ekki aðgang að upplýsingum, sem stafar af þvi, að
slíkur aðgangur gæti spillt viðkvæmum málum með
vafasömum fréttum og því má ekki upplýsa fjölmiðla.
Erfitt er að sjá tilgang með undarlegri ræðu forsætis-
ráðherra á hádegisverðarfundi sagnfræðinga. Að minnsta
kosti þekkja þeir vítarunur, þegar þeir heyra þær og láta
sér fátt um finnast. Hins vegar er alltaf leiðinlegt, þegar
landsfaðir verður sér opinberlega til minnkunar.
í rauninni var hann að tala um allt annað mál, alkunna
þráhyggju sína út af því að hafa misst Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins í einkavæðingu til annarra aðila en voru
honum þóknanlegir, enda sagði hann sagnfræðingunum,
að fjölmiðlar hefðu farið með rangar fréttir af málinu.
Davíð Oddsson þykist vita sannleikann um þetta eins
og hann þykist vita sannleikann um meinta aðför nokk-
urra kaupsýslumanna að gengi krónunnar í sumar. Hann
geymir samt rökin fyrir sannleika sínum með sjálfum sér,
því að ekki sagði hann sagnfræðingunum frá þeim.
Eitt er að geta ekki dulið gremju sína út af öðrum gangi
mála en forsætisráðherra er þóknanlegur, en annað er að
ganga á fund sagnfræðinga og fara með lélega vítarunu
um, að ekki skuli láta fjölmiðla og sagnfræðinga hafa upp-
lýsingar, af því að fjölmiðlar flytji rangar fréttir.
Þetta gerist þegar menn hafa árum saman lifað innan í
eins konar einkablöðru með dansandi jámenn kringum
sig, syngjandi hrifningar- og lofsöngva. Þá geta menn bil-
að á þann veg, að þeir telji sig óskeikula og missi tök á
nauðsynlegri rökhyggju í framsetningu mála.
Verst er, að leyndarþrá forsætisráðherra rýrir aðgang
sagnfræðinga að opinberum gögnum, þegar þeir gera upp
atburðarás stjómmálanna á valdaskeiði hans.
Jónas Kristjánsson
DV
Kúariðu frá Noregi?
„Það er mikil ábyrgð sem hvílir á þeim mönnum sem láta sér detta í hug að flytja
hingað stórhœttulega dýrasjúkdóma sem smita fólk. Nógu erfitt er að eiga við sjúk-
dóma sem berast með fólki. “
Ég hélt að við hefðum
fengið nóg af tilraunum með
innflutning á húsdýrum,
allt í skjóli þess að við vær-
um að bæta stofnana og
auka afköst af þeirra afurð-
um. Á fyrri hluta tuttugustu
aldarinnar uppgötvaðist hér
í kúm hin illræmdi klauf-
dýrasjúkdómur gin- og
klaufaveiki. Bruggðist var
hárrétt við og kúnum slátr-
að, þær voru svo urðaðar
sunnan Vatnsmýrarinnar í
Reykjavík, þar sem nú er Reykjavík-
urflugvöllur. Ekki er mér kunnugt
um að þessi sjúkdómur hafí komið
upp síðan en heldur fór ver er nokkr-
ir hrútar voru fluttir inn á fjórða
áratug þessarar aldar. Þeir voru
geymdir í Engey, sem átti að vera
nokkurs konar plateinangrun.
Svo kom riðuveikin
Þetta reyndist okkur dýrkeypt, þar
sem hrútamir báru með sér iilvíga
lungnapest, svokallaða mæðuveiki
(karakúlpest). Hún barst um ailt land
hægt og bítandi svo engin ráð voru til
að hefta hana, byggðar voru margir
tugir kílómetra af tvöföldum gadda-
vírsgirðingmn, svokölluðum
mæðuveikigirðingum, en
ekkert dugði. Sett voru upp
tvöfold hlið á alla þjóðvegi
og vörður settur við hliðin,
þetta kostaði oíijár.
Sennilega hefur verið
búið að farga öllu fé lands-
manna til skiptis er fjár-
skiptin frægu urðu upp úr
1950, þegar veikin lét undan
síga. Svo kom hin fræga
riðuveiki, sem hefur orðið
mörgum bóndanum sár og
dýr, því þar dugði ekkert nema niður-
skurður á öllu sauðfé viðkomandi
bæja og þeirra bæja er höfðu samband
við sýktu svæðin. Riðuveikin er ekki
horfin og kannski engin von um að
komast fyrir hana.
Alls konar vægari sjúkdómar hafa
örugglega komist til landsins sem vís-
indamenn okkar vita betur um, svo
sem fisksjúkdómar, kláðapest og húð-
sjúkdómar sem borist hafa með út-
lendum fjósamönnum og svo mætti
lengi telja.
Mikil ábyrgð
Nú hefur landbúnaðarráðherra leyft
innílutning á fósturvísum úr kúm frá
Noregi. Sama daginn og landbúnaðar-
ráðherra tilkynnir þetta kemur í ljós
að kúariða er komin upp í Noregi.
Allavega hefur maður í Osló dáið úr
sjúkdómnum, sem smitast frá riðu-
veiki úr kúm í menn. Þessi sjúkdómur
hefur orðið mannskæður í Bretlandi og
einnig komið upp í Frakklandi.
Ef íslendingar gengju í ESB hefðu
þeir ekkert um það að segja þótt kjöt
frá Bretlandi yrði flutt hingað, við sæt-
um alveg við sama borð og aðrar þjóð-
ir í ESB. Það er alveg á hreinu að ef
farið væri að slaka á innflutningi á
skepnum og afurðum þeirra ættum við
innan fárra ára við sama vandamál að
stríða og þessar þjóðir sem tilheyra
ESB. Þrátt fyrir að allan útbúnað út-
lendra veiðimanna eigi að sótthreinsa
við komuna til landsins hafa ailtaf
öðru hvoru borist hingað fisksjúkdóm-
ar með þeim.
Það er mikil ábyrgð sem hvílir á
þeim mönnum sem láta sér detta í
hug að flytja hingað stórhættulega
dýrasjúkdóma sem smita fólk. Nógu
erfitt er að eiga við sjúkdóma sem
berast með fólki. Læknar hafa kvart-
að um að hingað berist smitsjúkdóm-
ar sem nær engin meðul vinna á.
Hvers vegna þá að leika sér með til-
raunaeldi sem engin sér fyrir hvem-
ig endar? Karl Ormsson
Kirkja í björtu ljósi
messu i Hallgrímskirkju á
hverjum sunnudegi en
miklu fleiri á stórhátíðum.
Tónleikar í kirkjunni era
fjölmargir og fjölsóttir. Fyr-
irlestrar og fræðslustarf við
hæfi ólíkra hópa er meðal
þess sem kirkjan býður upp
á vetrarlangt. Myndlistar-
sýningar eru ávallt í and-
dyrinu og stendur hver
þeirra yflr um þriggja mán-
aða skeið. Biblíufélagið er
þar með bóksölu. Leik- og
danslist bregður fyrir.
AA-samtökin hafa sitt athvarf í
Hallgrímskirkju eins og í mörgum
öðrum kirkjum, starf er fyrir aldr-
aða, samverumorgnar fyrir unga for-
eldra auk hins öfluga barna- og kór-
astarfs. í þessu guðshúsi er með öðr-
um orðum fullt af fólki frá morgni til
kvölds alla daga vikunnar. Kirkjan
er öllum opin og starfsfólkið er ein-
valalið.
Húsameistari ríkisins: ekki meir
Þessari fjölnýtingu, aðdráttarafli
og lotningu var sannarlega ekki spáð
meðan kirkjan var i byggingu og um
fá hús hefur verið meira og lengur
deilt. Listamenn létu hana kenna á
penslum sínum og pennum. Tuminn
varö eftirlæti skopteiknara. Steinn
Steinarr orti í orðastað Hallgríms:
„Húsameistari ríkisins: ekki meir,
ekki meir“. Húsameistcui var Guð-
jón Samúelsson.
Ég var lengi þeirrar skoðunar að
flest verk Guðjóns Samúelssonar
væra betri arkitektúr en þessi kirkja.
Mér þótti hún þunglamaleg að ytra
útliti þótt klassísk formfegurð innan
dyra dyldist mér ekki. Vondan hljóm-
Steinunn
Jóhannesdóttir
rithöfundur
burð skrifaði ég á reikning
Guðjóns, þar til loksins kom
hljóðkerfi sem flytur hið tal-
aða orð út í hvem krók og
kima. Og ég undraðist alla
þessa túrista sem sífellt
vora að reyna að ná trölla-
kirkjunni á mynd, eins og
Hallgrímskirkja væri Eiffel-
tum íslands, Hvíta húsið,
Gullfoss eða Geysir.
Magnaðasta bygging
________á landinu
Á Ijósahátið i menningar-
borginni Reykjavík kviknaði á skiln-
ingsljósinu. Finnsk listakona valdi
Hallgrímskirkju sem grunnflöt
myndsköpunar sinnar. Þegar vetrar-
myrkrið var skollið á varpaði hún
finnskum sumarhimni á kirkjuna
nokkur kvöld.
Önnur kvöld var kirkjan upplýst
með teikningum sem minntu á
ókennilegar kynjaskepnur aftan úr
öldum. Kirkjan stóð böðuð í björtu
ljósi. Rauð drekaaugu í turninum.
Áhrifm voru undraverö.
Og loksins sá ég það sem allir
þessir útlendingar virðast sjá. Hall-
grímskirkja er hvorki falleg né ljót.
Hallgrímskirkja er eins og náttúra-
fyrirbæri í stíl við tilkomumestu
fossa landsins og fjöll. Engin kirkja í
veröldinni lítur svona út. Hún er há-
tindurinn á höfundarverki Guðjóns
Samúelssonar. Teikningin særð upp
úr sagnadjúpinu. Landið fært í stíl-
inn. I Hallgrímskirkju tókst Guðjóni
Samúelssyni að skapa séríslenskan
helgidóm þar sem guðstrú og þjóðtrú
mætast í mögnuðustu húsbyggingu á
íslandi..
Steinunn Jóhannesdóttir
Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti
hefur geysilegt aðdráttarafl á flesta
sem koma til Reykjavíkur. Árlega
heimsækja kirkjuna 100 þúsund
ferðamenn. Á hverjum degi árið um
kring má rekast á erlenda túrista á
nálægum götuhornum við mynda-
töku af hinu turnháa húsi. Þeir sem
inn í kirkjuna koma hrífast mjög af
fegurð og tign kirkjuskipsins. Birtan
þar inni er mörgum undrunarefni.
Sumir setjast andartak á bekkina I
leit að kyrrð í erli dagsins. Þeir sem
eru heppnir fá að heyra organistann
æfa sig á eitthvert eftirsóttasta
konsertorgel í Evrópu. Flestir ganga
þögulir undir hvelftngunum, aðrir
tala í hálfum hljóðum til þess að rjúfa
ekki þá helgi sem þeir skynja um leið
og þeir koma þar inn fyrir dyr.
Fullt frá morgni til kvölds
Þrátt fyrir klifanir fjölmiðla um
tómar kirkjur sækja 200-400 manns
„Hallgrímskirkja er hvorki falleg né Ijót. Hallgríms-
kirkja er eins og náttúrufyrírbœri í stíl við tilkomu-
mestu fossa landsins og fjöll. Engin kirkja í veröldinni
lítur svona út. Hún er hátindurinn á höfundarverki
Guðjóns Samúelssonar. “
Með og á móti
iirtnrunji
Iphia 76ers að rísa upp á ný?
Frábært varnarlið
Það hefur mikil
endurnýjun átt
sér stað hjá Phila-
delphia 76ers á
undanförnum. ár-
um. Nýir eigendur komu inn
f reksturinn fyrir fjórum ár-
um og með þeim urðu
straumhvörf í hugsunarhætti
allra þeirra sem að liðinu
koma.
Þeir réöu hinn snjalla
þjálfara Larry Brown tO liðs-
ins og hann tók til við að skipta al-
gjörlega um lið. Brown fékk til sín
leikmenn sem eru tilbúnir að berjast
fyrir liðið enda er það svo að
liðsheildin er sterkasti hluti
liðsins ásamt vamarleiknum
sem er hreint út sagt frábær.
Liðið hefur verið að bæta sig
jafnt og þétt undanfarin ár og
nú er svo komið að það er
borin mikil virðing fyrir því.
Byrjunin í ár hefur verið frá-
bær og liðið er svo sannar-
lega komið á kortið. Eina
vandamálið hjá Philadelphia
76ers er að sóknarleikurinn á
það til að vera svolítið hugmynda-
snauður en liöið hefur alla burði til
að ná langt í ár.
Friörik ingi
Rúnarsson,
landsliösþjálfari í
körfuknattleik
Byrjunin skiptir engu
Það skiptir í
;; KH ' raun sáralitlu
JHUr 1 máli þó að Phila-
f delphia 76ers hafi
byrjað vel í ár.
Mörg önnur lið hafa byrj-
að vel undanfarin ár en gef-
ið eftir þegar líða hefur tek-
ið á keppnistímabilið. Þeir
hafa treyst á Allen Iverson
undanfarin ár og hefur hann
verið að gera hlutina að
mestu leyti upp á eigin spýt-
ur.
Aðrir leikmenn liðsins eru
Otarr Magni
Jóhansson,
stjórnarmaöur í
körfuknattleiksdeild
KR
ekki
nægilega góðir til þess að koma því í
hann
vetur
fremstu röð. Ég tel önnur lið í
Atlantshafsdeildinni vera
mun sterkari. New York
Knicks er með sterkasta liðið
í þessari deild og ég sé ekki að
Philadelphia 76ers eigi eftir að
vinna Atlantshafsdeildina og
þaðan af síður NBA-titilinn
sjálfan. Til þess hefur liðið
ekki nægilega góðan mann-
skap.
Þeir treysta allt of mikið á
Allen Iverson og þó hann sé
góður leikmaður þá getur
ekki borið liðiö uppi í allan
einn og óstuddur.
NBA-delldin í körfuknattleik er hafin og er engum blööum um þaö aö fletta að árangur Philadelphia 76ers hefur vakiö mesta athygli þaö sem af er þessu
keppnistímabili. Liöiö, sem hefur veriö í öldudal síöustu ár, hefur unnið sjö fyrstu leiki sína og spurningin er hvort þess tími sé kominn á ný.
Álver á Reyðarfirði
„Mér blandast ekki
hugur um að staðsetn-
ing álvers á Reyðar-
firði er góður kostur
og það ætti að geta
orðið öflugt fyrir-
tæki...Það yrðu mér
vonbrigði yrði ekkert
úr framkvæmdum fyrir austan en
menn vita að í þessum hlutum eru
margir óvissuþættir þar til á lokastig
er komið. Bregðist hins vegar eitthvað
nú geta fleiri samstarfsaðilar en
Hydro komið til greina."
Jóhannes Norödal, fv. seölabanka-
stjóri, í Mbl.-viötali 12. nóvember.
Langt í hlutleysið
„Lykillinn að því að
búnar séu til trúverð-
ugar fréttir er að
menn geri sér grein
fyrir því að þær geta
aldrei orðið fullkom-
lega hlutlausar. Frétta-
menn verða alltaf að
stefna að hlutleysi en það er takmark,
sem þeir munu aldrei ná. Það eru all-
ir haldnir ákveðnum fordómum sem
þarf að reyna að gera sér grein fyrir
og yfírvinna. Það er sjálf sóknin í að
höndla þetta hlutleysi sem aldrei verð-
ur fangað sem gerir menn að góðum
fréttamönnum."
Páll Magnússon, fyrrv. fréttastjóri
Stöövar 2, í viötali í Degi 11. nóv.
Þ j óðf élagsmein
„Samkvæmt upplýsingum sem fram
komu á síðasta ári má ætla að um
þúsund íslendingar eigi nú við sjúk-
lega spilafíkn að stríða...Einnig liggja
fyrir upplýsingar um að sífellt fleiri
sjúklingar sem koma til meðferðar
vegna áfengissýki eigi einnig við
spilafíkn að stríða. Spilafikn er
þannig óumdeilanlega orðin þjóðfé-
lagsmein sem kemur allri þjóðinni við
og sameinuð á þjóðin að bregðast við
þessum vanda.“
Ögmundur Jónasson alþingismaður
í Mbl. 11. nóv.
Fjölmiðlafælnari
„Við höfum verið að
búa til lista yfir konur
sem hafa vit á ákveðn-
um þáttum, bæði í viö-
skiptum, stjórnmálum,
íþróttalífi o.fl., og fjöl-
miðlamir geti gehgið
að þessum upplýsing-
um og nýtt betur þekkingu kvenna á
tilteknum þáttum. Konur eru íjöl-
miðlafælnari en karlar, þó kannski
síður konur sem eru í stjórnmálum,
en við erum ekki duglegar að ásækja
fjölmiðla með okkar efni.“
Arnbjörg Sveinsdótti.r, þingmaöur á
Austurlandi, í Degi 11. nóvember
27
Skoðun
Ekki kenna mer um þetta!
- Eg talcii ekki atkvœðin.
JíSttS,
Er komið nýtt
hagkerfi?
Ágætur ráðherra sagði
fyrir nokkru að hér á ís-
landi væri komið „nýtt hag-
kerfi“. Þetta era orð að
sönnu og gefa tilefni til
hugleiðinga.
Fyrirtækið ísland
Efhahagskerfi okkar hér
á landi er varla stærra en
rekstur á góðu fyrirtæki er-
lendis. Mörg erlend stórfyr-'
irtæki hafa jafn marga eða
fleiri í vinnu og alla vinnu-
færa Islendinga. Það er þvi
vafasamt að tala um hagkerfi á ís-
landi. Það má frekar tala um það að
ísland lúti sömu lögmálum og stórt
fyrirtæki. Hér hefur í rauninni varla
verið hagkerfi. Þegar við vorum ein-
angraðir má segja að hér hafi verið
lokað dverghagkerfi.
Um leið og opnað er fyrir fijálsa
verzlun og frjálsa fiárfestingu hverfur
þetta gamla dverghagkerfi okkar og
við tekur ástand sem varla er hægt að
kalla „nýtt hagkerfi". Alþjóðlegur
straumur peninga og frjálsrar verzl-
unar hrífur okkur með sér.
Dæmið frá Svíþjóð
Fyrir nokkrum árum vora Svíar
enn utan ESB. Þá var þar stjóm
hægrimanna. Þeir réðu ekki við það
verkefni að marka Svíþjóð stöðu
gagnvart hagkerfi ESB í Evrópu.
Samt era Svíar næstum 40 sinnum
fleiri en við og höfðu því hagkerfi
sem var 40 sinnum stærra en dverg-
hagkerfi okkar. Þetta eru áætlaðar
hlutfallstölur. Svíar fóru í gegnum
bankakreppu á þessum árum. Mörg
smærri fyrirtæki urðu gjaldþrota.
Verð fasteigna féll. Erfitt eða ómögu-
legt var að hafa stjórn á gengi
sænsku krónunnar. Menn reyndu að
krukka í gengið en urðu að gefast
upp. Ríkisstjómin fór frá.
Þegar sænska vinstristjómin tók
við, sem í voru í rauninni jafnaðar-
menn einir, varö á þessu breyting.
Jafnaðarmenn studdust fyrst við
smáflokk á miðju stjómmálanna en í
dag hafa þeir samið til vinstri við
gamla kommaflokkinn endurfædd-
an. Þar ráða nú öllu róttækar kven-
réttindakonur. Svo er líka samið
núna við flokk umhverfissinna.
Eini kostur Svía
Svíar hafa gengið í ESB. Þetta
gekk upp með vinstristjóm jafnaðar-
manna. Samt var andstaðan mikil og
mest utan stóru borganna.
Segja má að fólkiö í þéttbýl-
inu hafi talið inngöngu Svía
í ESB eina kostinn. Annað
hafi ekki verið unnt að gera
í stöðunni.
Með inngöngu Svía í ESB
færðist ró yfír sænska hag-
kerfið. Þeir náðu aftur tök-
um á að stjóma því. Það má
þó frekar segja að Svíar
hafi gefist að hluta upp á
sínu eigin smáhagkerfi,
sem var þó um 40 sinnum
stærra en okkar (svona
gróft reiknað). í staðinn urðu þeir
nátengdir hagkerfi ESB. Það hag-
kerfi nær í dag yfir alla Vestur-Evr-
ópu. Þar eru Svíar aðeins hluti af
stærra dæmi.
Afleiðingarnar voru fljótar að
koma í ljós. Sænska krónan hætti
sem algjörlega frjáls sænskur gjald-
miðill. Hún er núna í rauninni part-
ur af evrusvæðinu, þótt nokkur tími
muni líða þar til Svíar taka upp evr-
una sjálfa. Vextir lækkuðu fljótlega
um helming og urðu um 50% af því
sem var nokkru áður. I dagblaði
mátti sjá bílalán auglýst með tæp-
lega 5% vöxtum. Venjuleg slík lán
eru þó örlítið hærri.
Hér á landi eru vextir bflalána
enn allt að 15-20%, sem er þó toppur-
inn. Verðbólga fór í Svíþjóö niður í
ekki neitt með inngöngu í ESB. Hér
er hún vaxandi og ekkert lát á. Með
inngöngu í ESB náðu Svíar að fljóta *'
með í efnahagsþróun Evrópu, en
voru annars að einangrast með
vandmál sín.
Erfið staða íslands
Með þessum skrifum er ekki verið
að mæla með því að ísland gangi í
ESB. Síður en svo. Það er einungis
verið að reyna að útskýra að erfitt er
fyrir smáþjóðir að fóta sig, t.d. í
gengismálum og fleiru eins og heim-
urinn er i dag.
Við höfum EES-samninginn og
erum þannig með i þróun Vestur-
Evrópu. Á hinn bóginn er varla hægt
að kalla stöðu okkar „nýtt hagkerfi“.
Það er þó virðingarverð tilraun til
þess að útskýra málið. ^
Það má frekar segja að við höfum
misst stjóm á okkar gamla dverg-
hagkerfi. Það var lagt niður endan-
lega þegar við gengum í EES. í stað-
inn hefur ekkert komið og okkur
rekur stjórnlaust. Fjármagnið hefur
tekið öll völd og er að hluta erlent.
Þetta er ferð án fyrirheits og enginn
veit hvar hlutimir enda hjá okkur.
Það er verkefni nýrrar stjórnar aö
marka skýrari stefnu ef núverandi
stjóm gerir það ekki. Þjóðir verða að
reyna að ráða örlögum sínum sjálfar
ef þær ætla að halda fjárhagssjálf-
stæði, tungu og menningu sinni.
Lúðvík Gizurarson
„TJm leið og opnað er fyrir frjálsa verzlun og frjálsa
fjárfestingu hverfur þetta gamla dverghagkerfi okkar
og við tekur ástand sem varla er hœgt að kalla „nýtt
hagkerfi“. - Alþjóðlegur straumur peninga og frjálsrar
verzlunar hrífur okkur með sér. “
Lúðvik
Gizurarson
hæstréttariögmaöur