Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 37V
3DV Tilvera
Englarnir gáfu
ekkert eftir
Englar Charlies var aðra
vikuna í röð vinsælasta
kvikmyndin í Bandaríkjun-
um og hélt efsta sætinu þrátt
fyrir að frumsýndar væru
þrjár stórar myndir, Little
Nicky, Red Planet og Men of
Honor. Little Nicky er
nýjasta kvikmynd Adams
Sandlers þar sem hann leik-
ur einn af sonum Satans,
þann þeirra sem þykir of
góðhjartaður til að þrífast í
ríki föður síns og er sendur í
mannheima tif að fá þjálfun í illsku.
Myndin fékk ekki góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum frekar en Red Planet
sem segir frá strönduðum leiðangri á
Mars. Er þetta önnur myndin á þessu
ári sem gerist á Mars og fer undir
hnífinn hjá gagnrýnendum, sú fyrri,
Mission To Mars, fékk litlu betri við-
tökur. Þriðja myndin, Men of Honor,
fær mun betri umfjöllun og er sögð
verða heit þegar kemur að óskarstil-
nefningum. Er einnig búist við að hún
eigi eftir að gera það gott á almennum
markaði. í þeirri mynd leika Robert
DeNiro og Cuba Gooding aðalhlut-
verkin. Vert er svo að lokum að benda
á gengi bresku myndarinnar Billy
Elliott sem hægt og bítandi klifrar
upp listann og er verið að fjölga sýn-
ingarsölum í viku hverri.
HELGIN 10. til 12. nóvember
ALLAR UPPH£ÐIR í ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.I
FYRRI INNKOMA FJÖLDI
SÆTI VIKA TITILL HELGIN : ALLS: BÍÓSALA
© 1 Charlie’s Angels 24.600 75.000 3037
© _ Little Nicky 16.100 16.100 2910
© _ IVIen of Honor 13.300 13.300 2092
O 2 Meet the Parents 10.300 130.000 2697
Ö _ Red Planet 8.700 8.700 2703
© 3 The Legend of Bagger Vance 6.300 20.900 2162
© 4 Remember the Titans 5.200 103.800 2641
o 7 Pay It Forward 3.000 29.400 2005
o 13 Billy Elliot 2.600 5.800 494
© 6 Bedazzled 2.500 34.600 2137
© 8 The Little Vampire 2.300 13.000 1892
© 5 Book of Shadows: Blair Witch 2 1.900 25.100 2411
0 11 Best In Show 1.200 12.900 477
© 10 The Legend of Drunken Master 0.700 11.000 888
© 9 Lucky Numbers 0.700 9.000 1640
© 12 The Contender 0.600 17.100 653
© 14 The Exorcist 0.300 39.200 455
© 18 Almost Famous 0.300 31.000 267
© _ Cyberworld 0.300 2.200 33
© _ Requiem for a Dream 0.200 1.000 35
Julia heldur
efsta sætinu
Erin Brockovich er vin-
sælasta myndin á myndbanda-
leigum aðra vikuna í röð og
fátt sem bendir til þess að hún
muni láta sæti sitt af hendi.
Það er helst að samkeppnin um
toppinn komi frá vinsælli ung-
lingamynd, Three to Tango,
sem kemur út í þessari viku.
Fjórar nýjar kvikmyndir koma
inn á listann þessa vikuna.
Fyrst ber að telja unglinga-
hrollvekjuna The Skulls sem
fer beint í þriðja sæti listans.
FjaUar hún um bekkjarfélag i
háskóla sem ekki er
fyrir hvern sem er að
vera í. Þar gerast
óhugnanlegir atburðir
sem kosta suma lífið.
The Million Dollar
Hotel, sem er í ellefta
sætinu, er nýjasta
kvikmynd Wims
Wenders. Þykir hon-
um oftast hafa tekist
betur upp, meðal ann-
ars í Buena Vista
Social Club, sem sýnd
er í Bíóborginni við
miklar vinsældir. Þá
eru einnig nýjar:
Superstar, farsi um
háskólastelpu sem tel-
ur það eitt duga til
vinsælda að verða
þekkt leikkona, og
Póémon: fyrsta 'mynd-
in sem er um litlu
krílin sem vinsæl eru
hjá krökkum um allan
heim.
i >i m ihi SJL- ■*? ■'
. * :‘9h ..JSs i: „
fom k í
c _ \ , \
The Skulls
Unglingahrollvekja sem kemur ný inn á list-
ann í þriöja sætiö.
vihan 7. iíi 13. nóv.
FYRRI VIKUR
SÆTI VIKA TmLL (DREIFINGARAÐILI) Á USTA
© 1 Erin Brockovich (skífan) 2
© 2 Deuce Bigalow isam myndböndi 4
© _ The Skulls (sam myndbóndi 1
O 5 The Ninth Gate isam myndbönd) 2
0 3 Englar alheimsins (háskólabíö) 4
© 4 Mission To Mars (myndformi 3
© 6 The Story of Us isam myndbönd) 3
© 10 Boys Don’t Cry iskífan) 4
O 8 Stúart litli (skífan) 3
© 7 Any Given Sunday (skífan) 5
0 _ Million Dollar Hotel skífan) 1
© 9 Down To You (skífan) 5
© _ Superstar isam myndböndi 1
© 12 Being John Malkovich (hAskólabíó) 7
M _ Pókémon Fyrsta myndin (sam myndbónd) 1
© 11 Boiler Room (myndformi 5
© 13 Girl, Interrupted (skífan) 9
© 14 The Hurrlcane isam myndböndi 9
© _ The Talented Mr. Ripley (skífan) 9
© 18 Simpatico ibergvík) 8
Verkfall kennara í framhaldsskólum:
Stór hópur flýr í önn-.
ur störf á hverju ári
- meðalaldur kennara er alltaf að hækka vegna þess að nýliðun er lítil
Yfirbragðið á kennarstofu Fjöl-
brautaskólans í Ármúla var heldur
dauft á morgunverðarfundinum í
gær. Að sögn Fjólu Margrétar Björg-
vinsdóttur skrifstofustjóra er það
ekki skrýtið þar sem einungis tíu
starfsmenn voru í húsinu. „Það eru
yfirleitt nfu hundruð manns í skól-
anum á hverjum degi þannig að
þetta hefur oft verið líflegra." Auk
Fjólu voru á fundinum Ingibjörg
Jónsdóttir fulltrúi, Ragna Guð-
mundsdóttir bókasafnsfræðingur og
Guðrún Narfadóttir kennari. Þær
stöllur vildu sem minnst láta eftir
sér hafa um verkfallið en voru
hræddar um að það yrði langt og að
önnin mundi eyðileggjast fyrir nem-
endum.
,DV-MYNDIR V. HANSEN
Ámúla
Verkfallsveröir og starfsmenn Fjölbrautaskólans
Fjóla Margrét Björgvinsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir fulltrúi, Ragna Guömunds-
dóttir bókasafnsfræöingur og verkfallsveröirnir Jóhann Teitur Ingólfsson og
Einar Valur Ingimundarson.
Kennarar farnir að huga að
öðrum störfum
Einar Valur Ingimundarson og
Jóhann Teitur Ingólfsson, kennarar
úr MH, voru á verkfallsvakt í gær-
morgun. „Við eru búnir að fara á
milli nokkurra skóla í morgun og
höfum ekki séð einn einasta mann,
sem ekki á að kenna, við kennslu.
Samstaðan hjá kennurum er mikil
og stemningin er góð. Við höfum
mestar áhyggjur af því hve margir
verða eftir þegar verkfallinu lýkur.
Kennarar eru nú þegar farnir að
tala um að hætta og gera eitthvað
annað ef ástandið batnar ekki fljót-
lega. Það er mikið af öðrum störfum
í boði og menn nenna þessu ekki
lengur. Við teljum að ríkið sé að
leika sér að eldinum, hvernig á að
manna skólana ef stór hópur kenn-
ara flýr í önnur störf á hverju ári?
Kennarahópurinn er alltaf að þynn-
ast og á hverju ári reynist erfiðara
að fá fólk.
f haust var ráðið mikið af stunda-
kennurum til að fylla í skörðin og
stór hópur þeirra er kennarar sem
komnir eru á eftirlaun og gera þetta
vegna þess að þeir lifa ekki á eftir-
laununum. Það er verið að dekka
30% af allri framhaldsskólakennslu
með yfirvinnu, ekki vegna þess að
kennarar vilji yfirvinnu heldur,«'
vegna þess að það vantar fólk.
Lítil nýliðun í kennarastétt-
inni
„Ef þaö verða ekki gerðir viðun-
andi samningar núna má búast við
að það hætti margir í vor. Kennarar
sætta sig ekki við sömu niðurlæg-
inguna og í samningunum 1997.“
Einar Valur segist vita til þess að
ungt fólk, með fjögurra ára háskóla-
nám að baki, hafi hreinlega fengið
sjokk þegar það fékk fyrsta launa-
seðilinn fyrir kennslu. „Þetta fólk
stoppar stutt við og fær sér önnur
störf. Meðalaldur kennara er alltaf
að hækka vegna þess að nýliðun er^-
lítil sem engin og siðustu tíu árin
erum við búnir að missa af hæfu
fólki úr kennslu vegna launanna."
í þessum töluðu orðum segjast
þeir félagar þurfa að halda vaktinni
áfram því að þeir séu ekki búnir
með rúntinn og drífa sig af stað.
Enginn mættur
Kennarastofan í Vélskóla íslands var mannlaus þegar verkfallsveröir litu þar
inn í gærmorgun.
Karl Bretaprins kominn í jólaskap:
Tólf milljóna háls-
festi fyrir Camillu
Karl Bretaprins horfir ekki í aur-
inn þegar ástkona hans er annars veg-
ar. Prinsinn sýndi það og sannaði á
dögunum þegar hann splæsti í dem-
antshálsfesti handa Camillu Parker
Bowles og reiddi fram andvirði lítilla
tólf milljóna íslenskra króna. Og
kannski heldur meira.
Gimsteinarnir voru eitt sinn 1 eigu
langömmu Camillu, konu að nafni
Alice Keppel. Upphaflega voru þeir í
eins konar smákórónu sem hefðar-
konur eru oft með á hausnum. Karl
fékk hins vegar gullsmið til að búa til
úr þeim ómetanlega gjöf handa ást-
konunni.
„Hún kostaði að minnsta kosti tólf
milljónir,“ segir kóngasérfræðingurinn
Margaret Holder í viðtali við breska
blaðið Sunday Mirror. „Steinarnir
hljóta að hafa verið allstórir úr því
hægt var að búa til úr þeim hálsfesti."
Karl og Camllla
Breski ríkisarfinn var rausnarlegur
viö ástkonu sína um daginn.
Breski erfðaprinsinn hefur áður
keypt gimsteinaskart úr safni Alice
Keppel fyrir Camillu. í fyrra keypti
hann brjóstnælu úr svörtum perlum á
uppboði úti í sveit. Karl þurfti þó að
hafa talsvert fyrir því þar sem margir
aðrir voru um hituna og boðin flugu
ótt og títt. En Karl hafði það að lok-
um, enda erfitt að ráða við mann sem
lætur ástina stjóma ferðinni.
Þá hefur það einnig komið á daginn
að Karl hefur beðið frænda sinn^
Snowdon lávarð, um að taka myndir
af Camillu. Snowdon þessi er frægur
og virtur ljósmyndari.
Myndirnar eiga að vera tilbúnar
fyrir jól. Þær, ásamt hálsfestinni
góðu, þykja óræk sönnun þess að
Camilla skipi mikinn heiðurssess í lífi
Karls ríkisarfa. Og þó nú væri.