Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000
7
DV
Fréttir
Umsjón; _ ______
Höröur Kristjánsson
notfang: sandkorn@ff.is
Hemmi í atvinnuleit
Einn besti vinur
þjóðarinnar, Her-
mann Gunnars-
son, útvarpsmaður
með meiru, er
1 hættur á Bylgj-
i unni. Hermann
hefur löngum farið
j sínar eigin leiðir
1 við að ná til fólks
í gegnum útvarp og sjónvarp. Miðað
við vinsældir kappans i gegnum tíð-
ina virðist það hafa gefist bærilega.
Brottfór hans frá Bylgjunni er samt
sögð sú að Jón Axel Ólafsson hafi
ekki verið sáttur við tónlistarstefnu
Hemma Gunn, því fór sem fór. Gár-
ungar velta nú fyrir sér hvert
Hemmi fari. Ríkissjónvarpið er upp-
tekið á laugardögum og vart að búast
við að leið hans liggi yfir á Stöð tvö.
Gera því ýmsir því skóna að leiðir
Hemma liggi eins og margra annarra
tjölmiðlamanna yfir á Skjá einn...
Svartstakkar
Gríðarlegur slag-
ur og verðstríð er í
uppsiglingu á Ak-
ureyri á milli Bón-
uss og Nettós. Bón-
usmenn segjast
ætla að standa við
að vera alltaf með
lægsta verðið.
Nettó tekur stríðið
greinilega alvarlega og hefur stofnað
heila herdeil vaskra manna. Eins og
alvöru herja er siður eru liðsmenn
Nettóhersins allir einkennisklæddir í
svörtum fótum með svartar húfur.
Mun þessum svartstökkum ætlað að
storma um verslanir keppinautanna
vopnaðir strikamerkjavélum. Þannig
mun Nettóherinn lesa minnstu breyt-
ingar á hernaðaráætlunum keppi-
nautanna. Bíða menn nú spenntir eft-
ir mótleik. Varla verður Bónusher-
inn hans Jóhannesar Jóhannesson-
ar minni í sniðum en spuming hvort
einkennisbúningarnir verða gulir
eða bleikir...
Leiötogabarátta
Kristján Páls-
son, þingmaður
Sjálfstæðisflokks,
! telur að allt hálf-
I kák í tengslum við
! framkvæmdir á
í Reykjanesbraut-
inni sé varasamt.
Hann hefur líka
viðrað hugmyndir
um að flýta breikkun Reykjanes-
brautar um sjö ár og telur ekkert þvl
til fyrirstöðu að hespa verkinu af á
einu ári. Flokksfélagi hans og for-
maður samgöngunefndar, Árni
Johnsen, er alls ekki á sama máli.
Hann telur þetta tóma vitleysu og
ekki hægt, jafnvel þó allir verktakar
landsins röðuðu sínum vinnuvélum á
þennan spotta í einu. Gárungar velta
fyrir sér hvor harka Árna gagnvart
flokksbróðumum f þessu máli stafi
nokkuð af baráttu þeirra um forystu-
sæti hjá flokknum í nýju kjördæmi...
Óskemmtilegt á Akureyri
Kristján L. Möll-
er alþingismaður
spurðist fyrir um
tekjur ríkissjóðs af
almennu skemmt-
analeyfi undanfar-
in ár. Þar kom í
ljós að 55-60% af j
tekjum ríkissjóðs
af almennu
skemmtanaleyfi fyrir veitingastaði
komi frá veitingastöðum í Reykja-
vík, samkvæmt svari Geirs H. Haar-
de fjármálaráðherra.
Athygli vekur að skemmtanaleyfi
til sýslumannsins á Akureyri hefur
hrapað úr 700 þúsundum árið 1997 i
200 þúsund krónum það sem af er
þessu ári. Á sama tíma eru Sauð-
krækingar og Keflvíkingar komnir
með 600 þúsund krónur, ísfirðingar
með 500 þúsund og Skagamenn með
400 þúsund. Gárungar velta því fyrir
sér hvort undir stjóm Kristjáns
Þórs Júlíussonar bæjarstjóra sé
virkOega orðið svo leiðinlegt á Akur-
eyri að ekki sé lengur hægt að gera
þar út skemmistaði...
Mæðrastyrksnefnd:
Börn vantar jólaföt
Mikill skortur er nú á spariföt-
um fyrir böm sem Mæðrastyrks-
nefnd útdeilir til skjólstæðinga
sinna fyrir jólin. Eins og kunnugt
er útdeilir nefndin fatnaði, mat,
matarmiðum, jólatrjám, jólakort-
um, jólapappir, jólagjöfum og öðr-
um hlutum sem nýtast til jóla-
haldsins tU þeirra sem minna
mega sín fyrir hver jól. Ásgerður
Jóna Flosadóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar, segir að al-
menn jólaaðstoð nefndarinnar
hefjist 11. desember en að hægt sé
að sækja um aðstoð alla daga, sem
opið er, fram að þvi. Ágætlega
hefur gengið að safna fyrir þessi
jól en Ásgerður segir að fólk sé
stundum svolítið seint á ferðinni.
„En yfirleitt bjargast þetta,“ segir
DV-MYND REYNIR
Stokkið á þorskinn
Hér er starfsmaöur seiöastöðvar í
grennd viö Bergen meö þorskseiöi.
Ætlun Norðmanna er aö framleiða
40 þúsund tonn af þorski
innan 10 ára.
Fiskeldi Eyjafjarðar:
Eigum að
kanna
grundvöll
að þorskeldi
DV, AKUREYRI:____________
„Það er mjög mikiH áhugi á
þorskeldi í Noregi en við vitum
að þorskstofnar bæði í Norðursjó
og i Barentshafi eru í mikiUi lægð
og Norðmenn eru búnir að vinna
við rannsóknir á þorskeldi í mörg
ár. Það er hins vegar fyrst í fyrra
og svo núna sem þetta kemst
verulega af stað og ég er sann-
færður um að á næstu árum
munu Norðmenn byggja upp klak-
stöðvar og framleiða mikið af
þorskseiðum tU eldis,“ segir Ólaf-
ur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Fiskeldis Eyjafjarðar, um
þann árangur sem Norðmenn
hafa verið að skUa í þorskeldi að
undanfornu. Norðmenn stefna að
þvi að ná 40 þúsund tonna fram-
leiðslu af eldisþorski innan 10
ára. Norðmenn eru með átaks-
verkefni í gangi þessu tengt sem
heitir Stokkið á þorskinn. Árang-
ur þess er þegar kominn i ljós og
fjöldi seiðastöðva er að rísa upp
og fjölmargir þorskabændur eru
að heíja framleiðslu.
Ólafur segir að stór og öflug fyr-
irtæki í fiskeldi í Noregi og víðar
séu að veðja á þorskeldið og
þorskinn sem næstu alvörueldis-
tegundina á norðlægum slóðum.
En telur hann að við íslendingar
séum að missa af einhverri lest í
þessu sambandi?
„Nei, það held ég ekki. Hafrann-
sóknastofnun hefur unnið að
klakrannsóknum á þorski og þar
er ákveðin þekking til staðar. Ég
tel það alveg tímabært að menn
fari að horfa á það í fuUri alvöru
að skala upp þær rannsóknir og
athuga í fullri alvöru hvort ekki
sé grundvöllur að því hefja eldi á
þorski við ísland,“ segir Ölafur.
-gk
hún. Venjan hefur verið sú að fyr-
irtæki leggi fram meirihluta gjafa
en einstaklingsframtakið skiptir
nefndina líka miklu máli.
„Ég hef á tilfinningunni að það
verði mikið að gera hjá okkur um
þessi jól og við getum notað aUa
þá aðstoð sem býðst. Okkur sár-
vantar t.d. sparifatnað á stelpur
og stráka á öllum aldri. Margir
eru með sparifot barna sem þau
eru vaxin upp úr inni í skáp hjá
sér og við yrðum mjög þakklát ef
fólk sæi sér fært að koma þeim tU
okkar, helst tímanlega fyrir jól.“
segir Ásgerður. „Það hefur stund-
um komið fyrir að fötin hafi
borist okkur of seint“
Engin skUyrði þarf að uppfylla
tU aö fá jólaaðstoð frá Mæðra-
styrksnefndinni en Ágerður segir
að fólk komi ekki nema það sé í
algerri neyð og að oft séu þung
sporin þegar sótt er um.
Fram til 11. desember er skrif-
stofa nefndarinnar opin á milli kl.
14.00 og 17.00 á miðvikudögum og
föstudögum en frá 11. desember er
opið frá kl. 14.00 til 17.00 aUa
virka daga fram að jólum
Þeir sem vilja leggja Mæðra-
styrksnefnd lið geta bæði komið
vörum til hennar að SólvaUagötu
48 eða greitt gíróseðla sem liggja
frammi í öllum bönkum og spari-
sjóðum. -ÓSB
Beðiö eftir aðstoð
Langar biöraöir myndast oft hjá Mæörastyrksnefnd fyrir jólin. Myndin er tekin
fyrir nokkrum árum en nefndin hefur síöan þá flutt sig um set og er til húsa
aö Sólvallagötu 48 í Reykjavík.
([)inDesiT
Kuldatímabil
Til 10. desember
bjóðum við kæliskápa,
frystiskápa og frystikistur með
15-20% afslætti.
Hörku tæki frá heimsþekktum
framleiðendum, af öllum
stærðum og gerðum
•« i -m
Kæliskápar, frystiskápar, frystikistur