Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2000, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 9 DV Útlönd Lést bundinn í skottinu á bíl Svíinn, sem fannst látinn i farangursgeymslu bíls síns á Skáni á laugardaginn, barðist að minnsta kosti í tvo sólarhringa fyrir lífi sínu. Sviinn, Gösta Andersson, sem var 65 ára, hafði verið bundinn á höndum og fótum. Af sárum á líkama hans var augljóst að hann hafði reynt að losa sig og komast út. Ekki hafa sést nein merki þess að hann hafi verið beittur ofbeldi áður en hann var læstur í farangursgeymslunni. Bílnum hafði verið lagt á afviknum stað. Andersson sást síðast á lífí á uppboði 19. nóvember. Seðlaveski hans hafði verið tæmt. Jens Stoltenberg Norski forsætisráðherrann segir skort á lýðræði í Framfarafiokknum. Stjórn Kallsbergs meö meirihluta Færeyska landstjómin, undir for- ystu Anfinns Kallsbergs lögmanns, hefur endurheimt meirihlutafylgi meðal þjóðarinnar, ef marka má skoðanakönnun sem færeyska blað- ið Dimmalætting birti í gær. Fram kemur í könnuninni að stjómarflokkamir þrír, Fólkaflokk- urinn, Þjóðveldisflokkurinn og Sjálfstjómarflokkurinn, njóta nú stuðnings 52,2 prósenta kjósenda. Það er næstum jafnmikið fylgi og þeir fengu í kosningunum tO lög- þingsins á árinu 1998. Erfiður leiðtogafundur ESB fram undan: Portúgalir reyna að róa taugarnar mmmkwmmk. Skammar Hagen vegna meðferðar á flokksfélögum Portúgölsk stjórnvöld reyna hvað þau geta til að róa taugar félaga sinna í Evrópusambandinu fyrir mikilvægan leiðtogafund þess sem hefst í frönsku Miðjarðarhafsborg- inni Nice á morgun. Portúgalir segja að árangur muni nást á fund- inum ef ríkin einbeittu sér að ein- faldari hlutum, eins og að auðvelda starf sambandsins. Víst er að aðildarlöndin fimmtán eru ekki á einu máli um umbæturn- ar sem verða ræddar í þrjá daga við Miðjarðarhafið. Nokkur segjast eiga von á því að nýr sáttmáli ESB verði samþykktur en flest neita að gefa eftir í málaflokkum sem þau telja lífsnauðsynleg þjóðarhagsmunum sínum. „Það er óhjákvæmilegt að spenna sé í loftinu dagana fyrir leiðtoga- fund en nú er kominn tími til að slaka á og reyna að ná samkomu- lagi,“ sagði Pierre Moscovici, Evr- ópumálaráðherra Frakklands, við Evrópuþingmenn í Brussel. Leiðtogar ESB eru sammála um að hreinsa þurfl til í sambandinu áður en hægt verður að hleypa inn meira en tíu nýjum löndum sem bíða við dyrnar. ESB getur hins veg- ar ekki gefið umsóknarlöndum neinar tímaáætlanir um inngöngu fyrr en búið er að komast að niður- stöðu um nýtt vinnulag. Það sem tekist verður á um i Nice er samsetning framkvæmdastjómar- innar, breytt atkvæðavægi landanna í ráðherraráðinu, aukin samvinna áhugasömustu landanna og loks má búast við hörðum átökum um tillög- Leiðtogarnir girtir af Borgarstarfsmaður í Nice kemur fyrir tálmunum við fundarstaðinn þar sem leiðtogar ESB ræða nýja starfshætti, kúariðu og stækkun næstu daga. ur um að neitunarvald ríkjanna verði afnumið á mörgum sviðum og aukinn meirihluti verði látinn ráða. Að sögn norska blaðsins Aftenposten er það tillagan sem gæti gert fundinn að engu. Margir eru þegar farnir að kalla fundinn „fjögurra skyrtna fundinn" þar sem gert er ráð fyrir að ekki takist að ljúka honum á laugar- dag, eins og til stendur. Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, gagnrýndi í gær Carl I. Hagen, leiðtoga Framfaraflokks- ins, fyrir brottvikningu andstæð- inga sinna úr flokknum. Sagði Stoltenberg hana ákaflega ólýðræð- islega. Innri ágreiningur skekur nú stoð- ir Framfaraflokksins. Þar að auki hefur Hagen verið hótað lífláti og nýtur hann nú lögregluvemdar. Á sunnudaginn var nokkrum háttsett- um félögum flokksins vikið úr deild hans í Ósló tímabundið. Meðal þeirra var þingmaðurinn Dag Dani- elson. Fær hann ekki aftur inn- göngu í flokkinn fyrr en eftir 30 mánuði. Danielson er sakaður um að hafa misnotað stöðu sína og átt aðild að því að félagar hafa verið frystir og lagðir í einelti. Þeir sem hafa verið reknir úr flokknum eða vikið úr honum tímabundið ætla að berjast fyrir því að fá ákvörðun miðstjórnarinnar hnekkt. £1 f Z ■ - - 4 stk 16x8 álfelgur og Sport King 32" (265/75R16) dekk. 93.900. ■ 4 stk 15x10 álfelgur og Sport King 33" dekk. í04.900.- BBhBmHHhhHHmBBhBSBHHI &gægj§fP . \,_ f'fiV". W ■ ;. . ; 4 stk 15x10 álfelgur og Durango 35" dekk. Góð heilsársdekk, mjúk og endingargóð mikið skorin, gott grip III. 900. - MWI3ELS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.