Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 Útlönd DV Ekki hægt aö vekja frúna Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sinnir yngsta barninu á nótt- unni þar sem Cherie vaknar ekki. Sinnir Leo litla á nóttunni eftir myndbandsgláp Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, slappar af eftir annasam- an dag með því að horfa á gott myndband. I svörum sínum við spurningum blaðsins Independent í dag leggur Blair áherslu á að hann sé fjölskyldumaður. Hann segir að hann sinni oftar yngsta barninu, Leo litla, á nóttunni en Cherie, eig- inkona hans. „Það er ómögulegt að vekja Cherie þegar hún er sofnuð. Það er þvi ég sem er oftast með næturvakt- ina en sem betur fer sefur hann vel nema núna vegna þess að hann er að taka tennur," segir forsætisráð- herrann. Við spurningu um tónlist- arsmekk kveðst hann hrifinn af hljómsveitinni Oasis. Vilja ekki endur- taka fyrri mistök Pólitísk og stjórnunarleg mistök, sem gerð voru í Færeyjum á níunda áratugnum og urðu til þess að rúm- lega sjö þúsund manns yfirgáfu eyj- arnar vegna bágs efnahagsástands, mega aldrei endurtaka sig. Margir þingmenn á lögþingi Fær- eyja komust að þessari niðurstöðu þegar harðorð skýrsla um stjórn- málamenn og stjórnsýsluna á ní- unda áratugnum var tekin til um- ræðu í þinginu í gær. Margir sitjandi þingmanna nú voru einnig á þingi á níunda ára- tugnum. Að sögn dönsku fréttastof- unnar Ritzau heyrðust á lögþinginu raddir um að ákæruvaldið ætti að fá skýrsluna og skera úr um lagalega ábyrgð manna eða stofnana. Romano Prodi Forseti framkvæmdastjórnar ESB viðurkenndi aö samkomulagið frá Nice væri ekki fullkomið. Evrópuþingmenn ósáttir við Nice Þingmenn úr öllum flokkum á Evrópuþinginu í Strassborg gagn- rýndu í gær samkomulagið um end- urbætur sem leiðtogar Evrópusam- bandsins gerðu með sér á fundinum í Nice í siðustu viku. Þeir sögðu það bera vott um lítinn metnað og ein- kennast af þröngum þjóðarhags- munum. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, tók þátt í um- ræðunum í Strassborg og sagði sam- komulagið áfangasigur. Hæstiréttur BNA virðist færa Bush forsetaembættið: Al Gore íhugar að viðurkenna ósigur A1 Gore, forsetaframbjóðandi demókrata, neitar enn að játa sig sigraðan á meðan hann fer í saumana á úrskurði klofins Hæsta- réttar Bandaríkjanna frá því í nótt. Úrskurðurinn virðist færa George W. Bush, frambjóðanda repúblik- ana, sigur í forsetakosningunum sem fóru fram fyrir fimm vikum. „Þetta er ekki búið enn,“ ítrekaði háttsettur ráðgjafi Gores. Ýmsir stuðningsmenn hans sögðu hins vegar að útlitið væri dökkt og enn aðrir sögðu að tími væri kominn til að leggja árar í bát. „Það er greinilegt að kosningun- um er lokið,“ sagði Robert Torricelli, öldungadeildarþingmað- ur demókrata frá New Jersey, í við- tali við sjónvarpsstöðina MSNBC. „Hann ætti að játa sig sigraðan núna,“ sagði Ed Rendell, formaður landsnefndar demókrata. Ekki lesið úrskurðinn Ráðgjafar Gores brugðust reiðir við og einn þeirra sagði þá ekki vita hvað þeir væru að tala um. „Þeir hafa greinilega ekki lesið úrskurðinn,“ sagði ráðgjafi Gores. Úrskurður Hæstaréttarins í Was- hington þykir bæði flókinn og rugl- ingslegur. Sjö dómarar úrskurðuðu að ógilda heimild Hæstaréttar Flór- Fyrrverandi forseti Júgóslavíu, Slobodan Milosevic, sagði í fyrsta viðtalinu, sem hann veitti frá því að honum var bolað frá völdum í októ- ber síðastliðnum, að samviska sín væri hrein. í viðtalinu, sem einka- rekin sjónvarpsstöö, Palma, sendi út í gærkvöld, varði Milosevic gerð- ir sínar á 10 ára valdatíma sínum i Júgóslavíu. Þykir viðtalið, sem sent var út einni og hálfri viku fyrir kosningarnar í Serbíu, sýna að Milosevic sé á leiðinni í sviðsljós stjórnmálanna á ný. Forsetinn fyrrverandi fordæmdi stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag sem hefur ákært hann fyrir glæpi i Kosovo. Kallaði Milosevic dómstólinn lið í kerfi sem hefði það markmið að fremja þjóð- armorð á Serbum. Hann kvaðst ekki þurfa að óttast dómstóla í Serbíu. ída til að endurtelja vafaatkvæði þar sem slíkt væri ekki í samræmi við stjórnarskrána. Tveir dómarar voru andvígir þeirri ákvörðun. Þá ákváðu flmm dómarar gegn fjórum að ekki væri nægur tími til að endurtelja atkvæðín í Flórída til að leysa vandann áður en kjörmenn allra ríkja koma saman á mánudag til að kjósa næsta forseta Bandaríkj- anna. íhald og frjálslyndir Hæstaréttardómararnir skiptust í tvo hópa eftir pólitískum skoðun- um, annars vegar íhaldsmennirnir og hins vegar frjálslyndari armur réttarins. Fjórmenningamir sem voru í minnihluta sögðu að meiri- hluti hefði engan rétt á þvi að koma í veg fyrir að atkvæðin væru talin og að réttinn hefði sett niður í aug- um almennings. í úrskurði meirihluta Hæstarétt- ar, sem ekki er undirritaður, kemur fram að aðferðirnar sem beitt var við endurtalninguna i Flórída tryggi ekki grundvallarréttindi sér- hvers kjósanda. John Paul Stevens dómari var ómyrkur i máli i minnihlutaat- kvæði sínu. „Þó við munum hugsanlega aldrei vita með fullri vissu hver Aftur í sviösljósfnu Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, hefur veitt fyrsta viðtal sitt eftir fallið af valdastóli. hafi sigrað í forsetakosningunum í ár er alveg ljóst hver tapaði. Það er traust kjósandans á dómaranum sem óvilhallur verndari laga og rétt- ar.“ Virðist sigur fyrir Bush Enda þótt úrskurðurinn þætti ruglingslegur virtist sem ráðgjafar Bush hefðu dregið þá ályktun að þeirra maður væri sigurvegarinn. „Við fyrstu sýn virðist þetta vera sigur fyrir okkur,“ sagði einn ráð- gjafanna við fréttamenn. James Baker, sem stjórnaði lög- mannaliði Bush, sagði í stuttri yfir- lýsingu að Bush og varaforsetaefni hans, Dick Cheney, væru ánægðir með úrskurðinn. „Þeir eru að sjálfsögðu mjög ánægðir og þakklátir fyrir að sjö dómarar í Hæstarétti voru sammála um að endurtalningin sem Hæsti- réttur Flórída fyrirskipaði væri ekki alveg i samræmi við stjórnar- skrána," sagði Baker. Hæstiréttur sendi málið aftur til Hæstaréttar Flórída til frekari með- ferðar en setti svo margar takmark- anir í úrskurð sinn að svo virðist sem nær útilokað sé að Gore hafi sigur. Gore mun gefa út yfirlýsingu um úrskurðinn einhvern tíma í dag. „Ég sef rólegur og samviska mín er hrein,“ sagði hann. Milosevic hyllti serbneska striðs- herrann Arkan, sem einnig var ákærður af stríðsglæpadómstólnum, og kallaði hann mikinn fóðurlands- vin. Arkan var myrtur í janúar síð- astliðnum. Sagði hann morðið lið í stærra samsæri gegn Serbíu. Þegar talið barst að syni Milos- evics, Marko og þætti hans í skipu- lagðri glæpastarfsemi, varði forset- inn fyrrverandi son sinn af krafti. Sagði hann ásakanirnar á hendur honum fyrir neðan mannlega virð- ingu. Marko flýði land 5. október síðastliðinn. í viðtalinu var Milosevic afslapp- aður. Hann var klæddur í hvíta skyrtu og dökkan jakka. Hann var með rautt hálsbindi og sat í svört- um leðursófa. Stuttar fréttir Mildara stofufangelsi Herstjórnin í Burma, sem kveðst ætla að létta á þrýstingn- um á stjórnmála- andstæðinga, hef- ur í fyrsta sinn í tvo mánuði leyft Aung San Suu Kyi, friðarverð- launahafa Nóbels, sem sett var í stofufangelsi í september síðastliðn- um, að fá háttsettan fulltrúa síns eig- in flokks í heimsókn. Á leiðtogafundi Evrópusambandsins og ríkja Suð- austur-Asíu voru yfirvöld í Burma hvött til að virða mannréttindi. Bannað að auglýsa tóbak Danska stjórnin samþykkti í gær frumvarp Sonju Mikkelsen heil- brigðisráðherra um bann við tó- baksauglýsingum. Fórnarlamb krókódíls Rómantískur sundtúr að nætur- lagi í S-Afríku um helgina breyttist i martröð hjá ungu kærustupari. Unnustinn sá sína heittelskuðu hverfa í gin krókódíls. Drápu Palestínumenn Tveir Palestínumenn voru drepn- ir og 11 særðir í árás ísraela á palestínskt svæði nálægt flótta- mannabúðum á Gazasvæðinu í nótt. ísrelar eyðilögðu nokkur hús að sögn sjónarvotta. Glæparáðstefna í Palermo Sameinuðu þjóðirnar halda í þessari viku ráðstefnu í Palermo á Sikiley um alþjóðlega skipulagða glæpastarfsemi. Þó mafían á Sikiley hafi hægt um sig nú er hún á fullu við að endurskipuleggja sig. Netanyahu sigurviss Fyrrverandi for- sætisráðherra ísra- els, Benjamin Net- anyahu, kveðst viss um að geta sigrað Ehud Barak forsæt- isráðherra í kosn- ingunum í febrúar næstkomandi. Net- anyahu fagnaði í gær endurkomu sinni i stjórnmálin á fundi Likud- flokksins í gær. Saknað eftir aurskriðu Þriggja er saknað eftir að aur- skriða féll á þorpið Nendaz í Sviss í gær. Björgunarmenn leituðu í morgun þeirra sem saknað er. Pútín heimsækir Castro Vladímír Pútín Rússlandsforseti kemur í dag til Kúbu í þeirri von að geta bætt samskipt- in við eyjuna. Gert er ráð fyrir að Pútín lofi Castro Kúbufor- seta því að reyna að rjúfa einangrun Kúbumanna. Einnig er búist við að Pútín lofi að senda Kúbumönnum varahluti í ýmis tæki sem þeir fengu frá Sovét- ríkjunum fyrrverandi. Óveður við Bretland Fjórar ferjur með yfir 1 þúsund farþega gátu ekki lagst að höfn við Dover í Englandi í gærkvöld vegna óveðurs. Hætta er á flóðum í hundr- uðum bæja í Englandi. Endalokin fyrir Gore? Al Gore, forsetaframbjóðandi demókrata, gefur út yfirlýsingu í dag um hvort hann ætlar að berjast áfram fyrir endur- talningu atkvæða í Flórída eða láta úrskurð Flæstaréttar Bandaríkjanna vera lokaorðið í hatrammri baráttu hans og Georges W. Bush. Bush virðist ætla að verða næsti Bandaríkjaforseti eftir ruglingslegan úrskurð Flæstaréttar. Milosevic sefur rólega með hreina samvisku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.