Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 35 DV Tilvera Kapphlaupið um Óskarinn er hafið: Vandræðagangur í Hollywood - stimplaðar óskarsmyndir hafa hver af annarri klikkað Hinir 5000 meðlimir Amerísku kvikmyndaakademíunnar eiga erf- iðan tíma fyrir höndum. Nú eru að koma jól og búið að frumsýna flest- ar af þeim kvikmyndum sem voru með óskarsstimpilinn á sér og hver á fætur annarri hafa brugðist. Það er því farið að líta til baka á kvik- myndir sem frumsýndar voru fyrr á árinu og kanna hvort einhverjar þeirra eigi mögrdeika á óskarsverð- launum. Það er staðreynd að óskarverð- launin byggjast í dag orðið mikið á markaðssetningu og auglýsingum. Mynd sem frumsýnd er seint á ár- inu á mun meiri möguleika á ósk- arstilnefningum heldur en jafngóð mynd sem frumsýnd er fyrr. Nú er hver að verða síðastur að fara að undirbúa herferð fyrir meðlimi aka- demíunnar og er mikill handgangur í öskjunni að finna kvikmyndir sem troða á fram fyrir aðrar. Vinsældir hjálpa Fyrir sex mánuðum eða svo voru allir á því að Joan Allen væri búin að tryggja sér óskarsverðlaun fyrir sterkan leik í hlutverki varaforseta- efnis í The Contender. í dag eru fáir sem halda þessu fram en segja á móti að hún gæti fengiö tilnefningu. Ástæðan er ekki verri leikur en bú- ist var við eða lélegir dómar um myndina heldur það að áhorfendur létu sig vanta. Og það hefur sýnt sig að góðar kvikmyndir sem einnig ná góðri aðsókn eiga mun meiri mögu- leika á óskarsverðlaunum. Önnur kvikmynd sem menn veðjuðu á var Almost Famous sem Cameron Crowe leikstýrir. Þegar hún svo kom loks fyrir almenningssjónir var lítið bit í henni og ekkert sem benti til þess að hún félli í kramið hjá meðlimum akademíunnar. Það sama má segja um Pay it Forward, með Kevin Pacey og Helen Hunt og Finding Forester Ein fárra kvikmynda sem eftir er aö frumsýna sem búist er viö aö blandi sér í óskarsstaginn. Á myndinni er Sean Connery sem þykir sýna af- buröaleik í myndinni. frumsýna og gætu komið á óvart eru Shadow of the Vampire, þar sem John Malkovich leikur leik- stjóra þögulla kvikmynda og nýjasta kvikmynd David Mamets, State & Main, en mikill spenna er í kringum hana. Forester er ný kvikmynd frá Gus Van Sant. Þar er Sean Connery tal- inn mjög heitur og það væri gaman fyrir okkur íslendinga ef Finding Forester myndi sópa að sér tilnefn- ingum þvi klippari myndarinnar er Valdís Óskarsdóttir. Þær banda- rísku kvikmyndir sem eftir er að Gladiator Á örugglega eftir aö sópa aö sér óskarstilnefningum og kemur í dag helst til greina sem besta kvikmyndin. Pláss fyrir breskar myndir Þegar harðnar í ári i Hollywood bjarga breskar kvikmyndir oftar en ekki málunum. Nú verða í fyrsta skipti veitt sér óskarsverðlaun fyrir „Animated film“ i fullri lengd (teikni-, brúðu- og tölvugerðarkvik- myndir) og þar er engin jafn heit og Chicken Run. Af nýjum breskum kvikmyndum sem þykja eiga mögu- leika á óskarstilnefningum eru Quills, og Saving Grace heitastar. Sú bresk kvikmynd sem þó þykir hafa alla burði til að fá tilnefningar og óskarsverðlaun er Billy Elliot. Þessi ágæta kvikmynd sem heillað hefur alla sem hana hafa séð, væri sjálfsagt ein heitasta kvikmyndin í kapphlaupinu um óskarsverðlaunin ef dreifingaraðilar hennar í Banda- ríkjunum hefðu haft burði í að markaðssetja hana á borð við þær bandarískustu, en svo hefur ekki verið og því telst hún lítil kvikmynd með sæmilega möguleika. Á það verður þó að líta að möguleikar hennar verða meiri og meiri eftir því sem hinar fyrir fram „Ósk- arsverðlaunakvikmyndir" bregðast hver af annarri. -HK kvikmynd Roberts Redfords The Legend of Bagger Vance. Báðar voru með óskarsstimpilinn á sér allt árið, en hann var snögglega rifinn af þeim. Af þeim nýju kvikmyndum sem frumsýndar hafa verið að und- anförnu og hafa í langan tíma verið með óskarsstimpilinn er aðeins ein sem virkilega stendur undir vænt- ingum, og þó eru margir í vafa um aö hún verði hátt skrifuð þegar kemur að tilnefningum, Unbreak- able þar sem þeir endurnýja vel heppnað samstarf, leikstjórinn M. Night Shyamalan og Bruce Willis. Bjart fram undan hjá „elli- smellum" Eins og áður sagði eru bestu og vinsælustu kvikmyndirnar sem frumsýndar voru fyrr á árinu allt í einu orðnar heitustu óskarsmynd- irnar. Þetta á sérstaklega við um Gladiator og Erin Brockovich. Nú er talið víst að báðar þessar kvik- myndir munu sópa að sér tilnefn- ingum komi ekki nýjar myndir á þeim fáu vikum sem eftir eru af „óskarsárinu". Julia Roberts og Russell Crowe ættu nú að vera ör- ugg um tilnefningu sem bestu leik- arar og þær raddir gerast æ hávær- ari að Albert Finney muni vinna Óskarinn fyrir leik í aukahlutverki. Ekki má gleyma hinni ágætu kvik- mynd Curtis Hansons, Wonder Boys, sem þrátt fyrir góða dóma fékk litla aðsókn. Þetta varð til þess að aðalleikarinn og framleiðandi myndarinnar Michael Douglas tók hana úr umferð og er þessa dagana að setja hana aftur á markað í von um betri viðtökur og athygli aka- demíunnar. Þá má ekki gleyma því að Björk er þegar búin að vinna öll eftirsótt- ustu kvikmyndaverðlaunin á árinu og þótt ólíklegt sé að Dancer in the Dark falli meðlimum akademíunnar í geð þegar á heildina er litið gætu þeir átt það til að tilnefna Björk sem bestu leikkonu. Tíminn er naumur Enn eru fjórar vikur þar til Óskarnum verður lokað í ár og nokkrar kvikmyndir er eftir að frumsýna sem líklega gætu verið framarlega í kapphlaupinu. í sið- ustu viku var frumsýnd nýjasta kvikmynd Ang Lees, Crouching Ti- ger, Hidden Dragon, og fékk hún frábærar viðtökur og var troðfullt í þeim fáu sölum sem hún var sýnd. Það sem háir henni er að hún er ekki bandarísk heldur kínversk, þó að hluta til sé bandarískt íjármagn á bak við hana, en allavega ætti akademían ekki að vera í vandræð- um með bestu erlendu kvikmynd- ina. Um jólin verða frumsýndar kvik- myndir sem hafa um nokkurt skeið verið með óskarstimpilinn á sér. Cast Away er nýjasta kvikmynd Tom Hanks og leikstýrt af Robert Zemeckis. Þeir sem best þekkja segja að Tom Hanks sýni yfirburða- leik í hlutverki manns sem verður strandaglópur á eyðieyju. Finding Pay it Forward. Ein þeirra kvikmynda sem fyrir fram voru meö óskarsstimpilinn á sér en er þaö ekki lengur. Helen Hunt, Hayley Joel Osment og Kevin Spacey í hlutverk- um sínum. •J. Cast Away Tom Hanks leikur strandaglóp á eyðieyju og þykir eiga vísa óskarstilnefningu. Notið þægindin Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni. O iil Bflastæðasjóður m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.