Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 32
36
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
Tilvera
I>V
Jr
*
Borgardætur
troða upp á
Gauki á Stöng
Borgardætur, Ellen Kristjáns- ;
dóttir, Andrea Gylfadóttir og ;
Berglind Björk Jónasdóttir,
halda jólatónleika á Gauki á
Stöng í kvöld. Borgardætur flytja ;
jólalög af nýjum geisladiski sveit- ;
arinnar sem nefnist einfaldlega ;
Jólaplata Borgardætra.
Krár
■ KARI OG ARNI SVEINS A PRIK- I
INU Kári og Arni Sveins spila á
Prikinu en þeir veröa þar alla miö-
vikudaga héðan í frá.
Klassík
■ JÓLABAROkk l kvö d kl. 20 '
veröa barokktónleikar í Salnum í
Kópavogi. Þar koma fram Camilla
Söderberg blokkflautur, Elín Guö-
mundsdóttir semball, Guörún S.
Birgisdóttir flauta, Martial Nardeau
flauta, Peter Tompkíns óbó, Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir viola da
gamba, Snorri Órn Snorrason te-
orba.
■ AÐVENTUTÓNLEIKAR FÍLHARM-
ONIUNNAR Söngsveitin Rlharmón-
ía heldur þriöju aöventutónleika sína
í Langholtskirkju í kvöld kl 20.30.
Einsöngvari á tónleikunum veröur
Þóra Einarsdóttir sópransöngkona
og flytur hún einsöngsariur eftir Al-
essandro Scarlatti og George F.
Hándel, jafnframt því sem hún syng-
ur meö kórnum í nokkrum laganna.
Að venju spilar kammersveit á tón-
leikunum og er Rut Ingólfsdóttir
> konsertmeistari. Stjórnandi á tón-
leikunum er Bernharöur Wilkinson,
söngstjóri Söngsveitarinnar. Aö-
göngumiöar aö tónleikunum fást í
Bókabúö Máls og menningar á
Laugavegi, hjá kórfélögum og viö
innganginn.
Leikhús
■ JONAS TYNIR JOLUNUM Ferða
leikritiö Jónas týnir jólunum eftir
Pétur Eggerz veröur sýnt í Mögu-
leikhúsinu viö Hlemm kl. 10 og
14.30 í dag. Uppselt.
■ LANGAFI PRAKKARI Langafi
prakkari eftir Sigrúnu Eldjárn sýnt T
Bústaöabókasafnl í dag kl. 10. Upp-
selt.
■ LOMA Lóma - mér er alveg
sama þótt einhver sé að hlæja aö
mér, leikrit eftir Guörúnu Ásmunds-
dóttur, sýnt í Mögulelkhúsinu viö
Hlemm í dag kl. 12. Uppselt.
Kabarett
■ SUNGH), LESIÐ OG LEIKIÐ Fjórir
listamenn Lelkfélags Reykjavíkur
eiga þaö sameiginlegt að hafa ný-
veriö gefið frá sér verk á jólamarkaö-
inn. Þetta eru þau Guörún Ás-
mundsdóttlr, sem skrifað hefur
barnabókina Lómu, Hera Björk Þór-
. hallsdóttir, sem nýlega gaf út jóla-
-- plötuna llmur af jólum, Jón HJartar-
son, meö unglingabókina Ég stjórna
ekki leiknum, og Sigrún Edda
Björnsdóttir, sem sent hefur frá sér
myndband meö hinni sTvinsælu
Bólu. I kvöld kl. 20 standa þessir
flórir listamenn fyrir uppákomu í
anddyri Borgarleikhússins, þar sem
þeir kynna verk sín, lesa upp úr
þeim, syngja og leika. Aögangur er
_ ókeypis og allir velkomnir.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Jólastemning í
sundlauginni
Það var bæöi fjöl-
mennt og góö-
mennt í áflegu jóla-
hlaöþoféÞfasta-
gesta íiundlaugar
Kópavogs.
Fastagestir í Sundlaug Kópavogs:
Kræsingar á laugarbakkanum
Forstjórinn fær að smakka
Guömundur Haröarson, forstjóri
Sundlaugar Kópavogs, smakkar á
haröfiskinum. Viö hliö hans stendur
Ágústa Þyrí Andersen, starfskona i
Landsbankanum.
Fastagestir í Sundlaug Kópavogs
gerðu sér dagamun nýlega og héldu
sitt árlega jólahlaðborð. Allir lögðu
eitthvað til hlaðborðsins sem var
hlaðið miklu góðmeti. Hangikjöt frá
Ingimar Ingimarssyni, fyrrverandi
flugstjóra, þykir orðið ómissandi
við þetta tilefni en það er ævinlega
af fimm vetra sauð og þurrsoðið
með sérstökum hætti. Malt og appel-
sín var síðan drukkið með kræsing-
unum en að sjálfsögðu böðuðu
menn kroppinn í lauginni áður en
veislan hófst.
DV-MYNDIR INGÓ
Sundkonur í jólahlaðboröi
Svana Svanþórsdóttir, ráöskona í íslands-
banka, og Þorgeröur Aðalsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri.
Glatt á hjalla
Jón Björgvinsson í Blómahöllinni, Ásgeir Jóhannes-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Innkaupastofn-
unar, og Þór Guömundsson, starfsmaöur Fiski-
stofu, voru í feiknastuöi í sundlaugarveislunni.
IM!M1
Hvers virði er eitt
stykki kennari?
Kræsingar á hverjum diski
Bogi Þórir, Halldór Jónsson, fyrrverandi þingrit-
ari, og Garöar Alfonsson nutu veitinganna.
Það er enn verkfall í framhalds-
skólunum þegar þetta er ritað. Nú er
farið að síga á flmmtu vikuna í verk-
falli og lítið virðist hafa þokast í átt að
samkomulagi ef marka má fréttir. Ef
að líkum lætur þá er haustönnin ónýt
fyrir marga nemendur, allavega þá
sem ætluðu sér að útskrifast fyrir jól
og fara i framhaldsnám eftir jól, hvort
sem það nú er hér á landi eða erlend-
is. Hnífurinn sem enn stendur í kúnni
er spurningin um verðmæti vinnu-
framlags kennaranna. Báðir aðilar
deilunnar virðast vera á einu máli um
að það þurfi að breyta skipulaginu
innan skólanna, þó enn sé víst deilt
um hvemig. En kjami málsins er sá
að ríkisvaldið metur ekki vinnufram-
lag kennara í framhaldsskólunum
eins og kennumnum finnst að það
eigi að vera metið, og þess vegna er
hnífurinn enn fastur. Samninganefnd
ríkisins fær sem sagt ekki umboð rík-
isstjórnarinnar til þess að bjóða kenn-
umm betur en gert hefur verið. Já,
það er nefnilega ríkisstjórnin sem ber
ábyrgð á tilboðum samninganefndar
rikisins, ef einhver skyldi vera farinn
að halda að sú nefnd hafi sjálfstæðan
vilja. Meðan ríkisstjómin metur ekki
kennarana hærra en hún gerir, þá
getur auðvitað samninganefnd ríkis-
ins ekkert aðhafst.
í andstöðu við eigin flokk
Reyndar viröist það vera svo að all-
ur þorri landsmanna sé á öðm máli
en ríkisstjómin hvað þetta varðar.
/ þessu máli er ríkis-
stjómin því ósammála
bœði nemendum, foreldr-
um, framsóknarkonum
og meirihluta lands-
manna. Fulltrúar ríkis-
stjómarínnar hafa þar
fyrir utan gert sitt til
þess að auka á þrœtuna
með því að illyrðast og
hafa í hótunum við
kennara, bœði á Netinu
og í rœðupúlti Alþingis,
eins og smástrákar.
Strax á fyrstu dögum kennaraverk-
fallsins var gerð skoðannakönnun á
vegum sjónvarpsins, þar sem kom
fram að meirihluti aðspurðra væri á
því að það þyrfti að hækka laun kenn-
ara verulega. Sú skoðun þjóðarinnar
virðist lítið hafa breyst þó að liðnar
séu þessar 5 vikur. Nemendur hafa
líka staðið með kennurum frá fyrsta
degi og gera enn, þó þeir séu efaíaust
orðnir jafn þreyttir á verkfallinu og
allir aðrir. Nemendur framhaldsskól-
anna vita nefnilega sem er, að starf
kennarans er bæði mikilvægt og krefj-
andi. Þeir vita líka að ef hinir bestu
og fæmstu eiga að fást til starfans, þá
þurfa laun þeirra að vera samkeppnis-
fær við laun annarra á vinnumark-
aðnum sem hafa sambærilega mennt-
un. Nemendur meta þannig vinnu-
framlag kennaranna mikils. Það sama
gera foreldramir, sem auðvitað vilja
að börnin fái sem besta kennslu.
Meira að segja framsóknarkonur eru
komnar í andstöðu við sinn eigin
flokk hvað þetta varðar, en þær hafa
nýlega lýst þvi yfir opinberlega að það
þurfi að hækka laun kennara.
í þessu máli er ríkisstjómin því
ósammála bæði nemendum, foreldr-
um, framsóknarkonum og meirihluta
landsmanna. Fulltrúar ríkisstjórnar-
innar hafa þar fyrir utan gert sitt til
þess að auka á þrætuna með því að ill-
yrðast og hafa í hótunum við kennara,
bæði á Netinu og í ræðupúlti Alþing-
is, eins og smástrákar. Ekki hefur það
bætt andrúmsloftið.
Hvers virði er eitt stykki kennari?
Um það snýst þessi deila. Deilan snýst
líka um það hvers virði við teljum
skólann yflrleitt. Skólinn á íslandi
hefur allt of lengi verið sveltur af fé og
nægir því til sönnunar að bera útgjöld
okkar til skólamála saman við útgjöld
hinna Norðurlandanna til sama mála-
flokks. Viljum við auka framlög rikis-
ins til menntamála á þeirri forsendu
að menntun bamanna okkar sé fjár-
sjóður til framtíðar? Eða viljum við
forgangsraða á einhvem annan hátt?
í augum þorra landsmanna er 1 stk.
kennari mikils virði og vinnuframlag
hans einnig. Það skiptir fjölskyldum-
ar miklu máli að kennsla sé traust og
góð á öllum skólastigum. Það skiptir
nemenduma miklu máli að hæft fólk
fáist til starfa í skólunum. Meirihluti
landsmanna vill góðan skóla þar sem
vinnuframlag kennara er metið að
verðleikum. Framsóknarkonur lika!
Vonandi lýkst þessi staðreynd upp
fyrir þeim sem með málefni skólanna
fara í landinu. Og það fyrr en seinna.
Haustönnln ónýt
„Ef aö líkum lætur þá er haustönnin ónýt fyrir marga nemendur, allavega
þá sem ætluöu sér aö útskrifast fyrir jól og fara í framhaldsnám eftir jól,
hvort sem þaö nú er hér á landi eöa erlendis, “ segir í pistli sr. Þórhalls.