Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
I>V
Fréttir
Eistnesk stúlka sem sat í gæsluvarðhaldi í Þórscafémálinu en var svo sýknuð:
Dansmær krefur ríkið
um 8 milljónir í bætur
- dansmeyjar með 400-500 þúsund í mánaðartekjur - sá fyrir fjölskyldunni ytra
21 árs fyrrum nektardansmær frá
Eistlandi, Ingrid Juhala, hefur
stefnt íslenska ríkinu til greiðslu
rúmlega 8 milljóna króna í skaða-
bætur þar sem flkniefnalögreglan
hafi fengið hana úrskurðaða í
gæsluvarðhald og farbann í svoköll-
uðu Þórscafémáli árið 1999. Hún
heldur því fram að henni hafi verið
haldið inni saklausri i 12 daga, þar
af 9 daga á Litla-Hrauni. Ingrid var
sýknuð af öllum sakargiftum fyrir
héraðsdómi á síðasta vetri og áfrýj-
aði ríkissaksóknari ekki þeirri nið-
urstöðu. Hún sagði fyrir dómi í gær
að þegar hún var svipt frelsinu í
tæpar tvær vikur sumarið 1999
hefði hún a.m.k. fengið 50-100 þús-
und krónur í tekjur á viku hjá
Þórscafé. Eftir það hefði hún verið
úrskurðuð í 9 mánaða farbann þar
sem hún mátti ekki vinna og varð
algjörlega að treysta á velvilja ann-
arra hér á landi gagnvart fram-
færslu.
Er nú í fiskeldi í Tálknafirði
Ingrid upplýsti við réttarhaldið í
gær að hún hefði frá því í október
síðastliðnum unnið við fiskeldi og
útflutning á fiski frá Tálknafirði -
hún sé eistneskur ríkisborgari en
hafi getað stundað atvinnu hér á
landi þar sem hún hafi kynnst ís-
lendingum vel, auk þess vilji hún
dvelja á Islandi þar sem henni líki
vel við land og þjóð.
„Ég var dansari þegar ég var
handtekin." „Þetta var mikið áfall,“
sagði hún. Áöur en til handtökunn-
ar kom hafði Ingrid fengið að dvelja
heima hjá hollenskri stúlku sem
einnig var erótískur dansari í
Þórscafé. Ingrid mátti þá ekki vinna
og var að jafna sig eftir aðgerð.
Sú hollenska, sem sakfelld var í
málinu, fékk Ingrid til að fara með
sér í bíltúr til að sækja pakka upp í
Yrsufell i Breiðholti. Ingrid hélt
ávallt fram sakleysi sínu í málinu -
hún hafi ekki vitað hvað var í pakk-
anum þegar sú hollenska fékk hana
til að fara inn í hús og sækja hann
og beið sjálf úti í bíl á meðan. Sann-
anir þóttu ekki nægar til að sakfeOa
Ingrid. Hún sat inni í 12 daga og á
því timabili var hún yfirheyrð
tvisvar af lögreglu.
Var í súludansi en nú í fiskeldi á Tálknafiröi
Ingrid Juhala frá Elstlandi meö Gísla Gíslasyni, lögmanni sínum, í Héraösdómi Reykjavíkur í gær. Ingrid segir þaö hafa
veriö mikiö áfall þegar fíkniefnalögreglan handtók hana á Grundarstíg í Reykjavík þar sem hún fékk aö búa hjá hol-
lenskri kunningjakonu. Sú hollenska var dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi en íngrid var sýknuö. Nú krefur hún ríkiö
um bætur fyrir aö hafa setiö saklaus í gæsluvaröhaldi.
Þær voru mjög tekjuháar
Ingrid sagði dóminum í gær að
hún hefði verið erótískur dansari í
Evrópu og heimalandi sínu í 3 ár
áður en hún kom til íslands. „Ég
fékk aldrei minna en 50 þúsund í
tekjur á viku í Evrópu," sagði hún.
Umboðsmaður hennar
sendi hana svo til ís-
lands. Ingrid kvaðst
hafa viljað koma hing-
að þar sem hún hefði
heyrt um að tekjur í
erótískum dansi á Is-
landi væru mjög háar.
Ólafur Jóhannesson,
fyrrum rekstrarstjóri
Þórscafés, sem nú
starfar sem iðnaðar-
maður, kom fyrir dóminn í gær og
staðfesti að Ingrid hefði verið „mjög
tekjuhá“ þegar hún var í vinnu hjá
honum. „Þær voru að fá lágmark
400-500 þúsund krónur í tekjur á
mánuði, þær sem unnu vel,“ sagði
Ólafur. „Gögnin um þetta aOt eru
hjá ríkinu," sagði hann.
I máli Gísla Gíslasonar, lögmanns
Ingridar, kom m.a. fram að skaða-
bótakrafan væri að talsverðu leyti
reist á þeim tekjum sem Ingrid varð
af með því að vera svipt frelsinu,
vinnu sinni og því að
geta sig hvergi hreyft
frá landinu til að geta
stundað atvinnu ann-
ars staðar á meðan hún
var í farbanni.
Guðrún Margrét
Árnadóttir, sem flytur
málið fyrir hönd ríkis-
lögmanns, sagði að lög-
reglan hefði handtekið
Ingrid þar sem rök-
studdar grunsemdir um aðild henn-
ar að málinu hefðu legið fyrir - lög-
reglan hefði jú fylgst með þegar hún
fékk umræddan fikniefnapakka af-
hentan i Breiðholti. I honum voru
969 e-töflur.
Sat fyrir í Bleiku og bláu
„Það voru að koma jól og ég
varð að ná mér einhvem veginn í
pening,“ sagði Ingrid I gær þegar
hún var spurð um það hvers vegna
hún hefði látið taka myndir af sér
í tímaritið Bleikt og blátt fyrir jól-
in 1999. Fyrir þaö fékk hún 7 þús-
und krónur. Ingrid var þá í far-
banni, hafði ekki atvinnuleyfi, gat
því ekki aflað sér tekna meö eðli-
legum hætti en mátti samt ekki yf-
irgefa landið. „Ég skulda þeim allt
núna,“ sagði Ingrid og átti við það
fólk sem skaut yfir hana skjóls-
húsi og hjálpaði henni við að fram-
fleyta sér á meðan hún var í far-
banninu, meðal annars dansmeyj-
ar frá Eistlandi. Ingrid kvaðst hafa
farið frá íslandi í mars síðastliðn-
um en komið aftur í maí. Hún
kveðst nú vera ánægð við vinnu
sína i fiskeldi i Tálknafirði.
Óttar Sveinsson
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Lambalán
Skeifa meö einlembinginn í fjárhús-
unum í Kolgröf.
Bar tvisvar á
sama árinu
DV, SAUDÁRKRÓKI: ~
Þegar bændur í Kolgröf i gamla
Lýtingsstaðahreppi komu í fjárhús-
in annan í jólum var komið lamb í
húsin. Hún Skeifa, sem er fjögurra
vetra og bar 1. febrúar á síðasta ári,
var þama að bera í annað skipti á
árinu. Og ekki var aOt búið hjá
kindunum í Kolgröf því 4. janúar
bar svo Gæfa sem verður tveggja
vetra næsta vor. Báðar þessar kind-
ur voru einlembdar að þessu sinni.
Þuríður Eymundsdóttir, hús-
freyja I Kolgröf, segir að lítið hafi
verið um það að kindur hafi borið
svo snemma i Kolgröf eins og Skeifa
hefur nú gert í tvígang og Gæfa.
Hún minnist þess að einu sinni hafi
kind borið í mars og sjálfsagt ein-
hvern timann í aprílmánuði sem
komi viða fyrir.
„Okkur finnst það sérkennOegt
að þetta skuli koma fyrir þegar ekk-
ert er reynt tO að hafa þetta svona,“
segir Þuriður, en hún segir kind-
urnar sjálfsagt hafa komist i kynni
við einhverja hrúta eftir að þær
voru komnar upp í girðingu á liðnu
sumri. -ÞÁ
Reyk j anesbraut:
Tekinn á 162
km/klst.
Um klukka átta í gærmorgun stöðv-
aði lögreglan i Hafnarfirði ökumann á
162 km/klst. hraða á Reykjanesbraut-
inni við álverið. Að sögn lögreglunnar
er mikO umferð á Reykjanesbrautinni
á þessum tíma og gerir hún, auk myrk-
urs og bleytu sem á veginum var,
hraða mannsins mjög vítaverðan.
Leyfilegur hámarkshraði er 90
km/klst. þar sem maðurinn var stöðv-
aður. Lögregluembættin í Hafnarfirði,
Keflavík og á KeflavíkurflugveOi skipta
með sér eftirOti á Reykjanesbrautinni
og aOtaf er bfll frá einhveiju embætt-
anna á veginum. Lögreglan í Hafnar-
firði viO biðja fólk að aka varlega eftir
þessum hættulega vegi. -SMK
Rigning og rok
Suölæg átt með rigningu um vestanvert
landið, 18 til 25 m/s. Annars 13 til 20 m/s
en hvassari á stöku stað norðan og austan
Vatnajökuls. Rigning suðaustanlands en
úrkomulítið noröaustan- og austanlands. Hiti 4
til 9 stig.
Sólargangur og sjávarföll | Veðrið á morgun
REYKJAVIK AKUREYRI
Sóiarlag I kvöld 16.12 15.39
Sólarupprás á morgun 10.59 11.03
Sí°isflóð 20.36 0109
Árdegisflóö á morgun 08.56 13.29
Skýfmgaz á yedurtáknum
^VINDÁTT 10V-HITI
ÍjI -io°
'NVINDSTYRKUR Vrnncr HEIOSKÍRT
I nietrum á saWmdu r«us i
O €> 'O'
IÉTTSKYJAD HALF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
© W 1Q
RIGNiNG SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA
ÍÖ P' ==
ÉUAGANGUR ÞRUMU VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VECAGERÐ RIKISINS
Oveður og veruleg hálka
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni er óveður á Fróðárheiði,
Steingrímsfjarðarheiöi, Eyrarfjalli í
ísafjarðardjúpi og sunnan Hólmavíkur.
Einnig er mjög hvasst á Mývatnsheiði.
Hálkublettir eru víða á heiðum og
fjallvegum og veruleg hálka á
austanveröu landinu. Að öðru leyti
eru vegir færir.
Hvassviðri víða á landinu
Á morgun verður suölæg átt með rigningu vestanlands, 18-23 m/s.
Annars staöar verða um 13-20 m/s en hvassari á stöku staö norðan og
austan Vatnajökuls. Rigning suöaustanlands og á Austfjöröum.
Sunnudagiir
/indur: \
13-18 m/« 3 ' , }
Hiti 3® til 8° W
Su&læg átt, 13-18 m/s
og rigning sunnan- og
vestanlands en rlgnlng
meö köflum nor&anlands.
Snýst í SV 8-10 meö
skúrum vestanlands.
Su&vestanátt og kólnandi
veöur. Skúrir e&a slydduél
um sunnan- og vestanvert
landlö en annars
úrkomulitið.
Fremur hæg breytlleg eða
SA-læg átt. Léttskýjaö
nor&an- og austanlands en
annars skýjaö með köflum.
Hltl 1 til 4 stlg sunnan- og
vestanlands.
tmxm
AKUREYRI skýjaö 6
BERGSSTADIR skýjaö 6
BOLUNGARVÍK rigning 7
EGILSSTAÐIR 6
KIRKJUBÆJARKL. rigning 4
KEFLAVÍK rigning 7
RAUFARHÖFN alskýjað 4
REYKJAVÍK súld 7
STÓRHÖFÐI úrkoma 6
BERGEN hálfskýjaö 1
HELSINKI snjókoma -6
KAUPMANNAHOFN léttskýjaö 1
OSLO Oslo þoka -3
STOKKHÓLMUR Stokkhólmur -3
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 5
ÞRÁNDHEIMUR rigning 3
ALGARVE hálfskýjaö 10
AMSTERDAM skýjaö -1
BARCELONA
BERLIN þokumóöa -1
CHICAGO þokumóða -2
DUBLIN skýjaö 5
HAUFAX snjóél -8
FRANKFURT heiöskírt -2
HAMBORG hrímþoka -2
JAN MAYEN alskýjaö 5
LONDON skýjaö 5
LÚXEMBORG skýjaö -1
MALLORCA léttskýjað 6
MONTREAL alskýjaö -8
NARSSARSSUAQ skýjaö -7
NEW YORK -heiöskírt 2
ORLANDO hálfskýjaö 31
PARÍS alskýjaö 6
VÍN léttskýjaö -2
WASHINGTON skýjaö 2
WINNIPEG heiöskírt -14
BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VÉDURSTOFU ISLANDS