Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Side 13
13 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 r>v Á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskólabíói í gærkvöld voru leikin tvö verk. Hið fyrra var fyrsta sinfónía Tchaikovskys, æskuverk sem tónskáldið átti í mesta basli með. Það heyrist glögglega, því þrátt fyrir skáldlega úrvinnslu og glæsilega hljómsveitarradd- setningu er fátt um bitastæðar grunnhugmyndir og er útkom- an einkennilega andlaus. Stefin eru gleymd um leið og þau hijóðna, og þó mikil átök eigi sér stað víða í verkinu er manni alveg sama. Samt flutti hijómsveitin það sérlega vel, hver hljóðfærahópur var með allt sitt á hreinu og stjómaði Rico Saccani hljómsveitinni af afslöppuðu öryggi og látleysi. Þaö dugði bara ekki til. Hitt verkið á efnisskránni, sem allir voru að bíða eftir, var flutt eftir hlé. Það var þriðji pí- anókonsert Rachmaninoffs, einn erfiðasti konsert tónbók- menntanna. Flestir frægustu píanóleikarar tuttugustu aldar- innar hafa spreytt sig á honum og hann er til á ótal plötum og geisladiskum. Óhætt er að full- yrða að hér á landi hafi hann aldrei verið eins glæsilega fluttur og í gærkvöld; einleik- arinn, hinn 24 ára gamli Denis Matsoujev, bókstaflega tók hann í nefið. Hann lék sér að erfiðustu hlutum konsertsins; t.d. hefur undir- ritaður sjaldan heyrt hið ógnarerfiða hlaup, sem myndar brú á miiii annars og þriðja kafla, spilað eins vel. Sama má segja um kadensuna í lok fyrsta kaflans, enda þoldi flygilræfiilinn í Háskólabíói varla átökin og var oröinn falskur strax á eftir. Glæpsamlegur hraði Lokaþáttur konsertsins, þar sem rödd pí- anósins er nánast óspilandi, var einnig ótrú- legur. Hraðinn var allt að því glæpsamlegur, DVJHYND HARI Denis Matsouev píanóleikari „Lokahnykkurinn var eins og í hápunkti einhvers spennutryllis sem gerist út ígeimnum; ööruvísi er ekki hægt aö iýsa svona upplifun. Ljóst er aö þeir sem ekki voru á tónleikunum misstu af mikiu, viö hin æptum og öskruöum á eftir og hljómsveitarstjórinn kraup á kné. “ töluvert meiri en hjá flestum öðmm, og samt náði Matsoujev áreynslulaust að galdra fram magnaða stemningu. Lokahnykkurinn var eins og í hápunkti einhvers spennutryllis sem Tónlist gerist út í geimnum; öðmvísi er ekki hægt að lýsa svona upplifun. Ljóst er að þeir sem ekki voru á tónleikunum misstu af miklu, við hin æptum og öskruðum á eftir, og hljómsveitar- stjórinn kraup á kné. Matsoujev lék tvö aukalög, hið fyrra var etýða ópus 8 nr. 12 eftir skólabróður Rachman- inoffs, Alexander Scriabin, og hitt var djassim- próvisasjón sem var einstaklega skemmtileg. Hún var líka athyglisverð, því djassinn hafði mikil áhrif á sum tónskáld tuttugustu aldar- innar og eitt og annað eftir Rachmaninoff, þar á meðal Paganini-rapsódían og fjórði konsert- inn, bera þess glögglega merki. I stuttu máli voru þetta æðisgengnir tónleikar og þeir bestu sem Sinfóníuhljómsveit íslands hefur haldið í háa herrans tíð. Jónas Sen Brjálaður píanókonsert Sjónvarp Sagan frá sjónarhóli alþýðunnar Þættimir „20. öldin - Brot úr sögu þjóðar" eru liklega eitt viðamesta og metnaðarfyllsta sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið hér á landi. Það er meira en rétt að segja það að gera tíu 40 mínútna þætti sem rekja sögu þjóðarinnar á 20 öld. Þeir bera líka með sér að að baki þeim liggur mikil vinna, jafnt heimildaleit sem og úr- vinnsla myndefnis. f fyrstu þáttunum eru líklega brot úr öllu íslensku kvik- myndaefni sem aðgengilegt er frá þeim tíma en þegar líður nær okkar tíma eykst framboðið og þá verður valið erf- iðara fyrir umsjónarmann þáttanna. Á móti kemur að til em kvikmyndir frá næstum öllum þeim atburðum sem fjallað er um í síðustu þáttumnn og æ sjaldnar þarf að grípa til ljósmynda til uppfyllingar. Hjónabandsvandrsði Guðmundar Markmið þáttanna er að fjalla um sögu þjóðarinnar út frá sjónarhóli al- þýðumanna og fá fram viðhorf þeirra sem upplifðu atburðina í viðtölunum sem skotið er inn á milli kvikmynda- bútanna. Þetta er sama hugmynd og notuð var i þáttunum „Peoples Cent- ury“ sem sýndir vora fyrir nokkra og vora afar vel heppnaðir. Ekki tókst eins vel upp í „20. öldinni". Of mörg viðtalanna vora næsta máttlaus og innihaldsrýr og stundum i takmörk- uðu samhengi við það sem verið var að fjalla um. Ekki er gott að greina ástæðuna, ef tU vill náðist ekki i fólk sem var nógu nálægt hringiðu atburö- anna tU að hafa frá einhverju bitastæðu að segja. í þáttunum um fyrri hluta aldarinnar kom það líka fyrir að myndefnið réð því sem fjahað var um. Versta dæmið var aUlangt myndskeið er sýndi starfsemi Listmunahússins sem Guðmund- ur frá Miðdal rak en á meðan var sagt frá hjóna- bandsvandræðum hans. Það er fuU ástæða tU að segja frá þeirri starfsemi sem rekin var í List- munahúsinu en það er ekki nokkur ástæða tU að Ur þáttunum 20. öldin - Brot úr sögu þjóðar Tókst bærilega framan af en síöasti þátturinn var eins og hreyfimyndaútgáfa af Séö og heyrt kjamsa á kjaftasögum. um einkalíf Guðmundar og eiginkvenna hans. Hlaupiö fram og aftur í tíma Ekki varð höfundur þessara orða var við margar timaskekkjm í þáttunum en þó er vert að minnast á eitt af því tagi. í umfjöUun um land- helgisdeUu íslendinga og Breta 1958-61 varð ekki betur séö en sýndar væra myndir frá árekstram breskra herskipa og íslenskra varðskipa annað hvort í 50 eða 200 mílna deUunni. Þarna hefur skortur á myndefni lUdega orðið til þess að þátta- gerðarmenn krítuðu heldur liðugt. hugmynd þáttanna var að sýna brot úr sögu þjóðarinnar frá sjónarþóli alþýðunnar og ekki verðm annað sagt en það hafi tekist bærUega framan af. í síðasta þættinum brást þáttargerðar- mönnum þó heldur betur bogalistin því á köflum varð hann einna líkastm hreyfi- myndaútgáfa af „Séð og heyrt“ þar sem rakin vora ævintýri og einkamál „fræga, faUega og fma“ fólks- ins og það elt aUa leið inn í stofu. Það var líka tU vansa einkum er leið á þáttaröðina hvernig hlaupið var fram og aftur í tíma innan þáttanna, stundum jafnvel án tímasetningar. SkU- merkUegra hefði ver- ið raða efninu upp eft- ir þemum og í réttri timaröð. í heUdina verður þó ekki annað sagt en vel hafi til tekist og ekki er að efa að þættimir eiga eftir að vera notaðir bæöi í kennslu á ýmsum skólastigum sem og af áhugamönnum um ís- landssögu. Það liggur hins vegar á borðinu að mjög svo þokkalegir þættir hefðu orðið mun betri ef Jón ÁrsæU hefði ekki bara haft sagnfræð- inga sér tU ráðuneytis heldur einn eða tvo með sér við þáttagerðina frá upphafi. Guðmundur J. Guðmundsson: 20. öldin - Brot úr sögu þjóöar Handrit: Jön Ársæll Þóröarson. Framlelöandl: Björn Br. Björnsson ___________________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Kýrhom, bein og tennur Á morgun verð- ur opnuð í Hafnar- borg sýning á verkum fmnsku listakonunnár Kaisu Koivisto. Sýningin ber yfir- skriftina „ViUt“ og byggir á vangaveltmn listakonunnar á sambandi manna og húsdýra. Hluti sýningarinnar fjallar um rannsóknir hennar á því hvar kúabú voru áöm í New York-borg en í summn borgarhlut- um þar voru kýr haldnar fram á síðustu áratugi tuttugustu aldar. Á sýningunni er að fmna ijósmynda- verk, höggmyndir og innsetningar. Koi- visto notar ýmsan efhivið í verk sín, svo sem kýrhom, bein og tennm, sem hún finnm í slátmhúsum og á flóamörkuð- um. Við opnun sýningarinnar verðm flutt fimmtán mínútna langt dansverk eftir Veera Suvalo Grimberg. Höfundminn flytm sjálfur verkið. Sýningin stendm tU 5. febrúar og er opin aUa daga nema þriðjudaga frá kl. 11-17. Nemendaópera í Söngskólanum Á sunnudaginn kl. 16 verðm nem- endaóperan Gondólagæjamir frumsýnd í Söng- skólanum í Reykja- vík. Söngvarm eru allir nemendm við ópemdeUd skólans. „24 nýstimi á hraðri leið upp á stjömu- himininn,“ eins og það er orðað í fréttatilkynningu. The Gondoliers, eða Gondólagæjamir, er ein af 14 gamanóperum tvístimisins GUberts og Sulhvans. Sagan gerist 1750, sögusviðið er lítiö torg í Feneyjum: Fóst- urbræðumir og gondólagæjamir Marco og Giuseppe era í þann veginn að festa ráð sitt. TU borgarinnar kemm spænsk- m hertogi, ásamt konu sinni og dóttm, CasUdu, og era þau komin tU að ganga frá gjaforðinu. Leikstjóri er Ólafúr Guðmundsson, æf- ingastjóri og píanóleikari er Helga Lauf- ey Finnbogadóttir og tónlistarstjóri Garð- ar Cortes. Frumsýning verðm, sem áðm segir, á sunnudaginn kl. 16. og önnur sýning kl. 20 sama dag 1 tónleikasal Söngskólans - Smára v/Veghúsastíg. Miðasala er við innganginn og tekið er við pöntunum í Söngskólanum í síma 552 7366. Nýstárlegar greinar Nýrrar sögu Ný saga, tímarit Sögufélagsins er komið út og geymir að vanda margar forvitnUegar grem- ar. Steinunn Jó- hannesdóttir segir frá ferð sinni tU Al- sír, en þar leitaði hún heimUda um þá íslendmga sem var rænt í Tyrkjaráninu. Miðaidasaga er á dagskrá í grein Torfa Tuliniusar um valdasókn Snorra Stmlu- sonar og bræðra hans. Þar beitir hann kenningum franska félagsfræðingsins Pi- erre Bomdieu um þijár tegundir auð- magns tU að útskýra völd Stmlunga á 13. öld. Fleira nýstárlegt er að finna í heftinu. Rósa Magnúsdóttir fjallar um lítt kann- aða hlið kalda striðsins í greinúmi Menningarstríð í uppsiglingu. Rósa segir frá þeirri athygli sem íslendingar fengu hjá risaveldunum á sjötta áratugnum sem lýsti sér í keppni um að senda hing- að frábæra listamenn sem efldu menn- ingarlíf þjóðarinnar. Gunnar Karlsson skrUar um stórvirk- ið Kristni á íslandi frá ýmsum hliðum og nefnir greinina Verkið sem tókst að vinna. ÞorleUúr Friðriksson tekm og tU athugunar táknmál í fánum verkalýðs- hreyfingarinnar hér á landi og leitar að fyrirmyndum erlendis. Ritstjóm Sögu og Nýrrar sögu skipa Guðmundm Jónsson, Guðmundm J. Guðmundsson og Sigurðm Ragnarsson. Ný saga fæst á afgreiðslu Sögufélagsms í Fischersundi og í nokkrum bókabúðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.