Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Page 20
40 ____________________________FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 Tilvera I>'V Hringadróttinssaga í þremur hlutum: Vekur strax áhuga á erlendum vett- vangi. Ikíngut til Berlínar íslenska kvikmyndin Ikíngut eftir Gísla Snæ Erlingsson hefur verið val- in til þátttöku á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Berlín 7.-18. febrúar 2001. Ikíngut var valin úr hópi yfir 200 kvikmynda hvaðanæva úr heiminum. Kvikmyndahátíðin i Berlín er í flokki virtustu A-hátíða ársins, og skipar sér í flokk með kvikmyndahátíðunum í Cannes og Feneyjum. Myndin keppir í flokki barnamynda, Kinderfilmfest, og er það eina keppnin á því sviði sem er hluti af A-hátíö. Tvær dómnefndir starfa á hátíð- inni; barnadómnefnd, skipuð 11 stúlk- um og drengjum á aldrinum 11-14 ára, veita uppáhaldsmyndinni sinni „Kristal björninn" ; og alþjóöleg dóm- nefnd fagfólks veitir verðlaun fyrir bestu kvikmynd og bestu stuttmynd. Kinderfilmfest var sótt af sautján þúsund manns í fyrra, fjöldi barna sækir sýningarnar og líflegar umræð- ur við leikstjóra og aðra aðstandendur myndanna fara fram eftir sýningar. Enn fremur er hátíðin sótt af fjölda dreifingaraðila og blaðamanna. Kind- erfilmfest hefur verið hiuti af Alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Berlín síð- an 1978 og undir verndarvæng UNICEF síðan 1982. Opnunarmynd í Berlín: Par sem sagan er aðalstjarnan Mesta skáldverk tuttugustu aldar- innar, Hringadróttinssaga (Lord of the Rings) er um það bil að verða, ef að líkum lætur, eitt stærsta kvik- myndaverk 21. aldarinnar. Skáld- verkið sem J.R.R. Tolkien samdi upphaflega fyrir börn sín hefur heillað mannkynið i áratugi og kom út á íslensku í þremur bindum. Sagan er hrifandi sagnalist, ævin- týri um örlög heimsins og baráttuna milli góös og ills og fjallar um hinn unga og djarfa Fróða sem fær það hlutverk að fara mikla hættuför með Hringinn eina til eldfjallsins og til þess nýtur hann hjálpar margra góðra vina. Þar eru frægastir Gandálfur og Stígur. Því fylgir ábyrgð og ógn að varðveita Hring- inn, en honum verður ekki eytt nema í einum eldgíg. Kvikmyndin verður einnig í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn verð- ur frumsýndur 19. desember. í dag veröur á Netinu hleypt í loftið fyrsta sýnishominu úr þeirri mynd og er það byrjunin á mikilli markaðsher- ferð sem New Line Cinema áætlar á þessu ári. Kvikmyndimar þrjár sem heita Föruneyti Hringsins (The Fell- owship of the Ring), Tveggjaturna tal (The Two Towers) og Hilmir snýr heim (The Retum of the King) voru allar teknar í einu og er tökum ný- lokið á Nýja-Sjálandi og tóku þær rúmt ár. Byijað var að kvikmynda úti í október 1999 og þeim lauk ekki fyrr en í nóvember á síðast ári. Mik- il vinna er nú fram undan hjá tæknimönnum og listamönnum við að koma myndunum saman og er aðaláherslan að sinni lögð á fyrsta hlutann. Kostnaðar við allar mynd- irnar þrjár er áætlaður 190 milljónir dollara. Búast má þó við að sá kostn- aður eigi eftir að hækka áður en upp er staðið. Sá sem á mestan heiður af því að koma þessu stórvirki á hvíta tjaldið er nýsjálenski leikstjórinn Peter Jackson. Hann leikstýrir og skrifar handritið ásamt fleirum og hefur leitt verkið frá hugmyndastigi og Elijah Wood, Billy Boyd, Sean Astin og Dominic Monaghan í hlutverkum sínum í Hringadróttinssögu. fylgir því eftir þar til síðasti hlutinn hefur verið frumsýndur árið 2003. Jackson, sem veröur fertugur á þessu ári, hefur aldrei ráðist í gerð slíks stórvirkis. Hans þekktustu kvikmyndir eru Heavenly Creat- ures, þar sem Kate Winslet sást í fyrsta sinn, og draugakómedían The Frighteners. Stór hópur þekktra leikara fer með hlutverk í mynd- inni. Eliajh Wood fer með hlutverk Fróða og Ian McKellan leikur Gandálf. I öðrum hlutverkum eru Ian Holm, Liv Tyler, Sean Bean, Cate Blanchett, Christopher Lee, Sean Astin, Billy Boyd, Brad Dourif, Viggo Mortensen, John Rhys-Davis og Hugo Wea- ving. Þeir sem áhuga hafa á að fylgjast með gangi mála geta farið inn á netslóðina www.lor- doftherings.net þar sem lofað er straumi af upplýsingum um gerð kvikmyndarinnar, séð sýn- Leikstjórinn á tökustað ishom og myndir og hvað fram Á myndinni er leikstjórinn og handritshöfund- undan er. urinn Peter Jackson á tökustaö á Nýja-Sjá- -HK landi. Óvinur við hliðin Meistari í sjálfsvarnarlist Chow Yun Fat í hlutverki Li MU Bai. Leltar að týndu sverði Michelle Yeoh í hlutverki Yu Shui Lien. Skríðandi tígur, dreki í leynum Fram undan er Kvikmyndahátíðin í Berlín. Opnunarmynd hátíðarinnar er nýjasta kvikmynd Jean-Jacques Annaud, Enemy at the Gates. Annaud hefur verið lengi með þessa mynd í smíðum sem er kannski ekki óvana- legt þegar hann á í hlut. Myndin, sem gerist í seinni heimsstyrjöldinni, seg- ir frá rússneskum skæruliða, Vasili Zaitsev, sem fer út á kvöldin í Stalín- grad og skýtur þýska hermenn. Mikl- ar sögur fara af þessari skyttu og er sérstakur njósnari frá Gestapo, Konig, sendur frá Berlín til Stalíngrad til að hafa uppi á Zaitsev og drepa hann. Snýst baráttan upp í eltingaleik á milli þessara tveggja manna um það hvor veröur á undan að drepa hinn. Inn í söguna er svo sett barátta Zait- sevs um ástir Taniu, sem einnig er í andspymuhreyfingunni, en hann er ekki einn um að reyna að ná ástum hennar. í helstu hlutverkum eru Jude Law, Ed Harris, Joseph Fiennes, Rachel Weisz, Ron Perlman og Bob Hoskins, sem leikur Khrústsjov. Enemy at the Gates er sögð dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið i Evr- ópu af evrópskum framleiðendum en hún kostaði 85 milljónir dollara. Eftir að Crouching Tiger, Hidden Dragon (Skríðandi tígur, dreki í leyn- um) var sýnd á Kvikmyndahátíð í Reykjavík á síðasta hausti hefur hún verið að fara sigurfór um hinn vest- ræna heim og þegar eru gagnrýnend- ur farnir að velja hana bestu kvik- mynd ársins. Þá hefur aðsókn á hana í Bandaríkjunum verið með eindæm- um þegar haft er í huga að myndin er á kínversku og textuð. Hefur hún ver- ið sú kvikmynd í nokkrar vikur sem er með mest á bak við sig í dollurum þegar miðaö er við í hvað mörgum kvikmyndasölum hún er sýnd. Víst þykir að Skríðandi tígur, dreki í leyn- um verði orðuð við óskarsverðlaunin og er hún heitasta myndin í flokki er- lendra kvikmynda. Þar sem margir urðu af myndinni á Kvikmyndahátíð í Reykjavík og vegna fjölda áskorana verða I dag teknar upp sýningar á henni í Regnboganum. Skríðandi tígur, dreki í leynum er episk ástarsaga sem gerist að fomu í Kína. Önnur aðalpersónan er Li Mu Bai (Chow Yun Fat), sem talinn er mestur allra í sjálfsvamarlist. 1 upp- hafi sjáum við hann í heimsókn hjá Yu Shu Lien (Michelle Yeoh), sem hef- ur þekkt hann lengi, en það er ekki fyrr en nú að ástin tendrast á milli þeirra. Li, sem er búinn að fá nóg af stríði, er ákveðinn í að snúa við blað- inu og gerast boðberi friðar. I hans vörslu er sverð eitt, sem þykir það merkilegasta í Kína. Þegar Shu Lien þarf að fara tO Peking til að hitta læri- fóður Li í bardagalistinni biður hann hana að taka sverðið og færa það Sir Te, sem var vinur fóðurs Li, og biðja hann að varðveita sverðið. Sverðið er ekki fyrr komið í vörslu Sir Te en því er stolið. Yfirvöld þykjast viss um hver hefur stolið því, en Shu Lien hef- ur sínar grunsemdir og þegar Li kem- ur til Peking verður hann að leggja framtíðaráform sín á hilluna að sinni... Leikstjóri myndarinnar er Ang Lee (Sense and Sensibility, The Ice Storm) og segir hann um mynd sína: „Hún er nokkurs konar draumur um Kína, Kína sem sjálfsagt hefur aldrei verið til nema í ímynduðum heimi sem ég skapaði þegar ég var að alast upp á Taívan. 1 þessum dagdraumum min- um var ég undir áhrifum frá kvik- myndum um bardagalist okkar og rómantískum skáldsögum sem ég las i stað þess að gera heimaverkefni min í skólanum. Að þessir dagdraumar mínir skuli nú birtast í Skríðandi tíg- ur, dreki í leynum, kvikmynd sem ég gat gert á meginlandi Kina, er mikil hamingja fyrir mig.“ -HK Umboðsmaður Umboösmann vantar fyrir Hellissand og Rif. ^►| Upplýsingar gefur Anita í síma 550 5741.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.